Morgunblaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 1 0
Stofnað 1913 191. tölublað 98. árgangur
HULDU-SÖGUR
AF FÁTÆKTINNI
OG HERNUM
BOÐHLAUP Á
MEÐAL NÝJUNGA
ÞAÐ SEM KONUR
HUGSA EN EKKI ER
TALAÐ UM
UPPSKERUHÁTÍÐ HLAUPARA 9 LISTDANSFLOKKURINN HNOÐ 28NÝTT SÖGUSAFN HULDU 10
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Friðland Þjórsárver eru friðuð að hluta.
Jón Vilmundarson, sveitarstjórn-
armaður í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi, segist álíta að meirihluti sé
á svæðinu fyrir stækkun friðlands-
ins í Þjórsárverum. En þá verði
sveitarfélögin að fá einhverja að-
stoð við að vakta svæðið og hugsa
um það. Aðgengi verði að bæta,
gera vegi og stíga, setja upp útsýn-
isstaði og upplýsingaskilti. Svæðið
hafi verið friðlýst en ekkert aðhafst
til þess að gera það aðgengilegra
fyrir þá sem vilja njóta þess.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra segir í grein í blaðinu í
dag að stækkun friðlandsins sé eitt
mikilvægasta náttúruverndarmál á
landinu til langs tíma. »13, 17
Vilja láta bæta að-
gengi að friðlandinu
í Þjórsárverum
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu um að
Hjörleifur Kvaran, forstjóri fyrir-
tækisins, hætti störfum. Dr. Helgi
Þór Ingason hefur verið ráðinn for-
stjóri tímabundið en stjórnin fól
stjórnarformanni að auglýsa starfið
og undirbúa ráðningu nýs forstjóra.
Í bókun meirihluta stjórnar segir:
„Orkuveita Reykjavíkur stendur á
tímamótum og staða fyrirtækisins
kallar á umfangsmiklar breytingar í
áherslum, rekstri og stjórnun. Á
fundi stjórnarformanns með for-
stjóra í dag varð samkomulag um að
hann léti af starfi þegar í stað.“
Haraldur Flosi Tryggvason,
stjórnarformaður Orkuveitunnar,
var spurður hvort Hjörleifur væri að
hætta vegna þess að hann hefði ekki
viljað taka þátt í breytingum sem ný
stjórn fyrirtækisins ætlar að gera á
fyrirtækinu. „Það er einfaldlega
samkomulag að það henti að fá nýjan
verkstjóra.“
Þrír stjórnarmenn samþykktu til-
lögu Haraldar en aðrir sátu hjá.
Hrönn Ríkharðsdóttir stjórnarmað-
ur taldi rétt að bíða með uppsögn
forstjóra þar til niðurstaða rýnihóps
lægi fyrir. Hún gagnrýndi hins vegar
„hve litla árvekni bæði stjórn og
stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur
sýndu í aðdraganda hrunsins“.
Kjartan Magnússon stjórnarmaður
benti á að Hjörleifur hefði verið ráð-
inn forstjóri eftir að miklar ákvarð-
anir voru teknar um fjárfestingar í
virkjunum og veitustarfsemi.
Vildu fá nýjan verkstjóra
Helgi Þór Ingason ráðinn tímabundið forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Staða OR kallar á umfangsmiklar breytingar í áherslum, rekstri og stjórnun
Forstjóri í þrjú ár
» Hjörleifur Kvaran var settur
forstjóri Orkuveitunnar í sept-
ember árið 2007 þegar Guð-
mundur Þóroddsson hætti
störfum í kjölfar svokallaðs
REI-máls.
» Boðað er til starfsmanna-
fundar í Orkuveitu Reykjavíkur
kl. 12 á hádegi í dag.
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Neytendur sækja í auknum mæli í
ódýrari matvöru og eru meðvitaðri
en áður um kostnað við matarinn-
kaup. Samdráttur er á markaðnum í
heild en hann kemur þó ekki jafnt
niður á öllum.
