Fréttablaðið - 02.11.2011, Side 10
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR10
hafa snúið að vinnumarkaðssjón-
armiðum til að takmarka flæði
ódýrs vinnuafls til landsins. Ekk-
ert bendi til þess að þegar undan-
þágan fellur úr gildi um áramót
sæki flóð einstaklinga frá þessum
löndum um atvinnu- og dvalarleyfi
hér á landi. Það sem af er ári er
fjöldi nýskráðra Rúmena og Búlg-
ara hjá Útlendingastofnun undir
30 manns.
„Okkar reynsla er sú að þetta eru
sárafáir einstaklingar. Það er engin
ástæða til að fara á límingunum þó
að þessi undanþága falli niður,“
segir hann. Varðandi gagnrýnis-
raddir um aukin umsvif erlendra
glæpagengja eftir áramót, segir
Þorsteinn: „Brotamennirnir koma
hvort sem er. Það eru ekki þeir sem
eru að sækja um atvinnu- eða dval-
arleyfi. Og eins og vitað er þá geta
þeir komið frá hvaða löndum sem
er.“ sunna@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Takmarkanir á veit-
ingu dvalar- og atvinnuleyfa til
Rúmena og Búlgara hér á landi
falla niður um áramót, en þær hafa
verið í gildi síðan árið 2007, er ríkin
gengu í Evrópusambandið. Er þar
um að ræða undanþágur frá ákvæð-
um EES-samningsins um frjálst
flæði vinnuafls á milli aðildarríkja.
Nokkurs misskilnings hefur
gætt í umræðunni að undanförnu.
Jakob Frímann Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Miðborgarinnar
okkar, sagði í sjónvarpsfréttum
fyrir nokkrum dögum að Rúm-
enía og Búlgaría fengju aðild að
Schengen-samkomulaginu, sem
kveður á um vegabréfsfrelsi, um
áramót. Sagðist Jakob hafa áhyggj-
ur af því að glæpagengi ættu þá
greiðari leið til landsins.
Rúmenía og Búlgaría munu hins
vegar ekki gerast aðilar að Schen-
gen-samstarfinu um áramót, held-
ur þurfa enn að bíða. Það sem
gerist um áramótin er að ríkis-
borgarar þeirra hafa sömu rétt-
indi og aðrir borgarar EES-ríkja
til að dvelja hér á landi í sex mán-
uði í atvinnuleit án þess að sækja
um formlegt dvalarleyfi.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðs-
stjóri hjá Útlendingastofnun, segir
takmarkanirnar fyrst og fremst
LEIKTÆKNISKÓLI
Micheal Checkhov tækni
Undirbúningur fyrir áheyrnarprufur
Textagreining
Kvikmyndaleikur
kama og raddar
kun
Mag t
Nýtt námskeið frá 15. nóvember. til 20. des. 2011
Kennsla fer fram öll þriðjudagskvöld frá kl. 19.30 til 23.00
Skráning og fyr rnir á leiktaekniskolinn@gmail.com. Aldurtakmark 18 ár
Magnús og Þorsteinn eru meðal reyndustu leikara sinnar kynslóðar
með áratuga reynslu af vinnu við leikhús, kvikmyndir og sjónvarp.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
HVALFJARÐARGÖNG Verða lokuð á
virkum nóttum næstu vikur.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SAMGÖNGUMÁL Hvalfjarðargöng-
in voru lokuð í nótt og verða
áfram lokuð næstu þrettán virkar
nætur.
Göngin verða lokuð frá mið-
nætti til klukkan sex á morgn-
ana. Um helgar verður opið sam-
kvæmt venju. Þegar göngin eru
lokuð verður unnið að viðhaldi
og endurbótum á göngunum og
tæknibúnaði í þeim, samkvæmt
upplýsingum frá Speli og Vega-
gerðinni. Viðhaldsvinnunni á að
ljúka aðfaranótt föstudagsins 18.
nóvember næstkomandi. - þeb
Viðhald í Hvalfjarðargöngum:
Göngin lokuð
næstu nætur
BANDARÍKIN Matvæla- og lyfjaeftir-
lit Bandaríkjanna gaf út viðvör-
un vegna lakkrísneyslu. Er þetta
gefið út í tilefni af hrekkjavöku,
sem var í fyrradag. Fréttastofa
ABC greinir frá aðvörun eftir-
litsins, sem segir að mikil neysla á
efninu glýseríni, sem er í lakkrís,
geti valdið hjartsláttartruflunum.
Til dæmis geta 50 grömm á dag af
lakkrís í tvær vikur komið fólkið
yfir fertugu inn á spítala.
Fólk með háan blóðþrýsting og
hjarta- eða nýrnasjúkdóma er við-
kvæmara fyrir lakkrísáti. - sv
Aðvörun vegna hrekkjavöku:
Ekki borða of
mikinn lakkrís
DÓMSMÁL Mál gegn rúmlega
þrítugum karlmanni, sem tvítugur
piltur kærði fyrir nauðgun í
heimahúsi í Hafnarfirði, hefur
verið fellt niður. Eftir rannsókn
lögreglu og Ríkissaksóknara var
ekki talið líklegt að ákæra myndi
leiða til sakfellingar, að því er
fram kemur á Vísi.is.
Fréttablaðið greindi frá kærunni
í maí í fyrra. Þar kom fram að
maðurinn hefði boðið piltinum
í samkvæmi heim til sín, áfengi
verið haft um hönd og pilturinn
sofnað. Hann hefði vaknað við að
maðurinn var að misnota hann.
