Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 31
5MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Smásölurisinn Hagar verður skráður í Kauphöll Íslands í byrjun desember. Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, ætlar að selja 20-30% hlut í almennu útboði dagana 5.-8. desember næst- komandi sem beint verður bæði að fagfjárfestum og almennum fjárfest- um. Alls á bankinn 61,7% hlut. Lágmarksáskrift verður 100 þús- und krónur en hámarksáskrift 500 milljónir króna. Skráningargeng- ið verður ekki gefið upp fyrr en að lokinni útboðs- og skráningarlýsingu sem fyrirhuguð er í lok nóvember. Hagar eiga verslanakeðjurn- ar Bónus, Hagkaup, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Mil- len, All Saints, Day og Warehouse. Auk þess eiga Hagar innkaupafyrir- tækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Samkeppnieft- irlitið áætlar að markaðshlutdeild Haga á matvörumarkaði, miðað við veltu síðasta rekstrarárs, sé um 50% á öllu landinu og hærri ef horft er einvörðungu til höfuðborgarsvæð- isins. Í fangi banka í tvö ár Arion banki tók yfir Haga í október 2009. Hagar höfðu áður verið lengi í eigu félaga Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar, föður hans, Jóhannesar Jónssonar, og fjölskyldu þeirra, en þeir feðgar stofnuðu Bónus árið 1989. Í febrúar 2010 var tilkynnt um þær áætlanir bankans að óska eftir skráningu Haga í Kauphöll Íslands og í kjölfarið að selja hlut bankans í félaginu. Í þeim áætlun- um fólst þó að stjórnendum Haga myndi bjóðast að kaupa 5% hlut og að Jóhannes, sem þá var stjórnar- formaður Haga, myndi fá forkaups- rétt á 10% hlut. Ákvörðunin þótti afar umdeild vegna þess að tryggja átti fyrrum eigendum eignarhlut. Búvellir munu auka við sig Í lok ágúst 2010 var svo tilkynnt um að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga og hætt afskiptum af félaginu. Auk þess var forkaups- réttur hans á 10% hlutafé í Högum felldur úr gildi. Forkaupsréttur stjórnenda Haga á allt að 5% hlut í félaginu hélt sér hins vegar. Stjórnendurnir sem um ræðir, sem eru fimm talsins, eiga í dag 1,6% hlut. Arion banki mun afhenda þeim 1,4% af sínu hlutafé í Högum á þessu ári og því næsta til að efna samkomulagið við þá. Um er að ræða Finn Árnason, forstjóra Haga, og fjóra framkvæmdastjóra. Í febrúar 2011 seldi Arion banki síðan 34% eignarhlut í Högum til Búvalla slhf. fyrir 4,1 millj- arð króna. Búvellir er félag í eigu nokkurra lífeyrissjóða, Hagamels ehf. (í eigu Hallbjörns Karlssonar, Sigurbjörns Þorkelssonar og TM) og tveggja fagfjárfestingasjóða sem lúta stjórn Stefnis, rekstrar- félags í eigu Arion banka. Hópur- inn greiddi 10 krónur á hlut en auk þess fékk hann forkaupsrétt á 10% eignarhlut til viðbótar á 11 krón- ur á hlut. Búvellir hafa út þessa viku til að nýta þann forkaupsrétt og herma heimildir Fréttablaðsins að það standi til. Kaupverðið verð- ur væntanlega um 1,3 milljarðar króna. Arion verður enn stærstur Í kjölfarið er búist við að lífeyris- sjóðirnir muni fara út úr Búvöll- um og fá afhent sín hlutabréf fyrir skráningu Haga á markað. Tald- ar eru líkur á því að Hagamel- ur ehf. og fagfjárfestingasjóður- inn SÍA 1 haldi áfram samstarfi undir merkjum Búvalla og verði með rúmlega 20% eignarhlut. Sá hópur yrði því næststærsti ein- staki eigandi Haga á eftir Arion banka. Nýti Búvellir forkaupsrétt sinn, líkt og búist er við, mun Arion banki eiga 50,3% hlut í Högum þegar bankinn er búinn að efna skuldbindingar gagnvart stjórn- endum félagsins. Af þessum hlut mun bankinn síðan selja 20-30% núna í desember. Fleiri fylgja í kjölfarið Búist er við því að fimm stórir aðilar muni óska eftir skráningu á næstunni. Heimildir Fréttablaðs- ins herma að þar sé um að ræða Fjárfestingafélagið Horn, Trygg- ingamiðstöðina, Fasteignafélagið Regin, Fasteignafélagið Reiti og Skýrr í þessari röð, en allir þessir aðilar hafa tilkynnt um skráning- aráform á þessu ári eða því næsta. Auk þess er talið að á annað tug fyrirtækja hafi áhuga á skrán- ingu á næstu misserum. Stefnt er að því að á bilinu 40-50 félög verði skráð í Kauphöll Íslands árið 2015. Hagar á markað í desember Fyrsta nýskráning í Kauphöll eftir bankahrun mun eiga sér stað 5.-8. desember þegar Arion banki mun selja allt að 30% hlut í Högum í al- mennu útboði. Bankinn verður þó áfram stærsti eigandi félagsins. Búist er við því að stórir aðilar muni fylgja í kjölfarið og skrá sig á markað. Hagar högnuðust um 1,7 milljarða króna frá byrjun mars og til loka ágúst á þessu ári. Velta félagsins var 33,7 milljarðar króna og heildar- eignir metnar á 23,5 milljarða króna. Framlegð félagsins hefur gefið eftir samanborið við rekstrarárið 2010/11 og skýrist það að mestu leyti með aukinni samkeppni í verði á mörkuðum og hækkunum á aðföngum félagsins, svo sem hrávöru. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri Haga sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Skuldir félagsins voru 18,7 milljarðar króna í lok tímabilsins.Þær eru að langstærstu leyti við Arion banka sem endurfjármagnaði allar langtíma- skuldir Haga upp á 11,2 milljarða króna 12. október síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka leituðu Hagar eftir tilboðum í bankaviðskipti og fengu slíkt frá að minnsta kosti tveimur bönkum. Í kjölfarið hafi verið samið við Arion í samræmi við armslengdarsjónarmið. Í árshlutareikningi Haga kemur fram að endurfjármögnunin hafi lækkað vaxtakostnað Haga umtalsvert og því var hún til mikilla hagsbóta fyrir félagið. ARION ENDURFJÁRMAGNAÐI HAGA Halldór Bjarkar Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri fjárfestingabanka- sviðs Arion banka sem hefur umsjón með útboðinu, segir það hafa verið hluta af samkomulagi við Búvelli að Eignabjarg myndi halda eftir hluta af eign sinni við skráningu. „Við vitum ekki hver eftirspurnin verður og því er ekk- ert óvanalegt að gera þetta svona, en líka til að stuðla að ákveðinni dreifingu í eigendahópi félagsins og auka þannig líkurnar á því að eftirmarkaður með bréfin verði virkur. Þegar Búvellir keyptu þá var það sett sem skilyrði að við frumskráningu á félaginu mynd- um við halda eftir að minnsta kosti 19% hlut í tólf mánuði til að tryggja að einstakur fjárfest- ir næði ekki yfirráðum í félaginu. Það er þó sá fyrirvari um að Sam- keppnis- eða Fjármálaeftirlitið setji því eignarhaldi ekki skorður.“ Halldór segist reikna með því að strax og tólf mánaða læsingin verði liðin muni Eignabjarg selja það sem eftir er af eignarhlut sínum í Högum í gegnum Kaup- höllina. Engar kennitölusafnanir Að sögn Halldórs verður útboð- ið í desember tvískipt. Annars vegar verður svokölluð tilboðsbók (e. book-building) þar sem stærri fjárfestum mun gefast tækifæri til að skrá sig fyrir hlutum. Sam- tímis mun síðan fara fram net- áskrift á hlutum fyrir almenning. „Við höfum ákveðið að skilyrða þátttöku við fjárráða aðila þann- ig að það verður erfitt að leggjast í kennitölusafnanir og ekki hægt að skrá börn fyrir hlutum. Lág- marksáskrift í netáskrift verð- ur nálægt 100 þúsund krónum og hámarksáskrift í tilboðsbókinni nálægt 500 milljónum. Það verð- ur óskað eftir tilboðum á tilteknu verðbili, en eitt endanlegt útboðs- gengi mun ákvarðast í tilboðs- bókinni. Að loknu sölutímabilinu, þegar fjárfestar hafa greitt fyrir hlut sinn, verður félagið tekið til viðskipta.