Aukin sókn er í lágvöruverðsversl-
anir, þróun sem þegar var hafin fyrir
hrun, og virðist Krónan einna helst
njóta góðs af, en þar hefur veltu-
aukning verið
mikil undanfarið.
Nokkurs sam-
dráttar gætir
hins vegar í Bón-
us.
Verslanir og
birgjar hafa lagt
allt kapp á að
mæta þessu
breytta neyslumynstri, sem gerir
það að verkum að framboð á ódýrari
tegundum matvöru er meira og út-
breiddara en áður. Þessi þróun skil-
ar sér aftur í breytingum á markaðs-
hlutdeild verslana og verslunarkeðja
á matvörumarkaði. Breytinganna
gætir ekki í sama mæli á lands-
byggðinni.
Einkaneysla hefur dregist mikið
saman frá 2007 og er smásöluverslun
ekki undanskilin þeirri þróun. Sam-
dráttur í smásöluverslun frá árinu
2007 til ársins 2009 var 15,5% á föstu
verðlagi, og sú þróun hefur haldið
áfram. »14
Breytt markaðshlutdeild
Samdráttur í matvöruverslun hefur leitt til breytinga á
markaðshlutdeild því samdrátturinn kemur ekki jafnt við alla
Mótmælendur stilltu sér upp fyrir framan
Stjórnarráðið í gær en þar var fundur ríkis-
stjórnarinnar nýhafinn. Markmiðið var að sýna
Helgu Björk Magnúsar- og Grétudóttur stuðning
en hún var handtekin fyrir framan Stjórnarráðið
fyrir viku. Margir köstuðu, eins og Helga Björk,
brauði í garð hússins og voru mávarnir ekki
lengi að uppgötva veisluna. Gerið minnir helst á
hryllingsmynd Alfreds Hitchcocks, Fuglana.
Fuglarnir hernema Stjórnarráðið
Morgunblaðið/Kristinn
Mikill hita-
fundur var hald-
inn með stjórn
Sjúkratrygginga
Íslands og Álf-
heiði Ingadóttur
heilbrigðisráð-
herra í lok júní-
mánaðar. Að
sögn Benedikts
Jóhannessonar,
fyrrverandi
stjórnarformanns, sakaði ráðherra
stjórnina um að hafa ekki náð
markmiðum fjárlaga. „Við bjugg-
umst öll við að hún myndi enda
fundinn á því að reka okkur öll en
það gerðist svo ekki fyrr en mánuði
síðar.“ Aðrir fyrrverandi stjórnar-
menn taka í sama streng. »6
Rafmagnað and-
rúmsloft á fundi
Álfheiður
Ingadóttir
Karlmaður sem féll milli skipa við
höfnina í Grímsey á mánudagskvöld
þurfti að bíða í 9 klukkustundir áður
en hann komst undir læknishendur.
Vegna þoku var ekki hægt að fljúga
til Grímseyjar nema með þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Læknir á Ak-
ureyri var í stöðugu símasambandi
við eiginkonu hins slasaða en enginn
læknir hefur aðsetur í Grímsey að
staðaldri.
Vegna niðurskurðar hjá Land-
helgisgæslunni tekst aðeins að
manna eina áhöfn á hverri vakt. Tvö
útköll bárust samtímis að kvöldi
mánudagsins og því þurfti læknir að
meta í gegnum síma hvort útkall-
anna mætti bíða. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Landhelgisgæslunni var
ekki nægur mannskapur til að
bregðast við báðum útköllunum
samtímis en Gæslan hefur afnot af
tveimur þyrlum.
„Þetta er eitt af því sem við búum
við og þurfum bara að taka með í
reikninginn,“ segir Garðar Ólason,
útgerðarmaður í Grímsey. Gríms-
eyingar reiði sig á sjúkraflug frá Ak-
ureyri en þegar veðurskilyrði séu
slæm þurfi að kalla til þyrluna. »2
Slasaður maður var
látinn bíða alla nóttina
Stefnir í metþátttöku í
Reykjavíkurmaraþoninu