Fréttablaðið - 09.12.2011, Qupperneq 90
9. desember 2011 FÖSTUDAGUR62
N1-deild karla:
Akureyri-Haukar 20-19
Akureyri - Mörk (skot): Oddur Gretarsson 6/1
(9/2), Bjarni Fritzsson 6/1 (11/3), Hörður Fannar
Sigþórsson 4 (5), Guðmundur H. Helgason 2 (6),
Geir Guðmundsson 2 (8).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 21/1 (40/3,
53%),
Hraðaupphlaup: 7 (Hörður 3, Bjarni 2, Oddur,
Guðmundur )
Fiskuð víti: 4 (Hörður 2, Oddur, Geir)
Utan vallar: 4 mínútur.
Haukar - Mörk (skot): Freyr Brynjarsson 4 (5),
Stefán Rafn Sigurmannsson 4 (12/1), Tjörvi Þor-
geirsson 3 (6), Gylfi Gylfason 3/2 (6/2), Heimir
Óli Heimisson 2 (2), Matthías Árni Ingimarsson
1 (1), Árni Steinn Steinþórsson 1 (2), Nemanja
Malovic 1 (9).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 18/1 (38/3,
47%), Aron Rafn Eðvarðsson 1/1 (1/1, 100%),
Hraðaupphlaup: 4 ( Tjörvi, Gylfi, Matthías, Árni )
Fiskuð víti: 3 ( Stefán 2, Þórður)
Utan vallar: 0 mínútur.
FH-HK 25-23
FH - Mörk (skot): Örn Ingi Bjarkason 6 (10), Þor-
kell Magnússon 5/4 (6/5), Hjalti Þór Pálmason
4 (8), Atli Rúnar Steinþórsson 3 (3), Baldvin
Þorsteinsson 2/1 (3/1), Ólafur Gústafsson 2 (12),
Sigurður Ágústsson 1 (2), Andri Berg Haraldsson
1 (2), Ari Magnús Þorgeirsson 1 (3),
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 22 (45, 49%),
Hraðaupphlaup: 6 (Hjalti 2, Örn, Sigurður, Andri,
Ari)
Fiskuð víti: 6 (Atli 3, Örn, Baldvin, Ari)
Utan vallar: 8 mínútur.
HK - Mörk (skot): Ólafur Bjarki Ragnarsson 8
(13), Atli Ævar Ingólfsson 6 (10), Tandri Már
Konráðsson 3 (8), Sigurjón Friðbjörn Björnsson 2
(5), Bjarki Már Elísson 2 (7), Ólafur Víðir Ólafsson
1 (4), Leó Snær Pétursson 1 (4).
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 17/1 (41/5,
41%), Arnór Freyr Stefánsson (1/1, 0%),
Hraðaupphlaup: 3 ( Bjarki 2, Sigurjón)
Fiskuð víti: 0
Utan vallar: 8 mínútur.
Afturelding-Grótta 27-25
Afturelding - Mörk (skot): Sverrir Hermannsson 5
(8), Böðvar Páll Ásgeirsson 5 (12), Helgi Héðins-
son 4/3 (5/3), Jón Andri Helgason 4 (6), Hilmar
Stefánsson 4 (7/1), Þorlákur Sigurjónsson 2 (2),
Þrándur Gíslason 2 (5), Einar Héðinsson 1 (3).
Varin skot: Davíð Svansson 20 (45/3, 44%),
Hraðaupphlaup: 5 ( Jón 3, Hilmar, Þorlákur)
Fiskuð víti: 4 (Sverrir, Helgi, Þrándur, Einar)
Utan vallar: 6 mínútur.
Grótta - Mörk (skot): Jóhann Gísli Jóhannsson 6
(12), Þórir Jökull Finnbogason 5/3 (7/4), Kristján
Jóhannsson 4 (5), Þorgrímur Ólafsson 4 (13),
Hjálmar Arnarsson 2 (3), Árni Benedikt Árnason 2
(6), Ágúst Birgisson 1 (1), Þráinn Jónsson 1 (4).
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 23/1 (50/4,
46%),
Hraðaupphlaup: 6 (Kristján 3, Jóhann 2, Hjálmar)
Fiskuð víti: 4 (Jóhann 2, Hjálmar, Ágúst )
Utan vallar: 8 mínútur.
IE-deild karla:
Keflavík-Njarðvík 92-72
Keflavík: Steven Gerard Dagustino 30, Jarryd
Cole 26, Almar Stefán Guðbrandsson 11, Charles
Michael Parker 10, Ragnar Gerald Albertsson 9,
Valur Orri Valsson 3, Halldór Örn Halldórsson 2,
Sigurður Friðrik Gunnarsson 1.
