Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 4
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR4
Fjölskyldupakki
Hvílíkur léttir
NÝTT
Mitt og þitt Otrivin
- eitt fyrir hvert okkar!
Seljavegi 2 101 Reykjavík Sími 511 3340 www.reyap.is
Afgreiðslutími: 9-18.30 alla virka daga og 10-16 á laugardögum
20% afsláttur
Verð áður: 1.659 kr.
Verð nú: 1.327 kr.
Á síðu 24 í blaðinu gær var vitnað í
rannsókn, sem birtist í Sálfræðiritinu,
um öryggi barna í innkaupakerrum.
Áréttað skal að höfundar rannsóknar-
innar eru Zuilma Gabriela Sigurðar-
dóttir og Árni Þór Eiríksson.
HALDIÐ TIL HAGA
Í frétt blaðsins á fimmtudag var sagt
að hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son hefði þurft að hverfa af Vest-
fjarðamiðum vegna bilunar. Hið rétta
er að skipið er á Vestfjarðamiðum við
mælingar á loðnu og engin truflun
hefur orðið á rannsóknaleiðangrinum.
LEIÐRÉTT
BRUSSEL, FRÉTTABLAÐIÐ Eldflauga-
varnir Atlantshafsbandalagsins
beinast ekki á nokkurn hátt gegn
Rússlandi, sagði Hillary Clinton,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
í Brussel í gær. Clinton sagði að
ekkert ríki utan NATO hefði neit-
unarvald um áform NATO um að
verja sig fyrir hugsanlegum eld-
flaugaárásum, en bandalagið gerði
ekki ráð fyrir slíkum árásum frá
Rússlandi. „Þetta hefur ekkert
með Rússland að gera. Í hreinskilni
sagt snýst þetta um Íran og önnur
ríki eða samtök sem eru að þróa
eldflaugatækni,“ sagði Clinton.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins voru harðar umræður milli
Sergejs Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, og utanríkisráðherra
NATO-ríkjanna um eldflauga-
varnirnar, hugsanlega NATO-aðild
Georgíu og hernaðaraðgerðinar í
Líbíu á fundi þeirra í Brussel í gær.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, orðaði það svo
eftir fundinn að orðaskiptin hefðu
verið „lífleg“ og „áköf“.
Lavrov hélt þó dyrunum opnum
fyrir áframhaldandi viðræður og
Rasmussen sagðist leggja ríka
áherzlu á að samkomulag næðist.
„Ef við náum samkomulagi um
[eldflaugavarnirnar] færir það
samstarf okkar upp á nýtt stig,“
sagði framkvæmdastjórinn.
NATO hefur boðið Rússum náið
samstarf um eldflaugavarnir, en
Rússar hyggjast setja upp sitt eigið
gagnflaugakerfi til að verjast hugs-
anlegum árásum frá löndum á borð
við Íran og Norður-Kóreu. Rasmus-
sen sagði að ein hugmynd væri að
NATO og Rússland settu upp tvær
miðstöðvar, með starfsfólki frá
báðum aðilum, sem myndu skiptast
á upplýsingum, undirbúa sameigin-
legar æfingar og framkvæma sam-
eiginlegt hættumat. „Við viljum að
Rússar sjái með eigin augum að eld-
flaugavarnirnar beinist ekki gegn
Rússlandi,“ sagði Rasmussen.
Lavrov var á því er hann ræddi
við blaðamenn eftir fundinn að
NATO hefði ekki sýnt nægilegan
samstarfsvilja. Hann ítrekaði
fyrri kröfur Rússa um skýrar, laga-
lega bindandi tryggingar í formi
alþjóðasamnings fyrir því að eld-
flaugavarnir NATO beindust ekki á
neinn hátt gegn kjarnorkufælingar-
mætti Rússlands. Sum NATO-rík-
in, Bandaríkin þar á meðal, telja
að slíkur samningur myndi binda
hendur bandalagsins um of.
Rasmussen sagði að tryggingin
sem Rússar kölluðu eftir hefði
í raun verið fyrir hendi í hálf-
an annan áratug, allt frá því að
undirrituð var samstarfsyfirlýs-
ing NATO og Rússlands árið 1997,
þar sem aðilar hétu því að beita
ekki valdi hvor gegn öðrum. Nú
væri tímabært að ítreka þær yfir-
lýsingar, um leið og nýtt samkomu-
lag næðist um eldflaugavarnirnar,
helzt á fyrri hluta næsta árs.
Lavrov sagði að Rússar væru
áfram reiðubúnir til viðræðna, að
því gefnu að „lögmætar áhyggj-
ur allra aðila“ væru teknar með
í reikninginn. „Við getum fund-
ið lausn sem gagnast báðum. Við
höfum enn dálítinn tíma en hann
styttist með hverjum deginum.“
olafur@frettabladid.is
Eldflaugavarnir beinast ekki
að Rússlandi heldur Íran
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir eldflaugavarnir NATO ekki beinast gegn Rúss-
landi heldur Íran og öðrum útlagaríkjum. Rússar vilja lagalega bindandi tryggingar fyrir því að kerfi
NATO beinist ekki gegn þeim. Tíminn að renna út, segir Sergej Lavrov utanríkisráðherra Rússlands.
NATO og Rússland eiga í margvíslegu samstarfi sem gengur ágætlega, þrátt
fyrir deilur um eldflaugavarnir. Þar á meðal er samstarf gegn sjóránum
undan ströndum Sómalíu, um að stuðla að stöðugleika í Afganistan og
berjast gegn fíkniefnaviðskiptum í Mið-Asíu. Verið er að hleypa af stokk-
unum samstarfsverkefni NATO og Rússlands um að skiptast á upplýsingum
um borgaralega flugumferð til að draga á hættu á sjálfsmorðsárásum á borð
við þær sem urðu þúsundum að bana í Tvíburaturnunum í New York.
Margvíslegt samstarf
TILHUGALÍF Vel fór á með Sergej Lavrov og Össuri Skarphéðinssyni í upphafi
fundar í gær. „Á þessum fundi minna Rússar og Atlantshafsbandalagið helzt á
par sem hefur verið í tilhugalífi, rifizt svolítið, en er aftur farið að velta fyrir sér að
rugla saman reytum sínum,“ sagði Össur í ræðu sinni á fundinum. MYND/NATO
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
7°
8°
6°
9°
8°
8°
8°
22°
6°
16°
8°
22°
2°
11°
14°
5°Á MORGUN
Vaxandi vindur S- og
V-lands.
SUNNUDAGUR
Hvasst með SA-strönd,
annars hægari.
-1 -5
-2 -1
-1
-3 -6
-4
-6
-3
-8
-8
-8
-9
-8
-7
-5
-12
-4
-16
-11
6
6
7
8
8
13
10
23
7
9
11
23
DREGUR ÚR
FROSTI eftir daginn
í dag og verður lík-
lega um frostmark
með ströndum um
helgina en nokkurt
frost inn til lands-
ins. Á morgun bæt-
ir í vind með éljum
og síðan snjókomu
sunnanlands en
norðan til verður
bjartviðri.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
VÍSINDI Erfðabreytileiki í boðleið-
um í heila virðist tengjast athyglis-
bresti og ofvirkni (ADHD), að því
er fram kemur í nýrri rannsókn vís-
indamanna á Barnaháskólasjúkra-
húsinu í Fíladelfíu í Bandaríkj-
unum. Uppgötvunin gefur von um
að hægt verði að þróa markvissari
meðferð við sjúkdómnum.
Íslendingurinn Hákon Hákon-
arson fór fyrir rannsókninni, sem
birtist í vikunni á vefútgáfu tíma-
ritsins Nature Genetics.
Rannsóknin gefur til kynna að
meðhöndla megi ADHD með því að
einbeita sér að þessum erfðabreyti-
leika, sem fundist hefur í tíu pró-
sentum ADHD-sjúklinga.
Það gæti boðað nýjar lausnir í
meðhöndlun þeirra ADHD-sjúk-
linga sem hafa þessa breytileika.
Hákon segir í fréttatilkynningu að
minnst tíu prósent þátttakenda í
rannsókninni falli í þann hóp.
Josephine Elia, meðhöfundur
rannsóknarinnar, segir að þúsundir
erfðavísa gætu orsakað ADHD, en
að ná að einangra erfðamengi fyrir
tíu prósent sjúklinga væri verulegt
afrek. Rannsóknarhópur Hákonar
er þegar byrjaður að þróa fyrsta
lyfið til að meðhöndla ADHD-sjúk-
linga með þennan erfðabreytileika
og reiknar Hákon með að byrja að
gefa sjúklingum lyfið strax á næsta
ári. - þj
Íslendingur fer fyrir rannsókn á orsökum ofvirkni og athyglisbrests:
Von um markvissari lausn á ADHD
ADHD Rannsókn vísindamanna gefur til
kynna að erfðafræðilegir þættir liggi að
baki ADHD. FRÉTTABLAÐIÐ/AAA
Gáfu 100 þúsund krónur
Plastprent seldi poka merkta Bleiku
slaufunni í október, þegar átak
Krabbameinsfélagsins stóð yfir. 20
þúsund pokar seldust og afhenti
fyrirtækið Krabbameinsfélaginu 100
þúsund króna styrk í gær.
SAMFÉLAGSMÁL
BANDARÍKIN Tveir voru skotnir til
bana við Virginia Tech-háskólann
í Bandaríkjunum í gær. Í gær-
kvöldi höfðu borist fregnir af því
að byssumaðurinn hefði einnig
fundist látinn.
Lögreglumaður stöðvaði bíl við
skólann skömmu eftir hádegi og
ökumaður bílsins skaut hann til
bana. Samkvæmt vitnum flúði
byssumaðurinn fótgangandi.
Önnur manneskja fannst svo
látin á bílastæði. Byssumaðurinn
gekk laus í nokkra klukkutíma en
fannst svo látinn. - þeb
Skotárás í Virginia Tech:
Byssumaður
fannst látinn
VÍSINDI Sautján ára gömul stúlka
hefur hannað eind sem mun að
öllum líkindum bylta krabba-
meinsmeðferðum. Angela Zhang,
sem fékk hugmyndina þegar hún
var 15 ára og hefur unnið að hönn-
un eindarinnar síðan þá, sigraði í
raunvísindasamkeppni tölvurisans
Siemens.
Virkni eindarinnar þykir stór-
merkileg. Sérfræðingar segja
hana vera eins og svissneskan
vasahníf þegar kemur að með-
höndlun krabbameins. Eindinni er
komið fyrir í æxlum með lyfinu
salinomycin og byrjar um leið að
drepa krabbameinsfrumur. Eindin
skilur síðan eftir efni úr gulli og
járnoxíð sem hjálpa til við eftir-
fylgni krabbameinsmeðferða.
Zhang hlaut 100.000 dollara í
verðlaunafé. Upphæðin þykir þó
smávægileg miðað við afrekið.
Sautján ára vísindamaður:
Ný eind gegn
krabbameini
GENGIÐ 08.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,878
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,51 119,07
186,05 186,95
158,69 159,57
21,341 21,465
20,627 20,749
17,599 17,703
1,5307 1,5397
184,44 185,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is