Fréttablaðið - 09.12.2011, Page 44

Fréttablaðið - 09.12.2011, Page 44
8 föstudagur 9. desember Olga Einarsdóttir er nýflutt til Íslands eftir áralanga búsetu erlendis þar sem hún vann sem tískuráðgjafi. Hún sér- hæfir sig í að aðstoða fólk við að finna sinn persónulega fatastíl. Viðtal: Álfrún Pálsdóttir Ljósmynd: Valgarður Gíslason Þ að er yndislegt að vera komin heim og við erum öll mjög sátt við þá ákvörðun að flytja til Íslands,“ segir Olga Einarsdóttir stílisti, eða persónulegur ráðgjafi eins og hún kýs að kalla sig. Olga hefur búið í meira en ára- tug í Noregi, Svíþjóð og síðast á Englandi en hefur nú komið sér vel fyrir í Vesturbænum ásamt fjölskyldu sinni. Eiginmaður hennar, fótboltakappinn Brynjar Björn Gunnarsson, er þó enn þá með annan fótinn úti og spil- ar með enska knattspyrnufélag- inu Reading. Hjónin eru því í eins konar fjarbúð þetta árið og viður- kennir Olga að hún hlakki mikið til þegar því tímabili er lokið. „Ég ákvað að koma heim um áramótin í fyrra í kjölfar þess að bróðir minn lést. Það reynd- ist vera hárrétt tímasetning því móðir mín féll frá í haust og náði ég því að eiga mjög dýrmætan tíma með henni á þessu ári.“ LÆRÐI AÐ NÝTA FATASKÁPINN Olga er fædd og uppalin í Kópa- vogi með viðkomu á Eskifirði og Egilsstöðum. „Ég myndi segja að Egilsstaðir væru minn bær þar sem við bjuggum þar lengst af og ég finn að ræturnar mínar eru þar,“ segir Olga, sem ólst upp í stórri fjölskyldu og er yngst af tíu systkinum. „Þegar maður elst upp með svona mörgum systkinum lærir maður að sam- og endurnýta föt. Ég held að ég hafi verið orðin tólf ára þegar ég fór fyrst að fá ný föt annars var ég alltaf í fatnaði frá eldri systrum mínum. Þá reyndi á sköpunargáfuna til að flikka upp á flíkurnar og maður varð fljótt flinkur við saumavélina. Við ól- umst upp við góða nýtingu og út- sjónarsemi þar sem mamma fann alltaf lausnir á öllu.“ Í stórum systkinahóp var stundum erfitt að finna afþrey- ingu við allra hæfi og innan fjár- hagsramma heimilisins. Olga rifj- ar upp að í stað þess að fara í bíó um helgar eins og jafnaldrarnir hafi þau systkinin farið á rusla- haugana og leitað að hlutum sem hægt var að gera við. „Það er fyndið að segja frá þessu í dag en við skemmtum okkur konunglega við að laga ónýt hjól og leikföng.“ ÁHUGAMÁL AÐ ATVINNU Fyrir sjö árum ákvað Olga að gera þennan áhuga sinn á fötum að starfsvettvangi og afla sér mennt- unar. Olga var þá nýbúin að eign- ast aðra dóttur sína og fjölskyld- an búin að koma sér vel fyrir í Bretlandi. Hún fann góða skóla rétt fyrir utan London og lærði persónulega ráðgjöf og stílistanám í British College of Professional Styling og The Image House. Námið fól meðal annars í sér kennslu í litafræðum, stílíser- ingu og hvernig best er að klæða sig eftir vexti. Starfstitill Olgu á ensku er fashion stylist en sjálf vill hún frekar kalla sig ráðgjafa en stílista. Eft ir námið stofnaði Olga sitt eig ið fyrirtæki, Person- al Image Design, og hóf að veita einstaklingum jafnt sem fyrir- tækjum tískuráðgjöf. Það var strax mikið að gera hjá Olgu og er hún enn þá að fá þakklætispóst frá viðskiptavinum sínum erlendis. „Það vilja allir líta vel út, er það ekki? Klæðaburður skiptir miklu máli fyrir ímynd manns og stuðl- ar, að mínu mati, jafn mikið að andlegri vellíðan eins og gott mataræði og holl hreyfing. Það er sagt að það taki okkur um 90 sek- úndur að dæma hvort annað við fyrstu kynni og þá skiptir klæða- burður okkur miklu máli. “ Ráðgjöf Olgu felst meðal ann- ars í því að taka til í fataskápum, fá fólk til að losa sig við það sem það notar ekki og bæta við því sem vantar. Allt í þeim tilgangi að fá sem mesta nýtingu úr því sem til er í fataskápnum og um leið finna sinn eigin fatastíl. „Ég held að margir hafi horft á troðfullan fataskáp og hugsað: „Ég á ekkert til að fara í“. Þetta vandamál leysi ég með því að fara yfir fataskáp- inn og hjálpa viðkomandi að nota það sem hann á,“ segir Olga og bætir við að sumir séu orðnir svo samdauna fötunum í skápnum að þeir séu hættir að sjá hvað í raun og veru leynist á herðatrjánum og kaupa sér í staðinn nýja flík. „Það er mjög hollt að fara yfir fataskápinn og sjá hvað hann geymir. Um daginn var ég að vinna með konu sem var á leið- inni í verslunarferð til útlanda og langaði að vita hvað hún ætti að kaupa. Eftir að hafa farið yfir fataskápinn komumst við að því að hana vantaði bara alls ekki mikið. Þá vorum við búnar að gefa og taka til hliðar bunka af fötum sem hægt var að breyta á sauma- stofu. Þegar hún kom heim úr verslunarferðinni sendi hún mér póst og sagði að ég hefði spar- að henni mikla peninga því hún keypti engan óþarfa og hún vissi nákvæmlega hvað vantaði.“ ÞORA AÐ TAKA ÁHÆTTU Olga hefur nú stofnað íslenska heimasíðu, olga.is þar sem hægt er að panta hjá henni ráðgjöf og fara á námskeið. Hingað til hefur verið mikið að gera hjá henni við að aðstoða einstaklinga sem og heilu vinkonuhópana við að fara í gegnum fatnaðinn. „ N á m s k e i ð i n e r u m j ö g skemmtileg og gagnleg, ætli það sé ekki vegna þess að ég er að fjalla um það sem ég hef þekk- ingu á og liggur á mínu áhuga- sviði. Ég veit að í litlu samfélagi eins og okkar skiptir orðsporið mestu máli og það er mín besta auglýsing.“ Olga hrósar íslenskum konum fyrir klæðaburð og nefnir að þær kunni klæða sig eftir vexti. Hún er hins vegar ekki ánægð með hversu miklu ástfóstri íslenskar konur hafa bundið við svartan og gráan lit og hvetur konur til að þora að klæðast litríkum fötum. Olga kennir meðal annars lita- fræði í sinni ráðgjöf og segir ótrú- legt hvað réttur litur getur frískað upp á útlitið. „Það er ótrúlegt hvað það er mikið svart í búðum hérna en þegar ég spyr starfsfólkið út í þetta fæ ég yfirleitt þau svör að svart seljist best á Íslandi. Við megum því vera miklu duglegri að taka áhættu í litavali og prófa okkur áfram. Við þurfum á litum að halda því þeir gefa okkur orku og líf.“ Aðspurð hvaða íslenska hönn- un sé í uppáhaldi hjá henni seg- ist Olga eiga erfitt með að svara. „Það er mikil gróska í íslenskri í hönnun núna og mikil fjölbreytni. Ég get eiginlega ekki valið eitthvað eitt en ég hef samt alltaf verið hrifin af Spaksmannsspjörum.“ Olga nefnir Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu sem dæmi um konu sem kunni að klæða sig eftir kar- akter og að hún sé óhrædd við að taka áhættu í fatavali. „Mér finnst Ragnhildur frábær og algjörlega samkvæm sjálfri sér í fatastíl. Ég held að íslenskar konur gætu tekið hana sér til fyrirmyndar í því.“ ÝMISLEGT Í BÍGERÐ Olga verður leyndardómsfull þegar framtíðina ber á góma og segir að hún sé með ýmis plön varðandi fyrirtæki sitt. „Starf mitt sem slíkt er ekki mikið þekkt á Íslandi og í því leynist tækifærið. Við HVETUR KONUR TIL AÐ KLÆÐAST SVARAR STÓRU SPURNINGUNNI Olga Einarsdóttir er menntaður stílisti frá Bret- landi. Hún sérhæfir sig í að aðstoða fólk við að taka fataskápinn í gegn og finna sinn persónulega stíl. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Nýtt verk úr smiðju Vesturports frumsýnt í janúar Tryggðu þér miða strax! „Þegar maður elst upp með svona mörgum systk- inum lærir maður að sam- og endurnýta föt.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.