Fréttablaðið - 29.10.2011, Blaðsíða 85
LAUGARDAGUR 29. október 2011 57
3
fyrir
2
af Blue Lagoon
andlitsvörum*
Tilboðið gildir
til og með 31. október
í verslunum
Bláa Lónsins á baðstað
og að Laugavegi 15
*ódýrasta varan fylgir frítt með
Gildir ekki með öðrum tilboðum www.bluelagoon.is
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Hrekkjavökuhátíðin verður um helgina.
Hátíðin, sem snerist einu sinni um bless-
uð börnin, virðist hafa breyst í afsök-
un fyrir fólk að klæða sig druslulega.
Raunveruleikaþáttastjarnan Nicole
Richie hefur fengið nóg af því.
„Stelpur, við skulum allar að heita
því að klæða okkur ekki druslulega á
hrekkjavökunni,“ sagði hún á Facebook-
síðu sinni í vikunni. Sjálf hefur hún
klæðst sómasamlega á hrekkjavökum
síðustu ára, en hefur þó gerst sek um að
sýna aðeins of mikið af holdi í fortíðinni.
Nú virðist hún hafa snúið við blaðinu.
Richie hvetur stúlk-
ur til að hylja holdið
PRÚÐ STÚLKA Nicole Richie er
prúð í dag, en á villta fortíð.
Leikkonan Melissa Joan Hart,
sem gerði garðinn frægan sem
táningsnornin Sabrina, hefur
verið kærð tvisvar í þessum
mánuði.
Fyrsta kæran kom frá fyrr-
verandi starfsmanni sælgætis-
verslunar Joan Hart. Kæran
snerist um ólöglegan brottrekst-
ur og kynþáttaníð. Fyrrverandi
umboðsmaður hennar fylgdi
fyrri kærunni eftir með því að
kæra hana fyrir samningsbrot.
Í báðum kærunum er farið
fram á háar skaðabætur, svo
nornin fyrrverandi virðist ekki í
góðum málum.
Tánings-
nornin kærð
VESEN Melissa Joan Hart var kærð
Leikkonan Megan Fox þykir vera
ein fallegasta kona heims í dag.
Leikkonan segist þó ekki alltaf
hafa verið svo snoppufríð.
Í viðtali við InStyle segist Fox
vera sambrýnd og að hún þurfi
því að plokka sig reglulega. „Ég
fæddist sambrýnd! Ég byrjaði
að plokka augabrúnirnar þegar
ég var níu ára og hef haldið því
áfram síðan,“ sagði leikkon-
an sem er meðal annars andlit
Armani-nærfatalínunnar.
Plokkaði sig
níu ára
PLOKKAR SIG Megan Fox segist hafa
verið sambrýnd þegar hún fæddist.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikstjórinn Sam Mendes virðist vera
að safna góðu liði fyrir 23. Bond-mynd-
ina, sem samkvæmt síðustu fréttum á að
heita Skyfall. Þegar hefur verið greint
frá því að Javier Bardem muni leika
aðalskúrkinn og nú hefur verið gengið
frá samningum við stórleikaranna
Albert Finney og Ralph Fiennes. Judi
Dench verður sem fyrr í hlutverki M.
Þetta hlutverkaval þykir vera til
marks um að síðasta Bond-mynd Dani-
els Craig verði í alvarlegri kantinum
og sumir vefmiðlar hafa jafnvel gengið
svo langt að Mendes renni hýru auga til
Óskarsverðlauna. Það yrði þá í fyrsta
skipti sem James Bond kæmi til greina
til slíkra verðlauna enda verið höfuðvígi
hasarmynda.
Samkvæmt einum heimildarmann-
inum verður hasarnum hins vegar
haldið í lágmarki og harðir Bond-
aðdáendur eru sagðir verulega
áhyggjufullir yfir þeirri þróun. For-
svarsmenn Bond hafa hins vegar
lýst því yfir að þeir þurfi ekki að
hafa neinar áhyggjur, öllu verði
tjaldað til enda eigi leyniþjón-
ustumaðurinn hálfrar aldar
afmæli á næsta ári þegar kvik-
myndin verður frumsýnd.
Stórleikarar til liðs við Bond
STÓRSKOTALIÐ Albert Finney og
Ralph Fiennes hafa gengið til liðs við
Bond-kvikmynd númer 23. Daniel
Craig er leyniþjónustumaðurinn ráða-
góði og Javier Bardem vondi karlinn.