Morgunblaðið - 18.08.2010, Síða 12
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa
ákveðið að senda 1,2 milljónir
króna úr neyðarsjóði samtakanna
til hjálparstarfsins á flóðasvæð-
unum í Pakistan. Upphæðin dugar
til að sjá 500 fjölskyldum fyrir
nauðþurftum í tíu daga.
Þá hafa SOS Barnaþorpin í Pak-
istan boðið yfirvöldum skjól fyrir
þau börn sem misst hafa foreldra
sína í flóðunum eða orðið viðskila
við þá. Samtökin reka átta barna-
þorp í landinu auk þess sem fjögur
eru í byggingu. Ekkert þessara
barnaþorpa skemmdist í flóðunum.
Íslensk stjórnvöld munu veita 23
milljónir króna til neyðaraðstoðar á
hamfarasvæðunum í Pakistan, að
sögn utanríkisráðuneytisins. 15
milljónir munu renna til verkefna
Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóð-
anna (WFP) og átta milljónir til
verkefna á vegum félagasamtaka,
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Milljónir úr neyðar-
sjóði til Pakistan
Stórflóð Fjölskylda veður út í vatn
á einu flóðasvæðanna í Pakistan.
Borgarskákmótið fer fram fimmtu-
daginn 19. ágúst, og hefst það kl.
16:00. Mótið fer fram venju sam-
kvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og
standa Reykjavíkurfélögin, Tafl-
félag Reykjavíkur og Taflfélagið
Hellir að mótinu eins og síðustu ár.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón
Gnarr, setur mótið og leikur fyrsta
leikinn.
Gera má ráð fyrir að margir af
sterkustu skákmönnum þjóðar-
innar taki þátt í því. Skákmenn eru
hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Mótið er öllum opið og er þátttaka
ókeypis en skráning fer fram á
skák.is.
Þetta er í 25. sinn sem mótið fer
fram og er þetta iðulega eitt best
sótta skákmót hvers árs.
Jón Gnarr leikur
fyrsta leikinn
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
Menntaráð
Reykjavíkur hef-
ur ákveðið að
leita leiða til að
efla námsáhuga
drengja í grunn-
skólum borgar-
innar, en rann-
sóknir sem
gerðar hafa ver-
ið við menntavísindasvið HÍ sýna að
marktækur munur er á námsáhuga
og námsánægju stúlkna og drengja,
og það strax í 1. bekk.
Skipaður hefur verið starfshópur
til að skoða fræðileg gögn og
reynslu skólafólks af aðgerðum til
að koma til móts við þarfir drengja
í grunnskólanum.
Árið 2008 fannst 67% drengja í 1.
bekk grunnskóla gaman að læra en
83% stúlkna.
Námsáhugi
drengja efldur
STUTT
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
fjögurra einstaklinga af þeim níu
sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi
í desember 2008, krafðist þess í gær
að Pétur Guðgeirsson, dómari í mál-
inu, viki úr sæti sínu vegna vanhæf-
is.
„Í samskiptum mínum við dómara
málsins áður en málflutningur hófst
kom í ljós að ég dró í efa hæfi dóm-
arans sjálfs og þá lýsti hann því yfir
að ef ég ætlaði að gera kröfu um að
hann viki úr sæti vegna vanhæfis
ætti ég að gera það nú þegar. Eftir
að hafa ráðfært mig við skjólstæð-
inga mína var ákveðið að krefjast
þess hér og nú að dómari viki úr
sæti. Hin krafan bíður þá bara síns
tíma. Málið var því flutt um þá kröfu
að dómari viki úr sæti,“ sagði Ragn-
ar í samtali við Morgunblaðið að
loknum réttarhöldum í gær.
Dómari kallaði til lögreglu
Lögreglan var kölluð til vegna
gruns um að óspektir gætu orðið
þegar mótmælendum sem mættu í
héraðsdóm var meinuð innganga. Til
töluverðra átaka kom en þegar dóm-
salurinn reyndist fullur var fólki vís-
að út. „Ég hef fengið endanlegar
upplýsingar um það og staðfestingu
á því að allt frá upphafi boðaði dóm-
arinn, í samráði við dómstjórann í
dómstólnum, lögregluna á vettvang.
Þeir hafa þá rætt saman áður en
þessi þinghöld hófust og ég tel að
skjólstæðingar mínir hljóti að upp-
lifa það þannig að afstaða hafi verið
tekin til sektar þeirra fyrirfram með
því að telja þá svo svo hættulega að
það þyrfti að hafa jafnvel tugi lög-
reglumanna hér í húsinu vegna
þeirra,“ segir Ragnar.
Málið fær því ekki efnislega með-
ferð fyrr en dómarinn kemst að
niðurstöðu um sitt meinta vanhæfi.
Ef dómarinn kemst að þeirri niður-
stöðu að hann sé hæfur til að dæma
málið má skjóta því til Hæstaréttar.
Ragnar kveður það vilja skjólstæð-
inga sinna. „Nú bíðum við bara eftir
niðurstöðu dómsins um það hvort
dómarinn víki eða ekki.“
Telja saksóknara vanhæfann
Níumenningarnir eru ákærðir
fyrir brot gegn 100. gr. almennra
hegningarlaga en þar segir að hver
sem ræðst gegn Alþingi, svo að sjálf-
ræði þess er hætta búin, lætur boð
út ganga, sem að því lýtur eða hlýðir
slíku boði skuli sæta fangelsi ekki
skemur en eitt ár en refsingin getur
orðið ævilangt fangelsi ef sakir eru
mjög miklar.
Áður hefur komið fram í fjölmiðl-
um að Ragnar ætlaði að krefjast
þess að málinu yrði vísað frá dómi í
heild sinni vegna vanhæfis ríkissak-
sóknara. Ragnar telur saksóknar-
ann vanhæfan vegna of náinna
tengsla við Alþingi sem „brotaþol-
inn“ í þessu máli.
