Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 22
22 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Brynjar Níelsson
hæstarréttarlögmaður
fullyrðir í grein sinni,
„Dómarinn, heilbrigð-
isráðherrann og eig-
inmenn þeirra“, að ég
fari með rangt mál í
grein minni Ránsrík-
isstjórnin, þar sem ég
segi að það séu hags-
munatengsl, vensla-
tengsl og pólitísk
tengsl á milli þessara aðila. Var ég
þar að fjalla um dómsmál sem eig-
inkona Brynjars felldi í héraðs-
dómi 23. júlí sl. í máli Lýsingar
gegn skuldara myntkörfuláns.
Brynjar segir að hann hafi ekki
haft tekjur af því að
innheimta lán með
ólöglegri gengistrygg-
ingu (en hefur þó rek-
ið mál fyrir SP-
fjármögnun) og að
hann starfi ekki á
stofunni Lagastoð
heldur sé þar aðeins
leigjandi. Á heimasíðu
Lagastoðar er Brynj-
ar þó skráður sam-
starfsaðili og er að
finna undir liðnum
Starfsfólk á www.laga-
stod.is og hefur netfangið brynj-
ar@lagastod.is. Auk þess hefur
Brynjar sama faxnúmer (581-1175)
og Sigurmar K. Albertsson hjá
Lagastoð sem stefndi inn um-
ræddu dómsmáli f.h. Lýsingar.
Lögmannsstofan sem Brynjar er
samstarfsaðili hjá hefur því haft
töluverðar tekjur af innheimtu
ólögmætra lána þó að Brynjar
sjálfur hafi kannski ekki innheimt
þær skuldir sjálfur eins og starfs-
félagi hans Sigurmar og eigin-
maður Álfheiðar Ingadóttur ráð-
herra.
Rök dómarans í umræddu dóms-
máli eru þar að auki eins og
lögfræðiálit eiginmanns hennar,
Brynjars, sem birtist á ruv.is 26.
júní sl., að „lántakendur gengis-
tryggðra lána hafi í raun og veru
samið um verðtryggingu og þó sú
verðtrygging hafi verið dæmd
ólögleg þá útiloki það ekki aðra
verðtryggingu á lánunum“. Dóm-
arinn segir í dómsorði það vera:
„ljóst að aðilar hafa við gerð hans
(innsk.: samningsins) tekið mið af
því að lánið yrði verðtryggt með
ákveðnum hætti og að jafnframt
yrðu greiddir vextir sem tækju
mið af umsaminni gengistryggingu
sem dæmd hefur verið óheimil.“
Sigurmar K. Albertsson, sem
hefur stefnt fjölda skuldara f.h.
Lýsingar og SP fjármögnunar,
felldi niður mörg mál sem komin
voru inn til dómstóla þegar Hæsti-
réttur kvað upp sinn dóm, en valdi
þetta tiltekna mál til að stefna inn
að nýju og fékk það flýtimeðferð
fyrir dómstólum. Niðurstaða dóm-
arans var síðan alveg eins og til-
mælin frá Fjármálaeftirlitinu og
Seðlabanka Íslands sem gefin voru
út í lok júní sl., þ.e. að lánið skyldi
bera óverðtryggða vexti SÍ.
Dómarinn var í fyrsta lagi van-
hæfur til að dæma í þessu máli, til
þess voru tengslin við lögmanns-
stofuna Lagastoð of mikil, rök
dómarans voru í öðru lagi eins og
álit eiginmannsins og niðurstaðan
var í þriðja lagi eins og stjórnvöld
vonuðust til. Starfsfélagi verjand-
ans í málinu var þar að auki Árni
Helgason, sonur Helga Bernód-
ussonar, skrifstofustjóra Alþingis.
Hvers vegna varð einmitt þetta
mál fyrir valinu til að „eyða rétt-
aróvissu“?
Að lokum vil ég kasta fram
þeirri spurningu til lesenda hvort
þeim finnist eðlilegt í svona mik-
ilvægu máli sem snertir þorra
þjóðarinnar, að svo mikil tengsl
skuli vera milli lögmanns sækjanda
og dómarans. Vekur það ekki upp
spurningar um hlutleysi dóm-
arans?
