Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 78
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR50
folk@frettabladid.is
„Ég er ekki beint risa-
eðla, heldur meira
svona bangsi.“
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
15.
Mariko Margrét Ragnars-
dóttir og Ólöf María Ólafs-
dóttir, betur þekkt sem
Marý, eru hönnuðirnir á
bak við merkið MARYMA-
RIKO. Þær hanna fylgihluti
úr endurnýttum efniviði.
„Við höfum alltaf haft gaman af
því að hanna og skapa með höndun-
um,“ segja Mariko Margrét Ragn-
arsdóttir sem hefur stofnað merkið
MARYMARIKO ásamt vöruhönn-
uðinum Ólöfu Maríu Ólafsdóttur,
betur þekkt sem Marý.
Stelpurnar kynntust í Stokk-
hólmi þar sem þær eru búsettar.
„Við kynntust hérna úti og kom-
umst að því að við deildum ástríðu
og áhuga á hönnun og fallegum
handgerðum munum,“ segir
Marý en þær hanna meðal annars
mottur, hringa og hálsmen.
Marý segir að þeim hafi fundist
vanta handgerða fylgihlutalínu á
markaðinn í Stokkhólmi en nóg er
til af fjöldaframleiddum hlutum í
Svíþjóð. Hönnunarheimurinn þar
í landi er stór en þær hafa fengið
góð viðbrögð.
Mariko og Marý vinna allt í
höndunum og hluti af hugmyndinni
á bak við merkið er að endurnýta
efni. „Það er mikil umhverfisvit-
und í Svíþjóð og Svíar reyna að
endurnýta allt sem þeir geta. Við
erum mjög hrifnar af þeirri hug-
sjón og efniviðurinn í okkar hönn-
un er að stórum hluta efni sem
við sönkum að okkar hér og þar,“
segir Mariko en stúlkurnar hafa
meðal annars fengið að kaupa
gallaðar flíkur hjá Rauða kross-
inum í Stokkhólmi og nýta þannig
efni sem annars hefði verið hent
og styrkja þannig í leiðinni gott
málefni.
Hringirnir og hálsmenin eru lit-
rík og gróf og segir Marý að þær
hefðu viljað búa til hluti sem væru
með karakter. Þær sækja innblást-
ur í umhverfið sitt og sænsku nátt-
úruna. „Það má kannski segja að
innblásturinn komi frá Reykjavík,
Stokkhólmi og ég er ekki frá því að
það komi smá Tókýó innblástur frá
Mariko en hún fæddist þar og bjó í
nokkur ár,“ segir Marý.
Stúlkurnar hafa báðar komið sér
vel fyrir í Stokkhólmi. Mary býr
með kærasta sínum og vinnur að
mörgum fjölbreytilegum hönnun-
arverkefnum bæði í eigin nafni og
fyrir sænsk fyrirtæki.
Mariko hefur búið í rúmlega
þrjú ár úti ásamt manni og börnum
en hún er einmitt í fæðingarorlofi
þessa dagana með sitt þriðja barn.
„Já, það er nóg að gera á heimilinu
en ég gef mér tíma í að hanna og
búa til. Við tökum eitt skref í einu
en höfum aðeins verið að fikra
okkur áfram á hönnunarmörkuðum
hérna úti og fengið mjög góðar við-
tökur hjá Svíum hingað til,“ segir
Mariko.
Hægt er að skoða og kaupa
hönnun Mariko og Marý á vefsíðu
þeirra marymariko.com og á sam-
skiptavefnum Facebook en stúlk-
urnar bjóða upp á fría heimsend-
ingu í desember. alfrun@frettabladid.is
Setja á markað handgerða
fylgihluti með karakter
SAMEINA KRAFTA SÍNA Þær Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Ólöf María Ólafsdóttir eru hönnuðirnir á bak við merkið Mary-
Mariko og gera meðal annars hálsmen, hringa og mottur.
EINSTAKIR SKARTGRIPIR Skartgripirnir
eru handgerðir og einstakir. Efniviðurinn
er endurnýttur úr gömlum flíkum frá
Rauða krossinum í Svíþjóð, en Mariko
og Marý eru búsettar þar.
„Það er mikill spenningur. Þetta
verður mjög gaman,“ segir Auð-
unn Sólberg Valsson, faðir Óli-
vers Tuma, yngsta rithöfundar
Íslandssögunnar eins og hann
hefur verið kallaður.
Útgáfuhóf verður haldið í
Eymundsson í Austurstræti á
laugardaginn í tilefni af útkomu
bókarinnar Óliver Tumi, segðu
mér sögu. Þar segir hinn sex ára
höfundur sögur og ævintýri fyrir
börn á öllum aldri. Kátt verður
á hjalla í hófinu því jólasveinn-
inn kíkir í heimsókn, Geir Ólafs
tekur lagið og Guðni Ágústsson,
fyrrverandi ráðherra og afi Óli-
vers Tuma, verður veislustjóri.
Guðni hefur verið Óliver til halds
og trausts við kynningu á bókinni,
enda þaulvanur því að koma fram
opinberlega. Síðast las Óliver upp
úr bókinni í Framsóknarhúsinu
við Hverfisgötu ásamt tveimur
öðrum rithöfundum og að sjálf-
sögðu var Guðni þar ásamt barna-
barni sínu.
Fyrsta upplag bókarinnar nam
fimm hundruð eintökum og er það
uppselt. Von er á öðru upplagi með
þrjú hundruð bókum á næstunni.
Einnig er hægt að panta hana hjá
foreldrum Ólivers Tuma í síma
895-4455 og í gegnum póstfangið
chefausi@gmail.com.
„Þetta hefur komið algjörlega
á óvart. Þetta átti að vera lítið og
sætt verkefni en svo óx þetta ein-
hvern veginn,“ segir Auðunn Sól-
berg og bætir við að Óliver Tumi
sé hæstánægður með gang mála.
„Hann er mjög montinn af þessu
öllu saman.“
Hluti af söluandvirði bókarinn-
ar rennur til Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra, að frumkvæði
hins unga höfundar. - fb
Sex ára höfundur fagnar útgáfu
VINSÆLL Bók Ólivers Tuma sem nefnist
Óliver Tumi, segðu mér sögu, hefur
notið mikilla vinsælda.
Framleiðslufyrirtækið Saga Film hefur fest kaup á sjónvarpsréttin-
um að skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar, Ein báran stök. „Þetta
er sjávarpláss-drama sem við teljum mjög frambærilegt. Við höfum
áhuga á að víkka aðeins út sjóndeildarhringinn og fara aðeins út fyrir
grín og spennu,“ segir Magnús Viðar Sigurðsson, framleiðslustjóri hjá
Saga Film.
Ólafur Haukur og leikarinn Jóhann Sigurðarson hafa unnið að því
að koma þessu verkefni á koppinn og Magnús segir nú þegar eina sjón-
varpsstöð hafa sýnt áhuga á að kaupa sýningarréttinn. Hann vildi þó
ekki gefa upp hvaða sjónvarpsstöð það væri, ekki væri búið að skrifa
undir neina samninga. „Þetta er verkefni sem hefur verið svolítið lengi
í gangi. Þeir komu til mín fyrir hálfu ári, við fórum vel yfir þetta og
verkefnið lítur mjög vel út. Það er mikil eftirvænting hjá okkur að
vinna með þeim tveimur.“
Ólafur Haukur er sjálfur öllu vanur úr sjónvarpi og kvikmyndum.
Hann hefur skrifað nokkur sjónvarpsleikrit og svo auðvitað leikrit-
ið Hafið sem Baltasar Kormákur gerði góð skil í samnefndri mynd.
Nú síðast var það svo Gauragangur sem var færð yfir á hvíta tjald-
ið. „Ég hef hins vegar ekki komið nálægt svona sjónvarpsþáttum.
Ég held að það sé kominn nægur
þroski í sjónvarpsframleiðslu til að
koma einhverju svona til skila og
ég vona bara að þetta gangi eftir,“
en Ólafur og Jóhann hafa verið
að þróa þetta saman. „Við höfum
sameiginlega verið að mjaka þessu
áfram.“ - fgg
Dramatík í sjávar-
þorpi á skjáinn
HEFUR VERIÐ LENGI Í GANGI
Jóhann Sigurðarson og Ólafur Haukur
Símonarson hafa unnið að gerð sjón-
varpsþáttar upp úr bók Ólafs, Ein
báran stök. Nú hefur Saga Film keypt
sjónvarpsréttinn. Sagan gerist í litlu
sjávarplássi út á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DESEMBER er dagurinn sem Lindsay Lohan ætlaði að
opinbera forsíðu Playboy-tímaritsins þar sem hún sat fyrir, en
myndinni var lekið á netið í gær.