Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
Með söknuð í
hjarta kveðjum við
ömmu Gunnu. Þegar
við rifjum upp allar yndislegu
stundirnar sem við áttum með
henni hlýnar okkur um hjarta-
rætur. Kærleikur hennar í okkar
garð var óendanlegur og sýndi
hún hann í ýmsum myndum.
Amma Gunna var alltaf tilbúin til
að passa okkur. Við vorum ávallt
velkomin í hádegismat í Skála og
var fátt betra en kjötbollurnar,
grjónagrauturinn eða kjötsúpan
hennar. Þó slógu pönnukökurnar
hennar allt annað út en þær voru
gjarnan í tilkomumiklum stöflum
úti í eldhúsglugga. Þrátt fyrir að
oft var leitað að stóru lyklakipp-
unni hennar ömmu Gunnu þá
brást það aldrei að hún gat komið
manni til bjargar ef við læstum
okkur sjálf úti. Hún átti það
meira að segja til að heita á okk-
ur þegar lyklarnir hennar voru
týndir og fékk einhver heppinn
glaðning þegar þeir komu í leit-
irnar aftur. Amma Gunna var líka
mikill næturhrafn og fannst
skemmtilegt að passa upp á okk-
ur unglingana sem stundum
héldu partí þegar foreldarnir
voru að heiman. Ófáar skemmti-
legar spjallstundir voru við slíkar
aðstæður þar sem hún komst að
Guðrún Kristjánsdóttir
✝ Guðrún Krist-jánsdóttir
fæddist í Móabúð í
Grundarfirði 12.
janúar 1916. Hún
andaðist 3. sept-
ember 2010.
Útför Guðrúnar
var gerð frá Sel-
tjarnarneskirkju
17. september
2010.
því hverra manna
vinir okkar væru,
tók jafnvel nokkur
dansspor eða bara
tryggði að allt færi
vel fram. Okkur
þóttu þessar stundir
ómetanlegar og
ekki má gleyma að
yfirleitt festi amma
Gunna þær á filmu
því hún var alltaf
með myndavél í
veskinu.
Með söknuð í
hjarta varðveitum
við allar gleðistundirnar sem við
upplifðum með ömmu Gunnu.
Munu þær veita okkur huggun í
sorg okkar, sem og hlýju í hjarta
og styrk um ókomna tíð er við
minnumst hennar.
Dætrum ömmu Gunnu færum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Þið eruð í bænum okkar
og biðjum við að Guð gefi ykkur
styrk í sorginni og gleði í minn-
ingum ykkar.
Stefán, Anna Þóra, Berglind,
Benedikt, Vigdís, Trausti og
langömmubörnin Alexander,
Guðmundur, Kristjana, Saga,
Logi og Sóley.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Elsku langamma, mér þykir
svo vænt um þig.
Anna Birta.
Elsku amma langa, ég vil
þakka þér fyrir margt og meðal
annars það að hafa hugsað vel um
mig þegar ég var lítil. Ég á marg-
ar góðar minningar úr Skála, t.d.
úr eldhúsinu þar sem þú töfraðir
fram pönnukökur og sópaðir kött-
inn. Ég vona að þú hafir fyrirgefið
mér það þegar ég stakk af úr
garðinum þínum og hljóp upp í
sundlaug. Ég var bara að leita að
afa! Ég vil líka þakka þér fyrir
þennan prýðilega svarta húmor
sem gerði tilveruna litríkari. Ég
myndi vilja segja frá mörgum
gullkornunum þínum en mörg
þeirra eru ekki prenthæf, svo ég
segi bara frá þeim í góðra vina
hópi.
Amma Guðrún, því að amma
vildi meina að hún væri sko ekkert
löng, festi æsku mína, og reyndar
allra hinna líka, á filmu. Nýlega
rataði til mín myndaalbúm sem
geymir fjölda mynda af okkur
tveimur.
Síðasta minning mín um okkur
saman var þegar ég heimsótti þig
fyrir stuttu á Hrafnistu með
myndaalbúmið í fórum mínum og
útskýrði fyrir þér ýmislegt sem þú
mundir ekki svo glöggt eftir.
Þetta myndaalbúm geymir góðar
æskuminningar og er til vitnis um
hlýjuna sem ríkir í stórfjölskyld-
unni.
Takk fyrir húmorinn, þín
Elísabet Elma Líndal.
HINSTA KVEÐJA
Nú er lífsins leiðir skilja,
lokið þinni göngu á jörð.
Flyt ég þér af hljóðu hjarta,
hinstu kveðju og þakkargjörð.