Njarðvík: Cameron Echols 25, Travis Holmes 16,
Ólafur Helgi Jónsson 13, Hjörtur Hrafn Einarsson
9, Jens Óskarsson 6, Styrmir Fjeldsted 2, Maciej
Stanislav Baginski 1.
Fjölnir-Snæfell 103-95
Fjölnir: Nathan Walkup 33, Árni Ragnarsson
28, Calvin O’Neal 15, Arnþór Guðmundsson 11,
Hjalti Vilhjálmsson 8, Trausti Eiríksson 4, Jón
Sverrisson 4.
Snæfell: Quincy Hankins-Cole 29, Marquis
Sheldon Hall 26, Jón Ólafur Jónsson 16, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 8, Sveinn Arnar Davidsson 7,
Hafþór Ingi Gunnarsson 5, Ólafur Torfason 4.
Grindavík-Þór 76-80
Grindavík: J’Nathan Bullock 21, Ólafur Ólafsson
17, Giordan Watson 13, Jóhann Árni Ólafsson
9, Þorleifur Ólafsson 7, Ómar Örn Sævarsson 5,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 4.
Þór Þorlákshöfn: Michael Ringgold 23, Darrin
Govens 22, Guðmundur Jónsson 10, Marko
Latinovic 9, Baldur Þór Ragnarsson 8, Darri
Hilmarsson 5, Þorsteinn Már Ragnarsson 3.
Tindastóll-KR 99-94
Tindastóll: Maurice Miller 27/11 fráköst/14 stoð-
sendingar, Svavar Atli Birgisson 15, Helgi Rafn
Viggósson 14, Trey Hampton 12, Hreinn Gunnar
Birgisson 10, Friðrik Hreinsson 10, Þröstur Leó
Jóhannsson 6, Helgi Freyr Margeirsson 5.
KR: Finnur Atli Magnússon 22/13 fráköst, Emil
Þór Jóhannsson 17, Edward Lee Horton Jr. 14, Jón
Orri Kristjánsson 14, Hreggviður Magnússon 11,
Ólafur Már Ægisson 7, Skarphéðinn Freyr Ingason
6, Páll Fannar Helgason 3.
Valur-Haukar 73-76
Valur: Garrison Johnson 30, Igor Tratnik 12/21 frá-
köst/9 varin skot, Ragnar Gylfason 9, Alexander
Dungal 7, Hamid Dicko 6, Benedikt Blöndal 5,
Birgir Björn Pétursson 4.
Haukar: Christopher Smith 21, Helgi Einarsson
19, Sævar Ingi Haraldsson 9, Haukur Óskarsson
9, Hayward Fain 9, Örn Sigurðarson 8, Emil
Barja 1.
ÍR-Stjarnan 82-83
ÍR: Robert Jarvis 25, James Bartolotta 21, Eiríkur
Önundarson 15, Nemanja Sovic 14, Kristinn
Jónasson 4, Ellert Arnarson 3.
Stjarnan: Fannar Freyr Helgason 22, Keith
Cothran 18, Justin Shouse 18, Marvin Valdimars-
son 12, Guðjón Lárusson 6, Sigurjón Örn Lárus-
son 4, Dagur Kár Jónsson 3.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Keflavík vann örugg-
an tuttugu stiga sigur, 92-72, á
nágrönnum sínum í Njarðvík í
Iceland Express-deildinni í gær-
kvöldi. Keflvíkingar leiddu allan
leikinn og voru þeir alltaf nokkr-
um skrefum á undan Njarðvík-
ingum sem spiluðu illa.
Steven Gerard Dagustino, leik-
stjórnandi Keflavíkur, bauð upp
á alvöru tölur í leiknum en skor-
aði 30 stig ásamt því að gefa sjö
stoðsendingar. Jerryl Cole, leik-
maður Keflavíkur, var einnig
virkilega öflugur undir körfunni
og skoraði hann 26 stig og reif
niður tíu fráköst.
Nokkurt jafnræði var með
liðunum í upphafi leiks og var
munurinn einungis fjögur stig
í lok fyrsta leikhluta. Keflvík-
ingar tóku þá öll völd á leiknum
og leiddu þeir með ellefu stigum
þegar flautað var til hálfleiks.
Það sama var upp á teningnum
í síðari hálfleiknum en Keflvík-
ingar stjórnuðu honum algjör-
lega. Þeir héldu uppteknum hætti
í sóknarleiknum ásamt því að
spila góða vörn á meðan Njarð-
víkurliðið virkaði stefnulaust og
áhugalítið. Keflvíkingar unnu
svo að lokum auðveldan tuttugu
stiga sigur í leik sem aldrei varð
spennandi.
Sigurður Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur, var ánægð-
ur með sína menn í leiknum.
,,Þetta var ekki auðvelt í kvöld þó
að þetta gæti hafa litið svoleið-
is út frá stúkunni. Þetta er gott
lið sem við vorum að spila við í
kvöld. Menn lögðu sig vel fram
og við þurftum að hafa mikið
fyrir þessu,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflavíkur,
eftir sigurinn.
Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkur, var mjög ósáttur
við leik sinna manna. ,,Við vorum
ótrúlega daprir í þessum leik og
við hljótum að hafa snert botninn
í kvöld. Það mætti bara eitt lið til
leiks hérna í kvöld og það þurfti
engan glansleik til þess að labba
yfir okkur hérna í kvöld,“ sagði
Einar Árni. - sh
Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur stóð ekki undir væntingum þar sem Keflvíkingar voru mun sterkari:
Keflavík valtaði yfir nágranna sína í Njarðvík
MIKLU STERKARI Keflvíkingar lentu ekki
í neinum vandræðum með nágranna
sína í Njarðvík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Um leið og lokaflautan
gall á Akureyri í gær tróð Hörð-
ur Fannar Sigþórsson boltanum
framhjá hinum magnaða Birki
Ívari Guðmundssyni og tryggði
Akureyri dramatískan 20-19 sigur
í N1-deild karla í handbolta í gær.
Birkir var Akureyringum erfið-
ur ljár í þúfur í Haukamarkinu
og varði virkilega vel í leiknum,
líkt og Sveinbjörn Pétursson hinu
megin en þeir voru bestu menn
vallarins í gær.
Akureyri komst í 4-0 og sókn
Hauka var í tómu tjóni framan
af. Aron Kristjánsson þjálfari
hraunaði yfir sína menn í leik-
hléi og vakti þá aðeins. Akur-
eyri var skrefinu á undan í fyrri
hálfleik en markmennirnir voru
í aðalhlutverki og báðar varnirn-
ar fínar.
Akureyri leiddi 11-9 í hálfleik
en alls fóru fimm víti í súginn hjá
liðunum í hálfleiknum.
Akureyri byrjaði seinni hálf-
leikinn vel og eftir 9 mínútur var
liðið komið 16-12 yfir. Á fimm
mínútna kafla gerðu liðin hver
mistökin á fætur öðru en á fjór-
um mínútum skoruðu Haukar jafn
mörg mörk og jöfnuðu.
Það hægðist til muna á leiknum
og sóknirnar voru margar slak-
ar. Jafnt var á öllum tölum, stað-
an var 19-19 þegar Haukar fóru í
sókn og tæp mínúta eftir. Þegar
25 sekúndur voru eftir tók Stefán
Rafn glórulausa ákvörðun þegar
hann skaut úr erfiðri stöðu, og fór
skotið framhjá.
Akureyri hafði ágætan tíma og
keyrði á vörn Hauka þegar sjö
sekúndur voru eftir. Bjarni fann
Hörð á línunni og lokaflautan
gall um leið og boltinn söng í net-
inu. Um 850 áhorfendur ærðust
af gleði, enda Akureyri komið á
beinu brautina.
Birkir Ívar hélt sínum mönnum
inni í leiknum, og reyndar má
segja það sama um Sveinbjörn.
Þeir báru af í liðunum. Hjá Akur-
eyri var Oddur góður og Guð-
laugur leiddi vörnina vel. Oddur
og Bjarni skoruðu mest en Hörður
var einnig drjúgur í vörn og sókn.
Hjá Haukum var færra um fína
drætti þrátt fyrir naumt tap. Mal-
ovic skoraði eitt mark úr níu skot-
um og enginn steig almennilega
upp þegar Tjörvi gerði mistök.
Gylfi skoraði þrjú mörk en Hauk-
ar söknuðu leiðtoga í sókninni.
„Þetta var bara rugl, það skýt-
ur ekki neinn á þessum tíma.
Það var jafntefli og þarna spilar
maður bara,“ sagði Aron um skotið
hjá Stefáni í lokin. „Við vorum að
spila mjög góða vörn og Birkir að
verja vel í markinu en sóknarlega
þá erum við bara að gera ótrúleg
mistök. Við misstum einbeitinguna
og erum að taka of mikla sénsa.
Það gengur bara ekki upp. Ein-
beitingarfeilar og of miklir sénsar
sem ganga ekki upp. Ég óska bara
Akureyringum til hamingju með
sigurinn, það var frábær stemm-
ing í húsinu og þeir vildu þetta
bara meira en við,“ sagði Aron.
„Mér fannst við eiga þetta inni,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari
Akureyringa. „Við erum búnir að
vera að tapa svona leikjum í vetur
en það kom að því að við vorum
svolítið heppnir. Við vorum orðn-
ir þreyttir undir lokin en við klár-
uðum þetta og sigurinn er sætur,“
sagði Atli.
Afturelding stal sigrinum
Afturelding unnu gríðarlega mik-
ilvægan sigur í gærkvöldi þegar
þeir unnu Gróttu 27-25 á heima-
velli. Heimamenn höfðu undirtök-
in í byrjun en gestirnir af Seltjarn-
arnesi unnu sig aftur inn í leikinn
og voru seinustu mínúturnar æsi-
spennandi. Heimamenn höfðu þetta
þó af í endann með mikilli hjálp
frá stuðningssveit sinni. „Þetta
var mjög góður sigur, og keimlíkt
leiknum í bikarnum þegar stiga-
skorið er svipað í hálfleik og þeir
koma aftur í seinni hálfleik en
munurinn var sá að í dag brotnuð-
um við ekki heldur héldum áfram,“
sagði Reynir Þór Reynisson, þjálf-
ari Aftureldingar, eftir leikinn.
„Mér fannst við hálfgerðir klaufar
að klára þetta ekki betur og úr varð
háspennuendir. Þetta gæti samt
gefið okkur mikið. Mér fannst við
stíga stórt skref með því að vinna
svona háspennuleik,“ sagði Reyn-
ir. „Þetta var hrikalega slæmt
tap, alveg gríðarlega svekkjandi.
Við spiluðum fantavörn á köflum
nema hérna rétt í lokin og við köst-
uðum þessum leik frá okkur hérna
í lokin,“ sagði Guðfinnur Arnar
Kristmannsson, þjálfari Gróttu,
eftir leikinn. - hþh, bhs, kpt
Það skýtur enginn á þessum tíma
Akureyri vann dramatískan sigur á Haukum fyrir norðan í gær. Haukar klúðruðu leiknum undir lokin en
sigurmarkið kom á lokasekúndunni. Markmennirnir voru í aðalhlutverki hjá báðum liðum. Grótta kastaði
svo frá sér unnum leik í Mosfellsbæ og er í vondum málum á botni N1-deildarinnar.
ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA VONT Bjarni Fritzson fær hér veglegt olnbogaskot frá Stefáni
Rafni Sigurmannssyni í leik liðanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HJALTI ÞÓR
HANDBOLTI FH vann frábæran
sigur, 25-23, á HK í Kaplakrika
í gærkvöldi. Sigurinn kom Fim-
leikafélaginu í 13 stig í deildinni,
jafn mörg stig og HK-ingar hafa,
en Hafnfirðingar eiga einn leik til
góða á toppliðin.
FH elti stóran hluta leiksins og
HK hafði ýmist eins til tveggja
marka forystu. HK-ingar voru
sterkari í upphafi síðari hálfleiks
og voru með ákveðið frumkvæði.
FH-vélin datt síðan í gang á síð-
ustu tíu mínútum leiksins og náði
að innbyrða mikilvægan sigur.
„Við sýndum gríðarlega seiglu
á lokakafla leiksins og ákveðnir
leikmenn stigu upp. Hjalti Pálma-
son skoraði gríðarlega mikilvæg
mörk hér í lokin. Liðið kláraði
fyrst og fremst þennan leik með
hörkubaráttu,“ sagði Einar Andri
Einarsson, annar þjálfara FH,
eftir leikinn.
Daníel Freyr Andrésson var frá-
bær í marki FH-inga í gær og þar
er greinilega á ferðinni mikið efni.
„Danni var auðvitað stórkost-
legur í kvöld og var með yfir 50%
skot, en lið á ekki að geta tapað
þegar markvörðurinn er að verja
svona vel. Hann sprakk út hjá
okkur í fyrra og hefur verið alveg
frábær í vetur,“ sagði Einar.
„Við vorum algjörir aular í rest-
ina,“ sagði Kristinn Guðmunds-
son, annar þjálfari HK, eftir tapið
í gær. „Við gerðum kannski mistök
í lokin þegar við breyttum varn-
arleiknum, ætluðum að vera voða-
lega klókir en það kom í bakið á
okkur. Fyrst og fremst náðum við
okkur ekki á strik sóknarlega.“
- sáp
Íslandsmeistarar FH sýndu sterkan karakter er þeir lögðu HK á heimavelli sínum í Hafnarfirði:
Daníel Freyr sá um að afgreiða HK-inga
FASTUR Örn Ingi fær hér óblíðar móttökur frá vörn HK. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON