Fréttablaðið - 02.11.2011, Page 56
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
LÖGFRÓÐUR
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA LÖGRÉTTU
ÓKEYPIS LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
fyrir almenning í Háskólanum í Reykjavík.
Sendið fyrirspurn á logfrodur@hr.is
logfrodur.hr.is
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Meiri menningarinnrás
Það er skammt stórra högga á milli
hjá þýskum menningarvitum sem
hafa gaman af íslenskri menningu.
Fyrir skemmstu hertóku íslenskir
rithöfundar Frankfurt og gerðu þar
garðinn frægan í tilefni af bóka-
messunni og um helgina verða
níu íslenskar kvikmyndir sýndar
á kvikmyndahátíðinni í Lübeck.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá mun barnamyndin
Algjör Sveppi og
töfraskápurinn verða
meðal gesta en meðal
annarra íslenskra
mynda eru Brim
eftir Árna Ólaf
Ásgeirsson og
Á annan veg
sem Haf-
steinn Gunnar
Sigurðsson
leikstýrði.
- sh, fgg
1 Anonymous ræðst á stærsta
fíkniefnagengi Mexíkó
2 Sauðfé er gáfaðra en áður var
talið
3 María Lilja ætlar að svara
Davíð í hádeginu
4 Fullur ökumaður í stórsvigi
niður Kambana
5 Fíkniefnasendingin tekin í
Straumsvík
Tónelskir í kappsundi
Sundkóngur 101 var krýndur í
Sundhöll Reykjavíkur í gær. Keppnin
var ekki afstaðin þegar Fréttablaðið
fór í prentun en ljóst að keppnin
um Sundkóngs-bikarinn, í boði
Priksins, hefur verið hörð. Ekki hefur
síður verið hart barist í boðsundi,
þar sem tvær tónlistarstefnur öttu
kappi. Annað liðið, Sundfélag
raftónlistarmanna, var meðal annars
skipað þeim Óla Ofur, sem þreytti
baksund, og DJ Margeiri, bringu-
sundssérfræðingi. Hitt liðið nefndist
Hip-hop sæhestarnir og þar synti
meðal annars Sesar A baksund,
bringusundið kom í hlut Gísla
Galdurs (sem ljóstraði
því upp í Frétta-
blaðinu í síðustu
viku að hann kynni
ekki að stinga sér)
og Egill Tiny úr
Quarashi leysti Byrki
B úr Forgotten Lores
af hólmi í skriðsundi.
Byrkir var veikur.