Ránsréttur – svar til
eiginmanns dómarans
Eftir Signýju Haf-
steinsdóttur »Dómarinn var í
fyrsta lagi vanhæfur
til að dæma í þessu máli
… rök dómarans voru í
öðru lagi eins og álit eig-
inmannsins og niður-
staðan var í þriðja lagi
eins og stjórnvöld von-
uðust til.
Signý Hafsteinsdóttir
Höfundur er útgefandi.
Orðtakið „eins og
tussa breidd á klett“ er
algengt á Norðurlandi.
Ég minnist þess frá
bernskuárum mínum á
Króknum að ég var í
beitningarskúr, sem
bræður tveir áttu.
Nokkrir karlar voru
samankomnir í skúrn-
um og annar bróðirinn
var að segja frægð-
arsögu þegar hann
þreytti stórlúðu á handfæri. Ég var
frammí, sagði hann, og hélt í færið
og lúðan dró bátinn um allan sjó á
fleygiferð. Það freyddi við stefnið.
Svei mér þá. Þetta gekk langa lengi
og tvisvar náði ég henni að bátnum
en bæði skiptin tók hún strikið nið-
ur. Í þriðja sinn, sem ég náði henni
að bátnum, þá skutum við í sjóinn
við hausinn á henni. Skotið var
heimahlaðið með selahöglum. Þá
rotaðist hún svo við gátum blóðgað
hana. Hún var svo stór að við urðum
að taka hana í land á seil og upp á
bryggjuna með bátaspilinu. Stærðin
var ofboðsleg. Við vorum á aðra viku
að éta hausinn. Svei
mér og svei mér þá.
Þetta voru rosaleg átök
og á eftir var ég bara
eins og tussa breidd á
klett.
Þann stað mjúkan
Þegar sögumaður
sagðist hafa verið eins
og tussa breidd á klett,
datt engum í hug að
hann ætti við þann stað
mjúkan, sem margir
telja dýrðlegastan í
heimi hér. Það vissu allir að hann
átti við skinnskjóðu, sem skoluð
hafði verið og breidd á klöpp. Sam-
líkingin er sú, að ekki er hægt að
vera slappari eða liggja lægra en
mígandi blautt hráskinn á klöpp.
Skinnskjóður voru algengar og oft
kallaðar tussur. Seltussur voru
þannig gerðar að fleginn var belgur
af litlum sel eða kópi og dreginn
hanki í hreifagötin. Þær voru til
margra verka gagnlegar. Algengt
var að hrogn, lifur og kútmagar og
annað sjávarfang væri haft og borið í
seltussu. Eftir slíkt brúk var tussan
skoluð og breidd á klett eða stein.
Meintur dónaskapur
Á vinnustöðum og mannamótum
segjast ófeimnar konur þurfa að
skvetta úr skjóðunni. Ekki verður
skjóðunafnið dónalegt við það. Ekki
var Guðrún Helgadóttir að klæmast
þegar hún nefndi frábært verk sitt
Skilaboðaskjóðan. Þó er skjóða heiti
á tussu.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir þá
gerist það nú að þetta gamla og góða
íslenska orð tussa vekur hneykslun
og er úthýst, fyrir það eitt, að
„penpíur“ og gelgjulegir strákar
skilja það ekki og hafa hlaðið það
eigin dónahugsun og flimti.
Er ekki rétt að bjarga þessu góða
orði? Sýkna það af meintum dóna-
skap og nota það tilgerðarlaust eins
og var?
Björgum góðu orði
Eftir Birgi Dýrfjörð » Samlíkingin er sú að
ekki er hægt að vera
slappari eða liggja
lægra en blautt hrá-
skinn á klöpp.
Birgir Dýrfjörð
Höfundur er rafvirkjameistari.
Sem Íslendingar
sitjum við öll við sama
borð. Ein þjóð í sama
landi. Eigum sameig-
inlega hagsmuni að
sækja og verja. Það er
því sama á hverju
gengur og hvað yfir
okkur dynur. Við verð-
um að bera byrðarnar
saman og dreifa þeim
sem jafnast í anda óeig-
ingjarnrar liðsheildar. Við verðum að
bera gæfu til þess að vinna saman
sem eitt samstillt lið ef við eigum að
halda í og bæta þann árangur sem ís-
lensk þjóð hefur náð. Sá árangur,
sjálfstæð, menntuð þjóð í þróuðu lýð-
ræðisríki gjöfuls lands, byggir að
miklu leyti á verkum og fórnum fyrri
kynslóða í landinu. Græðgi og sjálfs-
hyggja rúmast ekki innan þess anda,
sem felst í samvinnu og samorku liðs-
heildar. Samhent og metnaðarfullt
kapplið lætur ekki deigan síga við
áföll eins og nýlega hafa dunið yfir
samfélagið og það andstreymi, sem
fylgir í kjölfarið. Í öllu mótlæti felast
ný tækifæri til árangurs og þannig
þarf að horfa fram á veginn. Stríð
okkar er ekki tapað þótt
við bíðum lægri hlut í
einni orrustu. Endur-
skoða þarf stöðu mála
og bæta um betur í
þeirri næstu. Tilgang-
urinn verður að vera til
staðar og öllum ljós.
Stappa þarf stálinu í
liðsheildina og leiða
hana til nýrra sigra. Og
sigrar munu vinnast
með því að hafa trú á til-
ganginn og stefna
ótrauðir að settu marki. Til þess þarf
lið að hafa góðan fyrirliða og þjálfara.
Þjóðin þarf öflugan leiðtoga. Slíkur
leiðtogi hlýtur að leynast í hópi lands-
manna og koma fram á næstunni.
Þjóðin kallar eftir honum. Árangur
næst hins vegar ekki nema að hafa að
leiðarljósi heiðarleika, þrautseigju,
trú á tilganginn og skilmerkar áætl-
anir til að vinna að þeim tilgangi. Sú
leið þarf einnig að vera vörðuð
skammtíma, mælanlegum mark-
miðum. Það þarf líka að hafa augun
opin fyrir tækifærum, beita sam-
takamætti, hafa jákvætt viðhorf,
leggja hver og einn meira af mörkum
en aðrir búast við án þess þó að ætl-
ast til umsvifalausrar umbunar (hún
kemur fyrr eða síðar). Örva þarf
frumkvæði, iðni og ástundun í öllum
verkum, bæta sjálfsaga, skýra hugs-
un, þekkingu og skapandi sýn ein-
staklinga. Efla enn frekar menntun
til hugar og handa. Efla mannrækt til
sálar og líkama. Bera þarf virðingu
fyrir hvert fyrir öðru sem og fyrir
náttúrunni og æðri máttarvöldum.
Enginn kemst einn og óstuddur
áfram í lífinu eða nær miklum árangri
án þess að hafa til þess viðleitni í anda
friðar, samhljóms og samvinnu við
samferðamenn sína. Frumbygginn
fjarri menningarheimum á tilveru
sína og líf undir ytri öflum, æðri mátt-
arvöldum og því sem hann hefur sér
til viðurværis frá náttúrunnar hendi.
Því tengdari sem maðurinn er menn-
ingarheimi þeim mun óháðari er hann
í viðleitni sinni til samvinnu við aðra.
Hin fleygu orð Jóns Sigurðssonar,
forseta: „Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér,“ eiga jafn mikið
erindi til íslenskrar þjóðar í dag og
þá, er þau féllu.
Stöndum þó ávallt vörð um þau
grundvallarréttindi, að hver og einn
Íslendingur njóti frelsis til frjálsrar
hugsunar og til athafna.
Samtakamáttur ís-
lensku þjóðarinnar
Eftir Jón Hermann
Karlsson
Jón Hermann Karlsson
» Græðgi og sjálfs-
hyggja rúmast ekki
innan þess anda, sem
felst í samvinnu og sam-
orku liðsheildar.
Höfundur er viðskiptafræðingur en
starfar nú við golfeftirlit hjá GR.
