Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 35
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Frumkvöðullinn Frosti Sigur-
jónsson stendur ásamt syni sínum
Sindra Frostasyni fyrir því að mak-
ríll er nú fáanlegur í íslenskum
verslunum.
„Íslendingar fluttu út 150 þúsund
tonn af makríl á síðasta ári en ekk-
ert af honum fór í verslanir hér á
landi,“ segir Frosti. Makríll er nýr
nytjafiskur við Ísland. „Hann er
eftir sóttur víða í Evrópu en Íslend-
ingar hafa fæstir gert sér grein
fyrir því hve hollur og góður hann
er, auk þess sem lítil hefð er fyrir
því að borða makríl hér á landi.“
Þeir Frosti og Sindri komust á
bragðið eftir makrílveiðiferð. „Við
prófuðum okkur áfram með ýmiss
konar uppskriftir og fórum að bjóða
gestum í mat til að smakka. Oftast
var grillaðaður makríll á boðstólum
en líka sashimi og bakaður makríll.
Nær undantekningalaust fannst
fólki þetta gott og við furðuðum
okkur á að fiskurinn væri ekki fáan-
legur í verslunum.“
Frosti og Sindri náðu að tryggja
sér tvö bretti af makrílflökum og
komu þeim í Hagkaup, Mela búðina,
Frú Laugu og Fylgifiska. Þau eru
svo væntanleg í fleiri verslanir og
vonast Frosti til að framhald verði
á.
„Makríllinn er uppfullur af D-
vítamíni og er þrefalt meira af
omega-3 fitusýrum í makríl en
laxi, svo dæmi séu nefnd,“ upp-
lýsir Frosti. Hann gefur uppskrift
að ofnbökuðum makríl með salti,
pipar og ólífuolíu. „Þannig skilar
bragðið sér best.“
vera@frettabladid.is
Á þriðja upplestri aðventunnar munu Þórarinn
Eldjárn, Jón Kalman, Ragna Sigurðardóttir og Oddný Eir
Ævarsdóttir lesa upp úr verkum sínum á Gljúfrasteini
á sunnudag klukkan 16. Að venju er aðgangur ókeypis
og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
2 makrílflök (látið
þiðna)
ólífuolía
salt og pipar
1 límóna eða 2 sítrónu-
bátar
Hitið ofn í 200°C.
Fjarlægið beinin úr flök-
unum með beinaplokk-
ara eða skerið úr með
hníf. Penslið báðar
hliðar á flökunum með
olíu.
Saltið og piprið að
smekk. Leggið flökin
með roðið upp í eldfast
mót eða pönnu sem
má setja í ofn. Bakið í
tíu mínútur eða þar til
roðið fer að brúnast.
Berið fram með límónu
eða sítrónu.
OFNBAKAÐUR MAKRÍLL
FYRIR FJÓRA
Feðgarnir Frosti Sigurjónsson og Sindri Frostason eru hrifnir af makríl og vilja koma fleirum á bragðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Makríll er lostæti