Morgunblaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
Listamaðurinn Magnús Theo-
dór Magnússon, Teddi, heldur
sína tíundu sýningu í Perlunni
18. ágúst til 5. september næst-
komandi. Teddi hefur einnig
haldið fjölda einkasýninga hér
heima og erlendis, auk þess að
taka þátt í samsýningum.
Á sýningunni eru verk sem
Teddi hefur unnið að und-
anfarna mánuði, einkum í
krossvið, tekk og mahogny en
einnig kopar. Teddi hefur valið tré sem sinn efni-
við, lífsins tré úr öllum áttum, sem hafa sögu, en
einnig ólíka áferð, lit og lögun.
Sýningin er opin alla daga á opnunartíma Perl-
unnar frá kl. 10:00 til 22:00. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Tíunda sýning
Tedda í Perlunni
Eitt verka
Tedda.
Næstkomandi laugardag kl.
16:00 verður opnuð sýning á
verkum Daða Guðbjörnssonar í
Artóteki í Borgarbókasafni
Reykjavíkur, Grófarhúsi.
Daði er lærður húsgagna-
smiður en sneri sér að myndlist
og útskrifaðist frá Listaaka-
demíunni í Amsterdam í Hol-
landi árið 1984. Daði hefur ein-
göngu starfað við myndlist frá
námslokum og samhliða því
hefur hann setið í safnráði Listasafns Íslands og
verið formaður Sambands íslenskra myndlistar-
manna. Einnig kenndi hann myndlist í þrettán ár.
Á sýningunni sýnir Daði myndbandsverk auk
nýrra olíumálverka.
Myndlist
Daði í Artóteki
Borgarbókasafns
Daði
Guðbjörnsson
Næstkomandi sunnudag halda
Sesselja Kristjánsdóttir og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
stofutónleika á Gljúfrasteini. Á
efnisskránni eru „Chants
populaires“ eftir Maurice Rav-
el, sem eru útsetningar tón-
skáldsins á þjóðlögum fyrir
rödd og píanó. Ljóðin eru á
fjórum tungumálum: spænsku,
frönsku, ítölsku og hebresku.
Einnig verða flutt sönglög eftir
messósópransöngkonuna og tónskáldið Pauline
Viardot.
Tónleikar Sesselju og Önnu Guðnýjar hefjast
kl. 16:00 og eru þeir næstsíðustu í stofu-
tónleikaröð Gljúfrasteins á þessu sumri.
Tónlist
Ravel og Viardot á
Gljúfrasteini
Sesselja
Kristjánsdóttir
Djasssöngvarinn Martin Roy Wade
er meðal gesta á Jazzhátíð Reykja-
víkur og heldur tvenna tónleika.
Hinir fyrri verða í kvöld kl. 23:00
þegar hann treður upp með Sveiflu-
sextett Hauks Gröndal á „After
Hours“ session í Risinu við
Tryggvagötu. Á efnisskránni eru
djasslög í afslöppuðum útsetn-
ingum þar sem áherslan verður á
sveifluna fyrst og fremst, tónlist í
anda Nat „King“ Cole, Frank Si-
natra og Sammy Davis Jr. og fleiri
söngvara sjötta og sjöunda áratug-
ar síðustu aldar. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 23:00.
Seinni tónleikar Wades verða
næstkomandi sunnudag, en þá býð-
ur Sveiflusextettinn undir stjórn
Hauks upp á gullaldardjass í Grand
Hotel í Sigtúni. Martin Roy Wade
tekur lagið með sextettinum og
Kristjana Stefánsdóttir syngur
nokkur lög og dúetta með Wade.
Sveiflusextettinn skipa auk Hauks,
sem leikur á saxófón, Snorri Sig-
urðarson á trompet, Ásgeir Ás-
geirsson á gítar, Vignir Stefánsson
á píanó, Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa og Erik Qvick á
trommur.
Sveifla Djasssöngvarinn Martin
Roy Wade syngur á Jazzhátíð.
Afslapp-
aður djass
á Jazzhátíð
Martin Roy Wade og
Sveiflusextettinn
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í kvöld heldur Kammersveitin Ísa-
fold spektralhátíð í húsnæði Norður-
pólsins við Gróttu, einskonar gjörn-
ing í myndum og tónum.
Kammersveitin Ísafold hefur fengið
til liðs við sig fimm unga myndlist-
armenn sem unnið hafa vídeóverk
við nokkur helstu tónverk spektral-
stefnunnar. Verkin verða flutt tvisv-
ar í kvöld við lifandi tónlistarflutning
Ísafoldar. Sveitin flytur auk þess
fleiri tónverk sem tilheyra stefnunni
á einn eða annan hátt.
Kammersveitina skipa Daníel
Bjarnason, hljómsveitarstjóri, Elfa
Rún Kristinsdóttir, Helga Þóra
Björgvinsdóttir, Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir, Margrét Árnadóttir,
Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Mel-
korka Ólafsdóttir, Grímur Helgason,
Ella Vala Ármannsdóttir, Ari Hróð-
marsson, Kjartan Guðnason og
Hrönn Þráinsdóttir. Myndlistar-
mennirnir eru Una Lorenzen, Hen-
rik Linnet, Ingibjörg Birgisdóttir,
Sara Gunnarsdóttir og Anne Harild.
Flutt verða verk eftir tónskáldin
Gerárd Grisey, Tristan Murail,
Marc-André Dalbavie, Georg Frie-
drich Haas, Salvatore Sciarrino, Gi-
acinto Scelsi og Edward Finnis.
Finnis, sem er enskt tónskáld, held-
ur einnig kynningu á hugmynda-
fræði spektralstefnunnar.
Spektraltónlist byggist á
hljóðeðlisfræðilegum vangaveltum
um tíðni og yfirtónaröð og mark-
miðið að semja ekki úr hljóðum held-
ur að semja hljóð. Daníel segir að
spektralverk séu mátulega opin og
mikil áferð í henni sem falli vel að
vídeólist. Hann hefur kynnt sér tón-
listina vel, en segir ekki að hún hafi
haft bein áhrif á hann sem tónskáld;
„ég myndi ekki telja mig til spektra-
lista. Hún er þó ekki harðlínuskóli,
heldur að vissu leyti fagurfræði líka
og það má kannski segja að sú fagur-
fræði hafi haft áhrif á mig.“
Hátíðinni verður þannig háttað að
leikin verða tónverk við vídeó-
listaverkin fimm, þá önnur tónverk
og svo eru vídeóverkin endursýnd og
tónlistin við þau leikin að nýju.
Vídeó- og tónlistarflutningur hefst
kl. 19:00 og stendur til 23:00. Daníel
segir að hátíðinni megi einna helst
líkja við það að fara á myndlist-
arhátíð og bendir áhugasömum á að
skoða dagskrá kvöldsins á www.isa-
fold.net/.
Hátíðin er hluti af sviðslistahátíð-
inni ArtFart og miðasala á vegum
hátíðarinnar, sjá www.artfart.is/.
Morgunblaðið/Kristinn
Hljóðeðlisfræði Kammersveitin Ísafold býr sig undir hljóðrófshátíðina í Norðurpólnum.
Hljóðrófshátíð á Norðurpólnum
Spektralstefnuhátíð
» Tónleikarnir hefjast kl. 19:00
og standa til 23:00.
» Flutningur verður í tveimur
sölum Norðurpólsins.
»E nska tónskáldið Edward
Finnis kynnir hugmyndafræði
spektralstefnunnar.
Rétt áður en
McQueen lést vann
hann að nýrri vorlínu sem
var afhjúpuð í París stuttu
eftir andlát hans 29
»
Jazzhátíð Reykjavíkur er áfullu og engin leið að heyraallt sem maður vildi. Í Ríkis-útvarpinu á föstudag léku
þrjár sveitir sem gefa út skífur á há-
tíðinni: Kvartett Sunnu Gunnlaugs,
K-tríóið og Reginfirra svo og Don
Randi Quest með Geir Ólafssyni,
sem söng „Brazil“ betur en fyrr.
Aftur á móti virðist tónlist Randis
flokkast undir þann „smooth-jazz“
bandaríska sem gjarnan er kallaður
lyftutónlist hérna megin hafsins og
stendur langt að baki því sem hann
var að gera ungur fyrir Verve.
