Fréttablaðið - 02.11.2011, Qupperneq 28
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Afmælistilboð
15-40% afsláttur
tilboðin gilda líka í vefverslun
sendum frítt á næsta pósthús
VETRARDAGAR
15% AFSLÁTTUR
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Hugsaðu vel um fæturna
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugard. 10-14.
Í meira en hálfa öld hafa milljónir manna um
allan heim notað BIRKENSTOCK®
sér til heilsubótar. Hvað um þig?
Teg: Arisona. Verð: 12.885,-
Stærðir: 36-48
INNRÉTTINGAR
GLÆSILEGAR DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
KOMDU MEÐ EÐA SENDU
OKKUR MÁLIN OG VIÐ
HÖNNUM, TEIKNUM OG GERUM
ÞÉR HAGSTÆTT TILBOÐ.
ARKITEKTÞJÓNUSTA
Hvatningaverðlaun verða veitt í heilsuferða-
þjónustu í desember. Verðlaunin eru ein milljón
króna en umsóknum skal skilað til Ferðamála-
stofu fyrir 20. nóvember. www.ferdamalastofa.is
„Það er alveg ljóst að aðgengi fatl-
aða er mjög ábótavant í Viðey, en
þar standa hafnaraðstæður helst í
vegi fyrir að fatlaðir njóti eyjunn-
ar til jafns við aðra,“ segir Berg-
lind Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
á menningar- og ferðamálasviði
Reykjavíkurborgar.
Rannveig Grétarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Eldingar sem á og
rekur Viðeyjarferjuna. Hún segir
aðgengi fatlaðra beggja vegna
sundsins stórt vandamál.
„Í raun er ógjörningur að koma
stórum, rafknúnum hjólastólum
um borð og frá borði, og næsta
vonlaust að koma hjólastól upp á
bryggjuna í Viðey vegna mikils
hæðarmunar á flóði og fjöru. Þá
liggur að flotbryggjunni í Skarfa-
vör snarbrattur rampur, alsettur
torfærum þrepum, sem hjólastól-
ar aka ekki niður,“ segir Rann-
veig sem er með tilbúna áætlun til
breytinga á bátum Eldingar miðað
við þarfir fólks í hjólastólum, en
bíður með framkvæmdir þar til
lausn finnst í hafnarmálum.
Aðgengi fatlaðra til og frá Viðey
strandar alfarið á kostnaði, segir
Gísli Gíslason, hafnarstjóri hjá
Faxaflóahöfnum.
„Allt er hægt fyrir peninga, en
framkvæmdin er afar kostnaðar-
söm. Aðstæður í Viðey eru með
einkar sérstökum hætti og mann-
virkið sem þar var byggt á sínum
tíma afar hátt. Því er snúið að
breyta aðstæðum á dugandi hátt
og mannvirkin flókin viðureign-
ar,“ segir Gísli.
Hann segir fimm metra mun á
flóði og fjöru við flotbryggjurnar
sem nú þjóna Viðeyjarferjunni.
„Í lægstu stöðu er mjög bratt
upp á sjálfa bryggjuna og líklegt
að krani eða lyfta yrði fyrir val-
inu. Á svæðinu eru bryggjukranar
en öryggiskröfur kveða á um ann-
ars konar búnað og miklum mun
dýrari,“ segir Gísli.
En á hverjum myndi sá kostnað-
ur lenda? „Svarið er óljóst. Í samn-
ingi milli Reykjavíkurborgar og
Faxaflóahafna var samið um að
við byggðum mannvirki í Skarfa-
vör og Bæjarvör hinum megin. Við
sjáum því aðeins um hafnarmann-
virki en ekki þau sem eru uppi á
landi,“ útskýrir Gísli.
Hann segir núverandi mann-
virki illa til þess fallin að leysa
vandann og staðsetning bryggj-
unnar í Viðey ekki endilega þá
bestu þótt hún sé í skemmstri fjar-
lægð á milli lands og eyjar.
„Í Viðeyjarhöfn er mikill sjó-
gangur og við náttúruöflin að
glíma. Því þarf að gera miklar
öryggiskröfur og vanda til verka,
en auðvelt að leysa vandann ef
nógur aur er til þess. Þetta er ekki
fjárfesting sem menn horfa í hvort
svari kostnaði, enda ekki hægt að
meta lífsgæði fatlaðra til fjár.“
Berglind Ólafsdóttir segir að
kostnaðaráætlun og lausnir frá
Faxaflóahöfnum yrðu strax skoð-
aðar jákvætt hjá borginni. „Þá
verður undir eins athugað hvort
við fáum fjármuni og heimild til
að verja þeim í slíka framkvæmd,
og í framhaldi hefja úrbætur á
aðgengi fatlaðra í eynni, eins og
léttari leið upp brekkuna að Við-
eyjarstofu og lyftuhúsi aftan á Við-
eyjarstofu sem opnar loks aðgang
fatlaðra að salernum í kjallara
hússins. Draumurinn er að fatl-
aðir komist í Viðey á eigin vegum
sem fyrst, en þangað til tökum við
vel á móti þeim og aðstoðum eftir
þörfum.“
hjordis@frettabladid.is
Viðey ófær hjólastólum
Náttúruparadísin og sögueyjan Viðey er í miklu dálæti Íslendinga sem sigla yfir sundið til að njóta þar
lífsins. Á bryggjunni sitja eftir landar þeirra í hjólastólum og komast hvergi nema með mikilli fyrirhöfn.
Snarbrattur rampur við flotbryggjuna hjá Viðeyjarferjunni er torveldur yfirferðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta er ekki fjárfesting sem menn horfa í hvort svari
kostnaði; enda ekki hægt að meta lífsgæði fatlaðra til fjár.
Magnús og Mundi segjast báðir
hafa þrælgaman af þrautum og
gátum en áhugi hins síðarnefnda
varð einmitt kveikjan að blaðinu.
„Ég stóð að gerð sams konar en
smærra blaðs ásamt útskriftar-
árganginum mínum í LHÍ um
árið og mig hefur alltaf langað
til að útfæra hugmyndina betur.
Svo gafst bara rétta tækifærið
og ég hóaði saman góðum mann-
skap með mér í verkefnið,“ segir
Mundi en auk þeirra Bjarna þurfti
hvorki meira né minna en arki-
tekt, leikjahönnuð og myndlistar-
mann til að berja blaðið saman
sem til stendur að gefa út á ensku
í nokkrum löndum á næsta ári.
„Ég mæli með að fólki taki sig
saman um að reyna að leysa þessa
þraut því það verður líklegast
ekki á færi einnar manneskju,“
segir Mundi og bætir við að sá
möguleiki sé fyrir hendi að fjár-
sjóðurinn finnist ekki á næstunni
og kannski bara alls ekki. „Við
höfum gert ráðstafanir svo hann
falli hvorki í verði né skemmist
með því að setja hann í rakaþétta
kistu sem þolir að vera grafin í
jörðu næstu árin,“ segir hann og
bætir við þegar hann sér undrun-
arsvipinn á blaðamanni: „Já, það
þarf að grafa hann upp, bókstaf-
lega!“
roald@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Mundi og Magnús segja fjársjóðsleitina engan barnaleik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON