Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA ER EINN AF MÍNUM
UPPÁHALDS STÖÐUM
ÞÚ SEGIR
EKKI
Æ,
NEI!
ÉG ER EKKI
EINN AF
ÞEIM EFSTU
Í BEKKNUM!
HVAÐ HELDUR ÞÚ
AÐ ÞAU GERI?
FORELDRAR MÍNIR VERÐA EKKI
ÁNÆGÐIR... ÞAU VILJA AÐ ÉG
SÉ KLÁRASTUR Í BEKKNUM
ÞAU EIGA ÖRUGGLEGA
EFTIR AÐ KVARTA YFIR
KENNARANUM
SPEGILL, SPEGILL
HERM ÞÚ MÉR... HVER ÁLANDI
FEGURST ER
AF HVERJU
SEGIR ÞÚ
HENNI EKKI
BARA SANN-
LEIKANN?
HVAÐ
GETUR HÚN
SVO SEM
GERT ÞÉR?
EF HÚN
BRÝTUR ÞIG
ÞÁ FÆR HÚN
SJÖ ÁRA
ÓGÆFU
EKKI VERA
VITLAUS, HRÓI!
EKKI HÆTTA Í
HLÝÐNISKÓLANUM
ÞARNA ER
BÍLLINN OKKAR!
ÞAÐ TÓK OKKUR
ÞRJÁ KLUKKUTÍMA
AÐ FÁ HANN AFTUR
KOMUM
OKKUR
HEIM
VAVIVNAV
MÍNAV FVUSU
FASTAV VIV
BÍLINN
ÉG ER SVO GLAÐUR
AÐ SJÁ HANN! ÉG LOFA
AÐ LEGGJA ALDREI
ÓLÖGLEGA FRAMAR!
ÞÓ ÉG HAFI EKKI NÁÐ ELECTRO
ÆTTI MYNDAVÉLIN MÍN AÐ HAFA
NÁÐ GÓÐUM MYNDUM AF HONUM!
ÉG FESTI
HANA
HÉR...
Æ, NEI!
HÚN
DATT OG
BROTNAÐI
EN AF
HVERJU
DATT
HÚN?
EF ELECTRO
GERÐI ÞAÐ...
VEIT HANN
KANNSKI AÐ
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN ER
PETER PARKER
Þakkir
Ég vill þakka öllum sem lögðu leið sína til
Vestmannaeyja á þessa þjóðhátíð og gerðu
helgina ógleymanlega og frábæra.
Þó sérstaklega vil ég þakka manni að nafni
Grétar, en ég kann þó ekki meiri deili á hon-
um, fyrir ómælda hjálp og hugulsemi.
Helgi Þ.
Bakreikningar
Ég hlustaði á Samfylkinguna sem lofaði því að
einfalda kerfi TR. Samt virðist kerfið enn
flóknara en það var. Ég veit um konu sem
fékk bakreikning, jú það var vegna þess að
hún hafði fengið aukabætur í þrjá mánuði en
það var síðan tekið af. Nú hafði þessi kona
smá-fjármagnstekjur af inni-
stæðu á bankabók og þá eru
bætur hennar skertar út af þess-
ari þriggja mánaða greiðslu sem
hún fékk. Þannig fer rík-
isstjórnin að því að fá þessa pen-
inga til baka.
Sigrún.
Filma fannst
Kannast einhver við þessa
mynd?
Vinsamlega hafið þá samband
í síma 894-6845.
Ást er…
… að láta renna í heitt
bað fyrir hana eftir
langan dag.
Velvakandi
Kannast einhver við drenginn?
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur
með farþegum ferðar um Arnarvatns-
heiði, Húnaþing og Skagafjörð verður
þriðjud. 10. ágúst kl. 11 í Stangarhyl 4.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur fellur niður 8. ágúst.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40
og félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinnustofan opin. Hádegisverður kl.
11.40.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Bridsaðstoð kl. 13 og kaffi.
Hraunsel | Hraunsel opnað eftir sumarfrí
mánudaginn 9. ágúst, félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 8-16. Böðun fyrir hádegi, hádeg-
isverður, miðdagskaffi, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Fjölbreytt dagskrá í
Hæðargarði í haust. Skráning hefst 13.
ágúst – lýkur 30. ágúst, sími 411-2790.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9-16, hádegismatur kl. 11.45-
12.45, sungið við flygilinn kl. 13.30-14.30,
kaffi kl. 14.30-14.45, dansað í aðalsal kl.
14.30-16. Fimmtudaginn 12. ágúst verður
farið í Rangárvallasýslu, Landeyjar austur
og vestur. Keyrt verður um Landeyjar
undir leiðsögn Guðjóns R. Jónassonar.
Matur innifalinn. Verð kr. 7.500. Lagt af
stað frá Vesturgötu 7 kl. 8.50. Upplýs-
ingar og skráning í síma 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, matur og kaffi, bingó
kl. 14.
Það er skemmtilegt að blaða í göml-
um Skírni og rýna í ritdóma. Árið
1905 fjallar ritstjórinn, Guðmundur
Finnbogason, um Nokkur kvæði,
ljóðabók Þorsteins Gíslasonar. Þar
segir hann, að bestu söngfuglarnir
séu oft litlir vexti og yfirlætislausir,
við metum þá eftir röddinni en ekki
stærð þeirra og státi. Allir læri undir
eins vísuna um vorhimininn:
Þú ert fríður, breiður, blár
og bjartar lindir þínar;
þú ert víður, heiður, hár
sem hjartans óskir mínar.
Næsta ár kom út Gígjan, kvæði
eftir Guðmund skólaskáld. Um hann
segir í ritdómnum, að hann sé skáld
frá hvirfli til ilja: Það minni á það
sem kerlingin sagði um nætur-
galann. Hún ætlaði að hafa hann til
matar og plokkaði hann, en þótti lít-
ill matur í honum. „Hann er ekkert
annað en röddin,“ sagði hún. Menn
hlæja að kerlingunni af því að þeir
finna að það er skammsýnt að vega
söngfuglinn á matarvog. En kvæði
Guðmundar skólaskálds eru liðin frá
brjósti hans eins létt og söngurinn
frá brjósti næturgalans, vakinn af
líðandi stund. Síðan segir ritstjórinn
um nafna sinn: Og fallega grípur
hann í gömlu strengina, sem Sig-
urður Breiðfjörð og Þorsteinn Erl-
ingsson best hafa kunnað að stilla:
Yfir grund er orpið snjó,
álftir á sundi kvaka,
meðan blunda bljúg í ró
blómin undir klaka.
Eða kvæðið Norðan frá hafi. Þar
er þetta:
Lögðu á flótta frá oss ótti og kvíði;
felldi hljótt á hárin mín
heilög nóttin tárin sín.
„Pappírinn í bókinni er kvæð-
unum ósamboðinn,“ eru niðurlags-
orð ritdómsins.
Árið 1913 komu út Nokkur smá-
kvæði eftir Ólöfu Sigurðardóttur frá
Hlöðum. Guðmundur Finnbogason
segir að hún sé fyrir löngu kunn sem
ein besta íslenska skáldkonan að
fornu og nýju. Hann tekur nokkur
erindi af handahófi og segir, að
„hátturinn“ sé alltaf mjúkur og að
orðin falli létt eins og í leik. Hún
kveði oft dýrt og rímnalögin kunni
hún eins og þeir sem best geri:
Lítil kæna lá á bæn,
sér lyftu í blænum ögur.
Heim að bænum grundin græn
lá grösug, væn og fögur.
Inn með lónum leiftri slær,
lengra sjónum bendir:
gengur á sjónum glóey skær,
geislaprjónum hendir.
Sest í rökkurs silkihjúp,
sæll og klökkur dagur.
Er að sökkva í sævar djúp
sólar nökkvi fagur.
Siglir í hafi sólar skip,
sendir stafi að vogum,
er sem vafi á öldu svip,
er þær kafa í logum.
Í öllum þessum vísum er frumlega
farið með algeng efni, segir Guð-
mundur. Kvenlegum eim finnst mér
víða bregða fyrir, t.d. í þessu:
Konung Ægi eyjan mín
gaf armlög sín.
Klæddist hún því, há og fín,
í hermelín.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af vorhimni og söngfugli