Morgunblaðið - 06.08.2010, Side 28

Morgunblaðið - 06.08.2010, Side 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 ✝ Solveig Krist-björg Benedikts- dóttir fæddist á Húsavík 24. desem- ber 1912. Hún lést á Héraðshælinu á Blönduósi að morgni 29. júlí 2010. Foreldrar hennar voru Benedikt Björnsson, skólastjóri á Húsavík, f. 1879, d. 1941 og Margrét Ás- mundsdóttir, hús- móðir, f. 1881, d. 1969. Systkini Sol- veigar voru: Ragnheiður Hrefna, f. 1907, d. 1941, Ásbjörn, f. 1914, d. 1934, Jóhann Gunnar, f. 1916, d. 2010, Ólafur, f. 1917, d. 2000, Sig- urður, f. 1919, d. 1967, og Guð- mundur f. 1924, d. 2005. 5. september 1944 giftist Solveig Óskari Sövik rafvirkjameistara, f. 1. janúar 1904, d. 9. júlí, 2002, frá Veblungsnes, Noregi. Dóttir þeirra frá 1937 til 1947, kennari við ungl- ingaskólann á Blönduósi 1948-53 og síðar kennari við Kvennaskól- ann á Blönduósi um langt árabil, allt þar til hann var lagður niður haustið 1978. Auk þess átti hún löngum sæti í skólanefndum þess- ara skóla. Hún samdi mat- reiðslubók í samstarfi við Halldóru Eggertsdóttur, sem kom út árið 1954 og var endurprentuð árið 1961, en er nú löngu ófáanleg. Var hún notuð sem kennslubók í mat- reiðslu við húsmæðraskólana í landinu. Solveig starfaði við Tón- listarskóla Austur-Húnavatnssýslu í 10 ár, kenndi á píanó og gegndi þar stöðu skólastjóra lengst af. Um margra áratuga skeið var hún org- anisti og söngstjóri við Blönduós- kirkju og hljóp gjarnan í skarðið við fleiri kirkjur ef þörf var á. Hún starfaði lengi með Kvenfélaginu Vöku og var formaður þess um hríð. Hún átti sæti í stjórn Sam- bands austur-húnvetnskra kvenna og Sambands norðlenskra kvenna. Síðustu æviárin bjó hún á dval- ardeild Héraðshælisins á Blöndu- ósi. Útför Solveigar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 6. ágúst 2010, og hefst athöfnin kl. 14. er Ragnheiður Guð- veig, f. 26. júlí 1953, kennari, búsett í Glaumbæ II í Skaga- firði. Eiginmaður hennar er Arnór Gunnarsson, f. 19. júlí 1951, bóndi. Synir þeirra eru Óskar, f. 30. mars 1976, tölv- unarfræðingur í Reykjavík, og Atli Gunnar, f. 12. mars 1979, verkfræðingur á Sauðárkróki. Solveig ólst upp á Húsavík og lauk prófi úr unglinga- skólanum þar árið 1928. Síðan stundaði hún nám við Húsmæðra- skólann á Laugum og árin 1934- 1936 var hún við nám í hús- mæðrakennaraskólanum í Sta- bekk, Noregi. Að námi loknu fluttist hún til Blönduóss þar sem hún bjó til æviloka. Hún var skóla- stjóri Kvennaskólans á Blönduósi Í endurminningunni finnst mér eins og amma á Blönduósi hafi verið eins og allar ömmur eigi að vera. Aldrei kom maður til ömmu og afa öðruvísi en að fljótlega væru komnar veitingar á borð, oftast í veglegri kantinum, gjarnan bollur með norskum geitaosti, pönnukökur og þaðan af betra. Það sem fram var borið var laust við allt óþarfa skraut, það var fyrst og fremst gott og örugglega ekki síður hollt. Þegar meira var haft við, t.d. á nýársdag þegar afi átti afmæli, sauð amma súkkulaði. Sennilega var það svipað súkkulaði og amma Álfgríms í Brekkukoti sauð þegar hann varð stúdent og Laxness segir að hafi verið eitt af þeim miklu súkkulöðum sem aldrei verði framar soðin. Þessar veislur hjá ömmu virtust verða til af sjálfu sér, aldrei sá mað- ur asa eða fyrirgang í eldhúsinu, allt virtist áreynslulaust, þó sennilega hafi handtökin í raun verið fleiri en gestkomandi gerðu sér grein fyrir. Þegar svo var staðið upp frá borðum og gestir þökkuðu fyrir sig, voru svör ömmu iðulega í samræmi við lítillætið sem einkenndi hana: „Þetta var nú svo ómerkilegt“ eða jafnvel: „Æ, fyrirgefðu“. Ömmu var ævinlega mjög umhug- að um alla í kringum sig, bæði fjöl- skyldu og vini. Umhyggja hennar fyrir afa síðustu árin sem hann lifði ber því einna gleggst vitni. Eftir að heilsu hans tók að hraka og hann var lagstur inn á Héraðshælið heimsótti hún hann á hverjum degi. Oftast fékk hún bílfar hjá góðu vinafólki, en ef ekki vildi betur til fór hún fót- gangandi, jafnvel þó hún ætti orðið mjög óhægt um gang. Af sama meiði var umhyggja móður minnar fyrir ömmu, allt frá því ég fyrst man eftir mér. Ömmu var æskuheimili sitt á Húsavík hugleikið og ræddi oft um foreldra sína og systkini. Amma hélt mikið upp á bræður sína, sem voru allir yngri en hún, og var sjaldnast glaðari en þegar hún hitti þá eða bara talaði við þá í síma. Amma lifði þá alla og talaði oft um hvað sér þætti það einkennileg ráðstöfun hjá almættinu. Ég hitti ömmu síðast um miðjan júlí. Við fórum fyrst í bíltúr um Blönduós og þar var líf og fjör, enda verið að halda Húnavöku. Þegar við keyrðum út Húnabrautina rak amma augun í vínrauðan bíl á plan- inu við Félagsheimilið. Hún virtist í fyrstu ekki trúa sínum eigin augum, það var þó ekki um að villast, þarna stóð gamli Buickinn hans afa glans- andi og næstum eins og nýr. Það gladdi ömmu að sjá bílinn, enda er hann í dag eins og minnisvarði um þá einstöku hirðusemi sem fylgdi afa alla tíð. Næst ókum við fram í Gunn- fríðarstaði í Langadal, en þar er nú sprottinn upp myndarlegur skógur. Ræktunaráhugi fylgdi ömmu alla tíð, hvort sem var fyrir ræktun mat- jurta, skrautblóma eða trjáa. Það gladdi hana mikið á efri árum að sjá allan trjágróðurinn í kringum sig, og hafði oft orð á því að það væri munur að sjá Blönduós í dag eða fyrir 60 ár- um, þegar þar var varla að sjá tré og talið að þau þrifust ekki í bænum. Þessi síðasti dagur minn með ömmu er mér minnisstæður, líkt og allir hinir dagarnir með henni, og um þá mætti skrifa mun lengra mál en hér er færi á. Blessuð sé minning hennar. Atli Gunnar Arnórsson. Solveig frænka var stóra systir hans pabba. Hún bjó í stóru húsi á Blönduósi með ömmu Margréti, Óskari, manni sínum, og Ragnheiði Guðveigu, dóttur þeirra. Við nöfnur erum jafnöldrur og þegar ég var lítil fór ég oft á sumrin á Blönduós og var þar í nokkra daga. Minningar um Solveigu frá þessum tíma tengj- ast garðinum hennar og eldhúsinu. Solveig ræktaði úrvals grænmeti sem hún matreiddi á sinn sérstaka hátt. En hún ræktaði ekki bara grænmeti í garðinum; ég man eftir tómataplöntum í eldhúsglugga hjá henni löngu áður en nokkrum datt í hug að rækta tómata í heimahúsum. Hún bjó til besta mat í heimi; það er svo sem ekkert skrítið af því að hún var matreiðslukennari og kunni því vel til verka. En það var meira; hún hafði yndi af að búa til góðan og holl- an mat og lagði svo mikla alúð við matargerðina; pabbi sagði alltaf að hún klappaði matnum. Við hlökkuð- um því alltaf til að koma í garðinn og eldhúsið hennar Solveigar frænku. Solveig átti afmæli á aðfangadag jóla. Eftir að ég varð fullorðin og farin að halda mín jól var símtal til Solveigar hluti af jólahaldinu. Þegar gæsin var komin í ofninn hringdi ég í Solveigu. Samtölin