Morgunblaðið - 06.08.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 06.08.2010, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 6. Á G Ú S T 2 0 1 0  Stofnað 1913  181. tölublað  98. árgangur  ARNARNES- GRÍSIR Í ANDA SOUTH PARK KOMA ÖLLUM Í OPNA SKJÖLDU GAMLIR KJÓLAR Í GLEYMMÉREI AFSAGNIR Í BEINNI ÚTSENDINGU 14 KJÓLASJÚKAR SYSTUR Á SEYÐISFIRÐI 10ERPUR OG STEINDI JR. TALSETJA 36  Eftir hrun hafa bílar verið stöðvaðir á Seyðisfirði til eftirlits áður en Norræna legg- ur úr höfn. „Það er óheim- ilt að fara með bíla af landi brott hvort sem það er góðæri eða harðæri,“ segir Kjartan G. Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP Fjármögn- unar. Hann segir þetta snúast um tryggingamál og alls engin mann- vonska sé að baki. „Það eru ströng ákvæði um þetta. Ef þú ferð í sum- arleyfi með bílinn þinn og honum er stolið þá tekur tryggingin ekki til þess. Ef þú tapar bílnum þarftu að borga af honum samt sem áð- ur,“ segir hann og bætir við að það endi nú alltaf með leiðindum. „Ef menn vilja fara með bílinn úr landi þurfa þeir að koma með tryggingu fyrir bílnum á meðan, en um leið átta þeir sig á því að bíllinn er algjörlega á þeirra ábyrgð.“ Borið hefur á því að menn reyni að stinga af með bílinn og borga ekki krónu eftir það. Kjartan segir að komið hafi fyrir að menn hafi verið sendir til útlanda til þess að sækja bílana aftur. „Það er ekkert nema skynsemi á bak við þetta,“ segir Kjartan. gunnthorunn@mbl.is Óheimilt að fara með bílana úr landi Hverjir geta sótt um? » Þeir sem keyptu fasteign á tímabilinu 1. janúar 2006 til 1. nóvember 2008 til að halda í henni heimili og áttu á sama tíma fasteign sem þeir höfðu ekki selt. » Skuldir á fasteignunum verða að vera meiri en 75 pró- sent af markaðsvirði. Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Lög um tímabundið úrræði einstak- linga sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota fela í sér að hægt er að flytja veð á milli eigna, jafnvel þann- ig að eign verði yfirveðsett. Í lögunum er gert ráð fyrir því að einstaklingar, sem eiga tvær eignir, geti að ákveðnum skilyrðum upp- fylltum látið af hendi aðra fasteign- ina og haldið hinni. Lánveitendur eignast þá viðkomandi eign, en í lög- unum er sá möguleiki fyrir hendi að flytja veð sem hvíla á annarri eign- inni yfir á hina. Í fjórðu grein laganna segir að ef í ljós kemur að á fasteigninni, sem einstaklingurinn ákveður að halda ekki, hvíla veðbönd fyrir hærri fjár- hæð en sem nemur verðmati hennar fái eigendur veðréttindanna kost á að flytja veðin yfir á eignina, sem halda á eftir. Hins vegar segir ekki í lögunum að óheimilt sé að yfirveð- setja þá eign sem eftir verður. Bankinn eða lánasjóðurinn getur því tekið yfir eina fasteign á metnu markaðsverði og flutt þau lán, sem eftir standa yfir á eignina sem eig- andinn vill halda eftir. Eins og áður segir getur þetta þýtt að eign skuldarans í íbúðinni sem hann heldur eftir verði nei- kvæð. Fari svo að fasteignaverð hækki að nýju hagnast bankinn á því að eign hans í annarri íbúðinni verður verðmeiri, en lengri tími get- ur liðið þar til eign skuldarans í heimili sínu verður jákvæð á nýjan leik. Yfirveðsett fjárhagsaðstoð  Ný lög sem ætlað er að hjálpa þeim sem sitja uppi með tvær fasteignir fela í sér að lánveitandi tekur yfir aðra eignina  Hægt er að flytja veð á milli eignanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Reykholti Haraldur kom síðast 2007, vegna opnunar Snorrastofu. Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Haraldur fimmti Noregskonungur kemur til landsins í næstu viku og heldur til laxveiða í Vatnsdalsá í Húnaþingi. Heimsóknin til landsins er óformleg og veiðin í boði vinar konungsins. Pétur Pétursson, leigutaki Vatns- dalsár, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið. Pétur segir að þetta sé hópur af körlum sem séu aldavin- ir og þetta verði slík karlaferð. Sonja Noregsdrottning verður því ekki með í för og reyndar engir aðrir kon- ungbornir gestir, að sögn Péturs. Spurning er hvort Haraldur fái lax, enda veiði víða afar slök núna. Pétur segir þó ágætan gang í ánni og nýjar göngur haldi áfram að berast. „Þetta verður einkaheimsókn,“ segir Sven Gjerulfsen, upplýsinga- fulltrúi konungshallarinnar í Ósló, en verst annars allra frétta. Samkvæmt heimildum er rokk- arinn Eric Clapton nú í Vatns- dalnum, en þegar Pétur er spurður hvort fleiri tignir gestir séu þar seg- ir hann: „Hér eru allir gestir tignir!“ Noregskonungur kemur  Í einkaheimsókn og fer í laxveiði í Vatnsdalsá með vinum Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, kom gest- um opnunarhátíðar Hinsegin daga á óvart þegar hann birtist í dragi. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Heimir Már Pétursson, framkvæmda- stjóri Hinsegin daga, bauð Jón velkominn á svið- ið. Hann sló á létta strengi og sagði ómþýðri röddu að borgarstjórinn hefði ekki séð sér fært að mæta. Hinsegin dagar standa fram á sunnudag en hápunkturinn verður gleðigangan á morgun. »37 Óvæntur gestur á opnunarhátíð Hinsegin daga Morgunblaðið/Eggert  Fundi fulltrúa launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna lauk laust fyrir klukkan 23 í gærkvöldi og hafði þá staðið í allan gærdag. Niðurstaða er ekki komin í kjaradeiluna og verður því eins dags verkfall í dag. Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti fundur verður haldinn. »6 Dagsverkfall þrátt fyrir langan fund

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.