Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 23
FÖSTUDAGUR 9. desember 2011
TIL BJARGAR LÍFI
BRÉF
Við bjóðum þér að koma til okkar á morgun á alþjóðlegum
degi mannréttinda og taka þátt í að breyta heiminum með
því að nota öflugasta vopnið sem þú átt: NAFNIÐ ÞITT.
Á hinu árlega bréfamaraþoni Amnesty International kemur fólk saman og skrifar undir bréf og sendir
jólakort í þágu þolenda mannréttindabrota. Fyrir þolendur og fjölskyldur þeirra eru bréfin tákn um
alþjóðlega samstöðu fólks sem lætur sér annt um réttindi þeirra og mannlega reisn.
Frekari upplýsingar eru á www.amnesty.is
Reykjavík
Þingholtsstræti 27
kl. 13–18
Akureyri
Amtsbókasafnið
kl. 11–16
Egilsstöðum
Hús handanna (Nían)
kl. 10–17
Ísafirði
Edinborgarhúsinu
kl. 14–17
Það verður heitt á könnunni hjá okkur og boðið upp á piparkökur á þessum stöðum á morgun:
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
... fyrir Ísland með ástarkveðju
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
-
1
1-
18
08
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
11
18
08
SÖL
UTÍ
MA
BIL
5.-1
9. D
ESE
MB
ER
Með kaupum á Kærleikskúlunni
styður þú starf í þágu fatlaðra
barna og ungmenna.
Casa - Kringlunni og Skeifunni | Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð | Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi | Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu | Líf og list - Smáralind
Hafnarborg - Hafnarfirði | Módern - Hlíðarsmára | Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki | Póley - Vestmannaeyjum | Valrós - Akureyri
Bláa Lónið - Grindavík | Pósturinn um allt land | netverslun www.kaerleikskulan.is
Nú líður að þeim tíma ársins þegar margir sjá ástæðu
til að fara til útlanda að kaupa
föt og annað drasl og aðrir sjá
ástæðu til að býsnast yfir því.
Sumir telja að við verðum okkur
til skammar með kaupgleði í
H&M. Aðrir óttast að íslenskir
kaupmenn séu að „verða af“
tekjum upp á hitt og þetta.
Hugtakið að „verða af“ er
stundum notað á ansi skapandi
hátt. Til að „verða af“ einhverju
þurfa menn eiginlega að hafa
þurft að eiga verulega möguleika
á að fá það á annað borð. Dæmi
um rétta notkun: „Hóteleigandi
varð af tekjum þegar læknaráð-
stefna féll niður í kjölfar goss.“
En undir hvaða kringumstæð-
um hefðu íslenskir kaupmenn átt
að fá alla þessa erlendu veltu? Ef
landið væri lokað fyrir erlend-
um vöruflutningum? Hvernig
væri að reka verslun á Íslandi
þá? Frjálsir vöruflutningar eru
eðlilegt ástand, ekki óvæntur
atburður sem veldur tapi.
Verslun er verslun en ekki
atvinnubótastarf. Það er ekki
þar með sagt að við megum
ekki að hugsa um annað en verð
þegar við veljum okkur búð.
Finnist einhverjum tilteknar
bóka- eða tónlistarverslanir vera
ómissandi er það hagur hans að
tryggja áframhaldandi tilvist
þeirra. Það verður best gert með
því að versla við þær, allan árs-
ins hring. Það er hagur fólks að
hafa sem best framboð af vörum
og þjónustu sem næst sér. Það
er engin meðaumkunarverslun,
heldur viðskipti með langtíma-
sjónarmið í huga.
Þegar kemur að því að ákveða
hvort strauja eigi kortið innan-
lands eða utan væri í raun full
ástæða til að hafa samúð með
þeim sömu sjónarmiðum, og
reyna fremur að versla innan-
lands þar sem blómleg innlend
verslun væri okkur hagstæð til
langframa. En auðvitað er búið
að ákveða þetta fyrir okkur: Við
skulum hafa samúð með þessum
sjónarmiðum! Lögum sam-
kvæmt.
Innlend verslun er varin með
tollagirðingum, sem tollverðir
á Keflavíkurflugvelli gæta. Frá
útlöndum má einungis flytja
með sér vörur fyrir 65.000 kr.
í einni ferð. Að auki eru ýmsar
aðrar reglur í gildi, til dæmis
er nammihámark, auk ákvæð-
is sem segir að enginn stakur
hlutur megi kosta meira 32.500
kr. Það sjónarmið sem liggur
til grundvallar seinasta laga-
ákvæðinu er væntanlega það að
án þess væru lögin of stutt.
En þá geta menn spurt, er
ekki óeðlilegt að menn sanki
að sér Tax-Free nótum erlendis
og fái vaskinn endurgreiddan
við brottför úr útlandinu, greiði
engan vask við komu til lands-
ins og fái þá vöruna nokkurn
veginn skattfrjálsa? Jú, auð-
vitað er það algjör vitleysa.
Þetta endurgreiðslukerfi kann
ef til vill að vera rökrétt þegar
um alvörufaginnflytjendur er
að ræða. En þessir stimpla-
og tollaleikir eru hlægilegir
þegar um er að ræða neytanda
sem treður nokkrum buxum og
nammi í ferðatöskuna.
„Sýna peysuna í Köben. Fá
stimpil. Fá pening. Fela peysuna
í Keflavík. Úps, þeir sáu peys-
una. Þykjast hafa átt peysuna
áður. Trúa ekki. Jæja. Borga
pening.“
Stimpla- og tollaleikirnir eru
auðvitað ein stór blekking. Fæst-
ir labba samviskusamlega inn
í rauða hliðið ef þeir eru ekki
vissir um hvort þeir hafi skriðið
yfir 65.000 krónurnar. Flestir
reyna eðlilega að komast hjá
því að greiða nokkuð, og tekst
það vitanlega oftast. Tax-free
er þannig ferðamannaafsláttur.
„Veitum erlendum ferðamönnum
afslátt en leggjum álag á okkar
eigin þegna,“ er afstaða flestra
ríkja. Svona er þetta. Menn lof-
syngja lýðheilsu en reyna svo að
pranga ódýru áfengi og sígar-
ettum upp á hver annan á ferða-
lögum. Þetta er kjánalega mót-
sagnakennt.
Ýmsu, þar með talið skatt-
kerfinu, er beitt til að hvetja
útlendinga til að versla á Íslandi
og letja Íslendinga frá því að
versla í útlöndum. Hættum því.
Leyfum fólki að flytja vörur til
einkanota á milli landa hömlu-
laust. Við getum gert það ein-
hliða ef við viljum. Við getum
líka leitað eftir gagnkvæmu
samstarfi um slíkt við önnur
lönd. Slíkt samstarf ku vera til.
Og ef einhverjum finnst óeðli-
lega margir Íslendingar fara til
útlanda að versla þá má velta því
fyrir sér hvort fyrir því sé ein-
hver góð ástæða. Önnur en sú að
við séum illa uppalin neysludýr.
Miskunn, vorkunn og verslun
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikirgjafir