Fréttablaðið - 09.12.2011, Side 83
FÖSTUDAGUR 9. desember 2011 55
Veisla fyrir
bragðlaukana
Villtir
veisluréttir
„Mér finnst þetta rosalega spennandi,“ segir Brynjar
Már Valdimarsson, dagskrárstjóri FM 957.
Íslenski listinn, sem hefur lengi verið í loftinu á
FM 957 og núna að undanförnu á Nova TV, hefur
göngu sína á Stöð 2 á laugardaginn. „Þetta er líka
skemmtilegur tími sem hann er á dagskrá, eða um
hálfsex. Þetta er víst mjög fínn tími fyrir svona pró-
gramm,“ segir Brynjar Már, sem stjórnar þættinum
ásamt Ernu Hrönn Ólafsdóttur.
Í Íslenska listanum verða tuttugu vinsælustu
lögin kynnt og einnig tvö lög sem eru líkleg til
vinsælda. Þekktir tónlistarmenn koma í spjall og
mætir Haukur Heiðar úr Diktu á laugardaginn.
Poppskúrinn verður einnig á dagskránni og sömu-
leiðis Heiti potturinn. Sérstakur jólalisti verður 17.
desember þar sem tuttugu bestu jólalögin verða
spiluð. Kosning á jólalögunum er hafin á visir.is.
Íslenski listinn í loftið
STJÓRNENDUR Brynjar Már Valdimarsson og Erna Hrönn Ólafs-
dóttir, stjórnendur Íslenska listans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Söngkonan Sinéad O´Connor gift-
ist í gær náunga að nafni Barry
Herridge. Þetta er fjórða hjóna-
band hennar. Hún hefur áður
verið gift upptökustjóranum
John Reynolds, blaðamannin-
um Nicholas Sommerlad og
Steve Cooney, sem hún skildi
við fyrr á þessu ári.
O´Connor tilkynnti um
giftinguna á heimasíðu
sinni, aðeins fjórum
mánuðum eftir að
hún kvartaði yfir
tíðindaleysi í kyn-
lífi sínu og að hún
væri að leita að
manni. „Hann má ekki vera yngri
en 44 ára. Hann verður að hafa
atvinnu. Hann má ekki vera með
litað hár,“ skrifaði hún.
Á tónleikum sínum í Fríkirkj-
unni á Airwaves-hátíðinni í
haust sagðist hún hafa fund-
ið draumaprinsinn og það
virðist hafa verið hverju
orði sannara.
Giftist í fjórða sinn
KOMIN MEÐ MANN
Sinéad O´Connor
giftist í gær Barry
Herridge eftir
stutt ástarsam-
band.
Söngkonan Adele gerir ekki mikl-
ar kröfur þegar hún er á tónleika-
ferðalaginu en heimtar þó að nóg
af bjór og sígarettum sé til staðar
í búningsklefa hennar. Lista yfir
kröfur Adele hefur nú verið lekið
til fjölmiðla, en eins og kunnugt
er þurfti söngkonan að fresta tón-
leikum út árið vegna aðgerðar á
raddböndum.
Adele samþykkir ekki hvaða
bjór sem er því hún vill bara
evrópska tegund og leggur blátt
bann við bjór frá Norður-Amer-
íku. Einnig vill hún tyggjó, sam-
lokur og litla súkkulaðimola fyrir
og eftir tónleika hjá sér.
Adele biður
um bjór
BJÓR OG SÍGARETTUR Söngkonan Adele
vill að nóg sé til af bjór og sígarettum
baksviðs á tónleikum. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlist ★★★★
Jólin
KK og Ellen
Hugljúf
og heilandi
Það eru
tvær
jólaplötur
í algjöru
uppáhaldi
á mínu
heimili.
Annars
vegar er
það jólaplata Guðrúnar Á. Símonar
og Guðmundar Jónssonar frá
1975 – óperusöngvarar að syngja
jólapopp yfir léttleikandi grúv Óla
Gauks og hljómsveitar. Klikkar
aldrei. Hin platan er jólaplata
systkinanna KK og Ellenar, Jólin
koma, frá 2006. Þar er það
einfaldleikinn í útsetningunum og
ljúfur samsöngur þeirra systkina
sem heillar.
Nú, fimm árum seinna, er
komin ný jólaplata með Ellen og
Kristjáni og hún er í sama stíl.
Sígild jólalög og aðventusálmar
(Nú er Gunna á nýju skónum,
Snæfinnur snjókarl, Jólasnjór,
Nóttin var sú ágæt ein, Við kveikj-
um einu kerti á ...) í einföldum og
hugljúfum útsetningum. Það er
ekkert verið að gera glænýja og
stórkostlega hluti hér, heldur eru
þetta blátt áfram, órafmagnaðar
útsetningar með smá kántríkeim
og þessum blíða söng. Útkoman
er hugljúf og næstum heilandi
plata. Góð til þess að slá á
aðventustressið.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Einföld og notaleg
jólaplata sem eyðir jólastressi.