Morgunblaðið - 18.08.2010, Síða 17

Morgunblaðið - 18.08.2010, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010 Mömmuleikfimi Þar sem skólarnir hafa ekki hafið starfsemi að nýju fékk þessi litli og athuguli snáði að fylgjast með mömmu sinni og fleiri mæðrum í leikfimi í rjómablíðu í Laugardalnum í gær. Ernir Ekki vil ég gera lít- ið úr fréttamati líð- andi stundar en ég vil benda á að samkvæmt fjárlögum þessa árs þá á ríkissjóður að greiða um 100 millj- arða í vaxtagreiðslur samanborið við 87 milljarða árið 2009. Tekjur ríkissjóðs eru 461 milljarður fyrir árið 2010. Vaxta- greiðslur eru rúm ein króna af hverjum fimm. Hvað er hægt að gera við 100 millj- arða? Það er t.d. hægt að:  Greiða rekstr- arkostnað Landspít- alans í þrjú ár og forsætisráðuneytið í eitt ár fyrir afgang- inn.  Greiða rekstrarkostnað við Háskóla Íslands í tíu ár og Menntaskólann á Akureyri í fjög- ur ár fyrir afganginn.  Greiða rekstrarkostnað við Spítalann á Akureyri í 25 ár  Greiða rekstarkostnað við Háskóla Reykjavíkur í 50 ár  Greiða rekstarkostnað við Verkmenntaskólann á Akureyri í 100 ár. Ástæðan fyrir því að við greið- um þessi vaxtagjöld er að við skuldum mikla fjármuni. Brýnt er að stöðva skuldasöfnunina og greiða niður skuldirnar. Það verð- ur ekki gert nema með vönduðum vinnubrögðum. Endurskipuleggja þarf ríkisreksturinn með það að markmiði að halda upp þjónustu á sem flestum sviðum. Tekjur rík- issjóðs þarf að auka með því að auka verðmætasköpun. Ef við tök- um ekki á þessu máli mun það m.a. hafa áhrif á stöðu heimilanna, heilbrigðisþjónustuna, öll velferð- armál, menntamálin og framtíð- arlífskjör komandi kynslóða. Þetta er forgangsmálið! Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Ástæðan fyrir því að við greiðum þessi vaxtagjöld er að við skuldum mikla fjár- muni. Brýnt er að stöðva skuldasöfnunina og greiða niður skuld- irnar. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er þingmaður Reykvíkinga. Ein króna af hverjum fimm í vexti Um árabil hefur ver- ið unnið að stækkun friðlands Þjórsárvera. Svo virðist þó sem nokkurs misskilnings gæti í umfjöllun sjálf- stæðismanna und- anfarna daga. Mér er bæði ljúft og skylt að upplýsa um nokkrar staðreyndir málsins og freista þess að eyða þeim misskilingi sem upp virðist kominn í þeirra röðum. Samhljómur um stækkun Kveðið er á um stækkun friðlands- ins í Þjórsárverum í samstarfsyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar og eru áherslur umhverfisráðherra í sam- ræmi við þá yfirlýsingu eins og gefur að skilja. Stækkun friðlandsins er ekki byggð á geðþóttaákvörðun um- hverfisráðherra heldur á tillagan sér allnokkra sögu. Árið 2003 þegar unn- ið var að náttúruverndaráætlun 2004- 2008 lagði Umhverfisstofnun fram til- lögu til umhverfisráðuneytisins um að friðlandið í Þjórsárverum yrði stækkað verulega til norðausturs og vesturs en þó einkum til suðurs og náði stækkunartillagan suður að Sultartangalóni beggja vegna Þjórs- ár. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007 var sérstaklega tekið fram að „[s]tækkun friðlandsins í Þjórsár- verum verði tryggð þannig að það nái yfir hið sérstaka vot- lendi veranna.“ Á grundvelli þess lagði þáverandi umhverf- isráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrst fram tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013 sem m.a. fól í sér tillögu um að frið- landið í Þjórsárverum yrði stækkað til suðurs þannig að Eyvafen og svæði suður af því yrðu friðlýst sem hluti af friðlandinu. Þetta er í samræmi við tillögur starfshóps sem Þórunn Sveinbjarnardóttir skip- aði til þess að undirbúa áætlunina, en honum var m.a. falið að gera tillögu um friðun Þjórsárvera. Tillögur hóps- ins byggja á rannsóknum á náttúru Íslands og upplýsingum frá Um- hverfisstofnun og Náttúrufræði- stofnun Íslands um verndargildi og ný svæði á náttúruverndaráætlun. Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp til laga um verndar- og nýt- ingaráætlun vegna fallvatna há- hitasvæða og er frumvarpið til með- ferðar hjá iðnaðarnefnd. Það frum- varp byggir m.a. á vinnu undanfarinn áratug við undirbúning að ramma- áætlun um nýtingu vatnsafls og jarð- varma. Er frumvarpinu ætlað að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi vinnu við mat og flokkun á virkj- unarkostum. Í niðurstöðum faghóps I, Náttúra og menningarminjar, segir m.a.: „Það var mat hópsins að nokkur svæði, einkum vatnasvið Jökulsár á Fjöllum, Torfajökulssvæðið/ Frið- land að fjallabaki, Þjórsárver, syðri hluti gosbeltisins við Skaftá/ Langasjó/Tungnaá, Vonarskarð og Markarfljót, væru gríðarlega verð- mæt.