Á sunnudagskvöldið gerði einn af
fremstu djasslistamönnum okkar,
Agnar Már Magnússon, tónlist Bill
Evans dágóð skil. Ekki á þann hátt
að velja helstu verk Evans og leika í
hans stíl heldur með því að setja sig
inní hugarheim Evans og túlka
verkin á eigin máta. Agnar Már hef-
ur lengi verið handgenginn Evans
og stendur næst hans skóla af þeim
þremur er hafa verið helst áberandi
í djassi síðustu hálfa öld – hinir
kenndir við Peterson og Tyner.
Spilamennska Agnars þetta kvöld
var meira í ætt við hinn unga Evans
en það sem hann lék síðustu æviárin
og hóf Agnar tónleikana einn ljúf-
lega: „A time for love“, síðan steig
Ragnar Bjarnason á svið og söng
með Agnari „Young and foolish“,
upphafslag dúettplötu Evans og
Tony Bennetts, sem mörgum fannst
jafn ótrúlegt uppátæki og þegar
Jimmy Rushing hljóðritaði með
Brubeck-kvartettnum. Raggi er
krúner af guðs náð þegar best lætur
og þarna fór hann fallega með söng-
dansinn. Var mýkri og ljúfari en
Bennett og Agnar kann manna best
að leika með söngvurum. Hann hafði
útsett nokkuð erfiðan ópus Evans,
„Very Early“, sem löngum hefur
verið á dagskrá hans, fyrir Ragn-
heiði Gröndal, sem söng glæsilega,
þó örlítilli tilgerð skyti upp kollinum
á stundum. Kristjana Stefánsdóttir
söng svo „Waltz for Debbie“ þekkt-
asta verk Evans, meira að segja
bæði á sænsku og ensku, en það er
eitt laganna á meistaraskífu Evans
og Moniku Zetterlund. Með söng-
konunum spilaði tríóið og gerði það
vel. Valdi Kolli og Maggi eru all-
ólíkir þeim hrynleikurum sem Bill
Evans kaus sér. Valdi ekkert tækni-
ljón og Maggi skemmtilega tengdur
trommurum Krupatímans. Söng-
dansarnir „My foolish heart“ og
„My Romance“ voru svo fallega
leiknir að Valdi hefur þurft að hugsa
hvern bassatón til að rjúfa ekki
galdurinn. Maggi lék með burstu
allt nema tvo hraða Evans-ópusa:
„Funkarello“ og gamla „I got
rhythm“-tilbrigði Evans, „Five“, þar
sem Aggi skaut inn Tristanolínu til
skreytingar.
Flottir tónleikar.
Þjóðmenningarhúsið
Tríó Agnars Más Magnússonar
bbbbn
Agnar Már Magnússon píanó, Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson bassa og Magn-
ús Trygvason Eliassen trommur.
Sönggestir: Ragnar Bjarnason, Ragn-
heiður Gröndal og Kristjana Stef-
ánsdóttir.
Sunnudagskvöldið 15.8. 2010.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Bill Evans kannaður
Morgunblaðið/Ómar
Hylling Agnar Már Magnússon hefur lengi verið handgenginn Bill Evans.
Fimm tónleikar
verða haldnir í
Bókasal Þjóð-
menningarhúss-
ins nk. laugardag,
á Menningarnótt.
Dagskráin hefst
kl. 14:00 og lýkur
á ellefta tímanum
um kvöldið.
Fyrstu tónleik-
arnir verða kl.
14:00 þegar
dægurlagahópurinn Blikandi stjörn-
ur syngur þekkt íslensk dægurlög.
Kl. 15:00 leikur Mosana-gítardúóið,
sem skipað er gítarleikurunum
Svani Vilbergssyni og Priska Wei-
bel, tónlist frá barokk-, klassíska og
rómantíska tímabilinu auk samtíma-
tónlistar.
Kl. 17:00 syngja sönghópurinn
Spectrum og Ingveldur Ýr útsetn-
ingar við þekkt dægur- og söng-
leikjalög, auk íslenskra sönglaga.
Kl. 18:00 leikur hljómsveit Gísla
Helgasonar, Föruneytið, eigin lög í
bland við alþekkt lög.
Kl. 21:00 flytur söngkonan Ragn-
heiður Gröndal íslensk þjóðlög í ný-
stárlegum búningi ásamt hljómsveit.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleikar
í Bókasal
Ragnheiður
Gröndal