Morgunblaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
BAKSVIÐ
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„Við í stjórninni fengum öll símtal
þann 30. júní síðastliðinn og vorum
boðuð á skyndifund með heilbrigðis-
ráðherra sama dag. Það var mikill
hitafundur og ýmislegt sem fékk að
fjúka. Andinn var sá að framúr-
keyrsla á fjárlögum væri okkur að
kenna og að allir samningar stofn-
unarinnar væru ómögulegir. Þeim
stjórnarmönnum sem voru óvanir
þessum fundum fannst hann alveg
svakalegur en mér sjálfum brá ekki
sérstaklega að upplifa þetta frá ráð-
herra,“ segir Benedikt Jóhannesson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Sjúkratrygginga Íslands.
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðis-
ráðherra, skipti um alla stjórn
Sjúkratrygginga Íslands á einu bretti
á sunnudag. Hún sagði ástæðuna
vera „eðlilega endurnýjun“ enda væri
undirbúningsfasa stofnunarinnar lok-
ið og fyrri stjórn hefði verið skipuð til
að undirbúa starfsemi hennar.
Stjórnin hóf störf í febrúar 2008 og
stofnunin hóf svo starfsemi sína 1.
október 2008. „Við bjuggumst öll við
að hún myndi enda fundinn á því að
reka okkur öll en það var ekki fyrr en
mánuði síðar sem það gerðist.“ Arna
Lára Jónsdóttir, fyrrverandi stjórn-
armaður, tekur í sama streng. „Það
var ljóst eftir þennan fund að ráð-
herra bar ekki traust til stjórnar-
innar þó við hefðum lagt okkur fram
við að upplýsa hana um gang mála.“
Benedikt segir jafnframt að niður-
skurður sé óframkvæmanlegur í
þessum efnum nema ráðherra ákveði
stefnuna. Svo hafi ekki verið í þessu
tilviki. Stjórn Sjúkratrygginga Ís-
lands samþykkti bókun í kjölfar fund-
arins rafmagnaða. Í henni sagði að
þrjár leiðir hefðu verið færar til að
mæta kröfu um 30% niðurskurð á
læknakostnaði – lækkun taxta með
samningum, aukin kostnaðarhlut-
deild almennings eða takmörkun á
aðgengi á þjónustu. Jafnframt sagði
að Sjúkratryggingar Íslands hefðu
sent frá sér tillögur í nóvember 2009
um aðgerðir en ráðuneytið hefði
hafnað þeim öllum.
Eftir áramót hefði starfshópur
undir forystu ráðuneytisstjóra lagt
fram svipaðar tillögur en þeim
hefði einnig verið hafnað.
Ennfremur stóð: „Sparn-
aður um 30% í einum af
stærstu útgjaldaliðum
sjúkratrygginga fæst ekki
nema ráðherra sé sáttur
við þær aðgerðir sem grip-
ið er til því að hann ber á
þeim pólitíska ábyrgð.“
Bjuggust við upp-
sögn á hitafundi
„Stjórnarmönnum fannst fundurinn alveg svakalegur“
Morgunblaðið/Golli
Kaka Guðlaugur Þór Þórðarson var heilbrigðisráðherra þegar Sjúkratryggingar Íslands hófu starfsemi sína.
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Greiningardeild ríkislögreglustjóra
hefur í skýrslum sínum undanfarin
þrjú ár varað eindregið við þeirri ógn
sem stafar af skipulagðri glæpastarf-
semi hér á landi. Jafnframt hefur ver-
ið bent á að lögreglu skortir forvirkar
rannsóknarheimildir til að takast á
við þessa ógn.
Eins og fram hefur komið hyggst
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra
fela réttarfarsnefnd að koma með til-
lögur um þess háttar rannsóknar-
heimildir. Byggist sú ákvörðun henn-
ar á upplýsingum um skipulagða
glæpastarfsemi hér á landi. Spurð
hvaða upplýsingar þetta eru ná-
kvæmlega segir Ragna við Morgun-
blaðið: „Við höfum fengið þær upplýs-
ingar að lögregla þurfi auknar
rannsóknarheimildir til þess að geta
upprætt skipulagða glæpastarfsemi
sem virðist þrífast hér á landi. Ráðu-
neytið mun á næstu vikum taka af-
stöðu til þess hvaða upplýsingar hægt
er að birta, en fyrst er þó að taka mál-
ið upp og kynna á Alþingi.“
Ekki sömu möguleikar og
annars staðar á Norðurlöndum
Yfirmaður greiningardeildar ríkis-
lögreglustjóra, Jón F. Bjartmarz, tjá-
ir sig ekki að sinni um áform dóms-
málaráðherra en ljóst má vera að
meðal þeirra upplýsinga sem ráð-
herra vísar til eru skýrslur greining-
ardeildarinnar sem gerðar hafa verið
árlega frá 2008 um mat á skipulagðri
glæpastarfsemi og hættu á hryðju-
verkum. Í síðustu skýrslu greining-
ardeildar, frá mars 2010, segir m.a.:
„Við hættumat vegna hugsanlegra
aðgerða hryðjuverkamanna á Íslandi
ber að taka fram að lögreglan býr
ekki yfir forvirkum rannsóknarheim-
ildum innan þess málaflokks og má
því ekki safna upplýsingum um ein-
staklinga eða lögaðila liggi ekki fyrir
rökstuddur grunur um tiltekið afbrot.
Möguleikar lögreglunnar á Íslandi til
þess að fyrirbyggja hryðjuverk eru
því ekki þeir sömu og annars staðar á
Norðurlöndum. Þessu fylgir einnig að
íslenska lögreglan hefur mun tak-
markaðri upplýsingar um mögulega
ógn eða hættulega einstaklinga sem
kunna að fremja hryðjuverk eða taka
þátt í að fjármagna slíka starfsemi.“
Í skýrslunni er jafnframt greint frá
helstu ógnunum af skipulagðri glæpa-
starfsemi, eins og mansali, vændi,
innflutningi og framleiðslu fíkniefna,
skipulögðum innbrotum og þjófnuð-
um, peningaþvætti, fjársvikum, hand-
rukkunum, hótunum og fjárkúgun.
Þá er áhyggjum lýst af vélhjólagengj-
um eins og Vítisenglum. Þar sem
Vítisenglar hafi náð að skjóta rótum
hafi aukin skipulögð glæpastarfsemi
fylgt í kjölfarið.
Greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra segir hættuna á hryðjuverkum
á Íslandi vera litla og hættustigið
sambærilegt og á öðrum Norðurlönd-
um. En í skýrslunni segir ennfremur:
„Hafa ber í huga að ekki er unnt að
útiloka að hér á landi fari fram undir-
búningur hryðjuverka sem í ráði er að
fremja erlendis. Nauðsynlegt er því
að yfirvöld haldi vöku sinni.“
Það er ekki hvað síst af þessari
ástæðu, samkvæmt upplýsingum
blaðsins, sem lögreglan telur nauð-
synlegt að fá rýmri heimildir til rann-
sókna. Þær heimildir verða þó háðar
vissum ströngum skilyrðum, eins og
með úrskurði dómara, líkt og dóms-
málaráðherra gaf í skyn í Morgun-
blaðinu í gær.
Ítrekað bent á
ógn af glæpa-
starfsemi
Kallað eftir rýmri heimildum lögreglu
Morgunblaðið/Sverrir
Vítisenglar Hætta er talin af starf-
semi Hells Angels hér á landi.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Í kjölfar slyssins sem varð í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum á dög-
unum, þar sem ung stúlka missti
stóran hluta af hárinu í hringekju
garðsins, sendi Herdís Storgaard,
forstöðumaður Forvarnahússins,
erindi til umhverfisráðuneytisins
þar sem hún vakti athygli á því að
hugsanlega þyrfti að endurskil-
greina öryggismál hans.
„Ég hef átt afskaplega gott sam-
starf við forstöðufólk Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins og þau hafa alltaf
tekið vel í mínar ábendingar. En
það hafa orðið miklar breytingar á
garðinum í gegnum tíðina og mögu-
lega hefur hann
þróast án þess að
sest hafi verið
niður og öryggis-
mál hans skil-
greind upp á
nýtt. Hugsanlega
eru því ein-
hverjar gloppur
til staðar því þeir
eftirlitsferlar
sem þarna eru til staðar eru svolítið
flóknir. Þetta getur hæglega gerst
þegar starfsemin er jafn marg-
breytileg og þarna er.“
Tveir eftirlitsaðilar
Herdís segir að þannig komi
t.a.m. tveir aðilar að málinu í um-
ræddu tilfelli, annars vegar Vinnu-
eftirlitið sem heyri undir félags-
málaráðuneytið og hins vegar
heilbrigðiseftirlitið sem heyri undir
umhverfisráðuneytið. Misjafnt sé
hvað þessir aðilar skoði.
Herdís segist strax hafa fengið
mjög jákvæð viðbrögð frá ráðuneyt-
inu og unnið sé að því að setja sam-
an hóp fulltrúa þeirra sem að mál-
inu koma til þess að kanna hvort
þessi grunur hennar sé á rökum
reistur.
Hugsanlega þörf á að
endurskoða öryggismál
Unnið að málinu
í ráðuneytinu Öryggismál
» Forstöðumaður Forvarna-
hússins hefur óskað eftir því
að öryggismál Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins verði skoðuð.
» Telur hugsanlegt að garð-
urinn hafi þróast án þess að
heildarúttekt hafi verið gerð.
Herdís Storgaard
„Ég hef setið á mörgum erfiðum
fundum um dagana og þá einnig
um sparnað í heilbrigðiskerfi en
aldrei neinn eins og þennan.
Uppsetningin og viðmótið var
eins og skólastjórinn væri að
skamma ódæla nemendur og
teldi þeim allt til foráttu. Stað-
reyndir voru bara færðar í stíl
eftir hentugleikum og þetta var
með ólíkindum. Sakarefnið var
aðallega að ekki hefði tekist að
ná markmiðum fjárlaga en
ráðherra hafði sjálfur ítrekað
hafnað öllum sparnaðar-
tillögum; bæði okkar og henn-
ar eigin starfsfólks. Það
verður að hafa kjark til
að stjórna annars
næst enginn niður-
skurður fram,“ segir
Þórir Haraldsson, fyrr-
verandi stjórnarmaður
hjá Sjúkratryggingum
Íslands.
„Skólastjóri
að skamma“
ÞÓRIR HARALDSSON
Þórir Haraldsson
ódýrt og gott
Big Bistro pizzur, Ham & Mushroom og
Pepperoni.
Fullt verð 449 kr./stk.
898
Verð áður 1347 kr./3 stk.
3 stk!
kr.
3
fyrir2