Fréttablaðið - 02.11.2011, Side 27
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Dagur félagsmiðstöðva er haldinn hátíðlegur
í dag. Félagsmiðstöðvar borgarinnar og víðar um
land opna dyrnar fyrir gestum og gangandi frá
klukkan 17 og fram á kvöld. Markmið dagsins er
að gefa ungum og öldnum tækifæri til að heim-
sækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi, kynnast
starfinu, unglingunum og viðfangsefnum þeirra.
Tískuhönnuðurinn Mundi vondi og félagar semja dulkóðaða sögu sem vísar á falinn fjársjóð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Grafa fjársjóð
niður í jörð
F
atahönnuðurinn Guðmundur Hallgrímsson, betur
þekktur sem Mundi vondi, vinnur nú ásamt fleir-
um að dulkóðuðu þrautablaði sem vísar á falinn
fjársjóð. Verðmætið er talið hlaupa á milljónum.
„Þetta er alvöru fjársjóður sem er fyrir tilstuðlan nokk-
urra fjársterkra aðila orðinn milljóna króna virði,“ segir
Mundi án þess þó að tilgreina hvers eðlis fjársjóðurinn sé.
Upplýsir þó að ekki sé loku fyrir það skotið að upphæðin
muni hækka þar sem enn sé opið fyrir styrki.
Leitin að umræddum fjársjóði verður enginn barna-
leikur ef marka má Munda. Vísbendingar um staðsetn-
ingu hans verður að finna í dulkóðaðri sögu í fyrrnefndu
þrautablaði sem Mundi og félagar hafa varið meira en ári
í að gera sem erfiðast aflestrar. „Við erum búnir að lesa
okkur rækilega til um helstu dulkóða og þrautir sem gerð-
ar hafa verið og þetta verður, vil ég meina, ein torveldasta
þraut mannkynssögunnar,“ segir hann og gefur höfundi
sögunnar, Magnúsi Birni Ólafssyni, orðið.
„Sagan er með goðfræðilegu ívafi og myndar umgjörð
utan um stóra þraut. Hún samanstendur af köflum sem
eru hver og einn smærri þrautir sem þarf að leysa til að
komast áfram svo endanleg lausn fáist. Það verður tíma-
frekt verk.“
2