Morgunblaðið - 06.08.2010, Page 21

Morgunblaðið - 06.08.2010, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Útsala Síðustu vikur hafa fjölmargir gert góð kaup á útsölum. Þeim fer senn að ljúka og lækkar því verð oft enn frekar til að tryggja að nægt pláss verði fyrir haustvörurnar sem fara að tínast inn. Eggert Ef Ísland sameinast Evrópusambandinu fjölgar íbúum um 0,07 prósent. Yfirráðasvæði sambandsins stækkar um tæp 10 prósent og áhrifasvæði (eftirlits- og björgunarsvæði) um 20 prósent. Það er ekki að undra að herskáir Evrópusinnar líti hýru auga til Festung Isl- and, Virkisins í norðri. Áhrifasvæðið færi úr ca 10 milljónum ferkílómetra í 12 milljónir ferkílómeta. Koma aðr- ir jafn færandi hendi? Halda menn að þessum 0,07 prósentum muni verða treyst fyrir stjórn og eftirliti á 20% Evrópu? Að sjálfsögðu ekki. En ekki mun standa á styrkveitingum – svona rétt á meðan verið er að tala okkur til. Hið sama gæti hent okkur og indíána Norður-Ameríku. Þeir töpuðu landinu en sátu uppi með glerperlur og eldvatn. Er „Sitjandi naut“ að semja fyrir Ísland? Við sem erum andvíg inngöngu Ís- lands í Evrópusambandið erum iðu- lega sökuð um einangrunarstefnu og jafnvel þjóðrembu. Í mínum huga er ekkert fjær sanni. Hvað einangrunarstefnuna áhrær- ir tel ég einmitt vafasamt að ein- angra Ísland innan múra Evrópu- sambandsins. Við eigum að staðsetja okkur sem sjálfstætt smáríki, sem nýtur verndar og virðingar heimsins alls. Af þessari sýn okkar hafa ráðandi fjármálaöfl innan Evrópusambands- ins áhyggjur og er titill greinar for- seta framkvæmdastjórnar ESB, Hermans Van Rompuy, í Morg- unblaðinu 7. maí síðastliðinn, lýsandi fyrir þá afstöðu ESB að stórveldishags- munum sambandsins verði best borgið með innlimun Íslands. Með greininni er reynt að höfða til litla mannsins í litla landinu. Nú eigi hann möguleika að verða stór, fái að setj- ast við háborðið – alla vega stundum. Njóti skjóls og verndar. Friðarpípan er látin ganga! Hver þarfnast hvers? Titill umræddrar greinar er: „Hvers vegna Evrópa þarfnast þín nú?“. Greinin minnir óþægilega á ný- lenduhugsun fyrri tíðar. Stórveld- isórarnir eru að þessu sinni ekki breskir, franskir, hollenskir, þýskir, spænskir eða portúgalskir. Nú er byggt á hinu evrópska stórríki. Við erum þegar „fimm hundruð millj- ónir“, segir Van Rompuy stoltur, „og náum yfir Evrópu frá Finnlandi til Portúgals og Írlandi til Rúmeníu. Við deilum stærsta markaði heims og mikilvægri löggjöf, flest okkar hafa sameiginlega mynt, við deilum landa- mærum og pólitískum stofnunum; við deilum fortíð og framtíð. Þið legg- ið nú hart að ykkur að ganga í lið með okkur.“ Það er nefnilega það. Ganga í lið með „okkur“ og þá væntanlega gegn „hinum“? Svo er að skilja á forseta framkvæmdastjórnar ESB: „Leyfið mér að minna ykkur á hvað við erum að verja. Evrópubúar njóta forrétt- inda í heiminum. … Við erum mesta viðskiptaveldi heims. Þetta er árang- ur sem vert er að vera stoltur af. Hann sýnir einstaka getu okkar til að þróast og tryggja um leið arfleifð okkar. Við höfum enn getuna til þess. Í breytilegum heimi eru hins vegar önnur svæði tilbúin að gera betur en við efnahagslega. Störf okkar og áhrif eru í húfi.“ Sem sagt, standið með okkur gegn hinum: „Í dag bið ég ykkur aðeins um eitt,“ segir talsmaður ESB, „að staldra við og átta ykkur á því að við Evrópubúar erum í þessu saman.“ Það vantar bara kröfuna um lífsrými. Allt þekkt og þvælt, málflutningur þeirra sem ekki hafa lesið mann- kynssöguna sér til gagns. Við sem gagnrýnum þennan þankagang, er- um ásökuð um hroka og þjóðmont, eins og tuttugasta öldin hafi verið þurrkuð út, með öllum sínum mílit- arisma og stórveldisdraumum. Við sem viljum gæta auðlinda Íslands, sem við höfum gert af misjafnlega mikilli trúmennsku, og oft í fátækt, erum sögð vaða í villu. Getur það ver- ið? Var þetta allt misskilningur, þjóð- remba? Eftir allt saman? Varla. Ekki talar reynslan því máli. Eða hvar værum við nú stödd ef rétturinn til fallvatnanna hefði verið seldur úr landi eins og einhverjir vildu á önd- verðri öldinni sem leið? Nú geta menn haft hvaða skoðun sem þeir vilja á Evrópusambandinu og hvort við eigum heima þar innan- dyra eða utan. En ég aftek hins veg- ar framvegis að við sem leyfum okk- ur að vísa til sameiginlegra hagsmuna Íslendinga þegar auðlind- ir og nýting þeirra er annars vegar eða veltum því fyrir okkur hvaða fyr- irkomulag sé líklegast til að tryggja bein lýðræðisleg áhrif þjóðarinnar, séum sökuð um að vera haldin ein- hverri annarlegri rembu á sama tíma og svona boðskapur er básúnaður. Kannski það fari að renna upp fyrir einhverjum að raunveruleg ástæða er til að íhuga í alvöru hvernig við best verjum auðlindir okkar og lýð- ræðið gegn ásælni miðstýrðra stór- veldahagsmuna. Vonast til að við höldum auðlindunum Einhvers staðar sást í blaði nýlega að ráðamenn væru vongóðir um að verja mætti auðlindir Íslands í samn- ingum við ESB. En hvers vegna skyldum við yfirleitt vilja fórna auð- lindum okkar og forræði yfir sam- félagi okkar ef ávinningur er enginn sýnilegur annar en að fá að vera þátt- takandi í nýju stórríki? Gamalkunn- ugt ráð, vel þekkt úr nýlendusög- unni, er að draga upp mynd af glæstu stórveldi þar sem „við sem erum saman“ stöndum keik gegn „öllum hinum“. Þetta er að mínu mati röng uppsetning. Spyrja þarf hvort sé vænlegra fyrir okkur – sem erum þrjú hundruð þúsund talsins – að taka þátt í alþjóðasamstarfi sem neytendur á evrópskum stórmarkaði með takmörkuð lýðræðisleg áhrif, eða efla okkur sem fullvalda ríki sem á í samskiptum við önnur ríki með beinni aðkomu að samningum um öll okkar mikilvægustu mál – þar á með- al ráðstöfun sjávarauðlindarinnar, okkar dýrmætasta fjársjóðs? Hvers vegna ættum við að fórna þessari úr- valsstöðu? Ég hef skilning á því sjón- armiði að ósanngjarnt sé að eins lítið samfélag og okkar skuli njóta þeirra forréttinda sem við gerum. En mér er það hins vegar fullkomlega óskilj- anlegt að það skulum vera við sjálf sem bjóðumst til að láta réttindin af hendi – ekki í anda réttlætis eða jafn- aðarmennsku, heldur bara til að fá að vera með! Hverju barni er það nú augljóst að Evrópusambandið sækir það fast að fá okkur inn enda augljósir hags- munir í breyttri heimsmynd. Þá breyttu heimsmynd sjá Kínverjar líka greinilega fyrir sér og er það engin tilviljun hve fyrirferðarmiklir þeir eru að verða hér á landi. Það sem við þurfum á að halda er að horfa ískalt á það hvernig hags- munum okkar verður best borgið í gerbreyttum heimi. Ég er þeirrar skoðunar að það gerum við best með því að halda þétt utan um auðlind- irnar og hafa síðan heiminn allan undir sem markað og samstarfsvett- vang í stað þess að múra okkur inni í enn einum evrópskum stórveld- isdraumnum. Hugsum stórt Við erum hluti af evrópskri menn- ingu og eigum að leggja rækt við það besta sem hún hefur upp á að bjóða, og bjóða Evrópu upp á það besta sem við eigum. Það gerum við ekki sem auðtrúa lítilmagni heldur fólk sem stendur upprétt og lætur ekki rugla sig í ríminu með fagurgala og rembu- tali. Þegar allt kemur til alls þá erum við ekki eins lítil og stóri maðurinn í Brussel reynir að telja okkur trú um. Aðferðafræði hans er þekkt: Tala alltaf ofan frá og niður. En svo er það hitt sem getur gerst. Þegar kné- krjúpandi maður rís á fætur, hættir hann að vera lítill. Og þá verður líka allt skýrara: Hagsmunirnir skilj- anlegir og glerperlurnar sýnilegar. Þá sætta menn sig ekki heldur við að verða aumur virkisturn í norðri. Þeir sjá að betri kostir bjóðast. Virkisturn í norðri? Eftir Ögmund Jónasson » Við sem erum andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið erum iðulega sökuð um ein- angrunarstefnu og jafn- vel þjóðrembu. Í mínum huga er ekkert fjær sanni. Ögmundur Jónasson Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.