Fréttablaðið - 02.11.2011, Side 26
2. NÓVEMBER 2011 MIÐVIKUDAGUR4
BANKAR
Þórður Snær Júlíusson
thordur@frettabladid.is
Bankar mega einungis eiga fyrir-
tæki í óskyldri starfsemi í 12 mán-
uði án þess að leita eftir undan-
þágu vegna þess eignarhalds hjá
Fjármálaeftirlitinu (FME). Slíkar
beiðnir hafa borist FME en eftir-
litið hefur enn sem komið er ekki
beitt neinum viðurlögum, til dæmis
í formi dagsekta, gegn bönkum
vegna seinagangs í að selja hluti
þeirra í fyrirtækjum. Dæmi eru um
að fyrirtæki hafi verið í eigu banka,
eða dótturfélaga þeirra, í meira en
30 mánuði.
Frá 25. júní síðastliðnum hefur
FME framkvæmt virkt eftirlit með
eignarhaldi banka á fyrirtækjum í
óskyldum rekstri. Gunnar Ander-
sen, forstjóri FME, segir að eftir-
litið eigi að hraða því ferli að bank-
arnir losi um þessa eignarhluti.
Dragist ferlið mikið lengur gæti
það leitt til þess að viðurlögum
verði beitt.
Í fangi banka
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega
um stöðuna á samkeppnismark-
aði eftir bankahrun á undanförn-
um dögum. Þar hefur komið fram
að stærstu viðskiptabankarnir,
Landsbankinn, Íslandsbanki og
Arion banki, hafa fengið stóran
hluta af mikilvægustu samkeppn-
ismörkuðum landsins í fangið eftir
bankahrun.
Lögum um fjármálafyrirtæki
var breytt í fyrra á þann veg að
„viðskiptabönkum, sparisjóðum
og lánafyrirtækjum er því aðeins
heimilt að stunda aðra starfsemi
[...] sé það tímabundið og í þeim
tilgangi að ljúka viðskiptum eða
til að endurskipuleggja starf-
semi viðskiptaaðila [...] skal end-
urskipulagningu lokið áður en 12
mánuðir eru liðnir frá því að starf-
semi [...]hófst.“
FME fylgist vel með
Gunnar segir að FME fylgist vel
með öllum vandamálum sem eru
til staðar í eignasöfnum bank-
anna. „Við fáum skýrslur frá
bönkunum tvisvar á ári þar sem
er yfirlit yfir öll félög sem þeir
eiga. Síðan köllum við eftir sér-
stökum greinar gerðum ef beðið
er um undanþágu frá þeim tíma-
Fjármálaeftirlitið tilbúið að
beita banka viðurlögum
Bankar mega einungis eiga fyrirtæki í óskyldum rekstri í eitt ár. Dæmi um að bankar hafi átt fyrirtæki í rúma 30
mánuði. FME er tilbúið að beita viðurlögum ef með þarf. Þau gætu meðal annars verið í formi dagsekta.
FORSTJÓRINN
Gunnar Ander-
sen segir að
eftirlitið hafi þegar
móttekið nokkrar
beiðnir um undan-
þágu frá lögunum.
FME starfræki
virkt eftirlitskerfi
hvað það varði
og krefjist ítarlegs
rökstuðnings með
slíkum beiðnum.
Fjárhagsleg endurskipulagning bankanna
Þau fyrirtæki á samkeppnismarkaði sem hafa líklega fengið mesta fyrirgreiðslu allra eru stóru viðskiptabankarnir
þrír: Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki. Þeir fengu allir nýja kennitölu, erlendar skuldir upp á þúsundir
milljarða króna voru skildar eftir í þrotabúum forvera þeirra, þúsundir milljarða króna í eignum voru fluttir með
lagasetningum til þeirra og margir samkeppnisaðilar, meðal annars flestir sparisjóðir, urðu gjaldþrota. Þá voru sett
gjaldeyrishöft sem tryggja það að erlendir aðilar, hefðu þeir áhuga, geta ekki hafið fjármálastarfsemi á Íslandi vilji
þeir geta flutt fé sitt aftur úr landi.
SAMKEPPNI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA
Gríðarleg fákeppni ríkir á bankamarkaði
Samkeppniseftirlitið óskaði eftir ítarlegum upplýsingum frá viðskiptabönkunum til að geta metið markaðshlutdeild
þeirra við gerð skýrslu sinnar „Samkeppni eftir hrun“. Samkvæmt niðurstöðu hennar voru stóru bankarnir þrír með
80-95% markaðshlutdeild í útlánum til heimila og 85-100% markaðshlutdeild í útlánum til fyrirtækja um mitt þetta
ár. Næstur á eftir þeim kom Byr með 10-15% markaðshlutdeild á meðal heimila og 5-10% á meðal fyrirtækja. Byr
mun sameinast Íslandsbanka fyrir lok þessa árs og styrkja þar með stöðu hinna þriggja stóru á markaðinum.
