Morgunblaðið - 06.08.2010, Page 44
FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 218. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Hafnaði boði um forgang
2. Gleðifréttir á sunnudagsmorgun
3. Ekki hallærislegur á vistvænum…
4. Grunur um barnamorð í Edinborg
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nú stendur yfir í Norræna húsinu
ljósmyndasýning sem ber yfirskrift-
ina bygdarlívið, eða þorpslífið. Sýn-
ingin er á vegum bandarísku lista-
konunnar, skáldkonunnar og
mannfræðingsins Randi Ward. »35
Morgunblaðið/Eggert
Randi Ward í
Norræna húsinu
KK fagnar á
þessu ári 25 ára
starfsafmæli.
KK ætlar að
fagna þessum
tímamótum og
halda tónleika í
Háskólabíói laug-
ardaginn 11. sept-
ember kl. 21.00.
Þar ætlar KK að fara yfir ferilinn í tali
og tónum og fá til sín góða gesti.
Hljómsveitin verður svo undir styrkri
stjórn Eyþórs Gunnarssonar.
KK í Háskólabíói
ásamt vinum
Söngkonan Kristín Birgitta Ágústs-
dóttir, betur þekkt sem Stína August,
og hljómsveit hennar NISTA eru
væntanleg til landsins. Sveitin hefur
nýlokið við gerð fyrstu
plötu sinnar og mun
hún koma fram á
ýmsum viðburðum í
ágústmánuði,
ásamt því að
vinna að tón-
listarverkefni
með Valgeiri
Sigurðssyni.
Stína August og
NISTA á Íslandi
Á laugardag Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og rigning sunnan til á landinu, en
annars skýjað að mestu og úrkomulítið. Hiti 10 til 17 stig.
Á sunnudag Norðlæg átt og dálítil væta suðaustanlands fram eftir degi en annars skýj-
að með köflum. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG S- og SA 5-10 m/s, rigning og súld vestan til á landinu og einnig
suðaustan til síðdegis en annars hægari og skýjað að mestu. Hiti 10 til 17 stig.
VEÐUR
Fimm leikir fóru fram í úr-
valsdeild karla í fótbolta í
gær. FH-ingar eru nú aðeins
fjórum stigum á eftir topp-
liðunum ÍBV og Breiðabliki
eftir 3:1 sigur í Vestmanna-
eyjum. Selfoss vann botn-
slaginn gegn Haukum.
Grindavík var í ham gegn
Fram, og KR-ingar sýndu
takta gegn Stjörnunni.
Ótrúlegur lokakafli hjá
Keflavík gegn Fylki. »2, 3,
4, 5, 7
FH-ingar sýndu
styrk sinn í Eyjum
Kylfingurinn Kristján
Þór á leið til Louisiana
Hrafn Kristjánsson skrifaði í
gærkvöldi undir samning við
körfuknattleiksdeild KR um að
taka að sér þjálfun karlaliðs fé-
lagsins. Hrafn hafði fyrr í sum-
ar tekið að sér þjálfun kvenna-
liðs félagsins og mun því stýra
þeim báðum á næstu leiktíð.
»2
Krefjandi tímabil hjá
Hrafni Kristjánssyni
ÍÞRÓTTIR - 8 SÍÐUR
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Þrekraunakeppnin Ironman eða
Járnkarlinn verður haldin 15. ágúst
nk. í Danmörku og leggja 17 Íslend-
ingar leið sína þangað til að spreyta
sig í þessu strembna móti. Vignir
Þór Sverrisson, starfsmaður Ís-
landsbanka, er einn þeirra. „Þetta er
ein mesta íþróttaþrekraun sem Ís-
lendingar hafa tekið fyrir,“ segir
Vignir.
„Það er gífurlegur undirbúningur
sem fer í svona. Flestir eru búnir að
vera að æfa fyrir þetta í níu mánuði
og allt upp í heilt ár,“ segir hann en
sjálfur hefur hann verið að æfa stíft
fyrir mótið í níu mánuði. Æfingarnar
eru allt að 10 sinnum í viku, um þrjá
klukkutíma á virkum dögum og upp
í fimm tíma um helgar ásamt því
auðvitað að taka mataræðið í gegn.
Þríþrautin mikla
Mótið samanstendur af sjósundi
sem er 3,8 kílómetrar. Beint eftir
sundið eru hjólaðir 180 kílómetrar
og því næst er hlaupið maraþon.