færðu mér alltaf eitthvað nýtt; Solveig var svo djúp- vitur kona, las mikið og fylgdist vel með. Hún hafði líka næman skilning á því sem var að gerast í lífi fólks. Hún fylgdist vel með pólitíkinni og heimsmálunum og hafði ákveðnar skoðanir á þeim. Eftir því sem árin liðu fannst mér ég kynnast Solveigu frænku æ bet- ur. Ég heimsótti hana þegar ég átti leið hjá og átti skemmtileg samtöl við hana í síma. Hún sagði mér frá því sem hún var að lesa og naut þess að Ragnheiður Guðveig færði henni nýjar bækur og því var hún vel heima í því sem var að gerast í nú- tímabókmenntum. Nýlega sagði hún mér frá hve hrifin hún væri af Gyrði Elíassyni og fannst hann mikið skáld. En Solveig átti fleiri áhuga- mál. Hún horfði á fótboltann í sjón- varpinu, hafði lengi fylgst með ensku knattspyrnunni og átti sitt uppáhaldslið. Í sumar missti hún ekki af leik í heimsmeistarakeppn- inni og hafði ákveðnar skoðanir á lið- unum. Hún dáðist að liðinu frá Suð- ur-Kóreu, fannst þeir liprir eins og kettlingar. Hún gladdist þegar Eng- lendingar voru slegnir út, fannst það svo gott á Gordon Brown. Og hún sagðist ekki óska Hollendingum góðs gengis, minnug ófara Íslend- inga í viðskiptum við þessar þjóðir. En svo hugsaði hún sig um og sagði að það mætti nú ekki bitna á fótbol- tastrákunum. Nokkrum dögum áður en Solveig dó heimsóttum við hana á Blönduós. Hún var ótrúlega hress, orðin næst- um heyrnarlaus en hugsunin alveg skýr. Og hún hugsaði mikið. Hún var m.a. að velta fyrir sér hvort enska orðið “girl“ væri skylt ís- lenska orðinu “kerla“. Henni fannst orðin hljóma svo líkt. Á borðinu hennar lá bunki af bókum og hálf- prjónaður sokkur. Við fórum með hana í bíltúr um Blönduós og það sem hreif hana mest var hve falleg tré voru í görðum Blönduósinga. Og hún sagði okkur sögur, margar og skemmtilegar sögur. Blessuð sé minning Solveigar frænku. Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir. Bláir eru dalir þínir, byggð mín í norðrinu, heiður er þinn vorhiminn, hljóðar eru nætur þínar. Sólveig fór af lotningu með þetta stef úr ljóði Hannesar Péturssonar, veit að henni varð hugsað til Húsa- víkur, „byggð mín í norðrinu“. Þang- að hvarflaði hugurinn oft, á bernsku- slóðirnar. Hún var ætíð Þingeyingur þótt hún væri líka Húnvetningur eft- ir dvöl hér í meira en 70 ár. Hún fræddi mig um margt, sagði frá for- eldrum sínum og bernskuheimilinu, frændfólki okkar í Kelduhverfi og fólkinu á Húsavík, systurinni sem dó í blóma lífsins. Hún minntist bernskubreka bræðra sinna og fé- laga þeirra og þá hló hún dátt. Svo sýndi hún mér hópmynd af börn- unum á Húsavík þegar allir söfn- uðust saman til að skera laufabrauð. Sjálf var hún snillingur í laufa- brauðsgerð og laufaskurður hennar sannkallað listaverk. Hún elskaði Noreg eins og landið sitt, þangað sótti hún menntun sína í Húsmæðrakennaraskólann á Sta- bekk. Sagði mér oft frá náminu þar og kennurunum. Þaðan kom líka eiginmaður hennar hann Oscar Sö- vik. Nafn hans var dregið af víkinni við vatnið eins og algengt er í Nor- egi að fólk kenni sig við staðina, en móðurfólkið hét Hovde. Samt bjó Sövikfjölskyldan á höfðanum en Hovdefjölskyldan í víkinni. Þau hjónin byggðu sér hús við Árbraut- ina með útsýni yfir ósinn. Sólveig ræktaði tré í garðinum sínum þegar allir héldu að ekki væri hægt að rækta tré á Blönduósi, auk blóma, matjurta og berjarunna. Hún var mikil ræktunarkona. Hún helgaði Kvennaskólanum á Blönduósi krafta sína, var forstöðu- kona í 10 ár og kom aftur til starfa sem kennari eftir nokkurt hlé og var þá í 18 ár til viðbótar. Í millitíðinni var hún stundakennari og prófdóm- ari, auk þess sat hún í 26 ár í skóla- nefnd. Í Kvennaskólanum lágu leiðir okkar saman á annan áratug. Við snerum bökum saman eins og hún orðaði það. Við áttum líka samleið í kvenfélaginu og kirkjukórnum þar sem hún var organisti í áratugi. Þeg- ar haustaði í lífi hennar hittumst við oft. Síðustu árin dvaldi hún á elli- deild. Hún sætti sig við það hlut- skipti en sagði oft við mig að sig vantaði eldhúsið sitt. Sólveig var ákaflega fjölhæf og fær í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það var unun að fylgjast með henni í eldhús- inu, hún töfraði fram kræsingar á sinn hægláta og yfirvegaða máta. Vann öll störf af vandvirkni og gerði miklar kröfur til sjálfrar sín. Hún var frábær kennari, vel lesin og end- urnýjaði stöðugt þekkingu sína í fag- inu. Síðustu árin undi hún oft við lestur góðra bóka og las þá töluvert á ensku. Það hefur verið föst venja í fjöl- skyldu minni frá fyrstu tíð að heim- sækja Sólveigu á afmælinu hennar á aðfangadag jóla og þiggja súkkulaði og aðrar gómsætar veitingar. Nú verða heimsóknirnar ekki fleiri. Að leiðarlokum kveður fjölskylda mín hana með virðingu, hlýhug og þökk og sendir Ragnheiði og hennar fjölskyldu samúðarkveðjur. Aðalbjörg Ingvarsdóttir. Þröng var á þingi á heimilinu barnmarga á Húsavík. Höfði er lítið hús og erfitt er að skilja hvernig þessi hópur gat látið vel um sig fara í því þrönga rými. Eitthvað var rýmra eftir að skólastjórinn flutti með fjöl- skylduna á loftið í skólanum, en þó munaði ekki miklu. Mikið var um gestakomur. Frændur, frænkur og vinir áttu þar tíðum náttstað svo dögum og vikum skipti. Því varð að tvímenna í sum rúm. Sólveig var ell- efu ára þegar yngsti bróðirinn, Guð- mundur, fæddist og varð það hlut- skipti hinnar ungu heimasætu að deila rúmi með snáðanum og gæta hans. Löngu síðar rifjaði Solveig upp hvernig hún hefði litið þennan blóðuga böggul í fyrsta sinn og ákveðið að aðrir myndu ekki fá að skipta sér af honum án hennar full- tingis. Snáðanum unga leið vel undir verndarvæng stóru systur. Guð- mundur óx og dafnaði næstu áratug- ina undir verndarhendi Solveigar og hún gaf honum þá móðurlegu ást, sem dugði honum til að verða elsk- andi faðir. Þegar Guðmundur faðir minn eignaðist eigin börn, gat hann gefið okkur þá birtu og þann yl, sem hann hafði fengið í vöggugjöf frá stóru systur sinni. Rúmum áttatíu árum síðar sá hún á eftir sínum elsk- aða litla bróður og það féll henni sárt að horfa á eftir öllum sínum systkinum. Heimsóknir okkar til Solveigar á Blönduósi voru endalaus uppspretta hlýju og væntumþykju okkar góðu frænku. Hún hafði einlægan áhuga á því sem við og okkar börn tókum okkur fyrir hendur og mundi það stundum betur en við sjálf. Allt til enda var athyglin og minnið óskert, þótt heyrnin væri farin að bila. Sol- veig fann alltaf leið til að hvetja okk- ur með jákvæðum hugleiðingum og hlýju, sem sárt verður saknað. Við ferðalok velti ég því fyrir mér, að ef tilvera hennar varð svo afdrifa- rík fyrir einn lítinn bróðurson, hversu umfangsmikil voru þá áhrif hennar á allt hennar samverkafólk, sem lifði með henni í áratugi í nánd og fjarlægð? Nú eru systkinin sameinuð á ný. Húslestrar hafa verið endurvaktir og Margrét les fyrir bónda sinn Benedikt, líkt og hún gerði forðum eftir að sjón hans fór að bila. Systk- inin sjö hlýða á og fagna sameining- unni við sína elskuðu systur. Blessuð sé minning Solveigar Sö- vik. Eggert Benedikt Guðmundsson. „Kynni okkar Sólveigar hófust þegar ég var námsmey í kvennaskól- anum á Blönduósi, veturinn 1967- 1968, en veturinn eftir var ég aðstoð- arstúlka í skólanum og síðan þá hef- ur kær vinátta haldist á milli okkar. Sólveig kenndi matreiðslu og einnig bókleg fög við skólann. Seinna var ég til margra ára í heimilishjálp hjá henni, þegar aldur færðist yfir og kraftar hennar fóru að þverra. Sólveig var hæg og stillt kona og lítið fyrir íburð og prjál og vildi láta lítið fyrir sér fara, en hélt sínu stolti og var að eðlisfari mjög þrautseig. Hún bjó í sínu stóra húsi þangað til heilsan gaf sig og þá fór hún á deild aldraðra á Heilbrigðisstofnun Blönduóss. Sólveig unni gróðri, sérstaklega grænmetisræktun sem hún vann að á meðan hún gat í garðinum sínum. Það var unun að sjá hana vinna með matvæli; naut ég þess oft að borða ilmandi bakkelsi og annað góðgæti hjá henni. Sólveigu vil ég þakka kærleiks- ríka vináttu við mig og mitt fólk í gegnum árin. Ragnheiður mín, innilegar samúð- arkveðjur til þín og þinna. Blessuð sé minning góðrar og mikilshæfrar konu. Ragnhildur Helgadóttir. Solveig Benediktsdóttir Sövik Við viljum minnast frænku okkar og vin- konu Sigríðar Árna- dóttur sem lést 7. júlí sl. eftir erfið veikindi. Sigga eins og hún var kölluð var fædd að Suðurgötu 16 á Akranesi og var næstelst í tíu barna hópi Stein- unnar Þórðardóttur og Árna Árna- sonar. Við vorum systkinabörn úr stórri fjölskyldu afkomenda Emilíu Þosteinsdóttur og Þórðar Ásmunds- sonar frá Grund á Akranesi en þau eignuðust átta börn. Samskipti hafa alltaf verið mikil milli fjölskyldnanna og myndast hafa ættar- og vináttu- tengsl sem við ræktum vel og eru okkur mikils virði. Þegar hugurinn reikar til æskuár- anna þá minnumst við þess að það var mikið líf og fjör á Suðurgötu 16, enda börnin mörg og vinirnir marg- ir. Létt andrúmsloft var ríkjandi og allir velkomnir og pláss fyrir alla. Sigríður Árnadóttir ✝ Sigríður Árna-dóttir fæddist á Akranesi 23. júní 1941. Hún lést á Landspítalanum hinn 7. júlí 2010. Útför Sigríðar fór fram frá Akra- neskirkju 15. júlí 2010. Sigga bar með sér þetta létta fas og góð- látlegt grín úr föður- húsunum. Hún var skemmtileg, mjög fljót til svara og orðheppin. Einnig var hún ákveð- in, samviskusöm, traust og trygg. Við frænkur sem vorum á svipuðum aldri áttum skemmti- legar stundir saman við leik og störf og ferðuðumst mikið á yngri árum. Margar góðar minningar koma upp í hugann frá þeim tíma sem við rifjuðum oft upp, m.a. þegar við kynntumst verð- andi mökum og fórum að festa ráð okkar. Síðan fluttumst við hver í sína áttina og eignuðumst börn og buru, en þá urðu samverustundirnar færri en við kusum. Við fylgdumst þó alltaf vel hver með annarri og héldum sambandi eftir því sem tækifæri gáf- ust til. Við viljum að leiðarlokum þakka Siggu fyrir samveruna og biðjum Guð að blessa Kidda, Hörpu, Petrún- ellu og Kristján og fjölskyldur þeirra. Blessuð sé minning Sigríðar Árna- dóttur. Emilía Júlíusdóttir, Margrét Ármannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.