Fréttablaðið - 22.11.2011, Blaðsíða 38
22. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Tónleikar ★★★★
Fjallabræður
Ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni,
Jónasi Sigurðssyni og Mugison
Fríkirkjan, 19. nóvember
Það var í einu orði sagt mögnuð
stemning á tónleikum Fjallabræðra
í Fríkirkjunni á laugardagskvöldið.
Hljómsveitin hélt tvenna tónleika
sama kvöldið og var uppselt á þá
báða. Ég var á þeim seinni og það
var greinilegt að gestirnir sem
troðfylltu Fríkirkjuna klukkan
hálf ellefu voru mættir til þess að
skemmta sér. Og það sama gildir
um Fjallabræðurna sjálfa.
Hljómsveitin samanstendur sem
kunnugt er af um það bil fimmtíu
manna karlakór og rokkhljómsveit,
en á laugardagskvöldið spilaði
fiðluleikarinn Unnur Birna Björns-
dóttir líka stórt hlutverk, auk þess
sem nokkrir blásarar komu við
sögu. Kórstjórinn og gítarleikarinn
Halldór Gunnar Pálsson sá svo um
að halda mönnum við efnið, bæði
kórnum sjálfum og tónleika gestum
með skemmtilegum kynningum
milli laga.
Fjallabræður byrjuðu á nokkr-
um lögum af plötunni sem þeir
gáfu út fyrir tveimur árum og náðu
upp fínni stemningu. Þeir tóku svo
nýtt lag sem Unnur Birna söng
forsöng í, mjög flott. Þegar sér-
stakir gestir sveitarinnar komu á
svið fór hins vegar fyrst að hitna
almennilega í húsinu. Fyrstur kom
Fríkirkjan nötraði
FJALLABRÆÐUR Voru í mögnuðu stuði í Fríkirkjunni á laugardagskvöldið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta var mjög stíf vinna í júlí,
ágúst, september og október,
þá var maður eiginlega að frá
klukkan átta á morgnana til fjögur
um nóttina,“ segir Frosti B. Eiðs-
son en hann hefur lagt nótt við
nýtan dag að klára bókina Golf á
Íslandi sem hæglega mætti kalla
„biblíu“ íslenskra kylfinga. Bókin,
sem er 240 síður, inniheldur upp-
lýsingar og sögu allra golfvalla á
Íslandi auk annars skemmtilegs
fróðleiks. Meðal þeirra sem láta
ljós sitt skína í bókinni eru Ragn-
hildur Sigurðardóttir og Birgir
Leifur Hafþórsson, margfaldir
Íslandsmeistarar í golfi.
Frosti, sem er sjálfur mikill
kylfingur og hefur verið með lægst
sex í forgjöf en er núna með níu,
segir bókina eiginlega hafa eyði-
lagt golfsumarið fyrir sér, hann
gráti það þó þurrum tárum. „Þetta
var mjög stíf vinna en það jafn-
ast ekkert á við það að vera með
myndavélina á lofti, úti á velli, að
fylgjast með fólki líða vel og þurfa
sjálfur ekkert að hafa áhyggjur af
vondu höggunum,“ segir Frosti.
Hann bætir því við að það hafi
komið honum á óvart hversu
margir voru reiðubúnir til að
leggja þessu verkefni lið en sjálfur
tekur hann rúmlega helming allra
mynda sem birtast í bókinni. Golf-
ið hefur notið geysilegra vinsælda
hér á landi og hefur breyst úr því
að vera svokallað „elítusport“ í að
verða íþrótt fyrir alla. Það kemur
því ekkert á óvart að fjöldi nafn-
togaðra einstaklinga skuli leggja
til sögur af golfvellinum í bókinni,
svo sem Eyjólfur Kristjánsson og
Sigmar Vilhjálmsson, kenndur við
Hamborgarafabrikkuna. - fgg
Golfbókin eyðilagði
golfsumarið mitt
GOLF OG AFTUR GOLF Frosti B. Eiðsson,
höfundur bókarinnar Golf á Íslandi,
þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af
vondu höggunum í sumar þar sem hann
eyddi meira tíma með myndavélinni úti
á golfvelli en golfkylfunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
27.
Magnús Þór Sigmundsson og söng
með þeim lögin Jörðin sem ég ann
og Freyja. Það síðarnefnda var
ennþá betra og kallaði fram gæsa-
húð og kökk í hálsinn. Næst kom
Jónas Sigurðsson og tók tvö lög,
Allt er eitthvað og Hamingjan.
