Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Elsku Þrúður. Allt er í heiminum hverf- ult. Svo fljótt muntu finna, svo fljótt er þögnin hér. Fékkstu verk þín að vinna, fékkstu von sem hæfði þér? Með tárum og trega þér tekst að fara á drottins fund, óskin þín endanlega eignast hvíld á helgri stund. Þrúður Þórhallsdóttir ✝ Þrúður Þórhalls-dóttir fæddist 9. september 1957 í Reykjavík. Hún lést 26. júní 2010 á Land- spítalanum í Kópa- vogi. Útför Þrúðar hefur farið fram. Svo fljótt, svo fljótt er það búið. svo sé þig seinna meir. Svo fljótt muntu finna, svo fljótt er þögnin hér. Fékkstu frjáls þín verk að vinna, fékkstu söng sem hæfði þér? Svo fljótt, svo fljótt er það búið. Svo sé þig seinna meir. Svo fljótt, svo fljótt er það búið. Svo sé þig seinna meir. (Lag: Kim Larsen. Texti: Kristján Hreinsson.) Góða nótt, kæra vina, góða nótt. Jarþrúður Jónasdóttir, Margrét Teitsdóttir. Kæri Gunni. Með þessum fáu línum vil ég þakka þér okkar vinskap og samstarf í gegnum rúm 20 ár. Við kynntumst í gegnum Didda og hjá þér fékk ég mína fyrstu starfs- reynslu sem smiður hjá Glugga- smiðjunni og fyrir það er ég þér Gunnar Levý Gissurarson ✝ Gunnar LevýGissurarson fæddist 24. ágúst 1949 í Reykjavík. Hann lést 14. júlí síð- astliðinn. Útför Gunnars fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 23. júlí 2010. mjög þakklátur. Við höfum saman unnið mörg verkefnin og brallað margt skemmtilegt. Með vísan í Rúnar Júl. vil ég kveðja góð- an vin og félaga og þakka allt gamalt og gott. Og hvert sem þú ferð og hvar sem ég verð, þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig. Elsku Diddi, Hulda, Gissi, Anna, Eva og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína innilegustu samúð á erfiðum tím- um. Júníus Ólafsson. ✝ Dagmar Helga-dóttir fæddist á Akranesi 23. mars árið 1912. Hún and- aðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 17. júlí 2010. Dagmar var dóttir hjónanna Guðrúnar Illugadóttur frá Stóra-Lambhaga í Skilmannahreppi, Borgarfjarðarsýslu, og Helga Guðbrands- sonar frá Klafastöð- um í sama hreppi. Dagmar var tólfta barn af þrettán börnum for- eldra sinna sem öll komust upp, hún bjó með fjölskyldu sinni fyrst á Akranesi en fluttist ung til Reykjavíkur. Hún gekk í Miðbæj- araskólann og Ingimarsskóla, ung fór hún út á vinnumarkaðinn eins og flest ungmenni í þá daga, vann hún m.a, í Verslun Har- aldar Árnasonar í Austurstræti. Hún gekk að eiga Þórð Pálsson árið 1932 og eignuðust þau eina dóttur, Hallgerði, f. 1935, maki Guðni A. Þorsteinsson, þau slitu samvistir 1940. Árið 1945 giftist hún Pétri Aðalsteinssyni, vélstjóra við Ljósa- fossstöð, og eign- uðust þau tvö börn: Aðalstein, f. 1945, maki Sigríður Einarsdóttir, og Petrínu, f. 1947, maki Að- alsteinn Blöndal. Fyrir átti Pétur eina dóttur, Hrönn, f. 1936, maki Einar Hansson. Dagmar var jörðuð í kyrrþey frá Fossvogskirkju þann 23. júlí 2010. Ef við horfum til baka, skoðum og metum síðustu 100 árin, þá kemur upp í hugann minning um það fólk sem mótaði umhverfi okkar frá fá- tæklegu bændasamfélagi til þess samfélags sem við þekkjum í dag. Þá bjó fólk í sveitum eða á „mölinni“, hafði viðurværi af því sem landið og sjórinn gaf, vann hörðum höndum, hjálpaðist að til að komast af og gera lífið bærilegt fyrir sig og sína. Dag- mar Helgadóttir tók þátt í þessum breytingum, hún var fædd á Akra- nesi, á mölinni, næstyngst í stórum systkinahópi með rætur úr Borgar- firði. Mótaðist af umhverfinu, fluttist um set til Reykjavíkur til að leita nýrra tækifæra með sínu fólki. Vann við tilfallandi störf, hafði ekki tök á að ganga menntaveginn, þrátt fyrir áhuga á hjúkrun og aðhlynningu þeirra sem minna máttu sín. Það er hollt fyrir okkur að hugsa aðeins til þessa fólks sem dró vagninn af stað fyrsta spölinn frá stöðnun fyrri alda. Þá var ekki sjálfgefið að fólk fengi það sem hugurinn girnist; hafði ekki tök á að leita sér menntunar, varð að temja sér nægjusemi. Vegferð Dagmarar var ekki ólík vegferð margra, það voru gleði- stundir, ljúfar bernskuminningar, sigrar, barnalán en einnig brostnar vonir, áföll og heilsubrestur. Virkur þátttakandi var Dagmar í starfi og leik, glaðleg, söngelsk og gefandi. Allar hannyrðir léku í höndum henn- ar og mörg flíkin var töfruð fram. Þegar hún var heimsótt undir lokin var minnið misgott, heyrn og sjón máttu muna sinn fífil fegri. Sögurn- ar þó ljóslifandi frá Haraldarbúð þar sem hún vann þegar Alþingishátíðin 1930 var haldin á Þingvöllum, sögur frá bernskunni, frá Ljósafossi og Írafossi þar sem örlögin höguðu því svo að þar varð hennar starfsvett- vangur. Við Sogið verður einmitt til rafmagnið sem er stór þáttur og táknrænn í framförum þess tíma og sem þau hjón áttu sinn ríkulega þátt í að stuðla að. Á Írafossi sá ég Dag- mar fyrst, hrók alls fagnaðar á jóla- trésskemmtun, þar horfði 9 ára strákur á þessa kraftmiklu konu sem lék á als oddi, dansaði og söng. Í Úlf- ljótsvatnskirkju var ekki alltaf full- skipaður kór en þegar Dagmar var mætt vantaði sko ekkert upp á söng- inn við messuna. Seinna varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að verða hluti fjölskyldu hennar þegar við dótturdóttir hennar kynntumst. Fyrstu búskaparárin okkar voru einmitt í kjallaranum hjá Dagmar á Skeiðarvoginum eftir að hún hafði flutt sig til Reykjavíkur á ný. Fyrir það og allt annað á lífsleiðinni þökk- um við. Dagmar var glæsileg og hafði góðri nærveru. Langri ævi er nú lok- ið, hvíldin er vel þegin og að leiðar- lokum þakka ég fyrir að hafa fengið að vera hluti af hennar tilveru. Hvíl í friði. Guðmundur Eiríksson. Ekki eru allir svo lánssamir í líf- inu að eiga langömmu, hvað þá að fá að lifa með henni í rúma þrjá ára- tugi. Ég vandist aldrei á að kalla lang- ömmu Döllu neitt annað en „ömmu“, mér fannst hún vera mér meiri amma en langamma, tengingin var það sterk. Ömmu man ég eftir sem brosmildri konu, hún sagði sögur af fólki og atburðum og alltaf var hún forvitin að vita hvernig gengi hjá manni í tilverunni; náminu og síðar meir kennslunni. Sögurnar sem hún sagði af lífsleið sinni voru margar og áhugaverðar. T.d. var mjög gaman að heyra sögur af æskuárunum og endalaus virtist manni fróðleikur ömmu vera um skyldleika og tengsl fólks hvers við annað. Sem ungur strákur vissi ég að allt- af væri von á góðu þegar farið væri í heimsókn í Arahólana, ýmist gaukað að manni sælgætismola eða jafnvel fimm hundruð króna seðli, sem var laumað í lófann þegar enginn sá til. Amma kom af og til í heimsókn í Borgarnes til okkar, m.a. eitt skipti um jól en það sem er mér minn- isstæðast af ferðum og heimsóknum ömmu er að í eitt skiptið tók hún rút- una frá BSÍ en hafði stigið upp í ranga rútu og var komin langleiðina austur á Selfoss þegar hún uppgötv- aði að líklega væri hún ekki stödd í rútunni til Borgarness, en þessu sneri hún bara upp í góðlátlegt grín og hló sennilega mest allra að þessu. Eftir að amma var komin í þjón- ustuíbúð í Seljahlíð fór ferðum mín- um til hennar fjölgandi enda fluttur til Reykjavíkur og gat ráðið mínum ferðum sjálfur. Það var fastur liður að líta í heimsókn, til að láta vita af sér, sitja hjá henni og spjalla og það var sama hver heilsan var á ömmu í hvert skipti, ávallt fékk maður bros- ið hennar, sem er ógleymanlegt. Og sælgætismolarnir á sínum stað. Síðustu árin hrakaði heilsu ömmu eins og eðlilegt má telja með fólk sem nær svo háum aldri, hún var ekki fótafær undir það síðasta, sem voru talsverð viðbrigði – þetta var konan sem klæddi sig upp á í sitt fín- asta púss, kápu, hatt og hælaskó og fór reglulega í ferðir niður í miðbæ til að sýna sig og sjá aðra. Engu að síður var alltaf gott að koma við – amma gladdist yfir því að fá heimsókn og annað sem er manni eftirminnilegt var stoltið sem hún bar í brjósti sér af fjölskyldu sinni; enga manneskju þekki ég eða veit um, sem var jafn stolt af sínu fólki og amma. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég ömmu og þakka fyrir alla samveru og góðvild í minn garð. Blessuð sé minning hennar. Guðni Eiríkur Guðmundsson. Tengdamóðir mín, Dagmar Helgadóttir, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Seljahlíð að kvöldi 17. júlí 2010, á 99 aldursári. Þegar ég hitti hana fyrst, árið 1964, þá 17 ára, kærasti yngstu dóttur hennar, bjó hún ásamt manni sínum Pétri Að- alsteinssyni stöðvarstjóra í Írafoss- stöð við Sog. Ekki kvarta ég yfir móttökunum sem ég fékk hjá henni, hún þurfti að vita allt um mig og mína, en kunnátta mín í ættfræði var nú ekki upp á marga fiska, enda kom á daginn að hún vissi miklu meira um mitt fólk en ég sjálfur. Á þessum tíma vann ég við húsasmíðar og oft langan vinnudag, þess vegna var ávallt tilhlökkunarefni að fara aust- ur að Írafossi og láta stjana við sig, það voru ávallt stórsteikur á borðum og nýbakaðar kökur með kaffinu hjá henni. Dagmar var hlý kona, lét sér annt um menn og málleysingja. Hún var félagslynd, tók þátt í kvenfélagi og kórastarfi í sveitinni á meðan hún bjó þar. Árið 1970 fluttu þau Pétur frá Íra- fossi á Skeiðavog 101 í Reykjavík, Pétur hafði fengið nýtt verkefni hjá Landsvirkjun og fór að vinna í El- liðaárstöð, en það varð styttri tími en ætlað var, því hann veiktist í byrj- un árs 1974 og lést 10. júlí sama ár. Þessi missir tók mikið á Dagmar, hún hafði ekki verið heilsuhraust og tóku veikindi hennar sig upp á ný. Eftir andlát Péturs bjó hún ein, en flutti svo í Seljahlíð 1994 og bjó þar til æviloka. Ég vil þakka Dagmar fyrir sam- fylgdina, fyrir hjálpina sem hún veitti okkur hjónum þegar þess þurfti með og hún gat veitt, og þakka henni fyrir hvað hún var góð við dætur okkar og barnabörnin okkar sjö. Nú hefur hún fengið hvíldina sem hún var búin að bíða eftir. Útför hennar fór fram frá Foss- vogskirkju föstudaginn 23. júlí í kyrrþey að hennar ósk. Við hjónin, dætur okkar og barnabarnabörnin hennar sjö kveðjum ömmu Döllu með söknuði og biðjum Guð að blessa hana. Aðalsteinn Blöndal. Dagmar Helgadóttir Guðrún eða Gulla eins og hún var kölluð af fjölskyldunni og vinum sínum fæddist á Akranesi. Gulla ólst upp á Hólvöllum á Akranesi með fjölskyldu sinni. Seinna fluttist öll fjölskyldan að Traðarbakka. Innan fjölskyldunnar ríkti ætíð andi sameiningar og ástríkis. Sem ung kona fór Gulla til Am- eríku til að læra hárgreiðslu. Þar bjó hún og starfaði hjá frænku sinni og hennar grísku fjölskyldu. Dvölin í Ameríku hafði mikil áhrif á þessa ungu Skagakonu. Þarna sá hún heimsmenninguna í einni svipan. Þegar Gulla kom aftur heim opnaði hún hárgreiðslustofu á Traðarbakka. Á hárgreiðslustofunni hjá Gullu var oft glatt á hjalla. Mik- ið spáð og spekúlerað og talað sam- an. Í miðjunni á þessum líflega hóp undi Gulla sér sem best. Gulla fluttist til Reykjavíkur ásamt systrum sínum og aldraðri móður 1965. Í Reykjavík vann Gulla við verslunarstörf og á skrif- stofu Rafmagnsveitu ríkisins til starfsloka. Guðrún Magnúsdóttir ✝ Guðrún Magn-úsdóttir frá Trað- arbakka, Akranesi fæddist 10. ágúst 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 5. júlí 2010. Foreldrar Guð- rúnar voru Magnús Guðmundsson, út- gerðarmaður, f. 1891, d. 1956, og Kristín Ólafsdóttir, hús- móðir, f. 1889, d. 1971. Systkini Guð- rúnar eru Guðmundur Magnússon, f. 1922, d. 1996, Elín Aðalheiður Magnúsdóttir, f. 1927, Arnbjörg Magga Magnúsdóttir, f. 1929, og fóstursystir Sigrún Sigurðardóttir, f. 1913, d. 1972. Útför Guðrúnar fór fram í kyrr- þey. Í fyllingu tímans flutti hún með systr- um sínum að Árskóg- um í Reykjavík. Þeg- ar heilsan fór að bila fluttist Gulla í stutta stund að Hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ og dvaldist þar sína síðustu daga. Henni leið vel og hún naut góðrar aðhlynningar þar. Elsku Gulla mín, það er með sorg og söknuði sem við kveðjum þig. Þú varst tifinningarík og heiðarleg kona. Þú reyndir að breyta rétt í lífinu, þú hjálpaðir og styrktir þar sem þú gast komið því við. Þú trúðir á heiðarleika, dugnað og einurð í fólki. Traðarbakki var mér eins og annað heimili, þar naut ég ástríkis og öryggis frá Gullu, systrum hennar og móður og heim- ilisfólki þar. Í minningum mínum frá þessum dögum ríkir eilíft sólskin og ham- ingja. Þessarar sömu hlýju og ást- úðar nutu einnig börnin mín frá þeirra fyrsta degi. Það var eitthvert sólskin í Gullu sem dvínaði aldrei, jákvæðni og kraftur. Skýrleiki og birta og endalausar skoðanir á öllu mögulegu frá mannfólki til stjórn- mála eða trúmála. Það gustaði reyndar hressilega um þegar við ræddum um stjórnmál enda hvort með sína skoðunina í þeim málum en þrátt fyrir það vorum við reynd- ar alltaf að lokum sammála um gömul gildi eins og til dæmis að heiðarleiki væri grunnur að mann- legum verðleikum hvar sem þeir stæðu í lífinu. Ég veit að hér er liðin kona sem unni mér og mínum af þeim mætti sem hún hafði. Ég og börnin mín munum aldrei gleyma þeirri vin- semd og hlýju sem þú sýndir okkur í gegnum tíðina og þeim auðfengna stuðningi sem þú veittir þegar lífs- ins mótlæti eða vanda bar að hönd- um. Það er með sorg og söknuði sem við kveðjum þennan látna ást- vin okkar. Magnús S. Guðmundsson, Kristín Magnúsdóttir og Guðmundur Alexander Magnússon. Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.