Gegnum árin okkar björtu,
átti ég þig í gleði og þraut.
Umhyggju sem aldrei gleymist,
ávallt lést mér falla í skaut.
(Höf. ók.)
Reynir Þór, Elín Thelma,
Emilía Mist og Stefán Darri.
Með svanaflugi flýr
hún,
til fegri landa snýr
hún,
þar sól og sæla er vís.
Þar blómalund sér býr hún
mín blíða sumardís.
Hún flýr með hörpuhljóminn
og himinglaða róminn.
En hér er kalt og hljótt.
Ég sit með bliknuð blómin
og berst við langa nótt.
Með hryggð og kvíðáí hjarta
ég horfı́ á skuggann svarta,
sem óðum yfir fer.
Ó, blómadís mín bjarta.
ég bið að heilsa þér.
(Guðmundur Magnússon (Jón
Trausti))
Þetta fallega ljóð söng hún
móðir okkar svo oft. Hún er vafa-
lítið farin að raula það fyrir Kollu
nú, handan móðunnar miklu, því
þar er örugglega mikið sungið.
Kolla var gift elsta bróður mín-
um, Sigurði, í 14 ár. Hún kom inn
í fjölskylduna, með sól og sælu,
eins og „björt blómadís“. Óvenju
glæsileg stúlka, fínleg, prúð, ljúf
og heillandi, uppalin í vöggu ey-
firskrar bændamenningar. Hún
kom úr stórum, fallegum systk-
inahópi.
Þau voru falleg hjón, Siggi og
Kolla, bæði gædd ríkum hæfileik-
um, sem sannarlega hafa erfst til
afkomenda þeirra.
Kolla var mikill fagurkeri og
Kolbrún Daníelsdóttir
✝ Kolbrún Daníels-dóttir fæddist að
Samkomugerði í
Eyjafirði 12. apríl
1936. Hún lést á
Landspítalanum í
Reykjavík 9. sept-
ember síðastliðinn.
Kolbrún var jarð-
sungin frá Bústaða-
kirkju 17. september
2010.
hög í höndum, svo af
bar. Um það bera
glöggt vitni ótal
margir fallegir hlut-
ir, fatnaður, út-
saumsstykki og ný-
lega saumaði hún
upphluti, sem litlar,
fínar dömur skarta í
Ameríku. Hún hafði
líka mikinn áhuga á
leiklist og lék um
tíma hjá Leikfélagi
Akureyrar. Kolla var
einnig góður upples-
ari og seinni árin
starfaði hún með
ljóðahópi í Hæðargarði í Rvík. Sá
hópur hefur verið ötull að fara um
landið og lesa ljóð. Ég veit að það
var mikils virði fyrir Kollu.
Stóra barnahópinn sinn elskaði
hún þó framar öllu.
Ég læt hugann reika 40-50 ár
aftur í tímann. Það er sól, fugla-
söngur, allt ilmar af nýslegnu
grasi. Búið að dúka kaffiborð í
stofunni, kökuilmur í bænum og
systkini mín að koma heim með
litlu fjölskyldurnar sínar. Stund-
um er farið fram í Skarð, eða ef til
vill í Vaglaskóg. – Það var alltaf
sól.
Hin síðari ár hefur verið minni
samgangur milli okkar, en við
hefðum báðar viljað. Það kennir
okkur, að geyma ekki til morguns,
það sem við getum gert í dag. En
góðar minningar gleymast eigi.
„ Ó, blómadís mín bjarta, ég bið
að heilsa þér“
Elsku Gunnhildur, Bragi og
Þórður, tengdabörnin, kæri bróðir
Sigurður, barnabörnin öll og lang-
ömmubörnin, aðrir aðstandendur.
Við biðjum Guð að styrkja ykk-
ur í sorginni og geymum minn-
inguna um dásamlega konu.
Fyrir hönd systkinanna frá
Hléskógum og þeirra fjölskyldna.
Laufey Egilsdóttir.
Í gegnum tíðina hef ég oft
hugsað um það að mínar bestu
æskuminningar eru frá því þegar
ég var hjá ömmu Kollu á Ísafirði.
Það var svo notalegt að vera í ná-
vist hennar og þegar ég kom í
heimsókn til hennar var ég kóng-
ur. Núna þegar amma er farin leit-
ar minningin enn sterkar á hug-
ann. Ég gæfi allt til að upplifa
þennan tíma aftur. Hver á núna að
stoppa í sokkana mína, gera við
inniskóna og laga fötin mín?Amma
mín, bara að ég gæti hitt þig einu
sinni enn til að segja þér hvað mér
þykir vænt um þig. Ég vona að þú
hafir skynjað það þó að ég hafi
sennilega ekki sagt þér það nógu
skýrt. Kannski verður andlát þitt
til þess að ég verði duglegri við að
segja öðrum hvað mér þykir vænt
um þá. Ég vona það. Það er mér
huggun að þú þjáðist ekki lengi og
þú hefðir eflaust sagt að þér þætti
betra að fara á undan okkur hinum
sem þér þótti óendanlega vænt
um. Amma, ég elska þig.
Haraldur Pétursson.
Elsku amma Kolla.
Ég man…Góðu kjötbollurnar
þínar. Fleiri og fleiri ættarmót.
Ljúffengu engiferkökurnar þínar.
Klukkuna sem hringdi alls konar
fuglahljóðum. Öll fötin sem þú
lengdir, styttir og lagaðir. Að vera
í pössun hjá þér. Sitja í sófanum
hjá þér og prjóna. Þig standa við
eldavélina og búa til skonsur.
Hvernig þú hjálpaðir mér þegar ég
var fótbrotin. Hvernig þú kenndir
mér Pollýönnuleikinn. Að alltaf
þegar ég var á leiðinni frá Reykja-
vík og aftur heim til Akureyrar
gafstu mér lítinn plastpoka með
nammi í fyrir nesti. Fallegu
skrautdiskarnir sem héngu upp á
vegg hjá þér. Mjúku hendurnar
þínar. Þitt einstaka, góða, jákvæða
og frábæra skap.
Ég er stolt og glöð yfir því að
vera skírð í höfuðið á skemmtileg-
ustu og bestu ömmu í heimi. Ég
mun ætíð sakna þín, elsku amma
Kolla.
Með ástar- og saknaðarkveðju.
Kolbrún María Bragadóttir
(Kolla Mæja.)
✝
Þökkum samkennd og hlýhug við andlát og útför
elsku drengsins okkar,
GUÐMUNDAR ÞÓRS SIGURÐSSONAR,
Smárarima 75,
Reykjavík.
Halldóra Kristín Halldórsdóttir,Sigurður Brynjar Guðmundsson,
Jón Valdimar Sigurðsson, Þorbjörg Birgisdóttir,
Halldór Brynjar Sigurðsson, Thelma Björk Bogadóttir,
Kristinn Freyr Sigurðsson, Kristín Eva Ólafsdóttir,
Unnur Jónsdóttir, Halldór H. R. Friðjónsson,
Arnar Freyr, Alexander Þór, Kristín Björk
og frændsystkini.
✝
Hjartans þakkir til allra sem hafa sýnt okkur
samhug, stuðning, hjálpsemi og vináttu eftir fráfall
dóttur minnar og systur,
JÓHÖNNU SILJU VILHJÁLMSDÓTTUR
og minnst hennar af hlýju og vinsemd.
Birna Ósk Eðvarðsdóttir,
Óskar Jóhann Birnuson
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu, í orðum sem og gjörðum, við
andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður,
dóttur, systur og ömmu,
BRYNDÍSAR HELGADÓTTUR,
Sæbakka 18,
Neskaupstað.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11E á
Landspítalanum og starfsfólki í heimaþjónustu
Karitas fyrir einstaka alúð í allri umönnun svo og
hlýhug og nærgætni við aðstandendur.
Jón Grétar Guðgeirsson,
Guðlaug Helga Þórðardóttir, Kári Jóhannsson,
Íris Dögg Jónsdóttir, Sigurður M. Svanbjörnsson,
Guðgeir Jónsson, Esther Bergsdóttir,
Arnar Freyr Jónsson, Eydís Heimisdóttir,
Helgi Guðnason, Guðlaug Einarsdóttir,
Guðný Helgadóttir, Ólafur Guðmundsson,
Linda Björk Helgadóttir, Eiríkur Hilmarsson
og barnabörnin.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og vinar,
,STEINS Þ. STEINSSONAR
fyrrverandi héraðsdýralæknis,
Þverholti 24,
Reykjavík.
Þökkum einnig starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun.
Þorsteinn Steinsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Finna Birna Steinsson, Baldur Hafstað,
Friðrik Steinsson,
Bryndís Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ARTHÚRS PÉTURSSONAR
frá Syðri–Vík,
Vopnafirði.
Kristín Brynjólfsdóttir,
Ásdís Arthúrsdóttir,
Svanur Arthúrsson, Monserat Arlette,
Brynhildur Arthúrsdóttir, Guðbrandur Stígur Ágústsson,
Margrét Arthúrsdóttir, Heiðar Kristbergsson
og barnabörn.