Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 19
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Verðir opna skrautlegar dyr í Kreml fyrir Dímítrí Medvedev í gær fyrir
fund hans með Jacob Zuma, forseta Suður-Afríku. Hugur Medvedevs hefur
í viðræðunum vafalaust hvarflað að þeim mikla vanda sem eldar í skógum
og mó valda nú í landinu. Alls hafa 50 manns látið lífið og mikið tjón hefur
orðið á ökrum; kornútflutningur hefur verið bannaður tímabundið. Rann-
sóknarnefnd á nú að kanna hvort glæpsamleg vanræksla hafi valdið því að
eldarnir náðu að valda stórtjóni í herstöð suðaustan við Moskvu.
Reuters
Banna kornútflutning
Eldarnir í Rússlandi hafa valdið stórtjóni
Nokkur svonefnd
sýndarflugfélög
á borð Thomas
Cook Airlines og
TUI Fly, þ.e. fé-
lög sem eiga
sjaldan vélar en
leigja þær,
hyggjast að sögn
Aftenposten
bjóða upp á vélar
þar sem börn
undir 12 ára aldri megi ekki fá far.
Fargjaldið verður hærra en ella en
markhópurinn er sagður vera far-
þegar sem vilja ekki eiga á hættu
að hávaðasöm börn valdi þeim
truflunum á leiðinni. Einkum er
verið að íhuga þessa lausn á ferðum
til Kanaríeyja, Mallorca og Krítar,
að sögn talsmanns Thomas Cook á
Norðurlöndum, Torbens Andersen.
Hann segir enga ákvörðun hafa
verið tekna enn þá. En líklegt sé að
þörf sé fyrir tilboð af þessu tagi og
hann bendir á að stöðugt aukist
framboð af sumarleyfahótelum þar
sem bannað sé að vera með lítil
börn. kjon@mbl.is
Engir farmiðar handa
börnum innan 12 ára
NORÐURLÖNDIN
Breska fyrirsætan Naomi Campbell
fékk nokkra óslípaða demanta að
gjöf eftir kvöldverð sem hún sat í
boði Nelsons Mandela, fyrrverandi
forseta Suður-Afríku, í Höfðaborg
árið 1997. Sagðist Campbell hafa tal-
ið að eðalsteinarnir væru gjöf frá
Charles Taylor, þáverandi leiðtoga
Líberíu. Hann svarar nú til saka hjá
stríðsglæpadómstóli í Haag í Hol-
landi og bar Campbell vitni í gær.
Réttarhöldin hafa staðið yfir í þrjú
ár. Taylor er sakaður um að hafa
keypt vopn handa uppreisnarmönn-
um í grannríkinu Sierra Leone með
illa fengnum „blóðdemöntum“ auk
þess að hafa staðið fyrir morðum og
öðrum illverkum í eigin landi. Hann
er m.a. sagður hafa stofnað her-
flokka skipaða börnum.
„Ég vaknaði af svefni við að það
var barið á dyr hjá mér,“ sagði
Campbell sem upphaflega vísaði á
bug að hún hefði nokkra demanta
þegið. „Þegar ég opnaði stóðu þar
tveir menn og réttu mér poka og
sögðu: Þetta er gjöf til þín.“
Hún sagðist hafa farið aftur að
sofa en þegar hún opnaði pokann
morguninn eftir sagðist hún hafa séð
nokkra gimsteina. „Mjög litla, skít-
uga steina,“ sagði hún.
Saksóknarar kölluðu að sögn BBC
Campbell fyrir réttinn til að afsanna
þá fullyrðingu Taylors að hann hefði
aldrei haft óslípaða demanta undir
höndum. Framburður fyrirsætunn-
ar gæti hins vegar nægt til að tengja
hann við ólögleg demantaviðskipti.
Campbell sagðist hafa gefið vini
sínum, fulltrúa barnahjálparstofnun-
ar Nelsons Mandela, steinana. „Ég
vildi ekki eiga þá,“ sagði hún og
bætti við að það hefðu verið tveir eða
þrír steinar í pokanum. Hún sagðist
aldrei hafa hitt Taylor síðan og aldr-
ei spurt hann um gjöfina. En stofn-
unin segist aldrei hafa fengið neina
demanta frá fyrirsætunni.
kjon@mbl.is
Fékk demanta
frá Taylor
Litlir „skítugir“ steinar í poka
Reuters
Fræg Fyrirsætan Campbell ber vitni
fyrir réttinum í Haag í gær.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mannfall í átökum milli Ísraela og
grannþjóðanna er varla meðal stór-
tíðinda en samt vakti það ugg í vik-
unni þegar skyndilega hófst skotbar-
dagi á landamærunum milli Ísraels
og Líbanons. Fjórir menn, tveir líb-
anskir hermenn, líbanskur blaða-
maður og ísraelskur liðsforingi, féllu.
Sæmilega kyrrt hafði verið á þessum
slóðum síðan 2006 eftir að blóðugri
innrás Ísraelshers til að berja á Hiz-
bollah-liðum lauk með vopnahléi.
Talsmaður friðargæsluliðs Sam-
einuðu þjóðanna tekur undir með
Ísraelum sem segjast ekki hafa átt
upptökin. Hermenn þeirra hafi ætlað
að rífa upp tré sín megin landamær-
anna þegar skyndilega hafi verið
skotið á þá. Talsmaðurinn, Alain Le
Roy, sagði Líbanar hefðu andmælt
því að tréð yrði fjarlægt.
Ljóst er að Líbanar brutu í
þessu máli ákvæði vopnahléssamn-
inganna frá 2006. Viðurkenndi tals-
maður líbanska hersins í gær, að
sögn blaðsins Haaretz í Ísrael, að
Líbanar hefðu skotið viðvör-
unarskotum. Þeir hefðu rétt „til að
verja Líbanon“. Ísraelar svöruðu
þegar skothríðinni og segja Líbana
hafa skotið á varðstöð mörg hundruð
metra innan landamæranna.
