Morgunblaðið - 30.07.2010, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.07.2010, Qupperneq 16
16 Fréttir INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010 Nóg er um að vera um helgina en verslunar- mannahelgin er ein vinsælasta ferðahelgi árs- ins. Eins og sjá má á kortinu hér fyrir ofan eru hátíðir um allt land en ætla má að þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verði sú stærsta. Vestmanna- eyingar hafa verið að tjalda hvítu þjóðhátíðar- tjöldunum og gera Herjólfsdalinn reiðubúinn fyrir mannfjöldann. Lögreglan í Vestmannaeyjum er með mikinn viðbúnað vegna þjóðhátíðarinnar og hefur feng- ið liðsstyrk frá öðrum lögregluliðum, aðallega á suðvesturhorninu. Ekkert lát er á straumi ferðamanna með flugi og Herjólfi en búist er við mörgum til Eyja í dag. Hátt í tuttugu lögreglu- menn koma til að styrkja lögregluna í Vest- mannaeyjum. Þeir munu sinna almennri lög- gæslu og eins fíkniefnaeftirliti. Auk lögreglunnar munu björgunarsveitarmenn einnig verða við eftirlit og gæslu í Herjólfsdal þar sem þjóðhátíðin er haldin. Einnig er búið að setja upp tjaldsvæði fyrir utan Herjólfsdal og þar verður einnig gæsla. Varðstjóri lögreglunnar í Vestmannaeyjum sagði að allt hafi farið vel fram hingað til, án þess að lögreglan þyrfti að hafa afskipti þar af. Mikið eftirlit er með ferðamönnum og strangt fíkniefnaeftirlit viðhaft. Aðeins smáræði af fíkniefnum hefur fundist til þessa. Margt fólk er komið á staðinn og hefur komið sér fyrir í Dalnum en búast má við að langflestir komi þangað í dag. Gera ráð fyrir umferðinni Umferðarstofa hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að fólk verði að gera ráð fyrir tveggja tíma akstri frá Reykjavík til Landeyjahafnar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmark- aður miðað við það sem almennt gerist á leið- inni. Um verslunarmannahelgina má án efa bú- ast við mikilli umferð og getur þá jafnvel þurft að gera ráð fyrir lengri tíma. Eitthvað hefur borið á því að ökumenn hafi farið of hratt um Suðurlandsveg á leið sinni austur að Landeyjahöfn og má það í einhverjum tilfellum rekja til þeirrar ranghugmyndar að það taki aðeins eina og hálfa klukkustund að aka leiðina frá Reykjavík að Landeyjahöfn. Það er ógerlegt að aka þessa vegalengd á svo skömm- um tíma nema ekið sé á köflum langt yfir leyfð- um hámarkshraða, að því er fram kemur í til- kynningu Umferðarstofu. jonasmargeir@mbl.is Hátíðir um verslunarmannahelgina Hátíðir um Verslunnamannahelgina Ein með öllu / Þriggja daga vakt Akureyri 386 km. Neistaflug Neskaupsstaður 712 km. Mýrarboltinn Ísafjörður 456 km. Færeyskir fjölskyldudagar Stokkseyri 63 km. Innipúkinn Reykjavík 0 km. Síldarævintýri Siglufjörður 385 km. Fjölskylduhátíð SÁÁ Hlaðir, Hvalfjarðarströnd 65 km. Kotmót Stykkishólmi 172 km. Flughátíð Múlakot 118 km. Harmonikkuhátíð Árnes 92 km. Sæludagur í sveitinni Hörgárdalur 358 km. Dragspilsveisla Brúarás 620 km.Fákaflug Vindheimamelar 296 km. Fjölskyldufriður Galtalækjarskógur 150 km. Þjóðhátíð Vestmannaeyjum 131 km. Ath. Gera verður ráð fyrir 2 klukkutíma akstri Sæludagar Vatnaskógur 62 km.Unglingalandsmót UMFÍ Borgarnes 73 km. Hátíð Staður Vegalengd frá Reykjavík Stanslaust stuð um allt land Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Lækkun á vísitölu neysluverðs síð- ustu mánuði hefur þau áhrif að verðtryggð lán lækka. Lækkunin hefur þó afar lítil áhrif á mán- aðarlegar afborganir en höfuðstóll- inn lækkar nokkuð og er það gleði- efni fyrir skuldara sem hafa horft upp á verðbólgu keyra upp lánin sín undanfarna mánuði. Vísitalan mældist 361,7 stig í júlí- mánuði og er 0,66% lægri en í júní. Hún lækkaði einnig um 0,33% frá maí fram í júní og hefur því saman- lagt lækkað um 0,99% síðustu tvo mánuði. Sé tekið dæmi um 20 milljón króna verðtryggt lán með 5% vöxt- um til 40 ára sem var tekið í janúar árið 2007 er ljóst að höfuðstóllinn hefur lækkað um 268.207 krónur síðustu tvo mánuði. Lánið stendur á hinn bóginn í um 27 milljónum í dag þrátt fyrir að skuldari hafi borgað umtalsverðar fjárhæðir mánuð eftir mánuð. Þegar vísitalan lækkaði í júní lækkaði höfuðstóllinn um 89.567 krónur og núna hefur hann aftur lækkað um 178.540 krónur. Verð- bæturnar hafa sveiflast umtalsvert mikið milli mánaða og á þessu láni eru nettó-verðbætur í dag 6.130.906 krónur. Vísitalan var 268 stig við fyrstu afborgun. Skref í rétta átt Runólfur Ágústsson, nýskipaður umboðsmaður skuldara sem hefur störf 1. ágúst næstkomandi, segir að þessi lækkun á vísitölunni sé skref í rétta átt. „Þetta eru auðvit- að mjög jákvæð tíðindi. Ég bind vonir við það að þessi lækkun haldi áfram og við sjáum líka að atvinnu- leysistölur eru lægri en gert var ráð fyrir þannig við vonum að þetta sé að skríða í rétta átt.“ Runólfur segir jafnframt að verð- tryggingin sé mikið vandamál og segir langtímamarkmið vera að losna við hana. „Verðtryggingin hefur þær afleiðingar að öll áhætta í hagkerfinu liggur alltaf hjá skuld- urum og þetta er auðvitað kerfi Hefur lítil áhrif á afborganir lána Hlutfallsleg breyting á vísitölu neysluverðs nokkurra flokka maí - júlí 2010 01 Matur og drykkjarvörur -1,5% 011 Matur -1,5% 0111 Brauð og kornvörur -1,0% 0112 Kjöt -1,1% 0113 Fiskur +5,2% 0114 Mjólk, ostar og egg +0,3% 0116 Ávextir -5,4% 0117 Grænmeti, kartöflur o.fl. -12,2% 012 Drykkjarvörur -1,2% 02 Áfengi og tóbak -0,2% 03 Föt og skór -9,6% 04 Húsnæði, hiti og rafmagn +0,3% 05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. -0,3% 053 Raftæki -1,9% 06 Heilsa +0,3% 07 Ferðir og flutningar -3,0% 0721 Varahlutir -1,8% 0722 Bensín og olíur -6,8% 073 Flutningar -3,2% 08 Póstur og sími +1,8% 09 Tómstundir og menning +0,7% 11 Hótel og veitingastaðir +1,7% 12 Aðrar vörur og þjónusta +0,3% Heimild: Hagstofan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.