“ Útboðsgengi liggur ekki fyrir Halldór segir að bankinn sé ekki tilbúinn til að úttala sig um hvert útboðsgengið verður, enda sé ekki búið að taka afstöðu til þess. Hann hefur þó fundið fyrir miklum áhuga á meðal fjárfesta á Högum. „Við höfum klárlega fundið fyrir eftirspurn, til dæmis hjá lífeyris- sjóðum, en ekki síður hjá minni fjárfestum. Bankinn hefur horft til þess að geta boðið fjárfestum vel rekið félag með hóflega skuld- setningu og gott sjóðstreymi, sem þeir geta horft til sem arðgreiðslu- félags. Eitt af markmiðunum er að koma félaginu í dreifða eignarað- ild. Annað er að fá eins gott verð fyrir eignahlut bankans og hægt er. Þetta er fyrsta nýskráning fyr- irtækis eftir bankahrun og við finnum fyrir pressu. Það skiptir miklu máli að útboðið takist vel, að eftirspurn sé eftir þeim bréfum sem verið er að skrá og að eftir- markaðurinn verði líflegur.“ Halldór Bjarkar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs Arion banka Mun halda 20% hlut í tólf mánuði ARION BANKI Eignabjarg, dótturfélag bankans, mun áfram vera í eigendahópi Haga eftir skráninguna. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi, segir skráningu Haga hafa gríðarlega mikla þýðingu, enda sé um að ræða fyrstu nýskráningu frá bankahruni. „Þetta hefur ekki síður mikla þýðingu fyrir viðskiptaumhverfið þar sem aðalfarvegir fjármagnseigenda til atvinnulífsins hafa verið stíflaðir. Þar á ég við bæði bankana og Kaup- höllina. Það er því geysilega mikilvægt að koma þeim af stað aftur. Án þeirra verður lítill hagvöxtur.“ Uppsöfnuð fjárfestingarþörf Páll telur mikilvægt að fram komi nýir fjárfestingarkostir fyrir fagfjárfesta á borð við lífeyrissjóði. „Undanfarin ár hafa þessir aðilar haft um ansi lítið að velja og við höfum fundið fyrir miklum áhuga frá þeim að fá félög inn á markað. Það er líka mikilvægt að vel til takist með þessa skráningu vegna þess að eitt af því sem haldið hefur aftur af fyrirtækjum varðandi skráningu er að aðilar hafa ekki viljað vera fyrstir á markað.“ Páll telur mjög líklegt að fleiri fyrirtæki muni fylgja í fótspor Haga á næst- unni og skrá sig á markað. „Ég tel líklegt að á fyrri hluta næsta árs, og jafnvel fyrr, verði tilkynnt um fleiri skráningar. Hér er mikil uppsöfnuð þörf fjárfesta til að fjárfesta í skráðum fjárfestingarkostum. Bara það fjármagn sem er inni á reikningum hjá Seðlabankanum, um 180 milljarðar króna, er nærri því sama fjárhæð og heildarfjárfesting innlendra aðila í skráðum hlutabréfum, sem er rétt yfir 200 milljarðar króna.“ Óttast ekki markaðsmisnotkun Embætti sérstaks saksóknara rannsakar mörg mál sem snúast um meinta markaðsmisnotkun með hlutabréf á árunum fyrir bankahrun. Páll segir þá gerninga eiga sér fá, ef nokkur fordæmi á erlendum hlutabréfamörkuðum hvað varðar umfang og aðferðafræði. Hann óttast ekki að slíkt muni endur- taka sig. „Það hafa nokkrir þættir breyst með afgerandi hætti frá hruni. Þar ber fyrst að nefna breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki sem eiga að koma í veg fyrir svona markaðsmisnotkun. Í öðru lagi eru fjárfestar mun meira á tánum, sérstaklega þeir stærstu, en þeir voru áður. Í þriðja lagi hefur Fjármála- eftirlitið verið stóreflt. Í fjórða lagi held ég að aðstæður á fjölmiðlamarkaði séu allt aðrar. Það eru mun gagnrýnni fjölmiðlar en voru fyrir hrun. Umgjörð- inni hefur því verið breytt til hins betra.“ HEFUR GRÍÐARLEGA MIKLA ÞÝÐINGU BREYTT UMGJÖRÐ Páll óttast ekki markaðsmisnotkun á borð við þá sem talið er að hafi átt sér stað fyrir hrun. FRÉTTASKÝRING Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is HAGAR Félagið er stærsti smásali lands- ins og er með um 50% markaðshlutdeild í matvöru á landinu öllu. Almenningi mun nú gefast kostur á að eignast í Högum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.