Maðurinn flutti búferlum til
útlanda í kjölfar kærunnar. - jss
Sá kærði flutti til útlanda:
Nauðgunarmál
fellt niður
SAMGÖNGUMÁL Yfir 900 þúsund
farþegar stigu inn í strætis-
vagna Strætó bs. í októbermán-
uði, og hafa þeir aldrei verið
fleiri. Strætó telur farþega í
öllum vögnum í þrjá daga í októ-
ber ár hvert.
Í sama mánuði í fyrra voru far-
þegarnir rúmlega 76 þúsundum
færri en nú, sem þýðir að farþeg-
um fjölgaði um 9,15 prósent milli
ára. Sé horft aftur til ársins 2005
eru farþegar nú rúmlega fjörutíu
prósentum fleiri nú en í október
þá, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Strætó.
Yfir fimm þúsund farþegar fara
nú með leið eitt á hverjum degi
að meðaltali, og yfir fjögur þús-
und með leið sex. Við þessu hefur
verið brugðist með því að kaupa
lengri vagna sem geta tekið fleiri
farþega. Það hefur þó ekki alltaf
dugað til, að sögn Einars Krist-
jánssonar, sviðsstjóra skipulags-
og þróunarsviðs Strætó. Auka-
vögnum hefur því stundum verið
bætt við á mestu álagstímunum.
Færri farþegar eru nú en áður
á sumum leiðum, til að mynda
leiðum tvö og fimm, en þær leið-
ir hættu akstri á kvöldin og um
helgar.
Nýlega greindi Strætó frá því
að farþegum á fyrstu níu mánuð-
um ársins hefði fjölgað um tæpa
milljón milli ára. - þeb
Yfir 900 þúsund farþegar í strætisvögnum í októbermánuði:
Aldrei fleiri farþegar hjá Strætó
STRÆTISVAGN Á FERÐ Yfir fimm þúsund manns fara með leið eitt á hverjum degi að
meðaltali nú. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ekki líklegt að Rúmenar og
Búlgarar streymi til Íslands
Takmarkanir á atvinnu- og dvalarleyfisveitingum til Rúmena og Búlgara falla úr gildi um áramót. Löndin
hafa enn ekki fengið aðild að Schengen. Ekkert bendir til að fólk flæði inn í landið, segir Útlendingastofnun.
Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri
Miðborgarinnar okkar, sagði í samtali við
RÚV í síðustu viku að hann teldi að það væri
æskilegt að innanríkisráðuneytið byggi til
viðbragðsáætlun við breytingum á Schengen-
samkomulaginu um áramót. Jakob sagði að
„þá opnist gáttirnar fyrir tveimur meginvöggum
óaldarlýðs og glæpagengja“ og vísaði til
Rúmeníu og Búlgaríu.
Jakob baðst í gær afsökunar á ummælum
sínum; þar hefði of mikið verið alhæft. Hann
vildi ekki tjá sig við Fréttablaðið um málið að
öðru leyti en að koma skriflegri afsökunarbeiðni
á framfæri.
„Hvers vegna nefndi ég glæpagengi frá
Búlgaríu og Rúmeníu sérstaklega? Jú, sökum
þess að gildistöku á þeim hluta Schengen-
samkomulagsins sem snýr að þessum tveimur
þjóðum var frestað til 1. jan. nk. af einhverjum
ástæðum sem hljóta að vera gildar,“ segir
Jakob meðal annars í afsökunarbeiðninni.
Jakob segir brýnt að auka löggæslu í mið-
borginni í ljósi nýliðinna atburða í úraverslun
á Laugavegi.
Óttast komu glæpagengja og vill meiri löggæslu í miðbænum
JAKOB FRÍMANN
MAGNÚSSON
GRAFIRNAR SKREYTTAR Íbúar Spánar
gerðu sér margir ferð að gröfum ætt-
ingja sinna til að skreyta þær blómum
í tilefni allraheilagramessu.
NORDICPHOTOS/AFP
Okkar reynsla er sú
að þetta eru sárafáir
einstaklingar. Það er engin
ástæða til að fara á líming-
unum þó þessi undanþága
falli niður.
ÞORSTEINN GUNNARSSON
SVIÐSSTJÓRI HJÁ ÚTLENDINGASTOFNUN
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAGSMÁL Norðurlöndin eiga
að leiða grænan hagvöxt, sem er
mikilvægur þáttur í sameiginleg-
um aðgerðum í loftslagsmálum.
Þetta segja forsætisráðherrar
Norðurlandanna í sameiginlegri
yfirlýsingu sem þeir sendu frá
sér, en Norðurlandaráðsþing
hófst í gær.
Ríkin eiga og geta verið í farar-
broddi þegar kemur að virkri
grænni atvinnustarfsemi og
sjálfbærum lausnum, segja ráð-
herrarnir.
Þeir hafa falið fagráðherrum
að þróa afmörkuð samstarfssvið
í þessum málum. Meðal annars á
að leggja áherslu á tilraunastöð
fyrir grænar lausnir, menntun
og rannsóknir um grænan hag-
vöxt, vistvæn innkaup og aukinn
sveigjanleika í orkunotkun.
Til þess að ríkjunum takist að
leiða grænan hagvöxt þurfa að
koma til framlög á mörgum svið-
um og hefur framkvæmdastjóra
Norrænu ráðherranefndarinnar
verið falið að tryggja samhæf-
ingu og skila skýrslu um málið
fyrir sumarfund ráðherranna á
næsta ári.
- þeb
Forsætisráðherrar á Norðurlandaráðsþingi sem hófst í Kaupmannahöfn í gær:
Eiga að leiða grænan hagvöxt
FORSÆTISRÁÐHERRAR Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra sat fund
Norðurlandaráðs.
NORDEN.ORG/MAGNUS FRÖDERBERG