Morgunblaðið - 06.08.2010, Síða 9

Morgunblaðið - 06.08.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Sautján umsóknir bárust um starf sveitarstjóra í Skagafirði en um- sóknarfrestur er runninn út. Meðal þeirra eru fjórir fv. sveitarstjórar og bæjarstjórar. Haft er eftir Stefáni Vagni Stefánssyni, formanni byggð- aráðs, á fréttavef Feykis að verið sé að fara yfir umsóknir og næstu skref verða að finna út við hverja verður talað. Guðmundur Guðlaugsson er að láta af störfum sem sveitarstjóri undanfarin fjögur ár. Umsækjendur eru Arna Bryndís Baldvinsdóttir lögfræðingur, Andrés Bjarni Sigurvinsson verkefnastjóri, Björk Sigurgeirsdóttir ráðgjafi, Daði Einarsson ráðgjafi, Gísli Krist- björn Björnsson lögfræðingur, Hugi Jens Halldórsson framleiðslustjóri, Jóhann Ólafsson, Jón Baldvinsson, fv. sveitarstjóri, Kjartan Þór Ragn- arsson lögfræðingur, Pálmi Jónas- son fréttamaður, Ragnar Sær Ragn- arsson, framkvæmdastjóri og fv. sveitarstjóri, Sigurður Sigurðsson verkfræðingur, Valtýr Sigurbjarn- arson, fv. bæjarstjóri, Theódór Skúli Halldórsson framkvæmdastjóri, Þorsteinn Geirsson verkefnastjóri, Þórður Ingi Bjarnason vaktstjóri og Þórir Kristinn Þórisson, fv. bæjar- stjóri í Fjallabyggð. 17 vilja stjórna Skagfirðingum  Fjórir fv. sveitarstjórar meðal þeirra Atli Vigfússon Þingeyjarsveit | Sumardagskrá Fornleifaskóla barnanna lauk nýlega með veislu þar sem meg- ináhersla var lögð á hráefni og eldamennsku að hætti landnámsmanna en þar var lambalæri, lax, silungur og svartfugl kryddað með villijurtum og eldað í soðholu. Með þessu var drukkinn mysu- drykkur og var íbúum sveitarinnar boðið að taka þátt í ævintýrinu. Úr varð skemmtileg kvöldstund þar sem brugðið var á leik í víkingaspilinu sem gjarnan er kallað „kubb“ og kunnu allir vel að meta þessa óvanalegu veislu. Í sumarskólanum voru fjölbreytt viðfangsefni að þessu sinni, en þar hélt dr. Christian Keller erindi um fornleifafræði og landslag þar sem lögð var áhersla á hversu mikið má lesa úr landslagi um bú- setu manna og nýtingu lands. Farið var í vettvangs- ferðir til þess að skoða ummerki um kolagrafir og fengu eldri nemendur skólans að gera kolagröf og búa til kol. Því verkefni stýrði Pétur Ingólfsson kennari í samstarfi við dr. Sophiu Perdikaris frá New York og Calvin Gore frá eyjunni Barbuda í Karíbahafinu, sem og áðurnefndan Christian Kell- er. Lokaverkefnið var svo að útbúa soðholu að hætti víkinga sem eldað var í á lokadeginum. Fræðsla um villijurtir Yngri nemendurnir fræddust mikið um nýtingu villijurta og fóru í söfnunarferð en hluti þeirra plantna sem söfnuðust nýttist vel í víkingaveisl- unni. Þá spreyttu þau sig á því að setja saman og mála eftirlíkingu af torfbæ en segja má að megináherslan hafi verið lögð á uppruna forn- minjanna þ.e. hvernig þær verða til, við hvaða framkvæmdir eða landnýtingu. Almenn ánægja er með Fornleifaskóla barnanna og hafa nemendur þar tileinkað sér mikinn fróðleik og skemmtun sem hefur glætt áhuga þeirra á fornminjum og lifnaðarháttum fornmanna. Vegleg veisla að hætti landnámsmanna  Fjölbreytt verkefni í Fornleifaskóla barnanna í Þingeyjarsveit Morgunblaðið/Atli Vigfússon Fornleifar Í lok sumarannar Fornleifaskólans var slegið upp grillveislu að hætti fornmanna. Alþjóðlegt verkefni » Fornleifaskóli barnanna er fjölþjóðlegt þróunarverkefni sem unnið hefur verið að í Þingeyjarsveit síðan árið 2007. » Á hverju ári hefur verið haldinn sum- arskóli þar sem unnið hefur verið að verkefnum tengdum fornleifarann- sóknum. » Í sumar var boðið upp á dagskrá fyrir 9-11 ára börn og 12-16 ára, öllum að kostnaðarlausu. Haustvörur komnar Útsölulok - verðhrun - „Ef ég hefði vitað af þessum mæli fyrir ferðina hefði ég haft með mér smámynt og borgað í mælinn á með- an verkefnið stóð yfir,“ segir Sig- urður Harðarson rafeindavirkja- meistari sem ásamt fleirum fór upp á Hlöðufell í Árnessýslu á miðviku- dag til að lagfæra þar sameiginlegan VHF-endurvarpa björgunarsveit- anna og 4x4 jeppaklúbbsins. Í ferðinni rakst hópurinn á stöðu- mæli sem hafði verið komið kirfilega fyrir rétt við vörðuna á toppi fjalls- ins. „Einhver grínisti hefur greini- lega komið þessu fyrir. Vel hefur verið gengið frá undirstöðum eins og honum sé ætlað að standa þarna um ókomna framtíð,“ segir Sigurður. Til að taka niður eldri búnað á fjallinu og setja upp nýjan fengu Sigurður og félagar aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar sem gegnum tíðina hefur aðstoðað björgunar- sveitirnar við að halda endurvarp- anum við á Hlöðufelli. Að þessu sinni hafði búnaðurinn skemmst vegna eldinga. Spaugarar settu upp stöðu- mæli á toppi Hlöðufells Skipt var um endur- varpa á fjallinu eftir eldingar Ljósmynd/Sigurður Harðarson Stöðumælir Göngugarpar sem fara á topp Hlöðufells geta nú skilið eftir mynt í stöðumælinum ef þeir vilja. Ekki er vitað hver myndi tæma. Olga Hanna Möller hefur ver- ið ráðin nýr framkvæmda- stjóri hjá Heimili og skóla, sam- tökum foreldra grunnskóla- barna. Hún hóf störf hjá samtök- unum 1. ágúst sl. Olga Hanna er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og er einnig með M.Sc. í alþjóðaviðskiptum og hag- fræði frá viðskiptadeild háskólans í Álaborg, Danmörku. Hún er gift Helga Rúnari Jónssyni og þau eiga þrjú börn saman. Einnig á hún tvö stjúpbörn. Olga Hanna hefur m.a. starfað hjá Þjóðleikhúsinu, Land- spítalanum, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og verið sveitarstjóri á Tálknafirði. Ráðin til Heim- ilis og skóla Olga Hanna Möller

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.