Fréttablaðið - 22.11.2011, Síða 6
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR6
Auglýsing um styrki til rannsókna á stofnum
villtra fugla og villtra spendýra
Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og
veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, eins og henni
-
ráðherra fé til rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta.
rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög
ráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merktar Veiði-
kortasjóður, fyrir 20.desember 2011.
Í umsókn um styrk úr Veiðikortasjóði skal umsækjandi greina
frá efni og afmörkun fyrirhugaðra rannsókna, hverjir koma að
rannsóknunum, skipulagi þeirra og áætluðum tímamörkum
ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri rannsóknir.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að senda inn umsóknir.
ráðgjafanefndar úthluta styrkjum eigi síðar en 15. febrúarr 2012.
21. nóvember 2011
NEYTENDUR Kílóverð á frosnum fiski í verslun-
um er einnig fyrir ís, vatn og umbúðir. Þegar
frosinn fiskur er soðinn er þyngdin í sumum til-
vikum einungis helmingurinn af því sem borg-
að var fyrir. Þetta er niðurstaða úttektar Neyt-
endasamtakanna sem framkvæmd var af Matís
á gæðum frosins fisks í stórmörkuðum.
Kvartanir neytenda um óeðlilega rýrnun á
frystum fiski við þíðingu og eldun berast reglu-
lega til Neytendasamtakanna og var því talin
ástæða til að kanna málið nánar. Fyrir þau sýni
sem könnuð voru náði nettóþyngd fisks ekki
merktri þyngd. Neytendur eru því að borga
fyrir umbúðir, íshúð og hrím í umbúðum á
sama kílóverði og fyrir fiskinn.
Nýting fisksins við suðu var á bilinu 69 til 79
prósent. Þegar íshúð og vatnstap við þíðingu
var tekin með í reikninginn varð nýtingin 50
til 79 prósent. Þegar nýtingin er aðeins 50%
þýðir það að aðeins helmingurinn af keyptum
fiski endar á diski neytandans.
Í skýrslu Matís kemur fram að íshúð var
aðeins til staðar á sumum sýnanna. Því er raun-
hæfur verðsamanburður neytenda á frosnum
fiski útilokaður þegar hann er ýmist í boði með
eða án íshúðar og hún vigtuð með.
Kannaður var frystur og pakkaður fiskur í
frystiborðum Krónunnar, Bónuss, Nóatúns og
Hagkaups í júlí og nóvember. - sv
Nýting frosins fisks úr stórmörkuðum allt niður í 50 prósent við suðu:
Borgum fyrir vatn og umbúðir
FROSINN FISKUR Úttekt Matís sýnir að umbúðir, ís og
vatn eru hluti af kílóverði frosins fisks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Þrír íslenskir karl-
menn, sem grunaðir eru um að
hafa staðið að skotárás á bifreið á
föstudagskvöldið, höfðu veitt öku-
manni hennar eftirför áður en þeir
létu til skarar skríða. Tveir þeirra
hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald og sá þriðji var handtekinn í
gærkvöld.
Mennirnir þrír voru grímu-
klæddir við eftirförina, sem stóð
nokkra stund um hverfið þar sem
þeir skutu síðan á bifreiðina. Í bíln-
um sem þeir veittu eftirför voru
farþegar, auk ökumannsins. Þeir
skutu tveimur skotum, að því er
talið er, úr haglabyssu á bílinn á
planinu við bílasöluna Höfðahöllina
og splundraðist afturrúða hans við
skothríðina. Fólkið í bílnum sakaði
ekki og þykir mikil mildi að ekki
skyldi fara verr þegar kúlnahríð-
in lenti á honum. Sá sem ók bílnum
hélt rakleiðis á honum niður að lög-
reglustöð við Hverfisgötu, þar sem
hann leitaði ásjár lögreglu. Skot-
mennirnir höfðust ekki frekar að.
Lögregla rannsakar nú bifreið sem
talið er að þeir hafi verið á þegar
þeir skutu á hinn bílinn, en sú rann-
sókn var á frumstigi í gær.
Annar mannanna var handtekinn
skömmu eftir árásina og úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 25. nóvem-
ber. Hinn maðurinn gaf sig síðan
fram við lögreglu í fyrradag og
var hann úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Talið er að hann hafi
staðið á bak við árásina og að hún
hafi verið gerð að undirlagi hans.
Báðir mennirnir eru á þrítugsaldri
og hafa komið við sögu lögreglu
vegna ýmissa mála áður. Sá þriðji
sem handtekinn var í gærkvöld er
sautján ára gamall. Fyrir fáeinum
vikum hlaut hann sex mánaða fang-
elsisdóm en hafði ekki hafið afplán-
un. Dóminn fékk hann vegna þátt-
töku í alvarlegri líkamsárás sem
tengist mótorhjólagenginu Black
Pistons.
