Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 1
ÓMARSHÁTÍÐ, FRUMSÝNING OG BÍÓ PARADÍS ÞYNGRI DÓMAR YFIR KANNABISRÆKTENDUM ÖRVAR KRISTJÁNS HEFUR SPILAÐ Á NIKKU Í 60 ÁR SKÝR SKILABOÐ 16 GEFUR ÚT NÝJAN DISK 10FLUGAN FLAUG VÍÐA 32 Fréttaskýring eftir Andra Karl og Jón Pétur Jónsson Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Síðastliðinn laugardag voru sextíu ár liðin frá því að áhöfn Geysis, flug- vélar Loftleiða, fannst heil á húfi á Bárðarbungu á Vatnajökli eftir að hafa brotlent þar fimm dögum fyrr. Af því tilefni stóðu Icelandair, Flugfélag Íslands, Þristavinafélagið, Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur og Flugsafn Íslands fyrir athöfn á Ak- ureyri til að minnast björgunarstarfs og þeirrar mildi að ekki fór verr. Flogið var á DC-3-flugvélinni Páli Sveinssyni og úr henni vörpuðu flug- björgunarsveitarmenn pökkum í fallhlíf og loks sjálfum sér. „Þeir vörpuðu þarna úr Þristinum, það var táknrænt því það var gert líka þegar búið var að finna þau. Þá hentu björgunarsveitarmenn vistum niður til þeirra á jöklinum,“ segir Gestur Einar Jónasson, safnstjóri Flugsafns Íslands á Akureyri. Báðir flugmenn Geysis fóru norð- ur til að taka þátt í athöfninni og fylgdust með af jörðu niðri. Mikið vonskuveður var á Vatna- jökli þegar Geysir brotlenti en þar mátti áhöfnin hírast í fimm daga áð- ur en henni var bjargað. Um borð í vélinni var mikið af fataefnum sem áhöfnin nýtti til að halda á sér hita, „Svo lágum við bara í einni kös til að reyna að halda á okkur hita. Hefðum við ekki haft þessi fataefni um borð í vélinni veit ég ekki hvert við hefðum farið, svei mér þá.“ MSextíu ár liðin »12 Minntust Geysisslyssins með fallhlífarstökki  Sextíu ár liðin frá brotlendingu Geysis á Bárðarbungu á Vatnajökli Ljósmynd/Hörður Geirsson DC-3 Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur stökk úr Þristinum í fallhlíf yfir Akureyri á laugardag. Báðir flugmenn Geysis fylgdust með af jörðu niðri. Í huga flestra flengjast smalar um á flugviljugum fákum sínum um óbyggð- irnar til að hóa saman jarmandi kindum en nú gerist það æ algengara að tæknin sé nýtt til að halda saman fjárhópum í smalamennskum. Þessi ungi maður fór mikinn á fjórhjóli við malbikaðan afleggjara að Seljalandsfossi um helgina. Hann er því sannkallaður nútímasmali við þjóð- veginn, með hund sér til hjálpar eins og vera ber. Smalar þeysa um á fjórhjólum á malbikinu Morgunblaðið/Eggert Þórður Gunnarsson Bergþóra Njála Guðmundsdóttir Félagsmálaráðherra segist munu kanna for- sendur Hæstiréttar í dómi um að veðbönd skyldu standa á fasteign tengdaföður einstak- lings sem fékk skuld sína hjá SPRON fellda niður með greiðsluaðlögun. Slík niðurstaða sé ekki í anda laga um greiðsluaðlögun. Umræddur dómur féll í síðustu viku. Með honum var felld úr gildi staðfesting héraðs- dóms á þeirri ákvörðun sýslumanns að afmá veðbönd af fasteign í eigu tengdaföður manns, sem fékk samþykktan samning til greiðsluað- lögunar í fyrra. Samkvæmt samningnum voru eftirstöðvar skuldabréfs sem tekið var hjá SPRON árið 2004 felldar niður, en veðið í eign tengdaföðurins var vegna þeirrar skuldar. Mun skoða dóminn betur Í dómi Hæstaréttar er vísað í ákvæði gjald- þrotalaga um að nauðasamningur haggi ekki rétti lánardrottins til að ganga að tryggingu sem þriðji maður veitir vegna skuldbinding- arinnar. Ekki var hróflað við þessu ákvæði í lögum um greiðsluaðlögun. Guðbjartur Hannesson, heilbrigðis-, trygg- inga- og félagsmálaráðherra, segist telja að nið- urstaða Hæstaréttar sé ekki í anda laga um greiðsluaðlögun. „Hugmyndin var að veðbönd yrðu endurskoðuð ef menn stokkuðu upp og endurskoðuðu lán með greiðsluaðlögun. Þá væri tryggt að persónuleg veð yrðu látin falla niður í leiðinni. Ég þarf hins vegar að skoða hvaða forsendur Hæstiréttur hefur gefið sér í þessum dómi til að átta mig á hvað þarna býr undir.“ MHægt að ganga að veðum » 14 Ekki í anda laga um greiðslu- aðlögun að mati ráðherra  Heimilt að ganga að veði ábyrgðarmanns samkvæmt nýjum hæstaréttardómi  Í gær var gengið frá sölu á danska bankanum FIH til fjár- festahóps sem er aðallega byggður upp af dönskum lífeyrissjóðum. Seðlabanki Íslands er með allsherj- arveð í tæplega 99% hlutafjár bank- ans. Seðlabankinn veitti Kaupþingi 500 milljón evra þrautavaralán á haustmánuðum 2008 og tók veð í FIH. Á gengi dagsins í dag eru það 75 milljarðar króna. Samkvæmt samkomulaginu um söluna mun Seðlabankinn strax fá 39 milljarða króna. Að auki mun Seðlabankinn fá allt að 65 milljarða króna á næstu fjórum árum, en sú upphæð verður leiðrétt með tilliti til þess taps sem FIH kann að verða fyrir vegna eigna á efnahagsreikningi bankans. Enn fremur verður greiðsla frá fjárfestahópnum sem kaupir bankann sem byggist á arð- semi fjárfestingarinnar fram til 2015. FIH seldur fyrir allt að 103 milljarða  Ríkisstjórn miðju- og hægri- flokka verður áfram við völd í Sví- þjóð eftir sögulegar þingkosningar sem fram fóru í gær, en borgar- alegri ríkisstjórn hefur ekki tekist að halda völdum eftir kosningar þar í landi í tæp 80 ár. Samtals fengu miðju- og hægriflokkarnir fjórir 49,3% atkvæða og 172 sæti á sænska ríkisþinginu af 349 þing- sætum en rauðgrænt bandalag vinstriflokkanna fékk 43,7% at- kvæða og 157 þingsæti. Ljóst er að úrslit kosninganna þýða að Fredrik Reinfeldt, leiðtogi bandalags miðju- og hægriflokk- anna, mun sitja áfram á stóli for- sætisráðherra Svíþjóðar. »15 Ríkisstjórnin hélt velli í Svíþjóð Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra.  Stofnað 1913  219. tölublað  98. árgangur  M Á N U D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 1 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.