„Þetta er eins og að synda úr
Reykjavíkurhöfn í Viðey, hjóla síðan
í Stykkishólm og hlaupa þar mara-
þon,“ segir Vignir og hljómar þetta
ansi tyrfið. Þátttakendur hafa 17
klukkustundir til þess að ljúka
þrautinni og þurfa því að vera á stöð-
ugri hreyfingu allan tímann. Vignir
segir að meðaltími við að klára hana
sé um 12 klukkustundir, sjálfur
stefnir hann hærra. „Ég stefni á að
klára á bilinu 10-11 klukkutímum,“
segir Vignir. „Einar Jóhannsson á
besta íslenska tímann, 9,24 klukku-
stundir, frá árinu 1996.“
Aðspurður hvernig honum hafi
dottið í hug að skella sér í þessa
þrautakeppni segir Vignir þetta
vera áskorun. „Flestir sem eru í
þessu vilja prófa eitthvað nýtt og
leggja eitthvað á sig. Það eru ekki
margir í þessum „Ironman-klúbbi“
eða Járnkarlaklúbbi,“ segir hann en
þeir sem eru í klúbbnum eru þeir
sem hafa náð að klára Járnkarlinn.
Hópurinn hefur verið að æfa sam-
an og hvetja þátttakendur hver ann-
an. „Það er einmanalegt að fara einn
í 5-6 klukkustunda hjólatúr. Ef mað-
ur hjólar til Þingvalla og til baka vill
maður hafa smáfélagsskap.“
Markmiðið að klára mótið
Margir velta því eflaust fyrir sér
hvað sé í verðlaun eftir þessa erfiðu
keppni og segir Vignir þau vera veg-
leg. „En fyrir okkur er þetta fyrst og
fremst heiðurinn að hafa klárað
þetta. Ég held að markmiðið hjá
flestum í keppninni sé bara að klára
mótið,“ segir Vignir en sumir eru að
fara í það í þriðja skiptið.
Íslendingar stefna í Járnkarl
Vilja prófa nýja
hluti og leggja
eitthvað á sig
Stálhraust Vignir Þór ásamt Karen Axelsdóttur, sem byrjaði í þríþraut árið 2006. Þau hafa æft stíft og eru hér
hress og fersk með hjólin sín. Vignir er á leið í Járnkarlinn en Karen tekur þátt í bresku heimsmeistaramóti.
Hvað og hvar er Ironman?
Ironman-mótið er þrekraunakeppni
haldin í Danmörku. Þar er keppt í
þríþraut. Fyrst er keppt í 3,8 kíló-
metra sjósundi, strax á eftir eru
hjólaðir 180 kílómetrar og að lokum
er hlaupið maraþon. Allan tímann
eru þátttakendur á stöðugri hreyf-
ingu og fá 17 klukkustundir til þess
að ljúka við þessa erfiðu þraut.
Hverjir ætla að taka þátt?
17 Íslendingar leggja leið sína til
Danmerkur að taka þátt í mótinu en
þeir koma alls staðar að, úr Kópa-
skeri, frá Vestfjörðum, af Reykjavík-
ursvæðinu og Suðurlandinu svo
eitthvað sé nefnt.
Eru kröfur fyrir þátttöku?
Mikill tími fer í undirbúning fyrir
þríþrautina. Vignir Þór þátttakandi
hefur æft stíft í 9 mánuði fyrir mót-
ið og segir aðra hafa verið að æfa í
allt að heilt ár.
Hafa margir Íslendingar tekið
þátt í Járnkarlinum?
Það hittist svo á að 17 Íslendingar
hafa tekið þátt í Járnkarlinum í
gegnum tíðina eða frá árinu 1996,
en akkúrat 17 Íslendingar leggja nú
leið sína þangað til að keppa.
Spurt & svarað
Afrekskylfingurinn Kristján Þór Ein-
arsson hefur titilvörnina á Íslands-
mótinu í holukeppni í dag á Garða-
velli á Akranesi. Kristján Þór mun
yfirgefa Ísland í lok ágúst þar sem
hann mun hefja háskólanám í Loui-
siana og leika jafnframt golf með
skólaliðinu. Kristján er með ýmsar
tegundir af kylfum í pokanum og þær
er hægt að sjá í íþróttablaði
Morgunblaðsins
í dag. »8