Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 8. S E P T E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  218. tölublað  98. árgangur  EKKI EINFALT MÁL AÐ TALA FYRIR GEIT OG HUND AMIINA OG MARÍA, HJÓLAGARÐUR NÝ HEIMILDARMYND UM RAGGA BJARNA FRUMSÝND SUNNUDAGSMOGGINN KVIKMYNDAHÁTÍÐ 46PRUFUTÍMINN 10  Upplausn varð á Alþingi í gær eftir að á daginn kom að enginn pólitísk sátt var um það hvort og þá hvernig aðgangur þingheims yrði að lögfræðilegum álitum sem unnin voru fyrir þingmannanefnd- ina, sem gjarnan hefur verið kennd við Atla Gíslason, formann nefndarinnar og annan tveggja fulltrúa VG í henni. Niðurstaðan varð sú, eftir fundi með formönnum þingflokka og fund með þingmannanefnd Atla, að þingheimur fengi aðgang að álitum lögspekinganna, í sér- stökum trúnaðarmöppum á Al- þingi, yfir helgina. Helsta gagnrýni viðmælenda Morgunblaðsins úr röðum þing- manna felst í því, að almenningur á Íslandi eigi ekkert að fá að vita um lögfræðiálitin. Var ekki annað að heyra á þingmönnum sem rætt var við í gær og fram eftir kvöldi en þeir teldu að vandanum hefði einungis verið slegið á frest. Jafn- framt var ljóst að flestir viðmæl- endur töldu að djúp gjá hefði myndast á milli stjórnarflokkanna í meðförum þeirra á þessu mjög svo viðkvæma og erfiða máli. »2 Þingmenn segja vanda vegna lands- dóms slegið á frest Nýr valkostur » Dímetýl-eter (DME) er litar- laust gas sem hægt er að nota sem eldsneyti í lítið breyttum dísilvélum en það er þá fljót- andi og undir þrýstingi. » Fjármögnun er ekki lokið en gasið er jafndýrt og dísilolía ef það ber ekki skatt. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árið 2014 er stefnt að því að ný verk- smiðja sem framleiðir dímetýl-eter, litarlaust gas sem hægt er að nota sem eldsneyti, verði komin í gagnið á Grundartanga og að framleiðslan, um 500 tonn á dag, sjái íslenska skipaflotanum fyrir eldsneyti. Um er að ræða svokallað gervi- eldsneyti, en gasið verður framleitt með því að blanda saman koldíoxíði frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga og vetni sem sótt yrði með rafgreiningu í verksmiðjunni. Gasið hentar vel í skip, en það má nota í lítið breyttum dísilvélum. Þriðjungur eldsneytisnotkunar Jafnan er miðað við að eldsneytis- notkun landsins skiptist nokkuð jafnt á milli samgangna á lofti, láði og legi og mun framleiðslan því draga stórlega úr þörfinni fyrir inn- flutt eldsneyti. Notkun í flugi kemur ekki til greina á þessu stigi en síðar stendur til að flytja út eldsneyti. Hi- roaki Takatsu, aðstoðarforstjóri Mitsubishi Heavy Industries, móð- urfélags Mitsubishi, staðfestir að undirbúningsvinnan sé langt komin. Eftir um ár geti framkvæmdir hafist við verksmiðju sem kosta muni um um 58 milljarða króna í uppsetningu. Verkefnið er unnið í samvinnu við íslensk stjórnvöld. Skv. heimildum Morgunblaðsins skapar verksmiðjan 150-250 störf. Risaverksmiðja í pípunum  Mitsubishi undirbýr stórfellda framleiðslu á gervieldsneyti á Grundartanga  Framkvæmdir upp á 58 milljarða  Mun sjá skipaflotanum fyrir eldsneyti MFlytji út eldsneyti »20 Óvissa ríkir um stöðu sjómanna og bænda, sem tekið hafa gengistryggð lán, í kjölfar dóms