Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 18
18 2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR Félagsmiðstöðin Ekkó – Kársnesskóli Félagsmiðstöðin Kjarninn – Kópavogsskóli Félagsmiðstöðin Igló – Snælandsskóli Félagsmiðstöðin Pegasus – Álfhólsskóli Félagsmiðstöðin Þeba – Smáraskóli Félagsmiðstöðin Jemen – Lindaskóli Félagsmiðstöðin Fönix – Salaskóli Félagsmiðstöðin Kúlan – Hörðuvallaskóli Félagsmiðstöðin Dimma – Vatnsendaskóli Veistu hvað unglingar gera í félagsmiðstöðvum? Veistu að stór hluti unglinga í Kópavogi sækir félagsmiðstöðvar? Veistu að forvarnir eru rauði þráðurinn í öllu starfi félagsmiðstöðvanna? Viltu kynnast því sem unglingarnir eru að gera? Opið hús! Fjölskyldan er velkomin í félagsmiðstöðvarnar í Kópavogi til að taka þátt og kynnast starfseminni. Við tökum á móti þér með bros á vör frá kl. 17–19 og 20–22. Heitt verður á könnunni. Unglingar og starfsfólk félagmiðstöðvanna í Kópavogi. Frístunda- og forvarnadeild Kópavogsbæjar Fífa12 mót Myndbönd Borðspil Fússball Tónlist PúslJólakortagerð Þythokkí Pool Jól í skókassa Spil Fótboltaspil Það er afar vinsælt nú um stundir að úthúða stjórnmála- mönnum og stjórnmálaflokkum. Fyrir því er reyndar löng hefð, en síðustu misserin hefur andúðin náð áður óþekktum hæðum. Það er eins og búið sé að gefa skotleyfi á stjórnmálamenn og þeir virð- ast frekar varnarlausir. Sá siður hefur til að mynda fest sig í sessi að hrópa ókvæðisorð að íslensk- um alþingismönnum á leið sinni úr Dómkirkjunni í Alþingishúsið og grýta í þá eggjum. Sjálfsfyrirlitningin Ekki er nóg með að eggjum rigni yfir alþingismenn. Í kommenta- kerfum vefmiðlanna er á hverj- um degi heimtað að hreinsað verði út úr Alþingi. Í ritstjórnargrein- um Morgunblaðsins er meiri- hluti íslenskra stjórnmálamanna í borginni og á Alþingi kallaður fífl, fábjánar, trúðar, heimskingj- ar, svikarar, lygarar, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð. Eflaust eru eigendur og útgefandi blaðsins ánægðir með stefnu og stíl ritstjórnarinnar. Ég held samt að enginn taki mark á þessu ofstæki og blinda hatri í bland við útúrsnúninga, uppnefni og einhverju sem virðist eiga að vera húmor. Þessi skrif gjaldfella sig sjálf. Við lifum í samfélagi sem gjaldfellir sjálft sig á hverj- um einasta degi. Fyrirlitningin á stjórnmálastéttinni reynist stund- um vera, þegar nánar er að gáð, tilbrigði við sjálfsfyrirlitningu. Auðvitað er gagnrýnið aðhald nauðsynlegt og það eru bara léleg- ir stjórnmálamenn sem kveinka sér undan harðri málefnalegri gagnrýni. Það verður líka að segj- ast fullum fetum að stjórnmála- stéttin stóð sig ekki sérlega vel á vaktinni árin fyrir hrun íslenska fjármálakerfisins. Hrunið tók eitt og annað með sér í fallinu. Þar á meðal traustið til stjórnmálanna. Traustsskorturinn sýnir sig meðal annars í því að í skoðana- könnun eftir skoðanakönnun segj- ast aðeins 11 til 13 prósent bera mikið traust til Alþingis. Það er áhyggjuefni í landi þar sem þing- ræði er meginstoð stjórnskipun- arinnar. Forsetagjáin Við þessar aðstæður hefur for- seti Íslands tekið sér stöðu á áður óþekktum stað sem hann sjálf- ur hefur fundið og skilgreint sem „gjá milli þings og þjóðar“. Í þessari gjá hefur honum tekist að skapa sér ótrúlega mikið svig- rúm. Þar hefur hann, sem var áður hugmyndafræðingur og guð- faðir íslensku bankaútrásarinnar, tekið sér það hlutverk að vernda þjóðina fyrir þinginu og erlendu kúgunarvaldi. Hann hefur skipt þjóðfélaginu í tvö lið, þjóðina og þingið. Hann er í liðinu með þjóð- inni gegn þinginu. Við þingsetningu um dag- inn notaði hann tækifærið til að skamma þingið duglega á meðan forsetafrúin klifraði yfir grind- verkið við Alþingishúsið og kyssti fólkið. Sem betur fer fylgdu sjón- varpsvélar henni, þannig að við sem sátum heima