Flugskeyti frá Sínaískaga
Athyglisvert er að skyndilega
virðist eins og margir aðilar á svæð-
inu hafi samtímis ákveðið að storka
Ísraelum og ýmsar kenningar eru í
gangi um ástæðuna. Nýlega var
skotið flugskeytum á Rauðahafs-
borgina Eilat í Ísrael, strandborg
sem mikið er sótt af fólki í leyfi, þ. á
m. erlendu ferðafólki. Enginn særð-
ist en annað skeyti varð þess í stað
arabískum bílstjóra að bana í jórd-
önsku borginni Akaba skammt frá.
Öruggt má telja að flugskeyt-
unum hafi verið skotið frá bækistöð
á Sínaískaga í Egyptalandi. Tals-
menn stjórnvalda í Kaíró sögðu þeg-
ar að um væri að ræða aðgerðir af
hálfu vígamanna úr röðum Palest-
ínumanna sem hefðu laumast inn á
skagann. Og nú tekur Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra Ísr-
aels, undir. Hann sagði á miðvikudag
að Hamas-samtökin, sem ráða yfir
Gaza, hefðu verið á bak við flug-
skeytaárásirnar og þeim yrði svarað.
Ótryggt vopnahlé milli
Ísraela og Líbana í hættu
Netanyahu segir
að árás á Eilat
verði svarað
Íranar hafa árum saman stutt bæði með peningum og vopnum tvo
herskáa hópa sem berjast gegn Ísrael: Hizbollah í Líbanon og Hamas-
samtökin á Gaza. Átök Líbana og Ísraela, flugskeytaárásir frá Sínaískaga,
sumir sjá hendur Írana á bak við alla ókyrrðina, þeir séu að sýna Vestur-
veldunum að þeir geti svarað fyrir sig ef reynt verði að stöðva kjarnorku-
tilraunirnar. Og nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna birtir senn niður-
stöðu rannsóknar á morðinu á Rafik Hariri, forsætisráðherra Líbanons,
árið 2005. Sýrlendingum, vinum Írana, hefur lengi verið kennt um morðið
og þeir vilja nú gjarnan beina athyglinni að einhverju öðru, t.d. Ísrael.
Íranar róa víða undir átökum
FLÆKJUR MIÐ-AUSTURLANDA
Af hverju var Campbell boðið?
Hún mun hafa kynnst Mandela þeg-
ar árið 1991 og vinskapur er milli
þeirra. Kvöldverðurinn í húsi Man-
dela var m.a. haldinn til að styðja
barnahjálparsjóð Mandela sem
Campbell studdi ákaft.
En af hverju Taylor?
Hann var nýkjörinn forseti Líberíu.
Hann hafnaði ávallt með miklum
þunga öllum ásökunum gegn sér.
„Jesús Kristur var líka sakaður um
að vera morðingi,“ sagði hann eitt
sinn í sjónvarpsviðtali við BBC.
Var fleira frægt fólk í veislunni?
Þarna var einnig leikkonan Mia Far-
row. Hún varð fyrst til að vekja at-
hygli dómstólsins á demantagjöf-
inni sem Campbell hafði sagt henni
og fleira fólki frá þegar eftir veisl-
una í Höfðaborg.
Spurt&svarað
Leiðtogar Kenýa fögnuðu í gær úr-
slitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar
um nýja stjórnarskrá en ljóst er að
tillagan verður samþykkt með mikl-
um meirihluta. Um er að ræða fyrstu
stjórnarskrá landsins frá því að það
hlaut sjálfstæði frá Bretum 1963.
Kjörsókn var um 70%. Mesta
ánægju vakti að í þetta sinn kom
ekki til neinna mannskæðra átaka
eins og í þingkosningunum árið 2007
sem lömuðu í reynd stjórnmála- og
atvinnulíf í landinu um langt skeið.
Að lokum tókst að finna málamiðlun
um skiptingu valda til bráðabirgða
milli helstu fylkinga.
Í nýju stjórnarskránni eru ákvæði
um að völd forsetaembættisins verði
takmörkuð, embætti forsætisráð-
herra verður afnumið. Völd verða
færð út til héraðanna og lýðræði og
mannréttindi efld. kjon@mbl.is
Reuters
Ábyrgðarstarf Atkvæðatalning í borg á landsbyggðinni í Kenýa.
Ný stjórnarskrá
samþykkt í Kenýa
Embætti forsætisráðherra afnumið
Hundurinn Kiko, sem er af tegund-
inni Jack Russell Terrier, bjargaði
nýlega lífi 48 ára gamals eiganda
síns, Jerry Douthetts í Michigan,
með afar óvenjulegum hætti, að
sögn Jyllandsposten. Hann beit af
honum eina tána.
Douthett var með bólgu í tánni,
leyndi ástandinu af einhverri
ástæðu fyrir eiginkonu sinni en
hafði reynt að manna sig upp í að
fara til læknis með því að hella í sig
margarítukokkteilum og bjór. En
hann sofnaði fast í kjölfarið. Þegar
hann vaknaði sat Kiko við hliðina á
honum í blóðpolli. Og táin var horf-
in, talið er að Kiko hafi étið hana.
Í ljós kom að alvarleg sýking
hafði verið í tánni og er Kiko því
bannað í bili að fara út, hann gæti
hafa veikst. En fjölskyldan hyllir
hvutta sem lífgjafa húsbóndans.
kjon@mbl.is
BANDARÍKIN
Hundur bítur veika
tá af eiganda sínum