Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010  Þann 7. ágúst, næsta laugardag nánar tiltekið, hyggst sveitin The Telepathetics koma aftur saman til þess að spila á tónleikum á Fak- torý Bar. Þrjú ár eru síðan The Telepathetics létu síðast sjá sig á tónleikum og með þessu áframhaldi má ætla að þetta verði eina tæki- færi þitt til að sjá The Telepathetics þar til sumarið 2013 – um að gera að nýta tækifærið. Strákarnir munu spila spánnýtt og skemmti- legt efni í bland við gamalt og gott en eina plata sveitarinnar til þessa er platan Ambulance sem út kom árið 2006. Jón Þór úr Lödu … Sport og Dynamo Fog mun hefja leikinn með nýja sólóefninu sínu til þess að koma hita í mannskapinn. Húsið opnar 22:00 og byrjar ballið stund- víslega kl. 23:00. Aðgangseyrir er nákvæmlega enginn. The Telepathetics skríða úr híði Fólk Þá er komið að furðufrétt dagsins. Hljómsveitirnar mjög svo ágætu, Reykjavík! og Agent Fresco spila í Tékklandi nú á laugardaginn, rétt fyrir utan Prag, á hátíðinni Freya Festival. Skipuleggjandi hátíð- arinnar er Ægir Þormar Dagsson, rekstrarstjóri Kaffibarsins, en hann og tékknesk kona hans fengu hugmyndina fyrir um fjórum mánuðum og er hún nú orðin að veruleika. Ekki er nóg með að sveit- irnar leiki á hátíðinni með tékkneskum sveitum heldur mun tékkneska ríkissjónvarpið mæta og vinna innslag fyrir lista- og menningarþátt. Þegar blaðamaður heyrði í Ægi var þó komið smávægilegt babb í bátinn, hann og sveitirnar voru strandaglópar í kóngsins Kaupinhafn en þoka yfir Keflavík gerði að verkum að tengiflugið rann þeim úr greipum. Ekki vantaði þó jákvæðið í okkar mann sem sagði að þetta yrði leyst með bros á brá. „Við þurfum kannski að gista hér eina nótt en við erum að greiða úr þessu í þessum töluðu orð- um. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Það er stuð í mannskapnum og hann Halli Valli, kenndur við Ælu, er hérna með okkur. Hann mun sjá um kynn- ingar á milli atriða, mun leika eitthvað af fingrum fram og halda uppi almennu stuði á hátíðinni, jafn- vel með því að syngja brekkusöng ef því er að skipta.“ Ægir og kona hans dóu þá ekki ráðalaus þegar kom að því að fjármagna verkefnið en það er tékk- neska verktakafyrirtækið Metrostav, sem er í óða önn að bora fyrir Héðinsfjarðargöngum, sem sá um að greiða hljóðkerfið. Þeir fiska sem róa! arnart@mbl.is Agent Fresco og Reykjavík! til Tékklands Morgunblaðið/Eggert Hress Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, í sveiflu.  Hinsegin dagar er mál málanna nú um stundir en gleðigangan mikla fer af stað á morgun. Sjálfur Haffi Haff ætlar að hita upp fyrir gleðina í kvöld á Sódómu með skemmtun er hann kallar „Pride is free“. Frítt er inn en Haffi tekur á móti gestum kl. 23.00. Haffi mun spila lög af nýjustu plötu sinni, Freak, en eftir það verður skífum þeytt. Haffi segir að von sé á draggdrottningum (nema hvað) og hann lofar þeim verðlaunum sem slær hann út í samkynhneigðu útliti eins og það er svo skemmtilega orð- að. Líf og fjör! Haffi Haff hitar upp fyr- ir Gay Pride á Sódómu  Hljómsveitin Útidúr tekur upp sína fyrstu breiðskífu í Stúdíó Sundlauginni um þessar mundir. Birgir Jón Birgisson sér um að upptökur gangi vel en þessi fjöl- menna sveit, sem telur tólf meðlimi, hefur fengið í lið við sig hóp val- inkunnra snillinga svo alls taka 25 manns þátt í upptökum á þessari hljómmiklu breiðskífu. Platan mun svo rata í hendur al- mennings í haust. Að sögn tals- manns sveitarinnar má búast við plötu sem verður hressileg, lifandi, fjölbreytt og dramatísk, takk fyrir. Útidúr, sem hefur vakið athygli fyrir skothelda sviðsframkomu og mikla spilagleði, fagnar einmitt eins árs afmæli sínu í þessum mán- uði en stigmagnandi suð hefur ver- ið í kringum hljómsveitina á hennar stutta líftíma. Útidúr er búin að kasta sér í sundlaugina Guðmundur Egill Árnason gea@mbl.is Nýir íslenskir teiknimyndagaman- þættir líta brátt dagsins ljós í anda South Park, Family Guy, American Dad, Simpsons og fleiri fullorðins- teiknimynda sem hafa um margt verið leiðandi í gríni nútímans. Það er Erpur Eyvindarson sem skrifar handritið en fjöldinn allur af öðrum aðilum tekur þátt, þ.á m. Steindi Jr. sem talar fyrir einhverjar persón- urnar ásamt Erpi. „Þetta er ég og einvalalið af grimmum gyðingum sem erum búnir að gera þátt, einn af fjölmörgum sem eru í bígerð, svona 25.000.“ Ógeðslegur í banka „Ég útskrifast úr Margmiðl- unarskólanum með verkefnið 210 Arnarnes og er með Bernharði Að- alsteinssyni sem sér um animation og grafík og Kristni Gunnari Atla- syni sem er sverð og skjöldur verk- efnisins. Þetta er framleiðsluteymið, við þrír,“ segir Erpur Eyvindarson en viðfangsefni grínsins er líf Lobster-fjölskyldunnar sem býr á Arnarnesinu. „Þetta eru allt svín í þessum heimi sem við höfum skapað. Þetta er gert árið 2007. Einhverjir sögðu að eng- um hafi þótt neitt athugavert við það sem var í gangi og það væri svo skrítið en það er bara bull. Þetta fjallar nákvæmlega um þetta. Pabb- inn Benedikt Lobster vinnur í banka og er ógeðslegur, kerlingin hans Jennifer Lobster talar bara ein- hverja óskiljanlega þvælu sem eng- inn skilur nema hann og hún er alltaf heima, sem sagt heimavinnandi hús- móðir en hún er samt með pólska húshjálp þannig að hún gerir í raun- inni ekki neitt. Hún bregður á það ráð til þess að drepa tímann að panta sér einhverja persneska safírpúðlu en svo kemur í ljós að svik eru í tafli. Þetta er ekkert alvöru safír af því að erfðaleifar finnast af einhverju öðru dóti, svo þetta er eitthvert svikatrýni undir feld- inum. Svo er sonur þeirra, Vesúvíus Lobster, hann er bara ofdekrað barn og fær enga athygli, bara alls konar gjafir og drasl. Það er verið að hlaða á hann chanel-sundbuxum og pabbi hans hefur aldrei mætt í afmælið hans, svo mætir hann í afmælið fyrir rest og þá er hann á fíl, með Sollu stirðu og íþróttaálfinn og mjög dýra gjöf.“ Lárusi Welding bregður fyrir „Söguna ákváðum við að þróa áfram þannig að á Nesið kemur ein- hver nýríkur kebab-sali með túrban á hausnum sem er önd. Hún kerling, Jennifer Lobster, hringir náttúrlega á lögguna og hann er ekkert velkom- inn á Nesinu. Þetta eldist mjög vel, alveg „on point“ núna, þannig að við ákváðum að gera annan þátt og hann er mjög skemmtilegur. Mercedes Lobster bætist þar við sem er dóttir þeirra hjóna. Hún er algjört klámkynslóðarbarn og í þátt- unum verður mikið cameo af þekktu fólki, Lárus Welding og Björgólfur Thor koma allir fyrir í þáttunum. Benedikt Lobster og allir vinir hans í bankageiranum fara svo í lax- veiðiferð og sýnir hvernig þessar ferðir voru og eru oft, þetta snýst bara um að vera ógeðslegur í ná- grenni við á, þetta snýst ekkert um að veiða lax. Svo fer hún Mercedes náttúrlega á eitthvert froðudiskótek að skemmta sér og mamma Lobster fer í detox. Við vorum bara að klára þetta núna, þannig að þetta var bara að verða tilbúið í dag og ég mjög ánægður með þetta. Þetta er líka ótrúlega skemmtilegt form að vinna með og löngu kominn tími á þetta.“ segir Erpur að lokum. Íslenskir þættir í anda South Park eru á döfinni Grínþættir Brátt fá Íslendingar að kynnast Lobster-fjölskyldunni á Arnarnesinu í heimi þar sem allir eru svín nema nýrík önd. Framleiðsluteymið Brátt kemur afurð erfiðisins í ljós.  Fáum að kynnast svínum á Arnarnesinu í teiknimyndunum Arnarnesgrísirnir  Erpur Eyvindarson og Steindi Jr. tala fyrir persónurnar í þáttunum  Benedikt Lobster – Fjöl- skyldufaðirinn sem vinnur í banka og græðir á tá og fingri.  Jennifer Lobster – Eiginkonan sem gerir ekkert allan daginn.  Mercedes Lobster – Skinkubirnið.  Vesúvíus Lobster – Of- dekraða barnið sem fær enga athygli.  Jói frændi – Sturlaður nasisti  Nýríka öndin – Varð rík á kebabsölu. Óvelkomin á Nesinu. Arnarnesgrísir NÝ ÍSLENSK TEIKNIMYND Erpur Ey- vindarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.