Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 88

Fréttablaðið - 09.12.2011, Síða 88
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR60 sport@frettabladid.is WAYNE ROONEY gat leyft sér að brosa örlítið í gær þegar áfrýjunarnefnd UEFA stytti þriggja leikja bann hans niður í tvo leiki. Rooney er því löglegur í lokaleik riðlakeppni EM næsta sumar og verður líklega valinn í hópinn eftir allt saman. Ástandið er ekkert eldfimt í okkar her- bergi þrátt fyrir að við séum í samkeppni. SUNNEVA EINARSDÓTTIR LANDSLIÐSMARKVÖRÐUR HANDBOLTI Ísland mætir í kvöld Kína í lokaumferð riðlakeppn- innar á HM í Brasilíu. Stelpurnar okkar geta lent í 2.-5. sæti riðils- ins, en fjögur efstu liðin komast áfram í 16 liða úrslitin. Það veltur mikið á því hvernig aðrir leikir fara í riðlinum. En það er ljóst að ef Angóla vinnur sinn leik gegn Þýskalandi klukk- an 17.00 í dag mun Ísland lenda í fjórða sæti riðilsins, sama hvern- ig leikur stelpnanna okkar gegn Kína endar í kvöld. Verði það tilfellið verða heims- meistarar Rússlands andstæð- ingar Íslands í 16 liða úrslitum á sunnudaginn. Þó eru margir aðrir mögu- leikar í stöðunni ef Þjóðverjar ná minnst stigi gegn Angóla. Sigri Ísland lið Kína er möguleiki að ná öðru sæti riðilsins og mæta þar með mun auðveldari and- stæðingi í 16 liða úrslitunum. Til þess þarf Þýskaland að vinna Angóla, Noregur þarf að vinna Svartfjallaland og Ísland vitan- lega hafa betur gegn Kína. Ef Ísland lendir í þriðja sæti riðilsins mætir liðið Spáni í 16 liða úrslitum og færi sá leikur fram á mánudaginn. Ísland fellur þó úr leik og keppir í Forseta- bikarnum ef Þýskaland vinnur Angóla og stelpurnar okkar tapa svo fyrir Kína um kvöldið. Noregur mætir svo Svartfjalla- landi klukkan 19.15, en leikur Kína og Íslands hefst klukk- an 21.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. - esá Mikil spenna í A-riðli: Sigur Angóla festir Ísland í fjórða sætinu MIKIÐ UNDIR Anna Úrsúla Guðmunds- dóttir er hér í leiknum gegn Angóla, en Afríkumeistararnir gætu reynst Íslandi örlagavaldur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sigurður Elvar Þórólfsson og Pjetur Sigurðsson fjalla um HM í Brasilíu seth@frettabladid.is – pjetur@365.is HANDBOLTI Markverðir eru án efa mikilvægustu leikmenn hvers handboltaliðs. Íslenska kvenna- landsliðið er þar engin undantekn- ing og þar eru fyrir Valsmenn- irnir Sunneva Einarsdóttir sem er 21 árs gömul og Guðný Jenný Ásmundsdóttir, 29 ára. Sunneva og Jenný áttu stóran þátt í 26-20 sigri Íslands gegn Þjóðverjum og þær þurfa svo sannarlega að vera í „stuði“ gegn Kína í kvöld í loka- leiknum í A-riðli. Sunneva og Jenný eru herberg- isfélagar á Mercure-hótelinu við ströndina í Santos. Þar ræður Jenný ríkjum að sögn Sunnevu. „Ástandið er ekkert eldfimt í okkar herbergi þrátt fyrir að við séum í samkeppni. Við erum vanar þessu hjá Val, og ef önnur okkar er að finna sig þá gleðst hin bara yfir því,“ segir Sunneva og Jenný kinkar bara kolli. „Reyndar þoli ég það ekki þegar Jenný ver bolta,“ segir Sunneva og hlær en það er greinilegt að hún hefur munninn fyrir neðan nefið og lætur allt flakka. Best af öllu er að fá boltann í sig „Við vinnum saman að öllu hér á HM og þetta snýst um liðsheildina en ekki einstaklinga,“ bætir Jenný við, en hún hefur komið mjög á óvart á þessu heimsmeistaramóti. „Ég byrjaði í marki þegar ég var smástelpa með ÍR. Á æfingu nr. 2 fór ég í mark og ég hef bara verið í marki síðan. Og sé ekki eftir því. Það er bara eitthvað sem heillar mig við þetta og það besta er að fá boltann í sig – alveg sama þótt það sé vont,“ segir Jenný. Sunneva reyndi fyrir sér sem útileikmaður í eitt ár hjá yngri flokkum Fram og það var víst lítil eftirspurn eftir henni á því sviði. „Mamma tók bara fyrir augun í leikjunum hjá mér. Ég var alveg skelfilega léleg úti, spilaði vinstri skyttu og var fyrirliði, vítaskytta og allt.“ Jenný hefur það á orði að það eina sem fari í taugarnar hjá henni í sambúðinni við Sunnevu sé draslið sem hún skilji eftir sig í herberginu. „Heyrðu, róleg, við erum alveg jafnar á þessu sviði,“ segir Sunn- eva ákveðin og Jenný fer að hlæja. „Það er reyndar oft frekar mikið drasl hjá okkur. Föt sem eru að þorna eftir þvott úti um allt, og það fylgir okkur mesta fatadraslið, síð- buxur og svoleiðis,“ segir Jenný. Markverðirnir hafa eytt miklum tíma í að undirbúa sig fyrir leik- ina hér í Santos og legið yfir mynd- böndum frá andstæðingunum. „Við gerðum reyndar minnst af því gegn Þýskalandi en við erum búnar að skoða kínverska liðið og erum með nokkuð góða hugmynd hvernig þær skjóta,“ segir Jenný. Þær eru báðar að stíga sín fyrstu skref á stórmóti og á slíku móti fá markverðirnir að kynnast nýjum hlutum. „Við fáum of fá þrumuskot á okkur í deildarkeppninni á Íslandi. Svo einfalt er það. Það eru leik- menn hérna sem eru að dúndra á staði sem við höfum varla séð. Og það er nauðsynlegt fyrir okkur og fleiri leikmenn að komast út í sterkari deild,“ segir Sunneva, sem er 21 árs gömul og ætlar sér að komast í betri deild. Jenný lék í fjögur ár í norsku úrvalsdeildinni en hún er tveggja barna móðir og segir að það sé aðeins flóknara fyrir hana að rífa sig til þess að komast í sterkari deild. Báðar segja að íslensk félags- lið þurfi að hlúa betur að markvörslunni. „Mér finnst of lítið af því gert að láta einfaldlega bestu leikmenn- ina í markið eða þá sem hafa ein- hverja hæfileika í að verða mark- verðir. Það er ekki hugsað nógu langt fram í tímann,“ segir Sunn- eva og Jenný kinkar kolli – enda kemst hún varla að þegar Sunneva opnar munninn. „Þoli ekki þegar Jenný ver bolta“ Markverðirnir Sunneva Einarsdóttir og Guðný Jenný Ásmundsdóttir kunna vel við að boltanum sé dúndrað í þær. Samkeppnin er til staðar hjá herbergisfélögunum. Hlúa þarf betur að ungum markvörðum. VINKONUR Í SAMKEPPNI Þær Jenný og Sunneva vinna vel saman og styðja hvor aðra þó svo að þær keppi innbyrðis um leiktíma með landsliðinu í Brasilíu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI Ísland og Kína eigast við í lokaleiknum í A-riðli heims- meistaramótsins í kvöld í Arena Santos. Með sigri tryggir Ísland sér sæti í 16-liða úrslitum og Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðs- ins, vonast til þess að Ísland haldi áfram að taka skref upp á við á þessu heimsmeistaramóti. Ágúst og Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðs- ins, sátu saman á kaffihúsi í San- tos í gær og ræddu um handbolta. „Ágúst er að kenna mér hvern- ig við vinnum Svartfjallaland og hann fær allar upplýsingar um Kína frá mér,“ sagði Þórir og brosti en Noregur vann Kína með 27 marka mun. „Við þurfum að halda okkar striki í varnarleiknum og leika fast gegn þeim. Það verða einhverjar áherslubreytingar í vörn og sókn, ekki miklar. Það er mikilvægast að byrja vel, Kína hefur að engu að keppa og ef þær lenda undir þá hefur þeim gengið illa að koma til baka á þessu móti,“ segir Ágúst. „Það er líka mikilvægt fyrir okkur að halda ró okkar hvað sem kemur upp á. Í liðinu eru leikmenn sem við þurfum að hafa gætur á, línumaðurinn, sem ég man ekki hvað heitir, er hávaxinn og sterk- ur. Það er leikmaður sem dregur að sér athyglina og opnar fyrir aðra.“ Þórir kinkar kolli og er sammála því sem Ágúst segir. „Tæknileg mistök í sóknarleiknum eru einnig eitthvað sem við verðum að forðast að gera. Kína vill sækja hratt og skora úr hraðaupphlaupum. Ann- ars snýst þetta mest um okkar lið. Ná upp stemningu, góðri vörn og bæta leik okkar jafnt og þétt,“ bætti Ágúst við. Þjálfarinn fékk ærið verkefni í gærkvöld þegar hann efndi loforð sitt um að hlaupa upp allar 22 hæð- irnar á Mercure-hótelinu í San- tos þar sem íslenska liðið dvelur. Gústaf Adolf Björnsson, aðstoðar- þjálfari liðsins, fór með honum en þeir félagar höfðu lofað að gera þetta ef Ísland myndi vinna sigur gegn Þjóðverjum. „Ég er ekki í vafa um að þetta er nýtt hótelmet og við bættum það um þrjár mínútur í það minnsta,“ sagði Ágúst Jóhannsson eftir að hann hljóp upp á 22. hæðina á Mercure-hótelinu í Santos í gær. Gústaf Adolf og Ágúst voru þar með að efna loforð sem þeir gáfu stelpunum okkar fyrir Þjóðverja- leikinn. Þar lofuðu þeir að hlaupa upp á efstu hæð hótelsins ef sigur ynnist gegn þýska stálinu. Stelp- urnar stóðu við sitt og þjálfararnir kláruðu verkefnið með glans. „Við vorum um 6 mínútur og þetta var ekkert mál,“ sagði Ágúst en hann átti töluvert erfitt með að tala þegar hann ræddi við Frétta- blaðið. - seth Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari fékk upplýsingar frá Þóri Hergeirssyni í gær og hljóp svo upp tröppur: Ekki í vafa um að ég setti nýtt hótelmet BÚNIR Á ÞVÍ Ágúst og Gústaf Adolf hér vel þreyttir eftir tröppuhlaupið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.