Fréttablaðið - 02.11.2011, Side 42
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR30
Sir Roger Moore segir að síðasta
myndin um James Bond, Quant-
um of Solace, hafi verið eins og
sundurlaus auglýsing. Moore,
sem fór með hlutverk njósnara
hennar hátignar í sjö myndum
á árunum 1973-1985, segir að
sagan sé ekki nóg sterk og mynd-
in sé of löng. Þá gagnrýnir hann
vöruinnsetningar í myndinni.
„Ég var ekki hrifinn af síðustu
Bond-mynd. Hún er var eins og
löng, sundurlaus auglýsing,“
sagði hann.
Hinn 84 ára Moore skaut einn-
ig föstum skotum á forvera sinn í
hlutverki Bond, Sir Sean Con-
nery, þegar hann sagðist eiga í
erfiðleikum með að skilja skosk-
an hreim hans. „Sean er góður
leikari, mér þykir leitt að ég
skil ekki hvað hann segir,“ sagði
Moore á fundi með námsmönnum
í Cambridge í síðustu viku.
Moore ósátt-
ur við Bond
Hljómsveit gítarleikarans
Ómars Guðjónssonar heldur
tónleika á Jazzklúbbnum Múl-
anum í Norræna húsinu í kvöld.
Tilefnið er að hita upp fyrir
tónleika sveitarinnar á London
Jazzfestival í næstu viku. Þar
mun hljómsveitin koma fram
ásamt þremur öðrum íslensk-
um böndum.
„Við komum fram laugar-
daginn 12. nóvember á sviði
sem verður tileinkað íslensk-
um tónum. Ásamt okkur leika
Samúel Jón Samúelsson Big
Band, Tríó Sunnu Gunnlaugs-
dóttur og Frelsissveit Hauks
Gröndal,“ segir Ómar spenntur
yfir komandi Bretlandsferð.
Hann lofar jafnframt að raf-
magnaður djass verði leikinn
á Múlanum í kvöld. „Við erum
með tvo trommuleikara og raf-
magnsbassa, sem er ekki mjög
algengt í djassi. Við hugsum
svolítið út fyrir djassrammann.“
- hþt
Spila í London
RAFMAGNAÐUR DJASS Gítarleikarinn
Ómar spilar ásamt hljómsveit á Jazz-
klúbbnum Múlanum í kvöld.
„Tónleikarnir verða góðir, plat-
an verður flutt eins og hún kemur
fyrir. Og svo verður auðvitað Sig-
ríður Thorlacius með okkur, en það
er einn dúett á plötunni með okkur.
Ég er mjög ánægður með útkom-
una og viðtökurnar,“ segir tenórinn
Sveinn Dúa Hjörleifsson sem fagnar
útkomu fyrstu einsöngsplötu sinn-
ar með útgáfutónleikum í Salnum í
Kópavogi á sunnudagskvöld klukk-
an 20.
Platan kallast Værð og inniheldur
íslensk sönglög í útsetningu Hjart-
ar Ingva Jóhannssonar píanóleik-
ara. „Þegar við Hjörtur byrjuðum
að ræða efni plötunnar var ljóst að
nokkur lög voru okkur sérlega hug-
leikin og pössuðu vel á plötu sem
þessa, nokkur þeirra eru í Fjárlög-
unum en ekki öll. Við ákváðum því
að hafa þau sem eins konar þráð á
plötunni. Lögin í gömlu Fjárlög-
unum eiga fullt erindi til fólks og
Hjörtur gerði þau sem við notumst
við fersk með sínum útsetningum.“
Sveinn lauk nýverið námi frá Tón-
listarháskóla Vínarborgar og hefur
haft í nógu að snúast síðan. Hann
hlaut á dögunum viðurkenningu úr
Styrktarsjóði Önnu K. Nordal sem
ætlað er að styðja við unga og efni-
lega söngvara og fiðluleikara. Hann
segir viðurkenninguna mikla. „Ég
er nýbúinn með námið og er núna
byrjaður að vinna við þetta.“ Sveinn
hefur þegar komið víða fram þrátt
fyrir ungan aldur og söng meðal
annars með Sinfóníuhljómsveit
Íslands á opnunarhátíð Hörpu, en
segir þó stóru tækifærin liggja utan
landsteinanna. „Í sumar var ég í Vín
og tók þátt í frumflutningi á nútíma-
óperum, þetta var svona kammer-
óperuveisla – þar söng ég þrjú hlut-
verk. Á síðasta ári söng ég í Bergen
og var á tónleikaferðalagi í Kóreu.
Síðan er ég að fara til Linz í Aust-
urríki þar sem ég syng Fernando í
Cosi fan tutte fram á næsta sumar.
Þetta gengur glimrandi vel.“ - bb
Sveinn Dúa fagnar sönglagaplötu
NÓG AÐ GERA Sveinn Dúa Hjörleifsson söng með Sinfóníuhljómsveit Íslands á
opnunarhátíð Hörpu. Hann sendi nýverið frá sér fyrstu einsöngsplötu sína og fagnar
útgáfunni í Salnum á sunnudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM