Fréttablaðið - 02.11.2011, Síða 16
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR
Magnaður
miðvikudagur
20% auka-
áfylling í dag
á siminn.is
Þú færð meira
hjá Símanum
Í dag er magnaður
miðvikudagur og þú færð
20% ábót þegar þú fyllir
á Frelsi og Ring á siminn.is.
Gildir einungis ef fyllt er á í gegnum siminn.is
Elvar Árni Lund, formaður Skotvís, birtir grein í Morg-
unblaðinu 31. október sl., þar
sem hann gagnrýnir ákvörðun
umhverfisráðherra um rjúpna-
veiðar þetta árið. Ég harma
þann misskilning sem mér finnst
örla á hjá Elvari og vil því fara
yfir aðdraganda ákvörðunar
um rjúpnaveiðar þetta árið. Það
skiptir miklu máli að traust ríki
á milli stjórnvalda og veiðimanna
í þessum efnum.
Stjórnvöldum ber skylda út frá
náttúruverndarsjónarmiðum að
tryggja að athafnir mannsins
höggvi ekki of stór skörð í dýra-
stofna og nýting þeirra sé með
sjálfbærum hætti. Sú nýbreytni
varð við ákvörðun á fyrirkomu-
lagi rjúpnaveiða haustið 2009,
að gert var ráð fyrir að ákvörð-
unin gilti til þriggja ára, nema að
óvænt þróun yrði í rjúpnastofnin-
um á þeim tíma. Þegar umhverf-
isráðuneytinu bárust ráðlegging-
ar Náttúrufræðistofnunar Íslands
(NÍ) 7. september kom fram að
stærð veiðistofnsins virtist hafa
dregist saman um ríflega helm-
ing á milli ára. Lagði NÍ til þrjár
leiðir í stöðunni; í fyrsta lagi
óbreytt 18 daga veiðitímabil, í
öðru lagi fækkun veiðidaga, t.d.
um helming, og í þriðja lagi að
rjúpnaveiðum yrði hætt.
Sérfræðingar NÍ og Umhverf-
isstofnunar (UST) mættu á fund
í umhverfisráðuneytinu 20. sept-
ember, þar sem UST lagði fram
útfærslu á tillögu um 18 veiði-
daga. Taldi ég sveiflu í rjúpn-
astofninum vera meiri en svo að
hægt væri að láta athugunarlaust,
en jafnframt fulllangt gengið að
banna veiðar með öllu. Því ósk-
aði ég eftir útfærslu sérfræðinga
NÍ og UST á níu daga veiðitíma á
rjúpu þetta árið. Tillaga stofnan-
anna tveggja lá fyrir 29. septem-
ber og voru lögboðnir hagsmuna-
aðilar þá þegar boðaðir á fund um
málið.
Þann 30. september fundaði
ráðuneytið með hagsmunaað-
ilum, þ.e. fulltrúum frá Skotvís,
Bændasamtökunum og Fugla-
vernd. Þar tilkynnti ég ákvörðun
um níu daga veiðitímabil og bað
hagsmunaaðila um útfærslu á
fyrirkomulaginu, svo hægt væri
að taka endanlega ákvörðun fyrir
5. október. Þær athugasemdir
sem bárust sneru allar að breyt-
ingum á fjölda daga, en ekki með
slíkum rökum að sérfræðingar
ráðuneytisins legðu til að horf-
ið yrði frá níu daga útfærslunni
– enda ljóst að rjúpnastofninn
þyrfti strangari veiðistjórnun en
áður. Því var farið að tillögu Nátt-
úrufræðistofnunar og Umhverfis-
stofnunar við endanlega ákvörð-
un, sem kynnt var 5. október.
Almennt er mikill skilningur í
samfélaginu á mikilvægi þess að
ganga vel um rjúpnastofninn og
fara veiðimenn og samtök þeirra
þar framarlega í flokki. Samstarf
stjórnvalda við Skotvís hefur
verið gott og ber að þakka fyrir
það. Eins og fram kom þegar
ákvörðun um veiðar var kynnt,
hyggst ég boða til frekara sam-
starfs, þar sem skoðað verður
hvernig rjúpnaveiðum verði best
hagað á komandi árum. Ég tek
undir með formanni Skotvís, að
slæmt sé að það þurfi að hand-
stýra ákvörðun um rjúpnaveið-
ar svo skömmu fyrir veiðitíma-
bilið ár hvert. Bind ég vonir við
að samstarf sérfræðinga og hags-
munaaðila geti á næstu vikum og
mánuðum fundið nýjar lausn-
ir við skipulag rjúpnaveiða, svo
hægt sé að stunda þær á sjálf-
bæran hátt um ókomna tíð.
Brugðist við óvæntum
sveiflum í rjúpnastofninum
Rjúpnaveiðar
Svandís
Svavarsdóttir
umhverfisráðherra
Taldi ég sveiflu í rjúpnastofninum vera
meiri en svo að hægt væri að láta athug-
unarlaust, en jafnframt fulllangt gengið
að banna veiðar með öllu.
Umrót í Evrópu
Í málefnum Evrópusambands-ins hefur flest annað horfið í
skuggann af pólitískum ágrein-
ingi um hvernig leysa skuli
skuldavanda evruríkja sem
hafa sýnt slakastan árangur um
að fylgja settum reglum. Fréttir
fjölmiðla okkar um evrukrís-
una eru oftast hinar válegustu
þrátt fyrir að á ráðherrafundum
evruríkjanna í ESB hafi þokað
í rétta átt í aðgerðum fyrir
Grikkland og aðþrengda banka.
