Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Sudoku Frumstig 4 1 5 7 1 5 3 2 8 7 8 3 1 7 3 5 8 1 3 6 1 8 4 6 2 5 7 7 9 3 7 4 1 2 4 5 3 8 4 5 2 9 8 5 4 7 3 8 4 7 1 2 7 1 8 9 7 8 3 9 4 2 5 7 1 2 3 4 1 8 5 2 4 2 7 9 8 1 8 1 9 5 7 4 1 8 9 3 2 6 2 1 8 3 6 4 9 5 7 9 3 6 2 7 5 4 1 8 4 9 2 5 3 7 8 6 1 8 5 3 6 1 2 7 4 9 7 6 1 4 9 8 2 3 5 1 4 7 8 2 6 5 9 3 6 8 5 9 4 3 1 7 2 3 2 9 7 5 1 6 8 4 3 2 9 1 7 6 8 4 5 5 7 8 2 4 3 9 1 6 1 6 4 9 5 8 2 3 7 6 1 7 4 8 2 3 5 9 4 9 3 7 6 5 1 8 2 2 8 5 3 9 1 6 7 4 8 4 1 5 2 9 7 6 3 9 5 6 8 3 7 4 2 1 7 3 2 6 1 4 5 9 8 9 8 1 5 6 2 7 4 3 3 4 5 7 1 8 9 6 2 7 6 2 4 9 3 5 8 1 2 9 4 1 5 7 8 3 6 8 3 7 9 2 6 1 5 4 1 5 6 8 3 4 2 7 9 6 7 8 2 4 1 3 9 5 4 2 9 3 7 5 6 1 8 5 1 3 6 8 9 4 2 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 6. ágúst, 218. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós. (Lk. 8, 17.) Víkverji segir gjarnan að það séhugarfarið sem skipti öllu máli og aldur sé afstæður en hann kem- ur misjafnlega við konur og menn. x x x Kona á besta aldri, stúdent ekkialls fyrir löngu, fór í Árbæj- arsafn ásamt dóttur sinni og barna- barni á dögunum. Þegar hún ætlaði að borga sagði stúlkan í miðasöl- unni að gjaldið væri 300 krónur. Konan hváði og þá sagði stúlkan að það væri frítt fyrir ellilífeyrisþega og börn og hálft gjald fyrir háskóla- stúdenta. Svipur kom á mæðgurnar og dóttirin ætlaði að leiðrétta stúlk- una en móðirin sætti sig við að fá frítt inn og lét kyrrt liggja. x x x Jafnaldri umræddrar konu lenti ísvipaðri aðstöðu í Gróðrarstöð- inni Mörk. Í röðinni við kassann hitti hann ellilífeyrisþega og tóku þeir tal saman. Ungur, kurteis mað- ur sá um afgreiðsluna og þegar kom að viðkomandi manni leit af- greiðslumaðurinn á hann og spurði: Afsakið, ertu orðinn heldri borgari því ef svo er þá áttu rétt á að fá af- slátt? Töluvert fát kom á manninn en honum tókst að koma því út úr sér að hann væri á besta aldri. Ekki fékk hann afsláttinn en sagði Víkverja að konurnar í röðinni hefðu greinilega haft gaman af því hvernig hann stamaði út úr sér svarinu. x x x Víkverji er á aldur við þetta fólken hefur ólíka sögu að segja. Hann mætti ungri konu og tóku þau tal saman. Umræðan snerist um ákveðið fyrirtæki og Víkverji spurði hvort hún hefði rætt við eig- andann, sem er árinu eldri en Vík- verji. Yngri stúlka blandaði sér í umræðurnar, var hin skemmtileg- asta og lét ýmislegt flakka. Allt í einu þagnaði hún, horfði á Víkverja og spurði: Ertu nokkuð skyldur eigandanum? Er hún kannski mamma þín? Víkverji brosti, horfði á ungu konuna og lét sér nægja að segja að skyldleikinn væri enginn. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | Lárétt: 1 skríll, 4 ungum hrossum, 7 drusla, 8 úfinn, 9 ruggar, 11 horað, 13 fugl, 14 hin- ir og þessir, 15 bjartur, 17 jörð, 20 spor, 22 kind, 23 styrkir, 24 landabréfi, 25 bjargbrúnin. Lóðrétt | Lóðrétt: 1 fjallsranar, 2 andlegt at- gervi, 3 kyrrir, 4 fer á flótta, 5 kvendýr, 6 manndrápi, 10 tignasta, 12 guð, 13 amboð, 15 við- arbútur, 16 hyggur, 18 leyfi, 19 skepnurnar, 20 fatnaði, 21 úrkoma. Lausn síðustu krossgátu Lausn síðustu krossgátu. Lárétt: 1 kunngerir, 8 kubbs, 9 garms, 10 kæn, 11 rengi, 13 agnir, 15 gorts, 18 iðjan, 21 kið, 22 múkki, 23 kappi, 24 krónprins. Lóðrétt: 2 umbun, 3 níski, 4 eigna, 5 iðrun, 6 skýr, 7 ás- ar, 12 gat, 14 góð, 15 góma, 16 ríkur, 17 skinn, 18 iðkar, 19 Japan, 20 náin. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5. e3 axb5 6. Bxb5 Da5+ 7. Rc3 Bb7 8. Bd2 Db6 9. Rf3 Rxd5 10. a4 e6 11. O-O Be7 12. He1 Rb4 13. e4 O-O 14. Bf4 d6 15. Rd2 e5 16. Be3 R8c6 17. Ra2 Rxa2 18. Hxa2 Rb4 19. Ha1 d5 20. exd5 Bxd5 21. Hc1 Hfd8 22. Dg4 Hac8 Viktor gamli Kortsjnoj (2568) er enn að og á dögunum tók hann þátt í svissneska meistaramótinu sem fram fór Lenzerheide. Þessi goðsögn í lif- andi lífi byrjaði mótið vel en tapaði síð- ustu þrem skákunum sínum. Í þessari tiltölulega jöfnu stöðu lék hann herfi- lega af sér gegn alþjóðlega meistar- anum Beat Zuger (2404). 23. Dxb4?? Dg6! og hvítur gafst upp enda er drottningartap eða mát óumflýjanlegt. Má hvítur leika Dxb4? Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fjörugur hringur. Norður ♠85 ♥D2 ♦ÁDG2 ♣86432 Vestur Austur ♠ÁG832 ♠KD1076 ♥KG10985 ♥Á6 ♦-- ♦643 ♣K5 ♣D97 Suður ♠4 ♥743 ♦K109872 ♣ÁG10 Suður spilar 7♦ doblaða. Brian Platnick var fyrstur að taka til máls í austur, á hættu gegn utan. Hann horfði smástund á 11 punktana sína og ákvað svo að opna á 1♠ – taldi vissara að koma spaðalitnum strax í umferð. Spilið er frá úrslitaleik Fleishers og Diamonds í bandarísku landsliðskeppn- inni. Bobby Levin kom inn á 2♦ og John Diamond í vestur átti næsta leik. Hann sá fyrir sér alslemmu á móti réttu opn- uninni og stökk í 5♦ til að spyrja um lykilspil fyrir utan tígulinn. „Exclusion“ sagnvenjan, svokallaða. Í norður var Steve Weinstein og hann setti óvenju- legan endapunkt á fyrsta sagnhringinn með fyrirframfórn í 7♦. Hárnákvæm pressusögn, en A-V létu ekki freistast: Platnick doblaði, sem Diamond túlkaði réttilega sem tvö lykilspil (DOPI) og sagði pass: fjórir niður og 800. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú vinnur þér aðeins tjón með því að neita að horfast í augu við staðreyndir. Láttu ekki mótbyrinn fara í taugarnar á þér. Kapp er best með forsjá. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þegar mál geta farið á hvorn veginn sem er verður maður bara að taka sína ákvörðun og láta slag standa. Hvíldu þig vel og lengi. Þú átt bara einn líkama, hugsaðu vel um hann. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú hefðir gott af svolítilli ein- angrun í dag. Hvernig væri að halda boð fyrir vini sem þú hefur ekki hitt lengi? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þótt þú hafir sett markið hátt er engin ástæða til að ætla annað en þér tak- ist að ná því. Vertu jákvæð/ur og hlustaðu vel og ef þú gerir það áttu eftir að njóta góðs af. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Málefni tengd sköttum, reikningum og skuldum hafa íþyngt þér að undan- förnu. Reyndu að láta sem ekkert sé því mál munu upplýsast þótt síðar verði. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þér finnst einhverjir vera að seilast inn á valdsvið þitt. Gleymdu ekki að líta inn á við og biðja um handleiðslu. Þú færð óvænta gjöf. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ágreiningur um sameiginlegar eigur eða forræði yfir einhverju virðist engan endi ætla að taka. Einhverra hluta vegna er ástin komin aftur í spilin. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nýlega varðstu fyrir von- brigðum þegar viss áætlun varð ekki að veruleika. Gefðu þér tíma til að setjast niður og ræða málin. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þig langar til að brjótast út úr viðjum vanans. Haltu ró þinni, þótt eitt og annað gangi á í kringum þig. Ágústmán- uður er góður til ferðalaga. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Heilsa þín gengur fyrir öllu öðru. Farðu til læknis ef eitthvað er ekki eins og það á að vera. Óvissan er ekki góð. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert fín/n ein/n á báti – og frábær í hóp. Sýndu vini skilning og vertu til staðar þegar aðstæður breytast hjá honum. Ekki er allt gull sem glóir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þær áköfu samræður sem þú átt við ástvin eiga eftir að koma þér úr jafn- vægi, jafnvel klukkustundum eftir á. Taktu hlutunum samt með ró og kláraðu það sem skiptir máli. Stjörnuspá 6. ágúst 1933 Hakakrossfáni var skorinn niður við hús þýska vararæð- ismannsins á Siglufirði. Fimm menn voru síðar dæmdir fyrir verknaðinn, þeirra á meðal Steinn Stein- arr skáld. 6. ágúst 1951 Peter Scott fuglafræðingur kom úr fyrsta leiðangri sín- um til að rannsaka heið- argæsir við upptök Þjórsár. Scott er talinn eiga mikinn þátt í því að Þjórsárver voru friðuð, en þar eru stærstu varpstöðvar heiðargæsa í heimi. 6. ágúst 1958 Opnuð var sýning á 46 mál- verkum eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg, sem Elof Rysebye hafði gefið Listasafni rík- isins. Morg- unblaðið sagði þetta mikla rausnargjöf sem ekki yrði metin til fjár. Með- al málverkanna var „Sjöundi dagur í Paradís,“ eitt þekkt- asta verk Muggs. 6. ágúst 2000 Þorgeirskirkja við Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu var vígð. Á bökkum Skjálfanda- fljóts var sýnt á táknrænan hátt hvernig Þorgeir Ljós- vetningagoði fleygði goð- unum í Goðafoss að lokinni Kristnitökunni eitt þúsund árum áður. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Þann 9. ágúst nk. verður Ró- bert Örn Ólafs- son, fv. slökkvi- liðsmaður, Lóulandi 6, 250 Garði, sjötugur. Af því tilefni er ættingjum og vinum boðið til fagnaðar í Samkomuhúsinu Garði laugardaginn 7. ágúst frá kl. 19. 70 ára „Ég ætla að vera með afmælispartí í kvöld og bjóða vinum mínum heim. Hlusta á tónlist, dansa og hafa það skemmtilegt,“ segir Salvör Þór- isdóttir en hún fagnar 25 ára afmæli sínu í dag. Hún segir að það afmæli sem standi kannski einna helst upp úr í minningunni sé tvítugsafmælið hennar. „Ég var að vinna með góðum vinkonum mínum á afmælisdaginn og fékk afmælisknús frá svona 40 unglingum. Ég var að vinna í sumar- búðum fyrir norðan og það var æðislegt að eiga afmæli þar. Ég fékk afmælisköku, afmælissöng og allt tilheyrandi.“ Salvör stundar nám í lögfræði við Háskóla Íslands og er á loka- sprettinum í því. Hún segir að það hafi alls ekki verið löngu ákveðið að fara í lögfræði áður en hún hóf námið. „Þetta var eiginlega spurn- ing um sálfræði eða lögfræði. Ég hafði engan sérstakan áhuga á lög- fræði áður en ég byrjaði en svo er deildin bara alveg æðisleg, skemmtilegt nám, frábært félagslíf og yndislegt fólk. Ég er voðalega ánægð þarna.“ Aðspurð hvað taki síðan við að náminu loksins svarar hún einfald- lega: „Alvara lífsins.“ hjorturjg@mbl.is Salvör Þórisdóttir laganemi er 25 ára í dag Hlusta á tónlist og dansa Nýirborgarar Reykjavík Magdalena fæddist 13. maí kl. 20.08. Hún vó 3.960 g og var 52 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Ragnhildur Páls- dóttir og Guðfinnur Þor- valdsson. Reykjavík Örn Ingvi fæddist 31. desember kl. 0.00. Hann vó 3.370 g og var 51 cm langur. For- eldrar hans eru Inga Steinunn Arnardóttir og Aðalgeir Arnar Jónsson. Kópavogur Arnór fæddist 5. maí kl. 22.47. Hann vó 4.470 g og var 54 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Ása Fríða Kjartansdóttir og Víglundur Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.