Fréttablaðið - 07.10.2011, Page 17
FÖSTUDAGUR 7. október 2011 17
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Það er ekki langt til Patreks-fjarðar, ekki ef farið er frá
Patreksfirði. Jörðin er kúla. Allir
staðir á yfirborðinu eru stutt
frá sjálfum sér en mislangt frá
öðrum. En þegar ein mikilvæg-
asta tala sem notuð er til að lýsa
bæjum er fjarlægð þeirra frá ein-
hverjum öðrum bæ segir það sína
sögu.
Það er stundum eftirsjá eftir
þeim peningum sem fara í vega-
framkvæmdir úti á landi. Ekki
vegna þess að þeirra sé aldrei
þörf eða að krafan um að komast í
næsta bæ á malbikuðu undirlagi,
og án þess að fara yfir heiði, sé
fáránleg. Eftirsjáin stafar síðan
alls ekki af því að fénu væri betur
varið í að stytta fjarlægðir milli
hverfa Reykjavíkur. Nei, eftirsjá-
in stafar af því að landsbyggðin
gæti nýtt peningana betur með
öðrum hætti. Sú mikla áhersla
sem lögð er á samgöngumál í
íslenskri pólitík er hinum dreifðu
byggðum skaðleg. Væri ég íbúi á
landsbyggðinni hefði ég margfalt
meiri áhyggjur af meðaltölum
samræmdra prófa en fjarlægðum
og færð.
Önnur deild
Nemendur utan höfuðborgar-
svæðisins koma ítrekað verr út úr
PISA-könnunum og samræmdum
könnunarprófum. Í samræmdu
prófununum í ensku í fyrra voru
nemendur af suðvesturhorninu
með meðaleinkunn nálægt 7,3 en
hinir með í kringum 6,7. Munur-
inn var svipaður í stærðfræði en
minna munaði í íslensku. Þetta er
áhyggjuefni. Menntun hefur áhrif
á afar marga þætti í lífi fólks.
Þessar niðurstöður þýða sem sagt
meðal annars að börn sem fæðast
á landsbyggðinni geta átt von á
því að fá verri vinnu, lægri laun
og jafnvel að lifa skemur en börn
af höfuðborgarsvæðinu. Það er
ekki gott.
Bara eitt dæmi um hverjar
áherslur í pólitíkinni eru: Vest-
mannaeyjar hafa á undanförnum
árum skorað lágt þegar kemur
að árangri barna í samræmdum
könnunum. Hvað höfum við samt
heyrt mikið af því samanborið við
þá gnótt frétta af því hvert Herj-
ólfur sé að fara að sigla næstu
daga? Væri ég Eyjamaður teldi
ég margfalt brýnna að ræða við
menntamálaráðherra um aukin
framlög til grunnskóla í Eyjum
heldur en ráðherra samgöngu-
mála um höfn eða göng sem koma
aldrei.
Stutt frá einhverju betra?
Auðvitað skipta góðar samgöngur
máli. En þegar góðar samgöngur
eru orðnar sterkasti kostur staðar
er í raun verið að segja: „Staður-
inn sjálfur er ekkert spes en það
má auðveldlega komast frá honum
í annan stað sem er skárri.“ Og þá
fara menn að spyrja sig: „Væri þá
ekki einfaldara að flytja bara á
þann stað?“
Þeirri spurningu hafa tugþús-
undir Íslendinga þegar svarað.
Hefði byggðamynstrið haldist
óbreytt frá 1911 til 2011 og fólki
fjölgað jafnt og þétt alls staðar á
landinu, byggju í dag um 60 þús-
und manns á höfuðborgarsvæðinu.
Á Vestfjörðum byggju 50 þúsund
íbúar. Raunveruleikann þekkja
allir. Hafi verið rekin einhver
byggðastefna hér á landi er þetta
sá ávöxtur sem hún hefur borið.
Keppt um hvað?
Þetta er auðvitað spurning um
hverju menn eiga að keppa í.
Augljóslega getur enginn ógnað
Reykjavík í keppninni „nálægð
við Reykjavík“. En menn eiga að
geta keppt í gæðum menntunar og
þurfa auðvitað að gera það ef ein-
hver von á að vera til að fólk flytj-
ist í einhverjum mæli aftur út á
land. Flestir foreldrar geta svarað
því hvort þeir væru líklegir til
að flytja búferlum ef þau vissu
að grunnskólinn á nýja staðnum
væri „frekar slappur“.
Lausnirnar við vanda skóla-
kerfisins á landsbyggðinni eru
auðvitað ekkert flóknar. Það er
erfiðara fyrir þá skóla að manna
stöður sínar. Fyrst það er erfiðara
að manna skóla á sumum stöðum
ætti að borga fólki meira fyrir að
kenna á þeim stöðum. Heimild
fyrir slíkri sérlausn og fjármögn-
un hennar ætti að vera baráttu-
mál allra þeirra stjórnmála-
manna sem sannarlega láta sig
hag landsbyggðarinnar varða.
Skólakerfið á nefnilega að
tryggja jafnan rétt nemenda til
jafngóðs náms, en ekki jafnan
rétt kennara til jafnhárra launa
eins og sumir virðast halda. Það
er svo önnur spurning hvort ein-
hver er líklegur til að þora í þann
slag. En slagurinn er nauðsyn-
legur. Án góðra grunnskóla mun
landsbyggðinni halda áfram að
blæða út.
Óbyggðastefna
Hérlendis skemmast tvisvar sinnum fleiri tennur í 12
ára börnum en hjá jafnöldrum
þeirra á hinum Norðurlönd-
unum og skemmdirnar verða
stærri hérlendis því að ekkert
skipulagt eftirlit er með tönn-
um barna og unglinga gagn-
stætt því sem er hjá nágrönnum
okkar.
Á öllum Norðurlöndum nema
hérlendis sér hið opinbera um
eftirlit og viðgerðir á sjúk-
dómum í munni barna og ung-
linga fram undir 20 ára aldur
og greiðir kostnaðinn að fullu.
Hérlendis er aftur á móti ekkert
innköllunarkerfi á vegum hins
opinbera og hið opinbera greiðir
aðeins lítinn hluta kostnaðarins.
Afleiðingin er sú að um 40%
barna fóru ekki í reglulegt eftir-
lit með tönnum sínum hérlendis
árið 2010 og skemmdirnar urðu
því fleiri og stærri. Vitað er
um flest þeirra atriða sem geta
skemmt tennur og hægt er að
fyrirbyggja þau. Því er mikil-
vægt, ekki síst fyrir foreldra,
að vanda fæðuval, matarvenjur
og tannhreinsun. Einnig verða
tannlæknar og aðstoðarfólk
þeirra að vera dugleg að benda
á hætturnar. Flestir vita að
sykur, sælgæti og gosdrykkir
geta aukið á hættuna á lélegu
ástandi tanna og slímhúðar
í munni, sérstaklega sé þess
neytt oft og í miklum mæli.
Hver Íslendingur neytir meir
en 50 kg af sykri á ári og drekk-
ur meira en eina gosflösku af
gosdrykkjum á hverjum degi
sem hver og ein inniheldur 20
sykurmola.
Þegar sykurinn leysist upp í
munninum breytist hann í sýru
sem leysir upp yfirborð tann-
anna og skaðar slímhúðina. Sé
stöðugt verið að narta í sætindi
liggja tennurnar og umhverfi
þeirra stöðugt í sýrubaði og
leysast hreinlega upp.
Hættulegast er að byrja dag-
inn með sætindum því að þá eru
tennurnar tiltölulega hreinar og
óvarðar. Er því óskiljanlegt að
félagasamtök skuli árlega afla
fjár til góðgerðastarfsemi með
því að selja sælgæti og ætla það
til neyslu fyrir börn og unglinga
fyrst á morgnana. Einnig verð-
ur að teljast óæskilegt að stað-
setja sælgæti hjá greiðsluköss-
um í matvörubúðum, sem endar
oftast með að foreldrar kaupa
sér frið með sælgæti á meðan
þeim veitir ekki af fullri athygli
vegna innkaupanna.
Okkur tókst fyrir nokkrum
árum að fækka tannskemmdum
um 75% á 15 ára tímabili, svo að
við getum ráðið við núverandi
lélegt ástand með sameiginlegu
átaki og séð jafnframt um að
tennur barna og unglinga okkar
fái nauðsynlegt eftirlit og með-
höndlun, það er góð fjárfesting.
Grá skýrsla um
tannheilsu Íslendinga
Heilbrigðismál
Magnús R.
Gíslason
fyrrverandi
yfirtannlæknir
Okkar hlutverk
er að dreifa
fjölpósti, blöðum, tímaritum, bréfum og vörum.
Póstdreifing - Suðurhraun 1 - 210 Garðabær - Sími 585 8300 - www.postdreifing.is
Heyrðu í okkur næst þegar þú þarft á öruggri
og hagstæðri dreifingarþjónustu að halda.