Fréttablaðið - 02.11.2011, Qupperneq 4
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR4
EFNAHAGSMÁL Árni Páll Árnason,
efnahags- og viðskiptaráðherra,
segir að auka þurfi tapsáhættu
fjármálafyrirtækja. Ráðherrann
talaði á haustráðstefnu KPMG,
þar sem sjónum var beint að
eftirliti.
Árni Páll sagði að tapsáhættu
fjármálafyrirtækja hefðu hingað
til verið settar þröngar skorður.
Íslenskt réttarumhverfi hefði
takmarkað niðurfærslu krafna
án gjaldþrotameðferðar að miklu
leyti og einstaklingar hefðu verið
settir undir mannfjandsamlega
gjaldþrotalöggjöf. „Þar með
hefur verið skapaður sá rammi að
fjármálafyrirtækjum væri gert
mjög auðvelt að sækja kröfur á
hendur jafnt einstaklingum og
fyrir tækjum.“
Ráðherrann sagði að undanfar-
in misseri hefði þessari umgjörð
verið breytt í grundvallaratriðum.
„Við verðum að venja okkur við
það sem þjóð að afskriftir krafna
eiga að vera algengari í framtíð-
inni og tapsáhætta fjármálafyrir-
tækja meiri. Það er besta leiðin
til að verja almenning fyrir áföll-
um af starfsemi fjármálafyrir-
tækja, að auka tapsáhættu þeirra
hvers um sig af eigin starfsemi.
Þannig hvetjum við best til var-
kárni í rekstri þeirra og að þau
axli sína samfélagslegu ábyrgð í
rekstrinum.“
Árni Páll sagði ljóst að ekki
væri hægt að hafa stjórn á fjár-
málamörkuðum í gegnum eftir-
lit. Takmörk séu fyrir því hverju
hægt er að ná fram með reglum
og eftirliti.
„Við getum aldrei vænst þess að
eyða áhættu úr fjármálakerfinu
með því einu að hafa nógu marga í
vinnu hjá opinberum eftirlitsstofn-
unum. Það er alveg sama hvað þeir
láta sér detta í hug að byrgja marga
brunna, nýsköpunargetan í fjár-
málakerfinu er eðli málsins sam-
kvæmt svo mikil að það verða búnir
til fleiri brunnar en eftirlitsaðilar
geta látið sér detta í hug að byrgja.“
Árni Páll segir mikilvægt að
leggja grunninn að heildstæðri
sýn á fjármálamarkaði; hvað
hverjum og einum sé ætlað að gera
og hvernig hægt sé að tryggja að
allir aðilar á markaðnum geti náð
eins miklum árangri og mögulegt
er, veitt þjónustu með eins litlum
tilkostnaði fyrir almenning án
óásættanlegrar áhættu.
kolbeinn@frettabladid.is
Hættan á tapi betri
en of mikið eftirlit
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að auka verði tapsáhættu fjármálafyrir-
tækja og afskriftir krafna þurfi að vera tíðari. Þannig verði almenningur best
varinn áföllum í starfsemi þeirra. Eftirlit hafi ekki stjórn á fjármálamörkuðum.
TÍÐARI AFSKRIFTIR Árni Páll Árnason segir að afskriftir krafna eigi að vera algengari
í framtíðinni og tapsáhætta fjármálafyrirtækja meiri. Þannig verði almenningur best
varinn af áföllum af starfsemi fjármálafyrirtækja.
VARÐ VIÐ ÁSKORUN Yasuhiro Sonoda
segir vatnið frá Fukushima nægilega vel
hreinsað. NORDICPHOTOS/AFP
JAPAN Japanski þingmaður-
inn Yasuhiro Sonoda gerði sér
lítið fyrir og drakk glas fullt af
vatni, sem tekið var úr næsta
nágrenni kjarnorkuversins í
Fukushima, sem eyðilagðist
í náttúruhamförunum fyrr á
árinu.
Hann virtist reyndar tauga-
óstyrkur og hendur hans titruðu
svolítið, en þetta gerði hann
engu að síður vegna áskorunar
frá fréttamönnum. Þeir hvöttu
hann til að sanna með þessu
fullyrðingar sínar um að vatnið
sé hættulaust eftir að það hefur
verið hreinsað.
Hann sagði það að vísu ekki
sanna eitt eða neitt, að drekka
vatnið úr glasinu, heldur eigi
menn að kynna sér gögnin sem
hann hefur lagt fram. - gb
Þingmaður sannar mál sitt:
Drakk vatn frá
kjarnorkuveri
SAMGÖNGUR Mikill áhugi er á
störfum hjá hinu nýja flugfélagi
WOW Air að því er fullyrt er í
tilkynningu frá almannatengli
Skúla Mogen-
sen, eiganda
félagsins.