Lögregla telur að þessi atburður
tengist fíkniefnum. Fjölmennt lið
lögreglu hefur unnið að málinu og
notið við það aðstoðar sérsveitar
ríkislögreglustjóra. jss@frettabladid.is
Einn árásarmanna
beið eftir afplánun
Þrír karlmenn sem grunaðir eru um að hafa staðið að skotárás á bifreið á
föstudagskvöld höfðu veitt bílnum eftirför áður en þeir létu til skarar skríða.
Tveir sitja í gæsluvarðhaldi og þriðji maðurinn var handtekinn í gærkvöld.
Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna skotárásarinnar í austurborginni
síðastliðið föstudagskvöld hafa báðir hlotið dóma.
Annar þeirra, sá sem gaf sig fram og er talinn standa á bak við árásina,
var fyrir nokkrum árum dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárásir og frelsissviptingu.
Fáeinum mánuðum síðar var hann aftur dæmdur í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa tálmað handtöku félaga síns. Ýtti hann þá svo við
lögreglumanni að hann missti takið á félaganum, sem hljóp í burtu.
Hinn maðurinn hefur hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.
Dómar skotmannanna
LÖGREGLUMÁL Tveir Pólverjar
voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald á laugardagskvöld vegna
mjög alvarlegrar líkamsárásar á
landa sinn. Gæsluvarðhaldið, sem
er á grundvelli rannsóknarhags-
muna, rennur út á morgun.
Atvikið átti sér stað í leigu-
herbergjum í Funahöfða aðfara-
nótt laugardagsins, eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst. Menn-
irnir urðu ósáttir sem endaði með
því að tveir gengu í skokk á þeim
þriðja og stórsköðuðu hann, eink-
um í andliti, þar sem hann mun
hafa hlotið mörg beinbrot. Grun-
ur leikur á að ölvun hafi verið í
spilinu þegar ósættið kom upp.
Nágrannar gerðu lögreglu við-
vart og hinn slasaði var fluttur
á spítala, þar sem hann gekkst
undir aðgerð. Hann mun ekki
vera í lífshættu. Tvímenning-
arnir létu sig hverfa eftir árás-
ina en voru handteknir snemma
á laugardagsmorgun og færðir
fyrir dómara um kvöldið.
Mennirnir eru allir um og yfir
þrítugt. Þeir hafa dvalið hér og
unnið um alllangt skeið. - jss
Tveir karlmenn í gæsluvarðhaldi eftir mjög alvarlega líkamsárás:
Stórsköðuðu landa sinn í andliti
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Úrskurð-
aði mennina tvo í gæsluvarðhald.
Ætlar þú að snæða rjúpur á
næstu jólum?
JÁ 12,4%
NEI 87,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með fréttum af
landsfundi Sjálfstæðisflokksins?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AF VETTVANGI Skotmenn-
irnir létu til skarar
skríða á bílaplaninu við
Höfðahölliina. Mikil
mildi var að ekki fór verr,
því þeir möluðu aftur-
rúðu bifreiðarinnar með
kúlunum.
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á
Selfossi var gert viðvart vegna
tveggja manna sem bönkuðu upp
á í húsi í bænum og kynntu sig
sem starfsmenn vörslusviptinga-
fyrirtækis. Erindi þeirra væri
að sækja bifreið manns sem var í
skuld með hana.
Eigandinn krafði mennina
um gilda pappíra sem heimil-
aði þeim vörslusviptinguna.
Þeir framvísuðu pappírum sem
maðurinn taldi ekki gilda og
neitaði að afhenda bifreiðina.
Mennirnir létu hann vita af því
að skuldin myndi hækka talsvert
ef hann afhenti hana ekki. Svo
hurfu þeir á braut. Bíleigandinn
er í greiðsluskjóli hjá Umboðs-
manni skuldara. - jss
Lögreglu gert viðvart:
Rukkarar undir
fölsku flaggi
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði kannabis-
ræktun í iðnaðarhúsnæði í Garða-
bæ í síðustu viku. Í framhaldinu
var farið í tvær húsleitir til við-
bótar, aðra á höfuðborgarsvæðinu
en hina á Suðurnesjum.
Kókaín fannst á fyrrnefnda
staðnum en á hinum reyndist vera
önnur kannabisræktun. Þar og í
Garðabæ var samanlagt að finna
nokkra tugi plantna.
Þrír karlmenn, tveir á þrítugs-
aldri og einn á fertugsaldri, voru
handteknir í þágu rannsóknar-
innar en við húsleitirnar var enn-
fremur lagt hald á ýmsa muni,
meðal annars fartölvur.
Lögreglan á Suðurnesjum veitti
aðstoð við húsleitina í umdæmi
hennar.
Kannabisrækt í Garðabæ:
Fundu kanna-
bis og kókaín
KJÖRKASSINN