Fréttablaðið - 22.11.2011, Side 36
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR24
Jólahlaðborð 2011
Jólaveisla fyrir einstaklinga og hópa
allar helgar á aðventunni
videyjarstofa@holt.is sími 552 5700 www.videyjarstofa.is
Gallery Restaurant – Hótel Holt
sér um allar veitingar í Viðeyjarstofu.
Lifan
di
píanó
tónli
st
með
ljúfu
m
jólalö
gum
Bókin Ekkert nýtt, nema
veröldin hefur að geyma
bréfaskipti skáldsins Gríms
Thomsen og Fjölnismanns-
ins Brynjólfs Péturssonar.
Hjalti Snær Ægisson segir
bréfin geyma lýsingar á
örlagatíma í evrópskri sögu
út frá íslensku sjónarhorni.
Bréfasafnið Ekkert nýtt, nema
veröldin er komið út hjá Sögu-
félagi og hefur að geyma öll bréf
sem varðveitt eru milli Gríms
Thomsen og Brynjólfs Pétursson-
ar. Bréfin eru rituð á árabilinu
1845-50 og veita innsýn í evrópskt
menningarlíf og samfélag Hafnar-
Íslendinga.
Aðalgeir Kristjánsson og Hjalti
Snær Ægisson bjuggu bréfin til
prentunar. Hjalti Snær segir að
alvaran og hátíðleikinn sem hvíli
yfir höfuðskáldum 19. aldarinn-
ar í hugum margra sé að sumu
leyti óskiljanlegur. „Í bréfum
Fjölnismanna er oft grillað alveg
út í eitt, og það er svipað með bréf-
in sem Grímur skrifar til Brynj-
ólfs. Absúrdkómíkin er aldrei
langt undan.“
Grímur Thomsen hefur lengi
verið mönnum ráðgáta, enda eru
heimildir um ævi hans glopp-
óttar. „Um Grím hefur enn ekki
verið skrifuð heildstæð ævisaga.
Manni hættir eiginlega til að líta
svo á að þetta séu tveir eða þrír
menn, ungskáldið, kanselistinn og
Bessastaðabóndinn. Þegar betur
er að gáð má þó sjá að þarna er
rauður þráður, og í bréfunum til
Brynjólfs kemur greinilega í ljós
að Grími var fátt óviðkomandi.“
Bréfunum fylgja ítarlegar
skýringar, enda kemur gríðar-
legur fjöldi manna og atburða við
sögu. Hjalti Snær segir að bréf-
in lýsi skoðunum Gríms á hug-
myndafræðilegri deiglu samtím-
ans: „Danska einveldið lagðist af
1848, um svipað leyti og febrúar-
byltingin var gerð í Frakklandi.
Grímur fylgdist rækilega með
þróun mála, enda starfaði hann
fyrir Danakonung.“
Grímur Thomsen var barn
síns tíma en þó sérstakur að
mati Hjalta Snæs: „Hann er einn
örfárra Íslendinga sem hrifust af
skandinavismanum og lagði allt-
af meiri áherslu á samnorræn ein-
kenni en einangrað íslenskt þjóð-
erni. Hugmyndir hans eru því
óneitanlega viðeigandi nú þegar
spurningin um átök íslensks þjóð-
ernis og yfirþjóðlegra stærða er
alls staðar á dagskrá.“
Útgáfa sendibréfa hefur lengi
tíðkast hérlendis, enda virðast
íslenskir lesendur afar áhugasam-
ir um bréfaskipti. „Árið 1946 kom
út bókin Húsfreyjan á Bessastöð-
um, sem er safn bréfa frá Ingi-
björgu Jónsdóttur, móður Gríms
Thomsen, til bróður síns, Gríms
amtmanns Jónssonar. Sú bók varð
metsölubók.“ Meðritstjóri Hjalta
Snæs, Aðalgeir Kristjánsson,
hefur rannsakað Grím Thomsen
og samferðamenn hans um ára-
bil. „Það er hrein unun að hlusta
á Aðalgeir tala um Grím,“ segir
Hjalti. „Manni finnst næstum eins
og þeir hljóti að hafa þekkst pers-
ónulega, slík er ástríða hans fyrir
bréfum og kvæðum Gríms.“
24
menning@frettabladid.is
Tónlist ★★★
Tónleikar í salnum
Þórarinn Jóhannes Ólafsson og Krystyna Cortes
Salurinn í Kópavogi
Falleg túlkun
Ég heyrði það strax á fyrstu tónunum að Þórarinn Jóhannes Ólafsson er
með fallega rödd. Hann hélt debut-tónleikana sína á Íslandi í Salnum í
Kópavogi á sunnudagskvöldið. Með honum spilaði Krystyna Cortes á píanó.
Þórarinn hefur lært söng á Ítalíu og í Kanada, en einnig hér á landi. Lögin
sem hann söng voru úr ýmsum áttum, en þau íslensku og ítölsku voru
mest áberandi. Textaframburður var prýðilegur og maður fann að Þórarinn
hefur næman skilning á tónlistinni sem hann söng. Túlkunin var einlæg og
sannfærandi.
Eins og áður sagði hljómaði röddin almennt vel. Neðra tónsviðið var
fínt, það voru helst toppnóturnar sem þvældust fyrir. Þórarinn er tenór,
en ég velti því samt fyrir mér megnið af tónleikunum hvort mörg laganna
væru ekki of há fyrir hann. Efstu tónarnir voru yfirleitt mjóir og hljómlausir,
það var eins og Þórarinn næði þeim ekki almennilega. Jú, hann náði þeim
reyndar að nafninu til, en ekki það vel að þeir virkuðu eins og dramatískir
hápunktar.
Þetta var býsna mikill galli á dagskránni. Og synd, því ég held að Þórarinn
sé sannur músíkant. Það kom ekki síst í ljós í einu aukalaginu, sem er
yfirleitt kennt við myndirnar um Guðföðurinn. Tilfinningin í laginu var
sönn, flæðið í túlkuninni var óheft, hún snerti við manni. Það eru ekki allir
söngvarar sem ná því.
Krystyna Cortes lék á píanó eins og áður sagði. Flygillinn var alveg opinn
og ég er ekki frá því að hún hafi spilað heldur sterkt í byrjun tónleikanna.
En að öðru leyti var leikur hennar mjúkur og eðlilegur og féll prýðilega að
söngnum. Jónas Sen
Niðurstaða: Falleg rödd og fín túlkun en megnið af dagskránni hefði mátt
vera neðar á tónsviðinu.
KJARTAN SIGURJÓNSSON heldur orgeltónleika í Dómkirkjunni í kvöld. Á efnisskránni eru Gotneska svítan eftir Bell-
mann og Fantasía og fúga eftir Bach. Auk þess leikur hann verk eftir Clérambault og Sweelinck. Tónleikarnir hefjast klukkan átta.
Absúrdkómíkin aldrei langt undan
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 22. nóvember 2011
➜ Tónleikar
20.00 Spiridons Shishigin heldur tón-
leika í MÍR salnum, Hverfisgötu 105.
20.30 Á fjórðu tónleikum djasstónleika -
raðar Kex Hostels kemur fram tríó gítar-
leikarans Björns Thoroddsen.
20.30 Lára Rúnars og Rúnar Þórisson
koma fram á Kaffi, kökur & rokk og ról í
Edrúhöllinni, Efstaleiti 7. Aðgangseyrir er
kr. 500. Kökur og kaffi á boðstólnum.
21.00 Voces Thules heldur tónleika
í Langholtskirkju. Aðgangseyrir er kr.
2.000. Nemar greiða kr. 1.000.
➜ Fundir
15.00 Marías H. Gestsson ræðir við-
skiptakjör og hagstjórn í litlu opnu
hagkerfi í málstofu sem haldin er í
fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafnið sýnir Carrie
eftir William Wyler í Bæjarbíói í Hafnar-
firði. Verð aðgöngumiða er kr. 500.
➜ Fyrirlestrar
12.05 Gunnar Karlsson ræðir hlutleysi
í sagnfræði í fundaröð Sagnfræðinga-
félags Íslands. Fyrirlesturinn fer fram í
Þjóðminjasafni Íslands.
12.05 Goddur, Guðmundur Oddur
Magnússon, prófessor í grafískri hönnun
við LHÍ, heldur fyrirlestur í Opna
listaháskólanum í Skipholti 1, stofu 113.
17.00 Sölvi Sveinsson, cand. mag. í
sagnfræði og skólastjóri Landakotsskóla,
flytur fyrirlestur sem heitir Að lesa list er
góð í Bókasafni Seltjarnarness.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Sinfóníur Beethovens
Námskeiðið Sinfóníur Beethovens
með Árna Heimi Ingólfssyni
tónlistar fræðingi verður haldið í
Norræna húsinu á vegum Endur-
menntunar Háskóla Íslands. Nám-
skeiðið er öllum opið og verður
haldið næstu þrjú þriðjudagskvöld.
Skráning og frekari upplýsingar á
endurmenntun.is.
Námskeið
GRÍMUR OG HJALTI SNÆR Hjalti segir að hin hátimbraða mynd sem hefur loðað við
þjóðskáldin sé illskiljanleg. Bréf Fjölnismanna leiftri til dæmis af kímni og í bréfum
Gríms Thomsen til Brynjólfs Péturssonar sé ávallt stutt í húmorinn.
Í bréfum Fjölnis-
manna er oft grillað
alveg út í eitt, og það er
svipað með bréfin sem
Grímur skrifar til Brynjólfs.