„Þegar hafa
borist tæplega
600 umsókn-
ir um fjórar
stjórnunar-
stöður og ótil-
greindan fjölda
af sumarstörf-
um flugliða sem
auglýst voru fyrir helgi. Ráðið
verður í nokkra tugi starfa,
bæði stjórnunarstöður og störf
flugliða, en flestar umsóknirnar
sem bárust eru um störf flug-
liða,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur enn fremur fram
að búist sé við að hægt verði að
byrja að bóka flug með WOW
Air á næstu dögum. Áætlunar-
flug hefjist síðan í vor. - gar
Pfaff • Grensásvegi 13 • Sími 414 0400 • www.pfaff.is
facebook.com/pfaff.is
Láttu ljós þitt
skína
í ljósaveislu Pfaff
í dag milli kl. 11–16
GENGIÐ 01.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,5906
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,33 115,89
183,78 184,68
157,85 158,73
21,210 21,334
20,403 20,523
17,437 17,539
1,4745 1,4831
181,06 182,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í Fréttablaðinu í fyrradag var ranglega
sagt að Norvik, sem á meðal annars
Kaupás, hefði gert kyrrstöðusamning
við lánardrottna sína. Hið rétta er að
Straumborg ehf., sem á 22% hlut
í Norvik, gerði slíkan samning sem
gildir til janúar 2013. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LÖGREGLUMÁL Höfuðpaurinn meinti
í umfangsmiklu fíkniefnamáli,
sem kom upp í síðasta mánuði, á að
baki níu refsidóma. Síðast var hann
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrr
á þessu ári fyrir fíkniefnasmygl til
landsins og fleiri sakir. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins er rök-
studdur grunur um að smygltilraun-
in á amfetamíni, kókaíni, e-töflum
og sterum í kílóavís í síðasta mán-
uði, hafi verið að hans undirlagi.
Lögreglan og tollgæslan fundu efnin
falin í gámi sem kom með hollensku
flutningaskipi til Straumsvíkur.
Maðurinn var nú í júní dæmdur
fyrir að fjármagna og smygla
rúmum 300 grömmum af kókaíni
frá Bandaríkjunum árið 2009. Hann
var tekinn með efnið, sem hann
hafði drýgt og var þá orðið nær 500
grömm, auk rúmlega 300 gramma
af amfetamíni.
Þá var hann dæmdur fyrir að fela
nær 150 grömm af kókaíni og mikið
magn steralyfja, í föstu og fljótandi
formi, í ferðatöskum sem hann
sendi með fraktflugi frá Amster-
dam til Íslands árið 2008.
Enn fremur var maðurinn
dæmdur fyrir að hafa árið 2009
smyglað til landsins fjórtán
stykkjum af vefaukandi steralyfj-
um frá Hollandi. Að auki ræktaði
hann í íbúð á Seltjarnarnesi 39
kannabisplöntur. Hann reyndist
einnig vera með kannabislauf í
fórum sínum.
Auk þessa var maðurinn dæmd-
ur fyrir að vera með kannabisefni
í vörslu sinni og fyrir umferðar-
lagabrot, þar sem hann ók sviptur
ökuréttindum. Hann var sviptur
ökurétti ævilangt. Hæstiréttur
hefur staðfest gæsluvarðhaldsúr-
skurð héraðsdóms yfir manninum
sem verður í gæsluvarðhaldi til 11.
nóvember. - jss
Karlmaður sem situr inni vegna stórsmygls á fíkniefnum og sterum margdæmdur:
Höfuðpaur í fíkniefnamáli með níu dóma
STERAR Maðurinn var dæmdur fyrir
smygl á sterum í föstu og fljótandi
formi.
SKÚLI MOGENSEN
LÖGREGLUMÁL Lögreglan handtók
samtals níu manns í tengslum við
innbrot í veitingastaðinn Hafið
bláa við Óseyrarbrú nýverið.
Fyrst voru fimm ungmenni
handtekin og fannst hluti af þýfi af
veitingastaðnum í bifreið þeirra.
Síðar var gerð húsleit í Þorláks-
höfn. Þar fannst nokkuð af áfengi
og öðrum munum sem tengdust
innbrotinu. Þrír voru handteknir
til viðbótar hinum fimm. Sá níundi
var síðan boðaður til yfirheyrslu í
lögreglustöð. Í tengslum við þetta
mál er lögreglan að rannsaka mörg
innbrot sem átt hafa sér stað í Þor-
lákshöfn að undanförnu. - jss
Stolið úr Hafinu bláa:
Níu handteknir
eftir innbrotið
LEIÐRÉTT
Góður gangur hjá nýju félagi:
Segja 600 vilja í
störf hjá WOW
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
17°
13°
12°
15°
15°
11°
11°
24°
15°
23°
13°
25°
11°
18°
22°
11°Á MORGUN
10-15 m/s NV-til,
annars hægari.
FÖSTUDAGUR
Víða 5-10 m/s,
hægari NA-til.
3 13
170
-2
0
0
3
1
3
4
6
-3
16
14
8
9
5
11
11
10
11
9
3
4
8
10 7
4 6
6
9
HVASST Í DAG
Það verður heldur
hvasst í dag, eink-
um á Vestfjörðum
og á Snæfellsnesi.
Á morgun verður
vindur genginn
niður, nema NV-til.
Þá hlýnar og horfur
á að frostlaust
verði orðið í byggð
annað kvöld. Á
föstudaginn eru
víða horfur á
skúrum.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður