Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.12.2011, Blaðsíða 34
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR34 LOKAÐ VERÐUR Í DAG VEGNA JARÐARFARAR GRÍMS GUÐMUNDSSONAR ÍSPAN KÓPAVOGI Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ingi Sigurður Erlendsson mælingamaður, Hrauntungu 30, Kópavogi, sem lést miðvikudaginn 30. nóvember á Landspítalanum við Hringbraut, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 12. desember kl. 15. Rannveig Gísladóttir Guðmundur Ingason Gyða Jónsdóttir Örn Erlendur Ingason Guðbjörg Sigurðardóttir Haukur Ingason Katrín Þórarinsdóttir Sólborg Erla Ingadóttir Kristinn Harðarson Þórdís Ingadóttir Snorri Ingvarsson barnabörn og langafabörn. Ágústa Júlíusdóttir hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður til heimilis að Fornhaga 17, andaðist hinn 6. desember. Útför auglýst síðar. Aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi, Ólafur Tryggvi Þórðarson tónlistarmaður, sem lést á Grensásdeild Landspítala sunnudaginn 4. desember, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 13. desember klukkan 13. Dagbjört Helena Óskarsdóttir Þórður Daníel Ólafsson Brynhildur Nadía Þórðardóttir og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrefna Lárusdóttir Hvassaleiti 56, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 6. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 15. desember kl. 15.00. Aðstandendur vilja koma á framfæri kæru þakklæti til starfsfólks og heimilismanna á Sóltúni fyrir einstaka umönnun og samskipti. Blóm og kransar vinsamlegast af þakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Hjúkrunarheimilisins Sóltúns í síma 590-6000. Börn hinnar látnu. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf P. Hraunfjörð bókavörður, andaðist þriðjudaginn 6. desember á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut. Útförin fer fram þriðjudaginn 20. desember kl. 13.00 frá Fossvogskirkju. Karl Árnason Petrina Rós Karlsdóttir Jóhannes Hraunfjörð Karlsson Ólöf Pétursdóttir Pétur Hraunfjörð Karlsson Valeryja Karlsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Anna Gunnlaugsdóttir Hornbrekku, Ólafsfirði, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 10. desember kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hornbrekku í Ólafsfirði. Gunnlaugur E. Þorsteinsson J. Dómhildur Karlsdóttir S. Hilmar Þorsteinsson Valgerður K. Sigurðardóttir Guðbjörg Þorsteinsdóttir Guðbjörn Arngrímsson Ingibjörg Þorsteinsdóttir Róbert Pálsson Þórhildur Þorsteinsdóttir Páll Pálsson Elín Rún Þorsteinsdóttir Bjarni Tómasson og fjölskyldur, Áskær móðir okkar, amma og sambýliskona, Vilborg Guðsteinsdóttir lést á Gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 7. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. fyrir hönd aðstandenda, Erlín Óskarsdóttir Ásta Óskarsdóttir Finnur Óskarsson Þórunn Óskarsdóttir Ólöf og Óskar Gunnarsbörn Óskar Guðmundsson Elsku maðurinn minn, Gunnar Sigurgeirsson múrari, Hjallavegi 9, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 3. desember, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins, Háteigsvegi 56, mánudaginn 12. desember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Guðmundsdóttir. timamot@frettabladid.is HERMANN GUNNARSSON útvarpsmaður er 65 ára. „Ég er ennþá að hugsa hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, sko.“ 65 Hinn íslenski HönnunarMars verður hluti af dagskrá World Design Capital Helsinki árið 2012. Skrifað var undir samninga þess efnis samhliða opnun farandsýningarinnar Iceland Contem- porary Design í Helsinki hinn 1. des- ember. Helsinki er jafnframt síðasti viðkomustaður sýningarinnar, en frá árinu 2009 hefur hún verið sett upp í 7 borgum víðs vegar um heiminn. Halla Helgadóttir, framkvæmda- stjóri Hönnunarmiðstöðvar, segir samstarfið við World Design Capital Helsinki hafa mikla þýðingu fyrir íslenska hönnun á alþjóðavettvangi. Sýningin hafi einnig fengið frábærar viðtökur í Helsinki, en hún inni heldur íslenska vöruhönnun, húsgagna- hönnun og arkitektúr. „Framkvæmdastjóri DesignForum Finnland sagði á opnuninni að Íslend- ingar væru að taka sér stöðu meðal Norðurlandaþjóðanna í hönnun, þá stöðu sem við ættum vel skilið. Fyrir okkur í Hönnunarmiðstöðinni var þetta einstaklega ánægjulegt að heyra,“ segir Halla. „Markmiðið með ferðalagi sýningarinnar hefur ein- mitt verið að gera okkur gildandi á Norður löndunum. Aðrar þjóðir heims líta gjarnan á alla norræna hönnun sem eitt og fyrir okkur að verða hluti af því samfélagi er mjög mikilvægt.“ Aðdragandi þess að HönnunarMars verður hluti dagskrár World Design Capital Helsinki var sá að full trúum frá Helsinki var boðið á Hönnunar- Marsinn í vor. Í framhaldinu sendi Hönnunarmiðstöð inn umsókn um þátttöku sem var samþykkt. Í vor verður HönnunarMarsinn haldinn í fjórða sinn og hefur hátíðin vaxið með hverju árinu. „Það tóku um 30.000 Íslendingar þátt á síðasta HönnunarMars,“ segir Halla. „Markmið okkar í Hönnunar- miðstöðinni er að gera hann að alþjóð- legum viðburði og laða hingað til lands erlenda hönnuði og áhugafólk um hönnun. Samstarfið við Helsinki mun opna á alþjóðlegar tengingar en augu heimsbyggðarinnar munu bein- ast að Norðurlöndunum. Hönnunar- marsinn verður hluti af öllu þeirra kynningarefni og fer inn á heimasíðu World Design Capital,“ útskýrir Halla. „Við munum einnig leggja sér- staka áherslu á samvinnu við Finna á Hönnunar Marsinum í vor og meðal annars bjóða finnskum kaupendum á Hönnunarstefnuna og fá finnska fyrir- lesara til landsins. Með Hönnunar- Marsinum erum við að auka umfang og viðskipti með íslenska hönnun í stærra samhengi og finnum alltaf fyrir meiri og meiri áhuga á að taka þátt. Hönnunar Marsinn á bara eftir að stækka.“ heida@frettabladid.is HÖNNUNARMARS: HLUTI DAGSKRÁR HÖNNUNARHÖFUÐBORGAR HEIMS Höfum tekið okkur stöðu meðal Norðurlandaþjóðanna KOMIN Á KORTIÐ Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, segir þátttöku HönnunarMars í dagskrá Helsinki World Design Capital 2012 opna á alþjóðleg tengsl fyrir íslenska hönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.