Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 35
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Í dag verður farandsýningin Á vest-
urvegi opnuð á Norðurbryggju í
Kaupmannahöfn. Sýningin er af-
rakstur samstarfs safna og lista-
manna frá Noregi, Íslandi, Fær-
eyjum, Hjaltlandseyjum og
Danmörku og hefur nafn sitt af
siglingaleiðinni til landanna sem
liggja vestur af Noregi sem kall-
aðist vesturvegur á víkingatíma.
Sjö listamenn frá Íslandi, Noregi
og Hjaltlandseyjum hafa undan-
farin fjögur ár unnið þvert á landa-
mærin út frá þeim hefðum og
tungumála- og handverkstengslum
sem löndin eiga sameiginleg, staðið
fyrir vinnustofum og málþingum í
samvinnu við söfn og háskóla
þátttökulandanna og kannað menn-
ingararfinn á Norður-Atlantshafs-
svæðinu, en einnig leitað innblást-
urs, bæði í sameiginlegum þáttum
þess arfs og hinum sértæku afkim-
um hans.
Fulltrúar Íslands eru þau Mál-
fríður Aðalsteinsdóttir, Kristín
Reynisdóttir og Guðjón Ketilsson.
Elsie-Ann Hochlin og Johannes
Vemren-Rygh koma frá Noregi og
Barbara Ridland og Roxane Perm-
ar frá Hjaltlandseyjum.
Sýningin nýtur styrkja frá Nor-
ræna menningarsjóðnum, Reykja-
víkurborg, mennningarmálaráðu-
neyti Noregs, utanríkisráðuneyti
Noregs, Shetlandcraft, mennta- og
menningarmálaráðuneyti Íslands,
Norsk Kulturråd, Norske Kunst-
håndværkere og Bandalagi ís-
lenskra listamanna. Hún stendur til
29. ágúst.
Á vesturvegi
á Norður-
bryggju
Sýning Hús fyrir net eftir Kristínu
Reynisdóttur.
Nýtt bókverk Sigurðar Atla
Sigurðarsonar verður kynnt í
bókverkabúðinni Útúrdúr í
Austurstræti 6 næstkomandi
laugardag kl. 16:00. Bókverkið
ber heitið L’homme, l’animal
de la ville, en Sigurður vann að
því í Marseille í Frakklandi sl.
vor. Bókverkið inniheldur ljós-
myndir fundnar á götum Mar-
seille ásamt öðrum verkum.
Listamaðurinn vinnur með inn-
grip í prentferlið til að leggja áherslu á manninn í
borginni sem og náttúrunni, náttúruna í borginni
og náttúru mannsins. Bókverkið er prentað í 25
eintökum og verður til sýnis og sölu samhliða
verkum sem tengjast því.
Bóklist
Bókverk Sigurðar
Atla kynnt í Útúrdúr
Kápa bókverks
Sigurðar
Á sunnudag kl. 15:00 verður
Leiðsögn um sýninguna Form-
legt aðhald þar sem sýnd eru
verk listmálarans Eiríks Smith
frá 1951–1957. Leiðsögnin er í
umsjón aðstoðarsýningarstjór-
ans Heiðars Kára Rannvers-
sonar. Heiðar er listfræðingur
og hefur undanfarna mánuði
unnið rannsóknarvinnu á verk-
um Eiríks í Hafnarborg.
Á sýningunni eru verk frá
fyrstu árunum eftir að Eiríkur sneri heim frá
námi í Kaupmannahöfn og París, síðari hluta árs
1951. Sýningin Formlegt aðhald er fyrst í röð sýn-
inga sem settar verða upp í Hafnarborg á næstu
árum og kynna margbreyttan feril Eiríks Smith.
Myndlist
Leiðsögn um
Formlegt aðhald
Eiríkur
Smith
Bjartur bókaforlag hefur gefið
út spennusöguna Svipinn eftir
enska rithöfundinn Robert
Goddard. Bókin segir frá
manni, Tim Harding, sem ger-
ir gömlum vini greiða og býð-
ur fyrir hans hönd í fornan
hring á fornmunauppboði.
Harding kemst fljótlega að því
að hringurinn tengist skelfi-
legum atburðum þegar honum
er stolið og morð framið í kjöl-
farið.
Áður hafa komið út eftir Robert Goddard hjá
Bjarti spennusögurnar Horfinn og Ekki sjón að
sjá. Uggi Jónsson þýddi bókina sem gefin er út í
kilju.
Bækur
Ný spennusaga
Roberts Goddards
Kápa Svipsins eftir
Robert Goddard
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Nú hangir uppi í Norræna húsinu
sýning á ljósmyndum bandarísku
listakonunnar, skáldkonunnar og
mannfræðingsins Randi Ward.
Randi er fædd og upp alin í Vestur-
Virginíu en hefur búið á Norðurlönd-
unum síðasta áratuginn. Hún lauk
meistaranámi sínu í menningarfræði
á Færeyjum og bjó þar um hríð. Í
kynningu á sýningunni, sem ber yf-
irskriftina bygdarlívið eða þorpslífið,
er henni lýst svo að myndirnar gangi
gegn þeirri rómantísku orðræðu
sem fólk grípi gjarnan til þegar
Færeyjar ber á góma sem lýsi þorp-
unum sem ævintýrastöðum þar sem
tíminn stendur kyrr og allir búi í sátt
og samlyndi í einangruninni. „bygd-
arlívið sýnir fram á vandamál þess-
ara orðræðna og setur um leið fram
gagnrýna staðhæfingu um eyðileggj-
andi þætti félagslegrar gerðar og
samskiptamynsturs samfélaganna.
