Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 29
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Interstate heilsárs- og vetrardekkin eru umhverfis-
vænni kostur. Munstrið inniheldur minna magn af
mengandi olíum og uppfyllir evrópska staðla um
efnisinnihald hágæða hjólbarða.
DUGGUVOGI 10 RVK AUSTURVEGI 52 SELFOSS PITSTOP.IS WWW
HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ568 2020 SÍMI
HEILSÁRS- OG
VETRARDEKK
UMHVERFISVÆNNI KOSTUR
FYRIR FÓLKSBÍLA OG JEPPA
VIÐ EIGUM FLESTAR STÆRÐIR DEKKJA Á HAGSTÆÐU VERÐI.
HAFÐU SAMBAND TIL AÐ FÁ VERÐ Í DEKK FYRIR BÍLINN ÞINN.
175/65 R14 45.900 kr. 195/65 R15 55.900 kr.
185/65 R14 49.900 kr. 205/55 R16 63.900 kr.
185/70 R14 49.900 kr. 245/75 R16 99.800 kr.
185/65 R15 51.900 kr. 225/45 R17 73.900 kr.
DÆMI UM FRÁBÆR TILBOÐ Á INTERSTATE
HEILSÁRS- OG VETRARDEKKJUM
VERÐIN ERU FYRIR FJÖGUR DEKK ÁSAMT UMFELGUN
Icelandair hótel Klaustur
Veislumáltíð
milli jökla
Villibráðarhlaðborð
Laugardagskvöldin
12., 19. og 26. nóvember
7.450 kr.
Gisting í tveggja manna herbergi,
hlaðborð og morgunverður
14.900 kr. á mann.
Jólamatseðill
Glæsilegur fjögurra rétta hátíðar-
matseðill aðeins þessa tvo daga.
Laugardagskvöldin
3. og 10. desember
6.990 kr.
Gisting í tveggja manna herbergi,
jólamatseðill og morgunverður
10.150 kr. á mann.
Borðapantanir:
Sími 487 4900 eða
á klaustur@icehotels.is.
Sérkjör á mat og gistingu fyrir hópa
ofangreindar helgar.
Nýr Yaris verður kynntur hjá
söluaðilum Toyota á laugardag-
inn frá klukkan 11 til 16.
Ný gerð af smábílnum Yaris verð-
ur frumsýnd á Íslandi á laugar-
daginn. Nokkrir tugir Yaris-bíla
höfðu þegar selst áður en bíllinn
kom til landsins og verða fyrstu
Yarisarnir afhentir hjá Toyota í
Kópavogi á frumsýningunni.
Bíllinn er nokkuð breyttur
bæði að utan og innan. Til dæmis
er Yaris fyrsti bíllinn hér á landi
með Toyota Touch, sem er nýr
búnaður með 6,1“ snertiskjá,
handfrjálsan Bluetooth-búnað
fyrir farsíma, bakkmyndavél,
aksturstölvu og tengimöguleika
fyrir tónlist. Einnig fást bílarn-
ir með Touch and Go þar sem við
bætist GPS-kortaleiðsögukerfi
fyrir Ísland ásamt margmiðlun-
arkerfi.
Aukið hefur verið við öryggis-
búnað bílsins og nú hefur hann
7 loftpúða auk þess sem stöðug-
leikastýring er staðalbúnaður.
Nýr Yaris
frumsýndur
Rekstur bíls hefur hækkað mikið síðastliðið ár. Samkvæmt frétt á
www.fib.is er heildarhækkun vísitölu bifreiðakostnaðar 12,6% saman-
borið við október 2010. Þar vegur eldsneytið þyngst en bensínlítrinn er
tæpum 40 krónum dýrari nú en fyrir ári.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
„Þetta er upprunalegur, enskur
leigubíll af árgerð 1991. Við köll-
um hann Pál Óskar af því stýrið
er öfugu megin,“ segir Grímur
Víkingur Þórarinsson um svart-
an eðalvagn sem hann ekur á með
höfðingsbrag. Hann segir tónlist-
armanninn meðvitaðan um nafnið
og vera stoltan af. Á bílnum opnast
hurðirnar líka öfugt og í honum
situr fólk þannig að það snýr annað
hvort fram eða aftur. Grímur segir
bílinn jafnan fá jákvæða athygli.
En hver er hann, hvaðan kom hann
og hvert er hann að fara? svo not-
aður sé alþekktur frasi.
„Magnús Kristinsson í Vest-
mannaeyjum flutti þennan bíl inn
þegar sonur hans gifti sig fyrir
nokkrum árum. Svo þvældist bíll-
inn manna á milli en ég hef gaman
af gömlum bílum og keypti hann
og endurvakti glæsivagnaþjón-
ustu sem ég hafði verið með. Til
að standa undir slíku nafni þurfa
bílar að vera með þil milli bílstjóra
og farþegarýmis og þessi er með
fullgilt þil. Við erum með annan
rauðan, 2005 árgerð. Þeir njóta
báðir hylli sem brúðarbílar, enda
er afar gott pláss fyrir brúðarkjól-
inn í þeim. Við erum líka í helgar-
keyrslu og útsýnisferðum með túr-
ista.“
Spurður hvernig sé að keyra
þessa bíla svarar Grímur: „Sá
gamli er svolítið eins og traktor,
hinn er mun mýkri en báðir geta
snúið við á punktinum, enda eru
þeir ætlaðir í miðborgarakstur
í bullandi umferð endar eru þeir
þungir, traustir og öruggir. Sá
gamli er keyrður eitthvað yfir eina
milljón kílómetra, það veit enginn
hvort það eru ein, tvær eða fleiri
milljónir.“
Í eldri bílnum er Nissan dísilvél
en Ford Transit í þeim nýrri. En
fæst allt í þá? „Það er hægt að fá
flestallt því það er svo mikið til af
þessum bílum, ég hef samt orðið
að fara sjálfur út til að finna það
sem mig vantaði, það dugði ekki að
hringja eða panta gegnum netið.
En ef breskir leigubílstjórar lenda
í árekstri skjótast þeir á verkstæði
og láta skipta um hurðir eða bretti
í réttum lit á meðan þeir fá sér að
borða.“
gun@frettabladid.is
Snúa við á punktinum
Að minnsta kosti tveir dæmigerðir breskir leigubílar sjást af og til á götum borgarinnar. Þeir eru í eigu
Gríms Víkings Þórarinssonar. Sá eldri er tvítugur og hefur þegar verið keyrður yfir milljón kílómetra.
„Þetta eru svo áberandi bílar að við verðum að vera til fyrirmyndar í umferðinni,“ segja bílstjórarnir Grímur Víkingur Þórarinsson
og Baldur Sigurðarson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON