Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 11
Daglegt líf 11
Tískusýning Hópur af fyrirsætum sýndi fyrir Gleymmérei á tískusýningu sem haldin var í félagsheimilinu.
gömlum kjólum, mamma okkar var
kjólasjúk og við eigum alla gömlu
kjólana hennar,“ segir Guðrún.
Jákvætt og skemmtilegt
Gleymmérei er aðallega við-
burðaverslun eins og Guðrún orðar
það.
„Við erum eiginlega ekki með
opna búð, aðeins með lagerrými og
vinnustofu í litlu herbergi sem við
leigðum okkur í atvinnuhúsnæði úti
í bæ. Það var eftir að karlarnir okk-
ar voru orðnir svolítið þreyttir á
að hafa allt í kjólum heima og
konur að striplast úti um allt
og máta. Þarna erum við með
opið einu sinni í viku en við
erum aðallega netverslun.
Við seljum í gegnum
Facebook og erum
að leggja drög að
því að stofna al-
vörunetverslun.“
Guðrún segir versl-
unina hafa gengið vel.
„Þetta hefur gengið mjög
vel, það er samt mikil
vinna í kringum þetta,
sérstaklega þar sem við
erum allar í fullri vinnu
annars staðar, það þarf að
gera við fötin ef þau koma
löskuð, þvo þau og strauja
auk tölvuvinnu. En þetta er
allt svo jákvætt og skemmti-
legt, við erum líka búnar að
ákveða að um leið og þetta
fer að vera leiðinlegt sé til-
gangurinn með þessu farinn,“
segir Guðrún.
Kjólana kaupa þær aðallega frá
Bretlandi en hafa einnig fengið eitt-
hvað frá Ameríku, Kína og Taílandi.
Aðspurð um kúnnahópinn segir
Guðrún hann vera allavega.
„Seyðfirsku konurnar eru sér-
staklega duglega við að versla við
okkur. Það myndast mjög skemmti-
leg stemning í kringum þetta og
þegar við höfum verið með viðburði
mæta allar í kjólunum sínum þó að
þær séu ekki endilega að kaupa
kjóla. Það er líka stór hópur af kon-
um sem versla reglulega við okkur í
gegnum netið. Þær konur hringja í
okkur þegar þær eru á ferðalagi og
vilja fá að kíkja inn í búðina og okk-
ur finnst gaman að sjá þau andlit.
Þetta eru konur á öllum aldri, áhug-
inn á kjólum virðist vera sameig-
inlegur konum.“
Hafa aldrei slegist um kjól
Þær systurnar eru vitaskuld
duglegar við að klæðast kjólum og
segir Guðrún þær vera með svip-
aðan kjólasmekk. „Við höfum samt
aldrei slegist um kjól enda notum
við ekki sömu stærð. Við veljum
okkur stundum sameign, t.d. er einn
kjóll sem er með teygju í bakið og
við getum allar notað hann. Annars
erum við svo duglegar við að selja
kjólana að við eigum ekkert það
marga sjálfar. Við getum ekki verið
að taka bestu bitana,“ segir Guðrún
kankvís. Hún segir vissa „kjóla-
kvöð“ vera á þeim systrum eftir að
þær opnuðu Gleymmérei.
„Nú þurfum við alltaf að hugsa
okkur aðeins um áður en við förum
út, ef við förum út í kaupfélag heyr-
um við oft: „Nei, bíddu, í hverju
ertu í dag, er þessi frá ykkur?“ Það
er alltaf verið að skoða í hverju
maður er,“ segir Guðrún og hlær
dátt.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Hátískuhönnuðir eru farnir að hanna
meira í stærri númerum ef marka má
þær fréttir sem koma frá tískuhúsum
þeirra, enda eðlilegar kvenlegar línur
komnar í tísku. Til dæmis mun versl-
unin Saks á Fifth Avenue í New York
brátt selja stærri númer frá tísku-
merkjum eins og Chanel og Alexand-
er McQueen.
Einnig lítur allt út fyrir að sjálfur
Marc Jacobs ætli að senda frá sér
kvenfatalínu í stærri númerum þ.e.
stærð 18 og upp úr. Viðskiptafélagi
Jacobs, Robert Duffy, skrifaði á Twit-
ter-vefsíðu Jacobs nýlega að þeir
væru að vinna að því að koma línu í
stærri númerum á koppinn, en þessi
vinna væri aðeins á byrjunarstigi.
Varnagli er settur við þetta blaður
Duffys á Twitter því hann hefur áður
skrifað þar eitthvað sem hefur ekki
átt við rök að styðjast.
Tíska
Marc Jacobs Úr haustlínunni 2010.
Stór númer
frá Jacobs
Konur „Nýleg könnun hefur leitt í ljós að á meðan konur verða æ fegurri, breyt-
ast karlmenn lítið sem ekkert.“
7. Konur eru með öflugra
ónæmiskerfi.
Það er ekki að undra að vælubíllinn
hafi aldrei jafnmikið að gera og þegar
karlmenn veikjast – konur eru einfald-
lega með öflugra ónæmiskerfi. Konur
búa yfir leynivopni þegar kemur að
pestum: Estrógeni. Samkvæmt könn-
un sem McGill-háskólinn gerði virðist
vera sem estrógen hjálpi konum að
berjast við sýkingar.
8. Konur lifa lengur.
85% þeirra sem hafa orðið hundrað
ára og eldri eru kvenmenn. Almennt
lifa konur 5-10 árum lengur en karl-
menn.
9. Konur eru betri yfirmenn, sér-
staklega í þessu efnahagsumhverfi.
Þetta er reyndar dálítið umdeilt en
margir sérfræðingar eru vissir um að
konur séu betri yfirmenn en karlar þar
sem þær hlusta frekar á það sem aðrir
hafa að segja, eru betri leiðbeinendur
og eiga auðveldara með að leysa
vandamál og gera marga hluti í einu.
10. Konur fjárfesta betur.
Í nýlegri könnun kom í ljós að fjárfest-
ingar kvenna skiluðu yfirleitt hærri
arði en karla. Það má hugsanlega
rekja til þess að þær eru yfirleitt var-
færnari og hugsa lengra fram í tím-
ann.
Allskonar viðburðir hafa verið
haldnir á vegum Gleymmérei
enda er um viðburðaverslun að
ræða.
„Síðasta vetrardag í fyrra
héldum við opnunarpartí Gleym-
mérei og ári síðar vorum við með
tískusýningu og strandpartí í fé-
lagsheimilinu. Konurnar gátu
keypt kjólana á staðnum og far-
ið í þeim á ballið sem var á
eftir.
Við höfum reglulega
verið með tískusýningar
og höfum m.a. ferðast á
bæjarhátíðir hér í ná-
grannasveitarfélögum. Við
verðum t.d. með tískusýn-
ingu á Ormsteiti á Egils-
stöðum eftir viku. Þar sýn-
um við í Kornhlöðunni sem
er braggi frá stríðsárunum,
það er mjög viðeigandi. Svo
stefnum við að því að fara í
hópferð til Akureyrar í haust
undir yfirskriftinni Konur og
kjólar. Fylla rútu af konum í
kjólum og skottið af kjólum og
fara í sölu- og skemmtiferð.
Þetta snýst líka um að gera eitt-
hvað skemmtilegt saman,“ segir
Guðrún.
Tískusýning í
Kornhlöðunni
GLEYMMÉREI
Verslunina má finna á Facebook
með því að slá inn Gleymmérei í
leitargluggann.
Glæsileg Vintage-kjólar eru frá
löngu tímabili og því margvíslegir.
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
FJÖLLIN LAÐA
OG LOKKA
„Pétur er einn af orðlögðustu
ferðagörpum sinnar tíðar.“
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Fjöll á Fróni er þriðja fjallabók Péturs, áður
skrifaði hann Fólk á fjöllum og Íslensk fjöll
í félagi við Ara Trausta Guðmundsson.
Í þessari bók kynnumst við Pétri nánar í
ítarlegu viðtali Páls Ásgeirs Ásgeirssonar.
Pétur Þorleifsson er frumkvöðull í
fjallaferðum. Hér lýsir hann göngu á 103
fjöll, há sem lág, löngum göngum og
stuttum - fyrir alla fjölskylduna. Hverri
göngulýsingu fylgir greinargott kort.