Hæstaréttar í vik- unni og þeirrar lagasetningar sem boðuð var í kjölfarið. Árni Páll Árna- son boðaði það að hin nýju lög, sem fela það í sér að gengistryggingar- ákvæði lánasamninga skuli gerð ólögmæt og í þeirra stað miðað við lægstu óverðtryggða vexti Seðla- bankans, nái einungis til einstak- linga. Talsmaður Bændasamtakanna undrast það að gert sé að aðalatriði hver lánþeginn sé. Annaðhvort séu lánasamningar einfaldlega löglegir eða ólöglegir. Héraðsdómur hefur fengið til um- fjöllunar mál þar sem bóndi deilir við Arion banka um lögmæti gengis- tryggingar á láni sínu. Allar fjárhæð- ir þess eru tilgreindar í íslenskum krónum. Jafnframt deilir sjómaður á Vestfjörðum við slitastjórn Icebank um lögmæti lánasamnings síns. Fyr- irhuguð löggjöf nær til hvorugs þessara aðila. »16 Mannamunur gerður með löggjöf?  Segja dóm Hæstaréttar ekki aðeins ná til gengistryggðra lána einstaklinga Þegar Þórunn Mayer kom hingað til lands á ní- ræðisafmæli sínu hét hún því að koma aftur að tíu árum liðnum og halda upp á 100 ára afmælið hér. Við það stóð hún og fagnaði tímamótunum með sínu fólki í gær. Þórunn, sem er fyrir miðju á myndinni, fæddist í Bandaríkjunum og hefur búið þar alla sína tíð en hefur haldið góðum tengslum við landið í norðrinu og er bundin því sterkum böndum. »4 Íslandsheimsókn til að fagna aldarafmælinu Morgunblaðið/Eggert  „Við erum afar sátt við það að þessi skýrsla sé komin fram með þessa niðurstöðu og teljum að hún hreinsi loftið,“ segir Ásgeir Mar- geirsson, forstjóri Magma á Íslandi. Nefnd um orku- og auðlindamál, sem falið var að fjalla um kaup Magma Energy á HS Orku, komst að þeirri niðurstöðu að engir aug- ljósir annmarkar væru á þeim. »4 Segir skýrslu nefnd- ar „hreinsa loftið“ Morgunblaðið/Ómar Umdeilt Afdrif HS Orku skýrast. Heildarvirði erlendra lána ein- staklinga hjá bönkunum er 186 milljarðar króna, eða 18% af heild- arvirði allra erlendra lána. Afleið- ingar hæstaréttardómsins, sem féll í fyrradag, og boðaðrar laga- setningar eru því ekki meiri en svo að bankakerfið ætti að ráða vel við þær. Fjármálaeftirlitið hefur gert þá kröfu til viðskiptabankanna að eiginfjárhlutfall þeirra fari ekki niður fyrir 16%. Í tilkynningum Ís- landsbanka og Arion banka kemur fram að eiginfjárhlutfall þeirra fari ekki niður fyrir það viðmið. Í til- kynningu frá NBI segir að áhrif dómsins á efnahag bankans séu óveruleg. »22 Áhrifin á bankana óveruleg LAGASETNING UM GENGISBUNDIN LÁN Óvenjulegir viðskiptahættir með ríkisskuldabréf rétt fyrir lokun markaða í gær, í svokölluðum upp- boðsglugga, eru til rannsóknar í Kauphöllinni samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Málsatvik voru þau að stór sölutilboð voru lögð inn í fjórum skuldabréfaflokkum, sam- tals að andvirði um 400 milljónir króna, í uppboðsglugganum, sem einungis er opinn í nokkrar mín- útur. Talið er að öll tilboðin hafi borist frá sama aðila. Þegar mót- aðilar gáfu til kynna að þeir vildu kaupa skuldabréfin voru sölu- tilboðin skyndilega dregin til baka, áður en gengið hafði verið frá við- skiptunum. einarorn@mbl.is Markaðsmisnotkun til rannsóknar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.