„Hann er trúnaðarmaður Alþingis
og Alþingi er brotaþoli í málinu. Sá
sem kærði málið er sá sem krafðist
þess að skjólstæðingar mínir yrðu
dæmdir fyrir brot á 100. gr. hegn-
ingarlaga sem er lágmarksrefsing
eitt ár. Þannig er of mikið samband
á milli setts ríkissaksóknara og Al-
þingis sem á óbeina aðild að málinu.“
Kýtt um réttarfar í máli
níumenninganna í héraði
Til átaka kom er mótmælendur kröfðust inngöngu í Héraðsdóm Reykjavíkur
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Níumenningar Hér sést einn sakborninga kýta við lögreglu þegar hún meinaði mótmælendum og stuðningsfólki
sakborninga inngöngu í réttarsalinn þegar hann fylltist. Til átaka kom þegar fólkið neitaði að yfirgefa húsið.
Níumenningarnir
» Verjandi fjögurra af þeim níu
sem eru ákærðir ætlaði að
gera kröfu um að málinu yrði
vísað frá í heild sinni vegna
vanhæfis saksóknara.
» Þegar ljóst var að dómari
hafði kallað til lögreglu áður en
þinghöld hófust taldi verjandi
sakborninga fyrirfram afstöðu
dómarans til málsins skýra og
krafðist þess að hann viki úr
sæti vegna vanhæfis.
Karlmaður á fer-
tugsaldri var í
Héraðsdómi
Reykjavíkur í
gær dæmdur í
3½ árs fangelsi
fyrir nauðgun.
Maðurinn, sem
er pólskur, hefur
ekki áður gerst
sekur um refsi-
verða háttsemi
hér á landi, svo kunnugt sé. Sam-
kvæmt upplýsingum frá yfirvöldum
í Póllandi var hann í mars 2000 sak-
felldur fyrir tilraun til nauðgunar.
Maðurinn, Tomasz Burdzan, var
dæmdur til að greiða konunni 1,2
milljónir kr. í skaðabætur ásamt
vöxtum og 1.173.445 kr. í sakar-
kostnað.
Konan leitaði til lögreglu í júlí á
síðasta ári og lagði fram kæru á
hendur óþekktum aðila fyrir kyn-
ferðisbrot. Í ítarlegri skýrslu sinni
greindi hún m.a. frá því að maður
af erlendu bergi brotinn hefði boðið
henni heim til sín er hún þurfti að
hringja og hann síðan haft samræði
við hana gegn vilja hennar.
Segir í dóminum að framburður
Burdzan hafi verið ótrúverðugur.
Framburður konunnar þótti hins
vegar trúverðugur, en hún skýrði
strax frá nauðguninni.
3½ árs fangelsi
fyrir nauðgun
Héraðsdómur
Reykjavíkur.
Hafin er vinna við að útbúa tímabundinn hjólreiðastíg á
Hverfisgötu sem tekinn verður í notkun á föstudag. Um-
hverfis- og samgönguráð samþykkti á fundi sínum í síð-
ustu viku, þeim fyrsta að loknu sumarfríi, að hleypa
þessu tilraunaverkefni af stað til að efla mannlíf í mið-
borginni og hvetja til aukinna hjólreiða, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Hjólreiðastígar í borginni ná yfir alls um 10 kílómetra
vegalengd. Í hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar sem
samþykkt var í umhverfis- og samgönguráði í janúar síð-
astliðnum kemur fram að til standi að bæta þeirri sömu
vegalengd við á hverju ári næsta áratuginn.
„Hverfisgatan er hluti af þeim tíu kílómetrum sem á að
bæta við á næsta ári. Þessi tilraun mun veita okkur góð
gögn fyrir þá vinnu,“ segir Pálmi Freyr Randversson,
sérfræðingur hjá samgönguskrifstofu.
500 stæði í bílastæðahúsum við Hverfisgötu
Spurður að því hvort tilraunin hafi verið kynnt íbúum
segir Pálmi að gengið hafi verið í hvert hús við götuna á
mánudag. Vissulega hefði verið ákjósanlegt að fyrirvar-
inn væri meiri en ákveðið hafi verið að taka hjólreiðastíg-
inn í gagnið fyrir menningarnótt. Hann segir viðbrögð
íbúa almennt hafa verið góð.
Alls verður 35 gjaldskyldum bílastæðum fórnað fyrir
hjólastíginn en Pálmi segist ekki telja að það skapi
vandamál enda sé þetta lítill hluti af stæðum á þessu
svæði og bendir á að tvö bílastæðahús við Hverfisgötu
séu jafnan vannýtt.
Samkvæmt upplýsingum af vef bílastæðasjóðs eru 223
stæði í bílastæðahúsinu við Vitatorg ofarlega á Hverfis-
götu og 270 í Traðarkoti til móts við Þjóðleikhúsið.
35 bílastæðum fórnað fyrir
hjólastíg á Hverfisgötu
Morgunblaðið/Eggert
Stígur Grænmálaður hjólastígur sunnan megin Hverfis-
götu er tilraun sem stendur frá 20. ágúst-30. september.
Hvatt til hjólreiða með
grænum stíg í miðborginni
Vísitala íbúða-
verðs á
höfuðborgar-
svæðinu lækkaði
um 1,3% í júlí
miðað við júní.
Að sögn Þjóð-
skrár hefur vísi-
talan lækkað um
0,1% síðastliðna
3 mánuði, síðast-
liðna 6 mánuði lækkaði hún um
0,2% og lækkun síðastliðna 12 mán-
uði var 2,9%.
Fasteignaverð í borg-
inni lækkaði í júlí