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
2 7 6 1 3 9 1 1 2 1 5 6 6 3 0 9 4 2 3 7 5 3 4 4 8 1 7 2 5 8 4 9 2 7 0 5 9 9
3 6 6 1 3 9 5 2 2 2 3 4 2 3 1 1 8 9 3 8 6 0 4 4 8 2 2 8 5 9 5 4 5 7 0 6 0 8
4 0 2 1 4 0 3 5 2 2 4 5 7 3 1 8 1 0 3 9 1 0 8 4 8 4 4 5 5 9 8 7 3 7 2 6 4 1
6 7 7 1 4 2 3 8 2 2 6 2 3 3 1 8 2 5 3 9 3 1 7 4 9 9 5 0 6 0 2 2 5 7 2 9 6 0
1 3 0 7 1 4 5 4 1 2 3 2 3 1 3 2 0 7 6 3 9 6 9 5 5 0 3 2 7 6 0 3 0 2 7 3 0 7 6
1 4 8 6 1 4 9 6 7 2 3 5 2 2 3 2 0 9 1 3 9 9 9 5 5 0 5 0 6 6 0 7 6 0 7 3 0 9 5
1 6 6 5 1 4 9 8 1 2 3 5 4 8 3 3 0 0 9 4 0 6 0 5 5 0 6 4 9 6 1 0 6 5 7 3 1 8 3
2 8 4 1 1 5 1 8 7 2 3 6 5 4 3 3 6 6 4 4 0 9 3 2 5 0 8 5 3 6 1 2 1 6 7 3 5 5 8
3 0 1 3 1 5 6 3 1 2 3 8 1 5 3 3 7 0 3 4 1 6 6 6 5 1 1 9 6 6 1 4 8 5 7 4 3 8 7
3 5 5 8 1 5 6 5 2 2 4 0 8 0 3 3 7 8 4 4 1 7 2 8 5 1 4 7 2 6 1 6 1 8 7 4 8 9 8
3 6 5 0 1 5 8 0 8 2 4 1 1 5 3 3 9 8 9 4 1 9 5 6 5 1 8 4 7 6 1 8 5 9 7 5 0 1 2
3 8 5 1 1 6 5 7 1 2 4 4 1 9 3 4 1 5 9 4 2 7 7 1 5 1 9 4 4 6 2 1 3 4 7 5 1 2 6
4 7 0 3 1 6 7 2 1 2 4 5 4 1 3 4 2 8 8 4 2 9 3 9 5 2 6 3 5 6 2 8 0 6 7 5 2 2 8
4 8 5 8 1 7 1 9 4 2 4 5 9 8 3 4 4 3 6 4 3 0 0 0 5 3 1 9 5 6 3 2 9 5 7 5 7 6 8
5 6 5 6 1 7 4 1 6 2 5 3 3 0 3 4 6 5 7 4 4 2 1 2 5 3 8 5 4 6 3 4 7 0 7 6 7 1 2
5 7 3 7 1 7 4 9 0 2 6 0 7 6 3 4 8 4 5 4 4 3 8 8 5 4 0 9 6 6 4 7 2 0 7 6 8 7 6
6 4 3 9 1 8 1 6 0 2 6 3 4 2 3 4 8 9 4 4 4 5 2 7 5 4 3 9 5 6 5 7 9 7 7 7 4 0 0
6 6 3 4 1 8 4 4 4 2 6 7 2 6 3 5 1 5 8 4 4 6 3 9 5 4 5 4 2 6 5 9 9 1 7 7 5 4 8
6 7 2 0 1 8 6 4 6 2 6 8 8 5 3 5 1 6 7 4 4 9 3 8 5 4 8 0 4 6 6 3 6 7 7 7 7 4 8
7 5 2 9 1 9 0 3 3 2 7 6 3 3 3 5 7 0 1 4 4 9 6 7 5 5 9 0 4 6 6 5 6 7 7 8 1 7 3
7 8 3 7 1 9 2 7 1 2 7 6 3 7 3 5 8 2 7 4 5 3 5 3 5 6 0 9 9 6 6 7 9 2 7 8 5 5 0
8 0 8 5 1 9 3 0 3 2 7 7 3 3 3 5 8 2 9 4 5 6 7 3 5 6 5 3 4 6 7 0 7 3 7 8 6 3 2
8 8 9 6 1 9 3 4 9 2 8 1 7 5 3 5 8 9 2 4 5 7 8 3 5 6 7 4 5 6 7 9 5 4 7 8 7 8 8
8 9 2 6 1 9 5 0 2 2 8 2 8 7 3 6 1 4 8 4 5 9 0 7 5 6 7 5 7 6 8 1 0 2 7 9 2 3 1
