Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 6
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR6 Húsgagnaverslun Pennans | Grensásvegur 11 - Gengið inn Skeifumegin | www.penninn.is | sími 540 2000 GLÆSILEGT ÚRVAL AF SKEMMTILEGRI GJAFAVÖRU OG HÚSGÖGNUM FYRIR SKRIFSTOFUNA OG HEIMILIÐ FRÁ HEIMSÞEKKTUM HÖNNUÐUM. E N N E M M / S ÍA / N M 4 13 7 4 BRUSSEL, FRÉTTABLAÐIÐ Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rúss- lands, sakaði í gær Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að kynda undir mótmælum í Rússlandi með ummælum sínum um að gallar hefðu verið á fram- kvæmd þingkosninganna í landinu. Hún „gaf þeim merki, þeir heyrðu merkið og gripu til aðgerða,“ sagði Pútín um mótmælendur í Moskvu. Hann sakaði erlend ríki einnig um að fjármagna stjórnarandstöðuna í landinu. Clinton var hvergi af baki dottin á blaðamannafundi í höfuðstöðvum NATO í Brussel í gær og ítrekaði gagnrýni sína á kosningarnar. Hún sagði Bandaríkin og Rússland eiga gott samstarf á mörgum sviðum, en um leið styddu Bandaríkin og mörg önnur ríki baráttuna fyrir lýðræði og mannréttindum í Rússlandi. „Við gerðum vel rökstuddar athugasemdir við framkvæmd kosninganna. Við styðjum réttindi og kröfur rússnesks almennings um framfarir og að fá að ákveða sína eigin framtíð,“ sagði Clinton. Spurð hvort hún væri sammála Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, sem vill láta endurtaka kosningarnar, sagði Clinton að það yrðu rússnesk stjórn- völd að gera upp við sig. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefði gert margvíslegar athuga- semdir við framkvæmd kosning- anna, sem „verðskulduðu athygli“. „Við vonum að ákvarðanir verði teknar sem endurspegla mikilvægi þess að hafa frjálsar, sanngjarnar og áreiðanlegar kosningar,“ sagði hún. Samskipti Rússlands og Banda- ríkjanna fara kólnandi þessa dag- ana; við ásakanir Pútíns um afskipti af innanríkismálum bætist meðal annars deilan um eldflaugavarna- kerfi NATO. Ætla verður að Pútín telji það sér í hag fyrir forsetakosn- ingarnar í marz að kynda undir tortryggni í garð Vesturlanda. - óþs Vladímír Pútín segir erlend ríki fjármagna stjórnarandstöðuna í Rússlandi: Sakar Clinton um að kynda undir mótmælum VIÐSKIPTI Eignarhlutur Arion banka í Klakka, sem hét áður Exista, jókst úr 19,6% í 44,9% eftir að bankinn gerði samkomulag við félagið síðastliðið sumar um upp- gjör deilumála milli aðilanna. Þetta staðfestir Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka/ Exista. „Í sumar var gengið frá samkomulagi um uppgjör allra deilumála við Arion. Í því fólst að hlutur Arion í Klakka jókst með þessum hætti.“ Klakki/Exista gekk í gegnum nauðasamning haustið 2010. Í honum fólst meðal annars að kröfuhafar þess breyttu 10% af 239,1 milljarðs króna kröfum í hlutafé. 90% krafnanna var síðan breytt í kröfur sem breytanlegar eru í hlutabréf í félaginu ef því tekst ekki að greiða eftirstöðvum skuldanna fram til loka árs 2030. Við þetta lækkuðu skuldir Klakka/ Exista-samstæðunnar um 308 milljarða króna. Það er stærsta staðfesta niðurfærsla á lánum til íslensks fyrirtækis, ef föllnu bankarnir eru frátaldir. Eftir gerð nauðasamningsins hafa fleiri kröfur verið sam- þykktar og gefið út nýtt hlutafé í samræmi við þær. Sú stærsta er vegna uppgjörsins við Arion banka síðastliðið sumar þegar bankinn fékk 6,1 milljarð króna í nýju hlutafé afhent. Við það fór eignarhlutur bankans úr 19,6% í 44,9%. Hann er langstærsti eig- andi Klakka/Exista. Næstir honum koma þrír erlendir vogunarsjóðir með samtals 17,5% hlut. Klakki/Exista tapaði 10,5 millj- örðum krónum í fyrra. Eigið fé þess er þó jákvætt um 65 millj- arða króna, sem er gríðarlega sterk staða. Helstu eignir félags- ins eru rekstrarfélög með mikla markaðshlutdeild á Íslandi. Þeirra helst eru Skipti (móðurfélag Sím- ans, Mílu og Skjásins), VÍS, Lífís og Lýsing hf. Í sumar samdi Arion banki einn- ig við skilanefnd Kaupþings um að ákveðnar eignir flyttust á milli þeirra. Eignir sem hafa legið hjá skilanefndinni og tengjast Klakka/ Exista eru ekki þar meðtaldar, samkvæmt upplýsingum frá bank- anum. Á meðal þeirra eigna voru krafa vegna skaðleysisyfirlýs- ingar vegna kaupa á hlutabréf- um í finnska félaginu Sampo sem