“ Nú virðist sem gamall draugur virkjanaáforma við Norðlingaöldu sé að bæra á sér enda sjálfstæðismenn væntanlega nýtt sumarið í að leita uppbyggilegra tillagna fyrir land og þjóð. Í anda þessara nýju en þó gömlu hugmynda halda þeir því fram að engin ástæða sé til að stækka frið- landið til suðurs þar sem á því svæði sé einfaldlega ekkert sem krefst frið- unar. Þessi fullyrðing kemur á óvart því í ritstjórnargrein Morgunblaðsins 17. janúar 2006 segir m.a.: „Málefni Norðlingaölduveitu og Þjórsárvera hafa enn verið í brennidepli að und- anförnu, eftir að Sigríður Anna Þórð- ardóttir umhverfisráðherra hafnaði því fyrir áramót að staðfesta þann hluta af svæðisskipulagi hálendisins, sem snýr að veitunni. … Gild rök eru fyrir því að vernda Þjórsárverin í heild. Náttúruverndargildi þeirra er einstakt. Þau eru stærsta og fjöl- breyttasta freðmýri landsins. Þau eru flæðiengi, sem eru sjaldgæf á hálendi Íslands. Verin hafa verið kölluð fræ- banki og lífræn framleiðni er þar margföld á við auðnirnar í kring. Þar er tegundafjölbreytni plantna, smá- dýra og fugla hvað mest á hálendinu. Þau eru mikilvægasta varpsvæði heiðagæsar í heiminum og njóta verndar ákvæða Ramsar-sáttmálans um votlendi, sem hefur alþjóðlegt gildi. Allt þetta þýðir að í Þjórsár- verum liggja mikil og einstök verð- mæti, sem þjóðin hlýtur að vilja varð- veita í lengstu lög“. Við þessi góðu rök má bæta að Eyvafen er hluti af því svæði sem fellur utan suður- marka núverandi friðlands og er það hluti af hinu sérstaka votlendi ver- anna. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur bent á að sjaldgæfar og mik- ilvægar vistgerðir hálendisins, s.s. rústamýravist og sandmýravist, finn- ist á svæðinu utan friðlandsins, sbr. rökstuðning sem fram kemur m.a. í náttúruverndaráætlun 2009-2013 og skýrslu stofnunarinnar, „Vistgerðir á miðhálendi Íslands. – Flokkun, lýsing og verndargildi“. Því er jafnframt haldið fram að andstaðan við núverandi áform Landsvirkjunar um Norðlingaöldu- veitu séu ýmist byggð á misskilningi eða vanþekkingu.Verið sé að rugla saman eldri hugmyndum um risavax- ið uppistöðulón við nýrri hugmyndir sem fela í sér nýtt miðlunarlón sem verði ekki nema 2-3 ferkílómetrar að stærð og svo gott sem ekkert gróið svæði fari undir vatn yrði veitufram- kvæmdin að veruleika, því mest- megnis yrði hið litla lón í árfarveg- inum. Þessi fullyrðing stenst ekki því það lón sem áætlað er að mynda, verði af framkvæmdum, mun ná tölu- vert út fyrir árfarveginn og inn í Eyvafen og í nærliggjandi gróð- urlendi. Breytt rennsli mun hafa áhrif á fossana og áhrifa mun gæta á landslagsmyndina því áætlað er að mannvirki verði staðsett við jaðar nú- verandi friðlands. Sérstaða á heimsvísu Stækkun friðlands í Þjórsárverum er eitt mikilvægasta náttúruvernd- armál á Íslandi til langs tíma. Sér- staða veranna er á heimsvísu. Póli- tískar áherslur síðustu 6 ára a.m.k. sýna að allir stjórnmálaflokkar hafa gert sér grein fyrir mikilvægi svæð- isins og þess að friðlandið væri stækkað. Það vekur því furðu að Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér nú að berjast fyrir því að Norðlingaöldu- veita komi til framkvæmda þegar enginn stjórnmálamaður hefur séð ástæðu til þess um árabil að draga í efa tillögur fagstofnana umhverf- isráðuneytisins um stækkun frið- landsins og Alþingi hefur samþykkt náttúruverndaráætlun 2009 til 2013 þar sem gert er ráð fyrir stækk- uninni. Umhverfisstofnun hefur fundað með sveitarfélögum sem í hlut eiga varðandi væntanlega stækkun og al- mennt ríkir mikill vilji og skilningur á því að hér er einstakt svæði á ferðinni sem rétt er að taka frá fyrir komandi kynslóðir og í þágu náttúru landsins og jarðarinnar. Skammtímahags- munir eða pólitískt þjark mega ekki verða til þess að sá skilningur láti undan síga. Eftir Svandísi Svavarsdóttur » Stækkun friðlands í Þjórsárverum er eitt mikilvægasta náttúru- verndarmál á Íslandi til langs tíma. Sérstaða veranna er á heimsvísu. Svandís Svavarsdóttir Höfundur er umhverfisráðherra. Stækkun friðlands í Þjórsárverum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.