Samkvæmt mati Samkeppniseftirlitsins er MP Banki með 0-5% markaðshlutdeild í útlánum til bæði heimila og
fyrirtækja og aðrir, sem eru litlir sparisjóðir, með 0-5% einnig. Fyrirséð er að eignarhlutur í fimm minni sparisjóðum
sem nú er í eigu ríkisins, og vistaður í Bankasýslu þess, muni vera seldur. Heimildir Fréttablaðsins herma að búist
sé við því að væntanlegir kaupendur verði starfandi viðskiptabankar á Íslandi.
ramma. Það hefur eitthvað verið
beðið um slíkar undanþágur.
Bankarnir þurfa þá að rökstyðja
hvers vegna þeir ættu að fá undan-
þágu og ýmsar aðrar kröfur eru
gerðar til þeirra, til dæmis varð-
andi uppgjör og ársreikninga
þessara fyrirtækja. Þannig að við
erum með þetta eftir litskerfi hvað
þetta varðar. Það á að hraða því
ferli að bankarnir losi þessa eign-
arhluti.“
Gætu beitt viðurlögum
Gunnar segir FME ekki hafa beitt
neinum viðurlögum vegna þessa,
enn sem komið er.
„Það er ekki það langt síðan þessu
kerfi var komið á. En ef þetta ferli
dregst mikið lengur, án þess að við
fáum góðar skýringar á því, þá gæti
það leitt til þess að við beittum við-
urlögum. Það gæti verið allt frá dag-
sektarferli í hærri eiginfjárkröfur.“
FME efndi nýverið til kynningar
á hálfsársuppgjöri viðskiptabank-
anna. Þar kom meðal annars fram
að um mitt þetta ár, tæpum þrem-
ur árum eftir bankahrun, væru enn
14,4% af útlánum bankanna í van-
skilum. Í framsögu eftir litsins kom
fram að hjá góðu útlánasafni séu
vanskilalán 1-2% af bókfærðu virði
útlána. Því er það mat FME að van-
skil útlána séu of há hérlendis, sem
þýðir að enn sé til staðar töluverð
þörf á afskriftum lána innan banka-
kerfisins.
Það mat er í takti við þá skoðun
Samkeppniseftirlitsins að 29% fyr-
irtækja séu í það slæmri stöðu að
þau ráði ekki örlögum sínum, held-
ur séu þau í höndum bankanna. Því
hafi þeir ægivald yfir þessum fyrir-
tækjum.
VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS
ICELAND CHAMBER
OF COMMERCE
Árlegur peningamálafundur Viðskiptaráðs Íslands
Föstudaginn 4. nóvember 2011 kl. 8:15-10:00 í Norðurljósum, Hörpu
HÁIR VEXTIR EÐA VERÐBÓLGA - ER ÞAÐ EINA VALIÐ?
Nánari upplýsingar og skráning á: www.vi.is
Aðalræðumaður er Már Guðmundsson, seðlabankastjóri - Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður
Fundurinn er haldinn í tilefni af útgáfu Peningamála Seðlabankans, þar sem kynnt er
fyrsta spá bankans eftir að efnahagsáætlun Íslands og AGS rann sitt skeið í lok ágúst
Heildareignir íslenskra innláns-
stofnana voru 2.846 milljarðar
króna í lok september síðastlið-
ins. Þar af námu innlendar eignir
þeirra 2.540 milljörðum króna.
Af þeirri upphæð voru útlán og
kröfur 1.725 milljarðar króna.
Söluhæfar fjáreignir bankanna
voru metnar á 125,7 milljarða
króna. Þetta kemur fram í nýjum
hagtölum Seðlabanka Íslands um
eignir og skuldir íslenskra inn-
lánsstofnana.
Í lok september 2008, nokkrum
dögum áður en íslenska fjármála-
kerfið hrundi, mátu innlánsstofn-
anir eignir sínar á um 14.900
milljarða króna. Í dag eru eignir
banka því tæp 17% af bókfærðu
eignasafni þeirra fyrir hrun.
Eignir innlánsstofnana
Bankar eiga
2.846 milljarða
SEÐLABANKI ÍSLANDS Innlendar eignir í
bankanum námu 2.540 milljörðum.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, annar
eigandi Pizza Hut á Íslandi og í
Finnlandi, fékk á dögunum viður-
kenningu frá alþjóðlegu samtök-
unum The International Alliance
of Women (TIAW). Viðurkenn-
inguna fékk hún fyrir fræðslu,
hvatningu og stuðning í þágu
kvenna í frumkvöðlastarfsemi.
Afhending viðurkenningarinnar
fór fram í Washington nýverið
þar sem alls 100 konur hvaðan-
æva úr heiminum voru verðlaun-
aðar.
Auk þess að eiga og reka Pizza
Hut ásamt Pétri Jónssyni leið-
ir Þórdís fjárfestingarfélagið
Naskar ehf.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Fékk TIAW
viðurkenningu
ALÞJÓÐLEGT Viðurkenningin var afhent í
Washington.