skilanefndin átti á Klakka/Exista upp á 588 milljónir evra, um 93,6 milljarða króna. Þar undir eru líka opnir framvirkir gjaldeyrissamn- ingar sem félagið vildi áður gera upp með tugmilljarða hagnaði en bíða nú niðurstöðu dómstóla. thordur@frettabladid.is Exista búið að gera upp við Arion banka Arion banki samdi í sumar um að fella niður allar kröfur á Klakka, sem áður hét Exista. Félagið felldi á móti niður kröfur á bankann. Arion breytti eftir- stöðvunum í hlutafé og varð í kjölfarið langstærsti eigandi Klakka/Exista. ARION BANKI Samkomulag um uppgjör deilumála bankans við Klakka/Exista var undirritað í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VLADÍMÍR PÚTÍN HILLARY CLINTON Riftanlegir gjörningar Í ársreikningi Klakka/Exista fyrir árið 2010 segir að félagið hafi „hafið 12 málaferli til að reyna að rifta greiðslum sem félagið hefur gert, í flestum tilfellum til íslensku bankanna og skilanefnda þeirra þriggja banka sem fóru í þrot haustið 2008. Niðurstaða þessara mála og hugsanlegar endurheimtur ef málin falla Exista í vil er óviss“. Magnús segist ekki geta tjáð sig um innihald einstakra mála eða einstakar kröfur. „Þetta eru mál þar sem ekki ríkir sátt um gjörninga sem framkvæmd- ir voru.“ Hluti þessara mála sneri að Arion banka en um þau var samið í sumar. Hluti þeirra riftunarmála sem voru gegn öðrum er enn útistandandi. Að sögn Magnúsar er ekkert þeirra þó enn rekið fyrir dómstólum. VIÐSKIPTI Slitastjórn Lands- bankans lagði 350 milljónir inn á vörslureikning vegna mála- ferla sem hún stendur í við athafnamann- inn Hannes Smárason, þegar hún innti af hendi fyrstu greiðslurnar úr þrotabúinu í vikunni. Ef Hannes hefur sigur í málinu fær hann féð greitt, en annars ekki. Alls krafðist Hann- es 1,13 milljarða úr þrotabúinu. Fram kom í fjölmiðlum í gær að féð hefði þegar verið greitt Hannesi, en það er rangt. Slitastjórnin greiddi í heild 432 milljarða úr búinu og rennur megnið til innstæðutrygginga- sjóða Breta og Hollendinga vegna Icesave og líknarfélaga. - sh Greitt úr búi Landsbankans: 350 milljónir á biðreikning fyrir Hannes FÓLK Ljós voru tendruð á hæsta jólatré landsins þessi jólin á miðvikudag. Tréð er rúmlega 13 metra hátt sitkagreni úr Hall- ormsstaðarskógi sem stendur uppreist við álver Fjarðaáls á Reyðarfirði. Að sögn Þórs Þorfinnssonar, skógarvarðar hjá Skógrækt ríkis- ins, var tréð gróðursett árið 1979 af norsku skógræktarfólki en fræ trésins var ættað frá borginni Homer í Alaska. Börn frá leikskólunum Dalborg og Lyngholti sungu jólalög við tendrunarathöfnina en að henni lokinni var gestum og gangandi boðið upp á heitt kakó og pipar- kökur. - mþl 13,5 metra hátt sitkagreni: Hæsta jólatréð á Reyðarfirði REYÐARFJÖRÐUR Börn frá leikskólunum Dalborg og Lyngholti sungu jólalög við tendrunarathöfnina. MENNTUN Reykjavíkurborg hefur ákveðið að boðið verði upp á tón- vísindasmiðjur í anda Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu í öllum grunnskólum borgarinnar í vetur. Um samstarfsverkefni Reykja- víkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur er að ræða. Ber það nafnið Biophilia í skólum og nær til 5.-7. bekkjar. Markmið þessa verkefnis er að samþætta á nýstárlegan hátt tón- list, vísindi, tölvutækni, móðurmál og jafnvel fleiri námsgreinar. - shá Grunnskólar Reykjavíkur: Tónlistarnám í anda Bjarkar NOREGUR 85 prósent Norðmanna eru þeirrar skoðunar að flestir innflytjendur gegni mikilvægu hlutverki í atvinnulífinu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn norsku hagstofunnar. Hlutfallið var 73 prósent fyrir hryðjuverka- árásirnar hinn 22. júlí. Þá segja 82 prósent að flestir innflytjendur geri menningarlífið auðugra, sem er tíu prósentustig- um meira en fyrir árásirnar. Níu af hverjum tíu Norðmönn- um telja að innflytjendur eigi að hafa sömu atvinnutækifæri og aðrir. Konur voru jákvæðari gagnvart innflytjendum en karlar og yngra fólk frekar en eldra. - þeb Norðmenn eftir árásirnar: Jákvæðni í garð innflytjenda Hefurðu áhyggjur af hömlum á erlendri fjárfestingu hér á landi? Já 47% Nei 53% SPURNING DAGSINS Í DAG Kaupir þú geisladiska? Segðu þína skoðun á Vísir.is. HANNES SMÁRASON KJÖRKASSINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.