Reynslan sýnir að það er
ekki létt um vik að stýra mynt-
bandalagi 17 Evrópuríkja en
evrukrísan er vissulega fyrst
og fremst að kenna slakri hag-
stjórn fárra ríkja. Þar hefur
keyrt fram úr öllu hófi í hinu
skuldsetta Grikklandi. Hvernig
átti það að geta gengið hjá þeim
að halda inn í myntsamstarfið
með falsaða þjóðhagsreikninga
og eftirlaunagreiðslur til þús-
unda látinna lífeyrisþega?
Við verðum að líta á þessi
Evrópumál frá eigin sjónarhóli
þrátt fyrir allt umrótið og orð-
skvaldur dagsins. Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, mælti
fyrir því 26. október að leitað
yrði stuðnings við beintengingu
krónunnar við evru hjá ESB og
AGS í þeim tilgangi að losna
við gjaldeyrishöftin og fá erlent
fjármagn inn í landið til að
efla hagvöxt. Vonandi verður
hægt að fá viðræður um slíkan
stuðning með tilliti til þess að
samningaviðræðurnar um aðild
skila góðum árangri. En ein-
mitt þennan októberdag hófust
fréttir af því sem Guðmundur
Andri segir hafa verið heims-
leikana í hagfræði í Hörpu. Og
það má vissulega segja að þeir
hinir frægu hafi haft sitt hvað
að segja um Ísland í hruni og
viðreisn. Nokkrum hápunkti í
yfirlýsingum hafði Martin Wolf
frá Financial Times náð en
hann kom fram í Kastljósi með
því fororði að hann hefði ekki
kunnáttu á Íslandi.
En hvað skiptir þá máli varð-
andi okkur og Evrópusamband-
ið?
■ Samningar okkar um aðildina
að Evrópusambandinu ganga
greiðlega og verður að verulegu
leyti lokið 2012. Þátttaka í Evr-
ópska efnahagssvæðinu jafn-
gildir verulegum hluta af fullri
aðild en út af standa einkum
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
mál. Þegar heildarsamningur
liggur fyrir munu Íslendingar
sjálfir meta málið, vissulega án
aðstoðar Financial Times, og
leiða endanlega til lykta í þjóð-
aratkvæði.
■ Ef sú aðild hefur verið sam-
þykkt af þjóð og þingi liggur
beint við að hefja samninga í
gjaldmiðilsmálinu hafi það ekki
verið byrjað fyrr. Gera verð-
ur ráð fyrir aðstoð Seðlabanka
Evrópu – ECB – og að Ísland
hefji sk. ERM II aðlögunarferli
■ Sú staðreynd er lítið rædd,
að nú er um er um að ræða tví-
skipt, sk. tveggja hraða Evrópu-
samband. Innri kjarninn eru
þau 17 lönd sem hafa tekið upp
evruna og gætu vel tekið frek-
ara skref um að gera virkar
skuldbindingar á peninga- og
fjármálasviðinu sem ekki hefur
verið beitt sem skyldi. Það sem
um ræðir eru ákvæði Maast-
richt-sáttmálans frá 1991 eink-
um um hámark á greiðsluhalla
fjárlaga, opinberra skulda og
verðbólgustigs. Á þeim tíma var
hins vegar ekki fyrir hendi póli-
tískur vilji til að stofna til þess
virka eftirlits sem þessi viðmið
í efnahagsstjórn krefjast. Því
má segja að hleypt hafi verið
af stað upp á nokkra von og
óvon. Nú eru þess öll merki að
Bretar láti sér það lynda að þeir
sem það geta og vilja standi að
sterkri evru. Bæði Bretar og
Danir eru með undanþágur um
að standa utan evrusamstarfs-
ins og sú er einnig staða Svía.
■ Það ber síður en svo að úti-
loka að úr þessu skeiði umróts
og kreppu komi sterkara Evr-
ópusamband og þá tvískipt.
Evrulöndin 17 hafa þegar hafið
leiðtogafundi sem hin 10 sækja
ekki. Það hefur löngum legið
fyrir að það eru mismunandi
viðhorf til hversu náið sam-
starfið skuli vera og stofnan-
ir sterkar. Ekkert við það að
athuga. Og hafa t.d. Danir ekki
búið við velsæld og án pólitískra
átaka með eigin mynt í fastri
tengingu við evruna í 20 ár?
Er nú ekki tími til kominn
að víðtækari pólitísk samstaða
verði í Evrópumálum á Íslandi?
Vonandi hefur það ekki gleymst
öllum þeim sem voru í farar-
broddi um aðild að bæði EFTA
og EES, að með því fékkst
undir staða velferðar íslensks
þjóðfélags undanfarna áratugi.
Þá dylst það væntanlega fáum
að þátttaka í frjálsum innri
markaði Evrópusambandsins
verður ekki tryggð nema með
traustum gjaldmiðli. Því er ekki
andmælt með rökum að okkar
örlitla, opna hagkerfi geti ekki
búið við eigin mynt með fljót-
andi gengi fremur en við gjald-
eyrishöft. Kjarni málsins er að
þátttakan í innri markaðinum sé
tryggð að því gefnu að aðildar-
samningurinn taki að þjóðar-
dómi tillit til íslenskra hags-
muna.
ESB-aðild
Einar
Benediktsson
fv. sendiherra
Þá dylst það
væntanlega fáum
að þátttaka í frjálsum
innri markaði Evrópu-
sambandsins verður
ekki tryggð nema með
traustum gjaldmiðli.