í stofu fengum að fylgjast með. Í sjónvarpinu var talað við einn mótmælandann sem virtist afar ánægður með forseta- hjónin, eins og von er, en svo benti hann á Alþingishúsið og sagði: „Ég vil þetta dót í burtu“. Þessi uppákoma, þessi þróun er umhugsunarverð. Andúðin gang- vart þinginu, stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum kann að vera skiljanleg í ljósi þess sem gerst hefur. Og það verður að segj- ast eins og er að þingmenn hafa átt það til með málflutningi sínum og málþófi að gera okkur erfitt fyrir að bera virðingu fyrir þeim og þinginu. En það er ekki mjög góð hugmynd að hreinsa út úr þinghús- inu eða að koma öllu því dóti sem þar er í burtu, nema með lýðræð- islegum kosningum. Undanfarin fjögur ár hafa átt sér stað tvenn- ar kosningar til þings og veruleg endurnýjun í liði þingmanna. En það virðist engu breyta um álit þingsins og stjórnmálanna. Það eru ekki nema 19 mánuðir í næstu þingkosningar. Kosningakerfið er einmitt hugsað til að koma í veg fyrir að það myndist gjá milli þings og þjóðar. Fulltrúalýðræðið Það gleymist í öllu umrótinu að fulltrúalýðræðið sem við búum við er merkilegt fyrirbæri og í raun snilldarleg lausn á útfærslu lýðræðisins og meðferð valdsins. Lýðræðið þýðir bókstaflega að fólkið ráði en það geta ekki allir ráðið alltaf og alls staðar. Lausnin er sú að við kjósum fulltrúa á þing og í sveitarstjórnir til að fram- fylgja þeirri pólitísku stefnu sem við fylgjum. Þetta kerfi byggir á málamiðlunum milli ólíkra skoð- ana, milli meirihluta og minni- hluta, milli þeirra sem hafa mikil völd og þeirra sem hafa engin völd. Það hefur búið til stjórn- málaflokka, stjórnmálastefnur og þann hóp af fólki sem kallast stjórnmálamenn. Það er síkvikt og býsna skilvirkt og hefur reynst mjög farsælt. En það felur í sér vissa veikleika og getur verið varnarlaust gangvart ákveðnum ógnum. Vandinn hefur meðal annars verið sá síðastliðin 20 ár að sam- félögin urðu sífellt hnattvæddari, þar með talið líf einstaklinganna, félagasamtök, alls kyns stofnan- ir og auðvitað viðskiptalífið sem leiðir hnattvæðinguna. En stjórn- málin voru að miklu leyti bundin við afmörkuð svæði sveitarfélaga og þjóðríkja. Af þessu skapaðist ójafnvægi svæðisbundinna stjórn- mála og hnattvæddra afla. Þetta ójafnvægi hefur leitt til þess að hefðbundið fulltrúalýðræði mátti sín æ minna gagnvart krafti og kröfum fjármála- og viðskiptalífs- ins. Það varð meðal annars til þess að stjórnmálamenn, og framar öllu forseti Íslands, töldu sér trú um að ekki væru til aðrir valkostir en að láta hagsmuni fjármagnseig- enda og fyrirtækja ráða ferðinni. Samkvæmt Rannsóknarskýrslu Alþingis um aðdraganda og orsak- ir bankahrunsins á Íslandi, ríkti hér á landi „pólitísk lömunar- veiki“ gagnvart fjármálavaldinu í aðdraganda hrunsins. Lækning á þessari lömunarveiki stendur nú yfir. Þar þarf að gæta jafnvægis. Við þurfum virkt fjármálakerfi og skilvirka bankastarfsemi. Og við þurfum lifandi stjórnmál; fram- sýna, málefnalega, sanngjarna og hugrakka stjórnmálamenn og áhugaverða, andríka, öfluga, opna stjórnmálaflokka. Við höfum ekki góða reynslu af pólitískri lömunarveiki, þröngum flokkshagsmunum, hreppapólitík, málþófi, útúrsnúningum og lýð- skrumi. Við þurfum ekki minni stjórnmál. Við þurfum meiri og betri stjórnmál. Til varnar stjórnmálum Nú berast fréttir af því að við Íslendingar séum orðin næst feitasta þjóð heims! Þetta eru sorglegar fréttir, sérstak- lega þar sem þessi þróun hefur verið fyrirséð í langan tíma. Í ljósi þess setti ég sem ráðherra heilbrigðismála forvarnir í for- gang. Ég fékk til liðs við mig fólk með yfirburðaþekkingu á svið- inu; Dr. Ingu Dóru Sigfúsdótt- ur, sem nú starfar sem prófess- or við Columbia háskóla í New York, og Héðin Unnsteinsson, sem starfað hafði að stefnumót- un hjá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni um árabil. Byggt á nýjustu rannsóknum og í sam- ráði við fjölmarga fagaðila á sviði forvarnamála, settu þau saman heildstæða stefnu sem tekur til hreyfingar, vímuvarna og geð- verndar. Í inngangi stefnunnar segir: „Markmið með heilsustefnu er ekki eingöngu að fólk nái háum aldri. Hún snýst ekki síður um að fólki líði sem best á meðan það lifir. Þá verður ekki framhjá því litið að sjúkdómar rýra lífsgæði og eru dýrir fyrir samfélagið og útlit er fyrir verulega aukningu á ýmsum langvinnum sjúkdóm- um í framtíðinni verði ekkert að gert. Því er mikilvægt að draga úr aukningu langvinnra sjúkdóma og gefa þeim sem fá sjúkdóma mögu- leika á að lifa betra lífi.“ Fagmennska og árangur Við vinnu stefnunnar var lögð áhersla á fagmennsku, og árang- ur. Íslenska þjóðin hefur séð nógu mikið af almennum stefnu- yfirlýsingum sem ekki hefur verið fylgt eftir. Þessu vildum við breyta. Í ljósi þess var sett fram áætlun um 30 aðgerðir og rík áhersla lögð á að hægt yrði að meta árangur þeirra. Tilgreindir voru ábyrgðaraðilar með hverri aðgerð, þær voru mælanlegar og með tímamörkum. Fagmennska og árangur voru leiðarljós stefnumótunarvinn- unnar, sem auk þess að byggja á nýjustu rannsóknum, studd- ist við helstu aðgerðir sem áður hafði verið mælt með á sviði lýð- heilsu hérlendis, stefnur og fram- kvæmdaáætlanir í nágrannalönd- unum, auk þess sem horft var til áhersluatriða erlendra stofnana eins og Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar í lýðheilsumálum. Starfið var því byggt bæði á reynslu Íslendinga en auk þess var stuðst við erlend gögn og skýrslur alþjóðastofnana um lýð- heilsu. Síðast en ekki síst var aðgerðaáætlunin unnin með víð- tæku samráði þar sem leitað var eftir áliti sem flestra þeirra sem málið varðar. Í því ferli voru haldnir fundir með öllum fulltrú- um stærstu sveitarfélaga lands- ins, fulltrúum verslunar, þjónustu og iðnaðar. Einnig var fundað með fulltrúum stéttarfélaga, frjálsra félagasamtaka, háskóla og fagstétta. Sjónarmið þessara aðila og áherslur voru mikilvægt innlegg við mótun aðgerðaáætl- unarinnar. Í heild var vinnan við þessa stefnumótun á sviði forvarna fyrir þjóðina, liður í þeirri stefnu minni sem ráðherra að hafa fag- mennsku og þekkingu að leiðar- ljósi. Nú skyldi maður ætla að það hefði verið góð þverpólitísk sam- staða um að fylgja þessari stefnu eftir. Svo var ekki. Ögmundur Jónasson, fyrsti ráðherra heil- brigðismála af þremur í núver- andi ríkisstjórn, hafði ekki þor né dug til að halda áfram starfinu; af þeirri einföldu ástæðu að hann hafði ekki átt frumkvæði að því. Pólitík gærdagsins! Þess í stað sá hann til þess að Heilsustefnan kæmi aldrei fyrir sjónir Íslend- inga, setti hana niður í kjallara í ráðuneytinu og síðan hefur ekk- ert til hennar spurst. Árangurinn er einfaldlega sá að við horfum fram á stóraukinn vanda í þess- um málaflokki og þá sérstaklega meðal ungs fólks. Tökum höndum saman Þetta ástand er okkur Íslend- ingum til háborinnar skammar. Vanrækslan í þessum málaflokki mun koma niður á öllum, en sér- staklega þó ungu fólki sem mun lifa með afleiðingunum í formi skertra lífsgæða. Góðu fréttirnar eru þær að við getum snúið þessari þróun við. Heilsustefnan sem lögð var fram í nóvember 2008 er góður grunn- ur til að byggja á. Komum henni í framkvæmd. http://www.velferdarraduneyti.is/ media/Skyrslur/Heilsustefnan.pdf Vanræksla stjórnvalda í forvarnamálum! Heilbrigðismál Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Stjórnmál Hjálmar Sveinsson varaborgarfulltrúi Við höfum ekki góða reynslu af pólitískri lömunarveiki, þröngum flokkshags- munum, hreppapólitík, málþófi, útúr- snúningum og lýðskrumi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.