Morgunblaðið - 06.08.2010, Page 12

Morgunblaðið - 06.08.2010, Page 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Fimm farþegaflugvélar á leið frá Vesturheimi þurftu að lenda á Reykjavíkurflugvelli í gær. Skyggnið á Keflavíkurflugvelli var afar slæmt. Blindþoka hafði lagst óvænt yfir flugvöllinn, en við slíkar aðstæður þykir óráðlegt að hleypa flugvélum til lendingar. Þoka sem þessi er mjög óalgeng á Keflavík- urflugvelli. Um er að ræða tvær vélar frá Iceland Express og þrjár vélar frá Icelandair. Þær voru að koma frá borgunum Winnipeg, Seattle, To- ronto, Boston og New York. Vélarnar lentu um sjöleytið í morgun og þurftu að bíða í dágóða stund á Reykjavíkurflugvelli. Síð- asta vélin fór frá Reykjavík laust fyrir tíu í morgun. Í millitíðinni tóku flugvélarnar eldsneyti. Farþegar um borð í vélunum voru hátt í sjö hundruð talsins. Þeir fengu ekki að yfirgefa vél- arnar fyrr en þær höfðu lent í Keflavík. Hvorki bárust kvartanir frá farþegum né íbúum Reykjavík- ur og Kópavogs vegna atviksins, að sögn Jóns Baldvins Pálssonar flug- vallarstjóra. Hafnaði boði um forgang Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra var meðal farþega sem þurftu að bíða á Reykjavík- urflugvelli. Hún var á leið heim frá Winnipeg ásamt aðstoðarmanni sínum Hrannari B. Arnarssyni. Vefsíðan Pressan.is greindi frá því í gær að starfsfólk flugvélar- innar hefði boðið forsætisráð- herranum að fara frá borði í Reykjavík ásamt föruneyti sínu. Þá mun Jóhanna hafa svarað því boði neitandi og látið þau ummæli falla að eitt skyldi yfir alla ganga. Jóhanna sat því sem fastast þangað til vélin lenti í Keflavík og allir farþegarnir gengu í land. Þrír varaflugvellir Reykjavíkurflugvöllur er einn þriggja varaflugvalla Keflavíkur- flugvallar á Íslandi. Hinir eru á Akureyri og Egilsstöðum. Af öllum þremur er höfuðborg- arflugvöllurinn sjaldnast notaður. Flugvellirnir á Egilsstöðum og Ak- ureyri eru reglulega notaðir í þess- um tilgangi á meðan Reykjavíkur- flugvöllur sinnir hlutverki varaflugvallar aðeins tvisvar eða þrisvar sinnum á hverju ári. Reykjavíkurflugvöllur til bjargar Í höfuðborginni Farþegar vélanna voru að koma frá Vesturheimi og þurftu að bíða klukkustundum saman eftir að vélin þeirra hafði lent á Íslandi.  Fimm farþegaflugvélar gátu ekki lent á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun vegna óvæntrar blindþoku  Um sjö hundruð farþegar máttu ekki fara frá borði á meðan beðið var eftir því að rofaði til í Keflavík húsinu verði tilbúið, nema glervirkið á suðurhliðinni. Að sögn Péturs er reiknað með að búið verði að glerja það að innan en ekki utan. „Þá verð- ur bara settur bráðabirgðaveggur inn í anddyrið og upp með öllu þar,“ segir Pétur. Ekkert hringlað með daginn Og hann segir að menn muni ekki setja það neitt fyrir sig þegar að því kemur að opna húsið og hefja reksturinn. „Nei, nei, nei. Og þetta verður ekki þannig í langan tíma. Þetta verður þannig kannski fram eftir júnímánuði. En hvað okkur varðar erum við ekkert að hringla með opn- unardaginn.“ Morgunblaðið/Golli Tónar Sinfó og Vladimir Ashkenazy munu vígja Hörpu. Hér sést Kristján Jóhannsson þenja böndin með sveitinni. Halda sínu striki  Mikill áhugi á að bóka Hörpuna strax eftir opnunardaginn  Portus: „Erum ekkert að hringla með opnunardaginn“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Suðurhlið tónlistarhússins er sú íburðarmesta. Hér sjást kubbarnir frægu í forgrunni, sem ekki uppfylla kröfur ÍAV um efnasamsetningu. SVIÐSLJÓS Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is „Í okkar huga erum við ekkert að hringla með opnunardaginn. Þetta bara stendur svona. Það þarf tals- vert mikil frávik frá áætlun ef þetta á eitthvað að breytast,“ segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portus- ar ehf., sem ásamt Austurhöfn ehf. stendur að byggingu tónlistarhúss- ins Hörpu. Tvennir tónleikar með Sinfón- íuhljómsveit Íslands eru ráðgerðir í Hörpu 4. og 5. maí 2011 og eru það fyrstu viðburðirnir. Opnunarhátíð hússins er svo á dagskrá 13. maí og verður henni sjónvarpað í beinni. Í kjölfarið sama mánuð kemur Listahátíð í Reykjavík auk þess sem bókanir eru farnar að berast um fundi og ráðstefnur. Í júní á að frum- sýna þar söngleik sem á að ganga allt sumarið. Leysa málið til bráðabirgða Þórunn Sigurðardóttir, stjórn- arformaður Ago, félagsins sem mun sjá um rekstur Hörpu, vill ekki út- lista nákvæmlega hvaða ráðstefnur hafa verið bókaðar. Hún segir hins vegar mjög mikinn áhuga á húsinu nú þegar. „En það er gríðarlega mik- ilvægt að það sé engin óvissa. Við er- um að vinna að því að fullvissa okkur um að við getum opnað á þessum tíma áður en við getum sagt eitt- hvað,“ segir hún. Í þeim áætlunum sem nú liggja fyrir er gert ráð fyrir að allt innan í Landbúnaðarráðherra reyndi að koma í veg fyrir það að Arion banki seldi tvö svínabú sem hann eignaðist í byrjun ársins enda telur hann að bankinn og forverar hans beri mikla ábyrgð á alvarlegri stöðu svínarækt- arinnar. Hann íhugar aðgerðir til að hamla á móti þróuninni í samvinnu við aðra ráðherra ríkisstjórnarinnar. Arion banki yfirtók rekstur svínabúanna á Hýrumel í Borgar- firði og Brautarholti á Kjalarnesi vegna fjárhagserfiðleika og hefur nú selt þau til stærsta svínakjötsfram- leiðanda landsins, Stjörnugríss á Kjalarnesi. „Mér finnst ábyrgðar- hluti að Arion banki sé að selja þessi bú til eins aðila í þeirri offramleiðslu sem er í greininni,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra. Hann segist hafa bent bankanum á ábyrgð sína á stöð- unni og beðið um að ábyrgari leiðir yrðu kannaðar. Stöðva verður hringekjuna Jón segir að stöðva verði hring- ekju skuldsetningar svínabúa, of- framleiðslu, gjaldþrota, sölu og áframhaldandi framleiðslu sem leið- ir til enn meiri skulda og nýrra gjaldþrota. Vekur hann athygli á því að bú hafi þrisvar farið í þrot á síð- ustu tíu árum og alltaf verið sett af stað á ný með alvarlegum afleið- ingum fyrir þessa búgrein. „Það keppir enginn áratugum saman við framleiðslueiningar sem fara ítrekað í gjaldþrot og eru svo seldar á óvissu verði.“ Landbúnaðarráðherra segir að til skoðunar sé að grípa til aðgerða, á grundvelli núverandi búvörulaga, til að stöðva þessa þróun og hefur rætt málið í ríkisstjórn. Hann segir of snemmt að segja hvaða leiðir séu færar í því efni. „Það þarf að grípa til aðgerða sem gera svínarækt að öruggri innlendri framleiðslugrein. Framleiðslan takmarkist við eðlilega innanlandsneyslu og að fjölskyldubú geti þrifist. Einnig þarf að hugsa um öryggi neytenda og umhverfismál,“ segir Jón. helgi@mbl.is Ráðherra leitar leiða til að hamla á móti þróuninni  Varaði Arion banka við sölu svínabúa Morgunblaðið/Ernir Ráðherra Jón Bjarnason hefur áhyggjur af stöðu svínaræktar. Miklir erfiðleikar hafa verið í svínarækt í þrjú ár vegna offramleiðslu og verðlækkunar. Ekki er séð fyrir endann á þróuninni og eru margir svína- bændur komnir að fótum fram með rekstur sinn. Dregið hefur úr fram- leiðslu svínakjöts en jafnvægi hefur ekki náðst. Hugmyndir hafa verið settar fram um að minnka þurfi framleiðsluna um þúsund tonn. Offramleiðslutímabilið sem nú stendur yfir er önnur kreppan sem svínaræktin gengur í gegnum á tæpum áratug. Jafnframt hefur framleiðslan færst á færri hendur. Nú eru um fimm- tán svínabú eftir í landinu en voru um fimmtíu fyrir rúmum áratug og yf- ir hundrað fyrir rúmum tuttugu árum. Og eftir að Arion banki seldi tvö svínabú sem hann yfirtók vegna skuldavanda er stærsti framleiðandinn með yfir 60% framleiðslunnar. Landbúnaðarráðuneytið telur stefna í mikla fákeppni og ringulreið í framleiðslunni. Fimmtán svínabú eftir ERFIÐLEIKAR Í SVÍNAKJÖTSFRAMLEIÐSLUNNI Tjón » Tjónið vegna hins gallaða stálvirkis nemur hundruðum milljóna króna. » Kínverski undirverktakinn Lingyun hefur samþykkt að taka á sig það tjón, en ÍAV verða þó fyrir einhverju tjóni vegna umstangs og tafa í sam- bandi við þetta. » Suðurhliðin verður öll tekin niður, ný smíðuð í Kína, flutt hingað og sett upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.