Þegar seinna lagið hljómaði hrein-
lega nötraði Fríkirkjan af stuði og
stemningu. Jónas hafði líka kynnt
það vel og tengt það við ákveð-
ið atriði í norska sjónvarpinu sem
fékk metáhorf …
Það hefði ekki hver sem er getað
fylgt eftir þeim hápunkti sem
flutningur Hamingjulagsins var á
laugardagskvöldið, en Mugison er
heldur ekki hver sem er. Hann fór
létt með það. Fyrst tók hann Ljós-
víkinginn í flottri kórútgáfu og svo
ofursmellinn Stingum af, en bæði
kórinn og gestir í salnum sungu
með í því og gleðin skein af hverju
andliti. Aftur skalf kirkjan.
Fjallabræður kláruðu svo tón-
leikana með tveimur lögum til
viðbótar, en í því seinna gekk
mannskapurinn syngjandi út úr
kirkjunni – fyrst kórinn, þá hljóð-
færaleikararnir, hljóðmaðurinn og
loks glaðir og sáttir tónleikagestir.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Fjallabræður og gestir
fylltu Fríkirkjuna af gleði og góðri
tónlist á laugardagskvöldið.
AFMÆLISDAGUR þokkagyðjunnar
Scarlett Johansson er í dag. við sjáum hana
næst í kvikmyndinni We Bought a Zoo, þar sem
hún er í aðalhlutverki ásamt Matt Damon.
GLÆSILEG Jennifer Hudson
þykir líta einkar vel út þessa
dagana. Hún klæddist
stuttum silfurlituðum kjól á
rauða dreglinum.
KÆRUSTUPARIÐ Justin Bieber
og Selena Gomez klæddu
sig heldur betur upp í tilefni
kvöldsins.
SIGURVEGARI Söngkonan Taylor Swift
var glæsileg í gulllituðum síðkjól með
hliðartagl.
FYRIRSÆTAN Heidi
Klum afhenti verðlaun
en hún klæddist
silfurlituðum kjól með
útskornu munstri.
Söngkonan Jennifer Lopez mætti
með hluta af fataskápnum sínum
en hún skipti fimm sinnum um
föt á bandarísku tónlistarverðlaun-
unum.
Söngkonan tróð upp fyrir áhorf-
endur og skipti þrisvar um fatnað
á sviðinu. Meðal þess sem hún
klæddist var sjálflýsandi stuttur
kjóll, síðkjóll með hlébarðamynstri
sem Lopez síðan reif utan af sér
og stóð loks í gegnsæjum sam-
festingi þöktum demöntum.
Söngkonan var valin suður-
ameríski listamaður ársins og tók
hún við verðlaununum í svörtum
síðum blúndukjól. Þegar kom að
eftirpartýinu var Lopez hins vegar
komin í stuttan silfurlitaðan kjól.
SKIPTI FIMM
SINNUM UM FÖT
Bandarísku tónlistarverð-
launin eða American Music
Awards fóru fram í Los
Angeles aðfaranótt mánu-
dags. Söngkonan unga
Taylor Swift var
valin listamaður árs-
ins fram yfir þau Lil
Wayne, Lady Gaga, Adele
og Katy Perry sem einnig
voru tilnefnd í þeim flokki.
Taylor Swift, sem vakti athygli
í gulllituðum síðkjól, fór einnig
heim með verðlaun fyrir kántrí-
plötu ársins og sem kántrí-
söngkona ársins.
Aðrir sem fóru heim með
verðlauna styttu voru Bruno
Mars, Adele, Nicky Minaj, Usher,
Beyoncé, Rihanna og Jennifer
Lopez.
Það var greinileg tískubylgja í
gangi á rauða dreglinum þar sem
flestar konurnar klæddust gull-
eða silfurlituðum kjólum í tilefni
kvöldsins.
SWIFT TÓNLISTAR-
MAÐUR ÁRINS 2011
MEÐ
BLEIKT
HÁR Katy
Perry
kom
fram á
verðlaun-
unum.
JAKKFATA-
KLÆDDUR Bruno
Mars var að
vonum ánægður
með verðlaun sín
sem karlkyns popp-
tónlistarmaður árins.
NORDIPHOTOS/GETTY