9 0 0 4 1 9 5 5 9 2 8 4 7 6 3 6 2 7 5 4 5 9 0 8 5 6 7 7 3 6 8 5 0 9 7 9 5 1 0
9 8 7 2 1 9 6 5 9 2 8 5 3 1 3 6 4 2 1 4 6 3 2 8 5 6 8 3 6 6 8 9 6 0 7 9 6 8 7
9 9 4 7 1 9 7 5 4 2 8 5 3 7 3 6 6 0 3 4 6 4 5 6 5 6 8 6 0 6 9 2 5 4
1 0 1 3 3 2 0 0 9 1 2 8 9 9 7 3 6 7 1 0 4 6 9 5 0 5 6 8 7 1 6 9 8 6 7
1 0 1 8 4 2 0 6 9 9 2 9 5 3 0 3 6 7 6 4 4 7 1 5 5 5 7 2 5 1 7 0 0 4 1
1 0 6 3 1 2 1 0 7 6 3 0 3 9 7 3 6 7 9 7 4 7 4 3 9 5 7 5 0 6 7 0 1 0 7
1 0 8 0 5 2 1 2 5 0 3 0 5 3 3 3 6 8 7 0 4 7 5 3 5 5 7 6 5 4 7 0 1 9 5
1 2 0 1 2 2 1 3 5 1 3 0 5 4 1 3 7 1 2 8 4 7 8 7 6 5 7 8 3 0 7 0 4 5 3
Næstu útdrættir fara fram 12. ágúst, 19. ágúst, 26. ágúst & 2. sept 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is
V i n n i n g a s k r á
14. útdráttur 5. ágúst 2010
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 3.000.000 kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
5 7 6 1 2
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 7 3 7 1 6 3 1 7 3 2 4 6 4 7 9 8 3 7
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2124 15633 28819 44532 54345 64248
12126 26937 33598 50846 56412 66886
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
5 6 2 7 5 7 1 1 3 9 4 4 2 2 1 4 5 3 1 7 3 2 4 6 2 6 5 5 6 5 3 9 6 4 7 9 0
2 1 5 9 8 1 6 2 1 4 1 8 2 2 4 0 5 9 3 4 5 1 8 4 8 8 7 8 5 7 3 3 8 6 5 4 7 9
3 0 3 9 8 2 2 0 1 4 9 1 8 2 4 2 4 5 3 5 1 7 6 4 9 0 7 9 5 8 7 1 5 6 7 7 0 8
4 0 4 8 8 9 4 5 1 6 7 2 4 2 4 5 9 4 3 7 6 5 2 4 9 2 5 7 5 8 8 4 9 6 7 7 2 0
4 0 7 6 9 0 2 3 1 6 9 0 7 2 4 9 6 9 3 8 4 2 2 4 9 3 2 4 5 9 3 1 3 6 9 1 9 1
4 5 5 3 9 7 4 5 1 9 6 1 1 2 5 9 2 5 3 8 8 8 9 5 0 7 7 0 5 9 4 2 2 6 9 8 5 0
5 5 1 5 1 0 7 8 3 1 9 6 4 9 2 6 9 6 8 4 1 7 9 7 5 1 0 9 9 6 0 7 8 5 7 0 3 0 0
5 9 6 0 1 1 1 4 6 2 1 1 8 0 3 0 5 3 6 4 3 4 9 4 5 2 2 1 8 6 2 0 9 1 7 1 5 4 3
6 5 7 2 1 1 9 0 1 2 1 3 0 3 3 1 1 1 2 4 3 8 5 7 5 6 3 9 1 6 2 3 0 8 7 7 6 1 1
7 2 2 6 1 2 6 0 3 2 2 0 6 1 3 1 3 4 1 4 4 0 4 4 5 6 5 3 0 6 2 6 3 7 7 8 1 0 3