Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 8
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR8
TÆKNI Fyrirtækið Ekso Bionics
kynnti í gær byltingarkennda nýj-
ung sem hjálpar mænusköðuðum og
öðrum sem bundnir eru í hjólastól
að rísa á fætur og ganga óstudd.
Starfsemi Ekso Bionics er í
nágrenni San Francisco í Banda-
ríkjunum, en forstjóri fyrirtækis-
ins er Eyþór Bender. Um er að ræða
svokallaðan þjark, vélbúnað, grind
og hækjur. Notandi festir vélina á
bak sér og fætur. Vélin gerir mann-
eskjunni síðan kleift að rísa úr sæti
sínu með því að styðja sig við hækj-
urnar. Hækjurnar eru tengdar vél-
inni sem drífur fæturna áfram og
notandinn gengur nokkuð öruggum
og eðlilegum skrefum.
Eyþór segir að Ekso Bionics hafi
unnið að verkefninu í um þrjú ár.
Búnaðurinn hefur verið notaður
undanfarið ár á tíu endurhæfingar-
stöðum um öll Bandaríkin.
Aðspurður segir Eyþór að búnað-
urinn ætti því að geta verið kominn
til Íslands áður en langt um líði, en
Ekso Bionics er nú í viðræðum við
nokkrar stöðvar hér á landi.
„Þær eru á byrjunarstigi og
kannski of snemmt að spá fyrir um
það, en þar sem við erum nokkr-
ir Íslendingar í fyrirtækinu væri
gaman að ná festu hér á landi
fljótlega.“
Vonir standa þó til þess að tæki
fyrir almennan markað verði
tilbúið árið 2014.
„Það verður þá orðinn mun sér-
hæfðari búnaður sem er sniðinn að
þörfum hverrar manneskju og hægt
væri að nota hann daglega.“
Eyþór segir auk þess að þó að
vissulega væri spennandi að vinna
að nýrri tækni sé persónulegi
þátturinn ekki síður gefandi.
„Þetta er ótrúleg tilfinning og
maður venst henni aldrei. Þegar
fólk stendur upp eftir mörg ár
í hjólastól er það ekki bara það
sem upplifir þessa breytingu,
heldur fjölskyldan og allir nánustu
aðstandendur. Það er ótrúlegt aðsjá
og snertir mann alltaf.“
Fram í tímann séð eru fleiri tæki-
færi fyrir tæki af þessari gerð, og
þá á enn fleiri sviðum. „En við
erum að einbeita okkur að heilsu-
geiranum og erum rétt að byrja
þar.“ thorgils@frettabladid.is
Standa upp úr hjóla-
stól og ganga af stað
Nýr tæknibúnaður gerir fólki sem bundið var við hjólastól kleift að ganga á ný.
Amanda Boxtel segir þjarkinn hafa gefið sér nýja sýn á lífið eftir nær tuttugu
ár í hjólastól. Stefnt er að því að tækið komi á almennan markað árið 2014.
Á GANGI Amanda Boxtel sýndi virkni gönguþjarksins frá Ekso Bionics á kynningar-
fundi í Hörpu í gær. Hún segir tækið geta gjörbreytt lífi margra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 Hve margir hafa setið á ráðherra-
stóli frá síðustu alþingiskosningum?
2 Hve mörg börn slasast á ári
við að detta úr innkaupakerrum í
verslunum?
3 Hvaða ensku lið eru komin áfram
í 16 liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu?
SVÖR
1. 14. 2. Um 100 börn ár hvert.
3. Arsenal og Chelsea.
Jólagleði og kynning á námskeiðum vorannar 2012
Nýja ljós – Viska og gleði – Heimur í nýju ljósi
Laugardaginn 10. desember 2011 kl.13:00-18:00
Dagskrá:
♣ Kynning á námskeiðum vorannar
♣ Spilin dregin
♣ Upplestur –frumsamið efni
♣ Jólahugvekja og hugleiðsla
Allir velkomnir
Köllunarklettsvegi 1. 3. hæð í lyftuhúsi 104 Reykjavík
viskaoggledi.is
heimurinyjuljosi.is
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
Sérblaðið jólagjöfin hennar fylgir
Fréttablaðinu þann 15. desember.
JÓLA
GJÖFIN
HENNAR
BÓKIÐ AUGLÝSINGAR
TÍMANLEGA:
BENEDIKT FREYR JÓNSSON
S: 512 5411, GSM: 823 5055
benediktj@365.is
NEYTENDAMÁL Talsverður munur er á verði bóka á
milli verslana fyrir þessi jólin. Munurinn er í flest-
um tilfellum á bilinu 30 til 60 prósent á hæsta og
lægsta verði.
Þetta leiddi verðlagskönnun verðlagseftirlits ASÍ
í ljós, en könnunin var framkvæmd á þriðjudag. Var
gerður verðsamanburður á 63 bókatitlum í 12 bóka-
búðum og verslunum víðs vegar um landið.
Lægsta verðið var oftast að finna í verslunum
Bónus eða á 25 titlum. Bónus hafði þó fæsta bóka-
titla til sölu, aðeins 29 af þeim 63 sem voru skoðað-
ir. Á eftir Bónus kom Bóksala stúdenta með lægsta
verðið á 16 titlum.
Hæsta verðið var oftast að finna í bókabúðinni
Iðu í Lækjargötu, í um helmingi tilfella. Þá voru
Mál og menning Laugavegi og A4 Smáratorgi með
hæsta verðið á 29 titlum.
Mesti munur á hæsta og lægsta verði var á sögu-
bókinni Dauðinn í Dumbshafi. Var bókin 66 pró-
sentum dýrari í Hagkaupum en í Bónus. Minnstur
munur var hins vegar á hljóðbókinni Sólskinsbarn,
sem kostaði ýmist 2.490 eða 2.499 krónur.
Bókabúðin Penninn-Eymundsson neitaði að taka
þátt í verðlagskönnuninni. - mþl
Verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands á jólabókum:
Mikill verðmunur á jólabókum
JÓLABÓKAFLÓÐIÐ Lægsta bókaverðið var oftast í Bónus í
verðlagskönnun ASÍ. Hæsta verðið var oftast í bókabúðinni
Iðu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNMÁL Nýr stjórnmálaflokkur,
með Guðmund Steingrímsson og
Heiðu Kristínu Helgadóttur í broddi
fylkingar, var formlega kynntur til
sögunnar í Norræna húsinu í gær.
Flokkurinn hefur enn ekki hlotið
nafn en efnt hefur verið til nafna-
samkeppni á nýrri heimasíðu, www.
heimasidan.is, þar sem landsmenn
geta lagt sitt af mörkum til nafn-
giftarinnar. Guðmundur Stein-
grímsson, þingmaður utan flokka,
segir ástæðu samkeppninnar vera
táknræns eðlis.
„Við viljum starfa í þessum anda
og fá hugmyndir frá öllum,“ segir
Guðmundur, sem sjálfur lagði til
nafnið Nýi flokkurinn. Samstarfs-
kona hans, Heiða Kristín, lagði
fram fyrstu tillöguna og var hún
Bjarti flokkurinn.
Heiða Kristín og Guðmundur
segjast ekki geta sett flokkinn á
„hinn hefðbundna hægri–vinstri
skala“ en segja hann aðhyllast
grundvallargildi eins og umhverf-
isvernd, alþjóðastefnu, jöfnuð,
mannréttindi, frið og athafnafrelsi.
Guðmundur segir hugtakið „frjáls-
lyndi“ útjaskað og því sé þörf á að
endurskilgreina stjórnmálin frá
grunni.
Forsvarsmenn hins nýja flokks
hafa verið í viðræðum við fólk
alls staðar að frá landinu og segir
Guðmundur mikinn áhuga vera
fyrir hendi í öllum kjördæmum.
Hann nefnir þar sem dæmi ein-
staklinga úr L-listanum á Akur-
eyri, Fjarðalistanum í Fjarðabyggð
og Kópavogslistanum.
Spurð hvaða flokki sem nú starf-
ar á þingi nýi flokkurinn gæti
helst hugsað sér að starfa með
eftir kosningar segja Heiða Krist-
ín og Guðmundur starfið ekki vera
komið svo langt. Allt sé opið í þeim
efnum, enda sé fullmótuð stefnu-
skrá flokksins ekki tilbúin. Hún
verði formlega kynnt til sögunnar
á næstunni. - sv
Nýr stjórnmálaflokkur sem bjóða mun fram fyrir næstu þingkosningar kynntur formlega til sögunnar í gær:
Ekki hægt að setja flokkinn á hefðbundinn skala
FORSVARSMENN NÝJA FLOKKSINS Heiða
Kristín og Guðmundur vilja að almenn-
ingur velji nafn hins nýja stjórnmálaafls.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Amanda Boxtel lamaðist fyrir neðan mitti í skíðaslysi fyrir nær tuttugu
árum. Hún lét það þó ekki aftra sér frá því að lifa innihaldsríku lífi þar sem
hún ferðast mikið og er afar virk, en hún segir þjarkinn hafa gjörbreytt sýn
sinni á lífið. Hún hefur verið reynslunotandi í ár og sýndi gestum í gær, sem
margir voru einmitt bundnir í hjólastól, hvernig tækið virkar. Hún brosti
breitt þegar hún stóð upp úr stólnum. „Í hvert skipti sem ég stend upp er
það eins og í fyrsta skiptið og það vekur með mér mjög sterkar tilfinningar.
Ég hef verið lömuð í nær 20 ár og get nú gengið ein og óstudd.“
Amanda sagði að ef hún hefði yfir slíku tæki að ráða heima við myndi
það breyta miklu. „Það eru helst þessir litlu einföldu hlutir eins og að standa
í eldhúsinu mínu og geta séð yfir húsið og ofan í pottana á eldavélinni. Fyrst
og fremst að geta staðið og gengið um.“
Gerir hið ómögulega mögulegt
VEISTU SVARIÐ?