Hver ljósmynd í þorpslífinu sýnir
myndlíkingu skjólleysis, hnignunar
og vanrækslu og uppbygging hverr-
ar myndar er full af truflandi tákn-
um: dyrum sem ekki er lengur hægt
að opna, brotnum eða innsigluðum
gluggum, mjög ryðguðum hjörum og
nöglum og þökum sem blæða ryði
meðan þau reyna að halda reglu,
formi og tilgangi. Aðspurð um hvort
halda megi því fram að hún sé þann-
ig að gefa rómantíska mynd af eyði-
leggingunni svarar hún neitandi:
„Víst hefja margir listamenn og
rithöfundar hið ömurlega á stall, en
ég er aftur á móti að reyna að skrá-
setja myndlíkingu eyðileggingar
sem getur verið túlkuð á margan
hátt og velta um leið upp spurning-
unni um það hvað sé að gerast og
hvers vegna.“
Um leið og Randi er að skrásetja
segist eðlilega vera að taka afstöðu í
hvert sinn sem hún velur
myndefni eða sjón-
arhorn; „ég er linsan og
linsan getur verið göll-
uð“, segir hún. „Mynd-
irnar sjálfar eru bara
hluti af sýningunni, það
skiptir líka miklu máli
hvernig ég vinn þær.
Þegar áhorfandinn horf-
ir á myndina sér hann
líka sjálfan sig en þar
sem speglarnir eru
skemmdir sér hann
brenglaða spegilmynd.“
Færeyskt þorpslíf á mismun-
andi stigum eyðileggingar
Morgunblaðið/Eggert
Speglun „Ég er linsan og linsan getur verið gölluð,“ segir listakonan Randi Ward sem sýnir myndir frá Færeyjum.
Árlega er haldin röð kammertónleika á Kirkju-
bæjarklaustri og fagnað er tuttugu ára afmæli í
ár. Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld og síðan
tónleikar laugardags- og sunnudagskvöld.
Flytjendur að þessi sinni verða þau Edda
Erlendsdóttir píanóleikari, Elfa Rún Krist-
insdóttir fiðluleikari, Helga Þóra Björgvins-
dóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir
lágfiðluleikari, Margrét Árnadóttir hnéfiðlu-
leikari, Daníel Bjarnason píanóleikari, Franc-
isco Javier Jáuregui gítarleikari og Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir mezzósópran, sem er
jafnframt listrænn stjórnandi tónleikanna.
Verkin sem flutt verða eru kammertónlist
frá ýmsum tímum, allt frá miðöldum til okkar
daga. Verk eftir Daníel Bjarnason verður
frumflutt á tónleikunum, en hann samdi verkið
sérstaklega fyrir hátíðina. Verkið, sem heitir
Larkin Songs, er skrifað fyrir mezzósópran og
píanókvintett og Daníel mun sjálfur leika pí-
anópartinn. Það er menningarmálanefnd
Skaftárhrepps sem stendur fyrir hátíðinni.
Í kvöld eru á dagskrá verk eftir Edvard
Grieg og Claude Debussy. Annað kvöld
hljóma svo verk eftir Agustín Castilla-Ávila,
Arvo Pärt, Salvatore Sciarrino og Mario Cas-
telnuovo-Tedesco. Á sunnudagskvöld verður
verk Daníels flutt og einnig verk eftir Franc-
isco Javier Jáuregui, Sergei Prokofiev og
Franz Joseph Haydn.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 föstudags- og
laugardagskvöld, en kl. 17:00 á sunnudag.
Nánari upplýsingar um hátíðina er á finna á
klaustur.is.
Kammertónleikar á Klaustri
Flytjendur á kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri.
Flutt verður kammertónlist allt frá miðöldum til okkar daga
En það sem er
kannski merkilegra
en allar þessar uppfinningar
er markmið kappans að
verða 145 ára gamall. 38
»
Í frétt í blaðinu í
gær af opnun
Glansmyndar,
málverkasýn-
ingar Þuríðar
Sigurðardóttur í
Grafíksalnum,
var rangt farið
með opnunar-
tíma sýning-
arinnar. Rétt er
að sýningin verð-
ur opnuð kl. 17 í dag. Verkin sem
Þuríður sýnir eru öll unnin fyrir
sýninguna frá því í vetur og fram á
sumar.
Rangur opn-
unartími
sýningar
Þuríður
Sigurðardóttir
Eins og getið er hér
til hliðar hefur hefur
Randi dvalið víða á
Norðurlöndunum síð-
asta áratuginn, talar
náttúrlega færeysku
en líka norsku,
dönsku og prýðilega
íslensku. Hún gaf út
ljósmynda- og ljóða-
bók í Færeyjum fyrir
þremur árum, me-
ditations on salt, og í
henni yrkir hún á ensku, norsku og
færeysku.
Hún býr hér á landi „með kær-
astanum mínum og hundinum
mínum“, eins og hún orðar það, en
er ekki farin að taka myndir að ráði
hér á landi.
„Ég er í millibilsástandi, var svo
lengi í Færeyjum og er enn að
vinna úr reynslunni. Ég er því ekki
með nein verkefni á prjónunum
sem stendur, en það kemur eflaust
fljótlega.“
Ort á þremur tungumálum
RANDI WARD
Randi Ward skrásetur
eyðileggingu og birtir
sem skældar myndir